Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aurbleyta á malarvegum Aurbleyta er nú sumstaðar orðin á malarvegum vegna hlýinda og þungatakmaraknir eru víðasthvar á hringveginum og ýmsum útvegum. Í hlákunni í gær hrundi smávegis af grjóti niður á Óshlíðarveginn til Bolungarvíkur en olli ekki tjóni og snjóflóð lokaði veginum yfir Dynjandisheiði í gærmorgun, en það er líka rakið til hlýindanna. 17.3.2006 07:55
Lögðu hald á 4 kíló af hassi Fimm manns voru úrskurðaðir í gærluvarðhald í gærkvöldi eftir víðtæka og sameiginlega aðgerð lögreglunnar í Kópavogi, Hafnarfirði, fíkniefnalögreglunnar í Reykjavík, tollgæslunnar og sérsveitar Ríkislögregustjóra, á höfuðborgarsvæðinu í gær. Gerð var húsleit í fjórum íbúðum og tveimur iðnaðarhúsum vegna gruns um stórfellt fíkniefnamisferli og var lagt hald á rösklega fjögur kíló af hassi og hátt í hálft kíló af anfetamíni. Alls voru tólf handteknir en sjö voru látnir lausir að yfirheyrslum loknum. 17.3.2006 07:15
Fimm í gæsluvarðhaldi vegna gruns um stórfellt fíkniefnamisferli Fimm hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 20. mars vegna gruns um stórfellt fíkniefnamisferli. Tólf manns voru handteknir í gær eftir húsleit lögreglunnar í Hafnarfirði og Kópavogi vegna gruns um fíkniefnamisferli. Leitað var í fjórum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu og tveimur iðnaðarhúsnæðum. 17.3.2006 00:40
Vantar upp á umfjöllun fjölmiðla um fjármálaheiminn Hlutabréf í Kauphöll Íslands hafa stigið hægt upp á við í vikunni eftir að hafa fallið um nær fjögur prósent á mánudaginn var. Forstjóri Glitnis segir mikilvægt að fjölmiðlar skoði þær greiningar sem fram koma á fjármálamarkaðnum með gagngrýnisaugum. 17.3.2006 00:23
620 starfsmenn varnarliðsins uggandi um afkomu sína Íslenskir starfsmenn varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli ætla nú þegar að óska eftir starfslokasamningum enda stefni í fjöldauppsagnir vegna ákvörðunar bandarískra yfirvalda um verulegan niðurskurö í haust. Guðbrandur Einarsson formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja segir kröfur um starfslokasamninga við varnarliðið eðlilegar. 17.3.2006 00:01
Mikil fækkun flugvéla eftir lok kalda stríðsins Flugfloti Bandaríkjahers frá 1952 hefur tekið miklum breytingum frá einum tíma til annars. Staða heimsmála hefur þar ráðið miklu. Eftir lok kalda stríðsins fækkaði mjög í flugflotanum og nú hefur verið tilkynnt að allar orrustuþotur og björgunarþyrlur hersins verði fluttar af landi brott á komandi hausti. 17.3.2006 00:01
Norræn samkeppni í stað samvinnu Norræn samvinna vék fyrir norrænni samkeppni í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld þar sem Magnus Carlsen tryggði sér sigur á Glitnismótinu í hraðskák. Norska undrabarnið lagði Hannes Hlífar Stefánsson í úrslitum. 16.3.2006 23:45
Stórsýning byggingariðnaðar í sýningarhöll Helstu nýjungar í byggingariðnaði og mannvirkjagerð og kynning á skipulagsmálum sveitarfélaga er meðal þess sem sjá má á sýningunni Verk og vit 2006 sem opnuð var í nýju sýningarhöllinni í dag. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar sem haldin hefur verið hér á landi. 16.3.2006 23:31
Margt bogið við kvótaúthlutanir í Sandgerði Smábátaeiganda í Sandgerði finnst margt bogið við kvótaúthlutanir bæjarstjórnarinnar. Bæjarstjóri vísar öllum ásökunum á bug. 16.3.2006 23:00
