Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kemur út sex daga vikunnar í 700-900 þúsund eintökum Dagsbrún stefnir að því að hefja útgáfu fríblaðs í Danmörku á þessu ári. Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar, segir að miðað sé við að upplag blaðsins verði 700-900 þúsund eintök og það komi út sex daga vikunnar. 16.3.2006 16:29
Glitnir hækkar vexti á húsnæðislánum Glitnir, áður Íslandsbanki, hefur ákveðið að hækka vexti sína á verðtryggðum húsnæðislánum um 0,13%. Breytingin hefur ekki áhrif á kjör þeirra sem þegar hafa tekið húsnæðislán hjá Glitni. Vextir nýrra lána hækka úr 4,35% í 4,48%. KB-banki tilkynnti um hækkun á vöxtum á húsnæðislánum sínum í gær. En vextir lánanna hjá KB-banka eru nú 4,3% en voru áður 4,15%. 16.3.2006 15:59
Gengið frá kaupum á Strætólóðinni Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, og Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, undirrituðu í dag samning um kaup bankans á byggingarrétt á hluta Strætólóðarinnar við Kirkjusand. Bankinn hyggst nýta lóðina til frekari uppbyggingar fyrirtækisins hér á landi. Glitnir greiðir um einn milljarð króna fyrir bygginarréttinn og fær svæðið afhent í tveimur áföngum, haustið 2006 og haustið 2007. 16.3.2006 15:32
Hrokafullur stjórnunarstíll Valur Ingimundarson, sérfræðingur í varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna, segir það koma sér á óvart hve mild viðbrögð íslenskra stjórnvalda séu við ákvörðun Bandaríkjamanna að draga stórlega úr umsvifum varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Hann segir Bandaríkjamenn beita hrokafullum stjórnunarstíl. 16.3.2006 15:15
Hraða þarf viðræðum Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, gerði þingheimi í hádeginu grein fyrir ákvörðun Bandaríkjamanna frá í gær um að draga úr starfsemi varnarliðsins í Keflavík á næstu mánuðum. Hann sagði að hraða þyrfti viðræðum um áframhaldandi samstarf. Formaður Samfylkingarinnar segir viðræður hingað til augljóslega ekki hafa skilað neinu. 16.3.2006 14:10
Fyrstu skref í átt að útgáfu fríblaðs í Danmörku Dagbrún hefur tekið fyrstu skrefin í átt að stofnun fríblaðs í líkingu við Fréttablaðið í Danmörku með stofnun 365 Media Scandinavia þar í landi. Dagsbrún hefur áður lýst yfir að það hefði uppi áform um útrás á erlenda markaði með áherslu á Norðurlönd og Bretland. 16.3.2006 14:04
Undirbúningsframkvæmdir hafnar Hafnar eru undirbúningsframkvæmdir í Austurhöfn í Reykjavík og gætu nærliggjandi fyrirtæki og íbúar farið að finna fyrir nokkru raski fljótlega. Kostnaður við undirbúningsframkvæmdirnar er yfir 1,3 milljarðar króna. 16.3.2006 13:48
Hugtakið lán og trúverðugleiki vitna réð úrslitum Sýknudómur Héraðsdóms Reykjavíkur í Baugsmálinu byggir aðallega á skilgreiningu á hugtakinu lán og trúverðugleika vitna eins og Jóns Geralds Sullenbergers. Dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að vitnisburður Jóns Geralds hafi verið ótrúverðugur þar sem hann beri kala til Jóns Ásgeirs og fjölskyldu hans. 16.3.2006 13:15
Ákvörðun Bandaríkjamanna þarf ekki að koma á óvart Sú ákvörðun ráðamanna í Bandaríkjunum að draga stórlega úr starfsemi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli þarf ekki að koma á óvart í ljósi atburða vorið 2003 þegar einhliða ákvörðun Bandaríkjamanna um brotthvarf þotna og þyrlna var kynnt forsætisráðherra. Síðan þá hefur legið ljóst fyrir að Bandaríkjamenn vildu breyta rekstri sínum hér á landi. 16.3.2006 13:00
Ratsjárstöðvum lokað innan tíðar Margt bendir til þess að ratsjárstöðvunum hér á landi verði lokað innan tíðar því hernaðarlegum tilgangi þeirra lýkur í raun þegar herþoturnar verða fluttar frá Keflavíkurflugvelli í haust. 16.3.2006 12:45
Geta átt von á uppsögnum Allir starfsmenn, bæði íslenskir og bandarískir voru boðaðir á fund í stóra flugskýlinu á Keflavíkurflugvelli í morgun vegna frétta um stórfellda fækkun hjá varnarliðinu. Á fundinum var starfsmönnum kynnt að það mætti eiga von á uppsögnum. 16.3.2006 12:30
Hermönnum í Keflavík fækkað um 60% á 15 árum Bandarískum hermönnum í varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli hefur fækkað um rúm 60% frá endalokum kalda stríðsins fyrir fimmtán árum og enn frekari fækkun þýðir að ýmsum þjónustustofnunum á vellinum verður lokað. 16.3.2006 12:12
Undirrita samning um þekkingarnet Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Valgerður Sverrisdóttir undirrita klukkan eitt í dag samning um stofnun og rekstur Þekkingarnets Austurlands ásamt fulltrúum Fræðslunets Austurlands. 16.3.2006 11:44
Frávísunartillaga felld Frávísunartillaga stjórnarandstöðuflokkanna um vatnalagafrumvarp iðnaðarráðherra var felld á Alþingi í morgun með 28 atkvæðum gegn 23. 16.3.2006 11:30
Bónus fékk Neytendaverðlaunin Handhafi Neytendaverðlauna Neytendasamtakanna og Bylgjunnar 2006 er verslunin Bónus. Verðlaunin voru afhent í gær í tilefni af alþjóðadegi neytendaréttar. 16.3.2006 11:15
Dómsmálaráðherra spurður hvað Baugsmálið kostaði Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, var spurður að því á Alþingi í morgun hvort hann gæti svarað til um hvað málareksturinn í Baugsmálinu hefði kostað ríkið. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingar, spurði hvort ráðherra gæti svarða því hve mikill tími og mannafli hefði farið í málið og hvaða önnur mál hefðu beðið hjá Ríkislögreglustjóra á meðan rannsóknin stóð. 16.3.2006 10:48
Baugsmálið rætt á þingi Sigurjón Þórðarsons, þingmaður Frjálslynda flokksins, ynnti dómsmálaráðherra við upphaf þings í morgun eftir viðbrögðum við sýknudómi í Baugsmálinu. Hann taldi rétt að farið yrði yfir málið enda hafi kostnaður vegna þess verið gríðarlegur. Hann spurði dómsmálaráðherra hvort hann myndi axla pólitíska ábyrgð vegna málsins. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, sagði ræðu Sigurjóns vera fyrir neðan virðingu þingsins og að hann myndi ekki ræða Baugsmálið í sölum Alþingis. 16.3.2006 10:41
Óvissa með verð fyrir grásleppuhrogn Það er af sem áður var þegar allir trillukarlar, sem vettlingi gátu valdið, lögðu net sín strax á fyrsta degi grásleppuvertíðar, í von um gull og græna skóga. Aðeins einn bátur réri til dæmis frá Húsavík, þegar vertíðin hófst á noðrausturlandi um helgina, og á öllu svæðinu frá Grenivík austur til Vopnafjarðar, réru aðeins fjórir bátar. 16.3.2006 10:15
Utanríkisráðherra gefur Alþingi skýrslu Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, mun gera þingheimi grein fyrir stöðu varnarmála á þingfundi sem hefst á Alþingi kl. 10:30 í dag. Á fundinum mun ráðherra gefa munnlega skýrslu um varnarviðræður Íslands og Bandaríkjanna í ljósi þeirra frétta frá í gær að Bandaríkjamenn ætli að flytja þotur sínar og þyrlur frá Keflavíkurflugvelli í síðasta lagi í september og draga verulega úr starfsemi varnarliðsins þar. 16.3.2006 10:00
8 mánaða dómur fyrir líkamsárás og bílþjófnað Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær karlmann á þrítugsaldri í 8 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás og bílþjófnað. Maðurinn hafði áður komist í kast við lögin. Honum er einnig gert að greiða fórnarlambi skaðabætur og allan málskostnað. 16.3.2006 09:30
Íslensk teiknimyndaþáttaröð fjármögnuð Breska fyrirtækið Upland Entertainment Investments og Brú Venture Capital hafa hvor um sig keypt 10% hlut í fyrirtækinu CAOZ, sem sérhæfir sig í framleiðslu tölvugerðra teiknimynda fyrir alþjóðamarkað. Auk þess munu fyrirtækin taka þátt í fjármögnun sjónvarpsþáttaraðar sem CAOZ er með í undirbúningi. 16.3.2006 09:15
Groddalega staðið að brottflutningnum Forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna segja það einstaklega groddalegt hvernig bandarísk stjórnvöld standa að brottflutningi varnarliðsins frá Íslandi. Niðurstaðan hafi þó legið lengi í loftinu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir tíðindi gærdagsins ekki koma sér á óvart. 16.3.2006 07:45