Magnus Carlsen sigraði á Glitnismótinu Norska undrabarnið Magnus Carlsen gerði sér lítið fyrir og sigraði á Glitnismótinu í hraðskák sem lauk fyrir stundu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Magnús lagði Hannes Hlífar Stefánsson í úrslitum tvö núll en Hannes Hlífar rann út á tíma í seinni skákinni. 16.3.2006 21:06
Hannes Hlífar í undanúrslit á Glitnismótinu Glitnismótinu í hraðskák, sem nú fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur er senn að ljúka en eftir eru tvær skákir í átta manna úrslitum. Hannes Hlífar Stefánsson komst í undanúrslit fyrir nokkrum mínútum þegar hann lagði Tatíönu Vasilevich í spennandi viðureign þá er heimsmeistarinn í hraðskák, Indverjinn Vishy Anand, einnig kominn í undanúrslit. 16.3.2006 19:26
Björn segi af sér vegna Baugsmáls Björn Bjarnason dómsmálaráðherra var í dag hvattur til þess á Alþingi að axla pólitíska ábyrgð á Baugsmálinu. Stjórnarandstæðingar mæltust til þess að hann segði af sér í framhaldi af dómi Héraðsdóms í gær. 16.3.2006 19:04
Handritin heim frá Svíþjóð? Ákvörðun sænska þjóðfræðisafnsins um að skila indíanaflokki merkum forngrip, vekur upp spurningu sem snertir Íslendinga. Í sænskum söfnum eru nefnilega varðveitt einhver merkustu handrit sem rituð voru á Íslandi í fornöld, meðal annars skinnhandrit af Snorra-Eddu frá því um þrettánhundruð og handrit af Konungasögum. 16.3.2006 18:53
Skrifar bréf til Bush Bandaríkjaforseta Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hyggst skrifa George Bush Bandaríkjaforseta bréf í dag og óska eftir nánari útlistun Bandaríkjastjórnar á því hvernig vörnum Íslands verði háttað í framtíðinni. Þá hefur Halldór beðið framkvæmdastjóra NATO að taka málið upp á fundi með Bush á mánudag. Geir H. Haarde utanríkisráðherra segir að gildi varnarsamningsins verði lítið sem ekkert, takist ekki að ná viðunandi niðurstöðu um skipan varnarmála landsins. Þetta kom fram í umræðum um utanríkismál á Alþingi í dag 16.3.2006 18:45
Athuga þarf varnarsamstarf við nágrannaþjóðir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir brottflutning hersins ekki koma á óvart heldur sé nýtt í málinu hvaða tími sé til stefnu. Hann vill gera samninga við aðrar þjóðir eins og til dæmis Dani, Norðmenn eða Breta samhliða varnarsamningnum. 16.3.2006 18:45
Ekki hægt að fylla skarð þyrlusveitar hersins að fullu Ein af fimm þyrlum varnarliðsins er tiltæk með skömmum fyrirvara sem stendur. Dómsmálaráðherra segir ekki hægt að fylla skarð þyrlusveitar hersins að öllu leyti. 16.3.2006 18:45
Vatnalög samþykkt frá Alþingi Vatnalagafrumvarp iðnaðarráðherra, sem mikill styr hefur staðið um síðustu daga, var samþykkt sem lög frá Alþingi á fimmta tímanum í dag með 26 atkvæðum gegn 19. 16.3.2006 17:15
Fallinn á fyrsta prófi Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í umræðum um varnarsamninginn á Alþingi í dag, að Geir H. Haarde, utanríkisráðherra hefði fallið á fyrsta prófi sínu í embætti. 16.3.2006 17:06
Kemur út sex daga vikunnar í 700-900 þúsund eintökum Dagsbrún stefnir að því að hefja útgáfu fríblaðs í Danmörku á þessu ári. Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar, segir að miðað sé við að upplag blaðsins verði 700-900 þúsund eintök og það komi út sex daga vikunnar. 16.3.2006 16:29