Ratsjárstöðvunum líklega lokað Margt bendir til þess að ratstjárstöðvunum hér á landi verði lokað innan tíðar því hernaðarlegum tilgangi þeirra lýkur í raun þegar herþoturnar verða fluttar frá Keflavíkurflugvelli í haust. Þegar stöðvarnar fjórar voru reistar með ærnum kostnaði undir lok níunda áratugar síðustu aldar var yfirlýstur tilgangur þeirra annars vegar að fylgjast með flugi óvinveittra flugvéla, sem eru hættar að koma hingað eftir fall Sovéttríkjanna, og hinsvegar að fylgjast með flugi herþotna frá Keflavíkurflugvelli, sem nú eru á förum. 16.3.2006 07:30
Rúmlega 200 þátttakendur á Glitnismótinu í hraðskák Rúmlega 200 manns á öllum aldri, áhugamenn jafnt sem stórmeistarar, höfðu skráð sig til þátttöku á Glitnismótinu í hraðskák sem hófst í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Mótið er opið mót og haldið í minningu Haraldar Blöndal hæstaréttalögmanns, en mótinu lýkur á morgun. 15.3.2006 22:00
Íbúum hefur ekki fjölgað jafn mikið í rúm fjörtíu ár Á síðasta ári fjölgaði íbúum hér á landi meira en í rúm fjörtíu ár. Þar af fjölgaði íbúum hlutfallslega mest á Austurlandi og þar eru hvað mestu skekkjur í kynjahlutföllunum enda flestir nýbúar á Austurlandi karlmenn með erlent ríkisfang. 15.3.2006 21:41
Borgarholtshverfi án ADSL-sambands Borgarholtshverfi í Reykjavík og næsta nágrenni er án ADSL-sambands því ljósleiðari við Víkurveg rofnaði vegna framkvæmda sem þar standa yfir. Unnið er að viðgerð en henni lýkur líklega ekki fyrr en seint í kvöld. 15.3.2006 20:06
Vextir hæstir á Íslandi samkvæmt skýrslu Norðurlandaráðs Talsmaður neytenda segir að verði íbúðalánasjóður gerður að heildsölubanka verði að koma til mótvægisaðgerðir til að tryggja samkeppni á húsnæðislánamarkaði. Í skýrslu um norræna bankakerfið kemur fram að vextir á íbúðalánum og yfirdráttarlánum er miklu hærri á Íslandi en gerist á hinum Norðurlöndunum. 15.3.2006 19:10
Vill ræða varnarmál við nágrannaþjóðir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að Íslendingar þurfi að ræða varnarmál við nágrannaþjóðir eins og Norðurlöndin og Bretland í ljósi stöðunnar sem hefur komið upp í varnarmálum. Hann segir að varnarmál Íslands snerti ekki aðeins okkur heldur líka nágrannaþjóðir okkar. 15.3.2006 18:42
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald í hnífsstungumáli Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem grunaður er um að hafa stungið annan mann á skemmtistað í Reykjvík aðfaranótt 5. mars síðastliðinn. Maðurinn skal sitja í gæsluvarðhaldi þar til réttað hefur verið í máli hans, þó ekki lengur en til 21. apríl næstkomandi. Maðurinn liggur undir grun um að hafa veitt öðrum manni fimm stungusár með vasahníf. 15.3.2006 18:25
KB-banki hækkar vexti á íbúðalánum KB-banki hefur ákveðið að hækka fasta vexti á íbúðalánum bankans um 0,15%. Vextir lánanna hækka því í 4,30%. 15.3.2006 18:15
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald yfir unglingi Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Hérðaðsdóms Reykjavíkur um að unglingsstrákur sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til mál hans verður tekið fyrir að nýju fyrir Hæstarétti en Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður úrskurðað drenginn í gæsluvarðhald fyrir að hafa svipt ungan manni frelsi, flutt hann nauðugan úr vinnu sinni og haft í hótunum við hann. 15.3.2006 18:07
Bónus fær Neytendarverðlaunin í ár Bónus fékk í dag afhent Neytendaverðlaun Neyendasamtakanna og Bylgjunnar árið 2006. Bónus er fyrirtæki ársins að mati neytenda en verðlaunin voru afhend á Hótel Centrum í dag. Þá fengu Atlantsolía og Iceland Express hvatningarverðaun neytenda. 15.3.2006 17:34
Umræðum um vatnalög senn að ljúka Annarri umræðu um vatnalögin á Alþingi var frestað klukkan fjögur í dag en hún hefst aftur klukkan sex. Reikna má með að umræðunni ljúki í kvöld og málinu verði þá vísað til þriðju umræðu. 15.3.2006 17:04
Þotur og þyrlur farnar í lok september Orrustuþotur varnarliðsins og björgunarþyrlur þess verða farnar frá Íslandi í síðasta lagi fyrir lok september. Bandarísk stjórnvöld hafa tilkynnt ríkisstjórn Íslands að dregið verði stórlega úr starfsemi bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli síðar á þessu ári. 15.3.2006 17:00
Einn og hálfur milljarður til uppbyggingar fyrir geðfatlaða Einum og hálfum milljarði króna verður varið á næstu fjórum árum til uppbyggingar í búsetu- og stoðþjónustumálum geðfatlaðra. Þeir sem eru án húsnæðis og umönnunar munu njóta forgangs ásamt þeim sem búa hjá ættingjum og þeim sem eru tilbúnir til útskritfar af geðdeild. 15.3.2006 16:53
Jón Ásgeir segir skaðabótamál koma til greina Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, sagði á Fréttavaktinni eftir hádegi, að sýknudómur Héraðsdóms í baugsmálinu í dag, sýni að málið allt sé mikill áfellisdómur yfir þeim sem stóðu að því og sóttu. Það væri sorglegt að ríkið þyrfti að standa í þeim mikla kostnaði sem fylgdi því að sækja þetta mál, á sama tíma og ekki væru til peningar til að halda björgunarþyrlum Landhelgisgæslunnar á lofti. Jón Ásgeir sagði einnig að til greina kæmi að fara í skaðabótamál við ríkið vegna málaferlanna. 15.3.2006 16:27
Segir flokkinn verða að skoða stöðu sína Stjórn Sambands ungra Framsóknarmanna harmar og hafnar hugmyndum Kristins H. Gunnarssonar í þá veru að huga að sameiningu Framsóknarflokks og Samfylkingar og líkir hugmyndinni við pólitíska hryðjuverkastarfssemi. Kristinn segir sama mann standa að ályktun um að reka hann úr flokknum og boði sérframboð gegn flokknum á Akureyri. 15.3.2006 16:26
Gætum minnkað eldsneytisneyslu um helming á tíu árum Þorkell Helgason orkumálastjóri segir að Íslendingar gætu minnkað eldsneytisneyslu ökutækja um helming á tíu árum með því að breyta samsetningu bílaflotans á Íslandi. Þetta kom fram í máli hans á aðalfundi Orkumálastofnunar í dag. 15.3.2006 16:06
Starfsfólk bíður þess að fá að fara í vinnu á ný Starfsfólk frystihússins Fossvíkur á Breiðdalsvík fundaði á öðrum tímanum í dag um stöðu mála og framtíð frystihússins. Allt starfsfólk frystihússins mætti á fundinn. 15.3.2006 15:51
Málsvarnarlaun og sakarkostnaður nema á sjötta tug milljóna Þau málsvarnarlaun og sakarkostnaður sem greiðast úr ríkissjóði vegna sýknudóms í Baugsmálinu sem féll í dag nema vel á sjötta tug milljóna króna. 15.3.2006 15:45
Sýknað í öllum ákæruliðum í Baugsmálinu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað alla sakborninga í Baugsmálinu af öllum ákæruliðum. Dómurinn var kveðinn rétt um klukkan þrjú í dag. Settur saksóknari í málinu segir ekki ákveðið hvort dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar og heldur ekki ákveðið hvort kært verði á ný í þeim 32 ákæruliðum málsins sem Hæstiréttur hefur vísað frá dómi. 15.3.2006 14:47
Forseti Íslands vottar ekkju Meri samúð sína Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, hefur sent frú Helle Meri og forseta Eistlands, Arnold Rüütel, samúðarkveðjur vegna andláts Lennart meri, fyrrverandi forseta Eistlands. 15.3.2006 14:08
Dóms að vænta í Baugsmálinu Dómur verður kveðinn upp í Baugsmálinu klukkan korter í þrjú í dag. NFS mun sýna beint frá héraðsdómi í dag og hefst útsendingin skömmu áður en dómurinn verður kveðinn upp. 15.3.2006 13:24
Engin ákvörðun um hvort frystihús verður endurbyggt Engin ákvörðun hefur verið tekin um það á þessari stundu hvort frystihúsið á Breiðdalsvík, sem stórskemmdist í eldi í gærkvöldi, verður endurbyggt. Það hefur verið langfjölmennasti vinnustaðurinn í plássinu. 15.3.2006 13:03
Forsetahjón til Hornafjarðar í lok apríl Forsetahjónin eru væntanleg í opinbera heimsókn til Hornafjarðar í síðustu viku apríl. Frá þessu greinir á Hornafjörður.is. Þar segir að forsetinn hafi óskað eftir að koma þangað í opinbera heimsókn og var þeim óskum vel tekið. Áætlað er að forsetinn og fylgdarlið hans komi með flugvél til Hornafjarðar 27. apríl og fari til baka 28. apríl. 15.3.2006 11:53