Glitnir hækkar vexti á húsnæðislánum Glitnir, áður Íslandsbanki, hefur ákveðið að hækka vexti sína á verðtryggðum húsnæðislánum um 0,13%. Breytingin hefur ekki áhrif á kjör þeirra sem þegar hafa tekið húsnæðislán hjá Glitni. Vextir nýrra lána hækka úr 4,35% í 4,48%. KB-banki tilkynnti um hækkun á vöxtum á húsnæðislánum sínum í gær. En vextir lánanna hjá KB-banka eru nú 4,3% en voru áður 4,15%. 16.3.2006 15:59
Gengið frá kaupum á Strætólóðinni Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, og Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, undirrituðu í dag samning um kaup bankans á byggingarrétt á hluta Strætólóðarinnar við Kirkjusand. Bankinn hyggst nýta lóðina til frekari uppbyggingar fyrirtækisins hér á landi. Glitnir greiðir um einn milljarð króna fyrir bygginarréttinn og fær svæðið afhent í tveimur áföngum, haustið 2006 og haustið 2007. 16.3.2006 15:32
Hrokafullur stjórnunarstíll Valur Ingimundarson, sérfræðingur í varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna, segir það koma sér á óvart hve mild viðbrögð íslenskra stjórnvalda séu við ákvörðun Bandaríkjamanna að draga stórlega úr umsvifum varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Hann segir Bandaríkjamenn beita hrokafullum stjórnunarstíl. 16.3.2006 15:15
Hraða þarf viðræðum Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, gerði þingheimi í hádeginu grein fyrir ákvörðun Bandaríkjamanna frá í gær um að draga úr starfsemi varnarliðsins í Keflavík á næstu mánuðum. Hann sagði að hraða þyrfti viðræðum um áframhaldandi samstarf. Formaður Samfylkingarinnar segir viðræður hingað til augljóslega ekki hafa skilað neinu. 16.3.2006 14:10
Fyrstu skref í átt að útgáfu fríblaðs í Danmörku Dagbrún hefur tekið fyrstu skrefin í átt að stofnun fríblaðs í líkingu við Fréttablaðið í Danmörku með stofnun 365 Media Scandinavia þar í landi. Dagsbrún hefur áður lýst yfir að það hefði uppi áform um útrás á erlenda markaði með áherslu á Norðurlönd og Bretland. 16.3.2006 14:04
Undirbúningsframkvæmdir hafnar Hafnar eru undirbúningsframkvæmdir í Austurhöfn í Reykjavík og gætu nærliggjandi fyrirtæki og íbúar farið að finna fyrir nokkru raski fljótlega. Kostnaður við undirbúningsframkvæmdirnar er yfir 1,3 milljarðar króna. 16.3.2006 13:48
Hugtakið lán og trúverðugleiki vitna réð úrslitum Sýknudómur Héraðsdóms Reykjavíkur í Baugsmálinu byggir aðallega á skilgreiningu á hugtakinu lán og trúverðugleika vitna eins og Jóns Geralds Sullenbergers. Dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að vitnisburður Jóns Geralds hafi verið ótrúverðugur þar sem hann beri kala til Jóns Ásgeirs og fjölskyldu hans. 16.3.2006 13:15
Ákvörðun Bandaríkjamanna þarf ekki að koma á óvart Sú ákvörðun ráðamanna í Bandaríkjunum að draga stórlega úr starfsemi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli þarf ekki að koma á óvart í ljósi atburða vorið 2003 þegar einhliða ákvörðun Bandaríkjamanna um brotthvarf þotna og þyrlna var kynnt forsætisráðherra. Síðan þá hefur legið ljóst fyrir að Bandaríkjamenn vildu breyta rekstri sínum hér á landi. 16.3.2006 13:00
Ratsjárstöðvum lokað innan tíðar Margt bendir til þess að ratsjárstöðvunum hér á landi verði lokað innan tíðar því hernaðarlegum tilgangi þeirra lýkur í raun þegar herþoturnar verða fluttar frá Keflavíkurflugvelli í haust. 16.3.2006 12:45
Geta átt von á uppsögnum Allir starfsmenn, bæði íslenskir og bandarískir voru boðaðir á fund í stóra flugskýlinu á Keflavíkurflugvelli í morgun vegna frétta um stórfellda fækkun hjá varnarliðinu. Á fundinum var starfsmönnum kynnt að það mætti eiga von á uppsögnum. 16.3.2006 12:30
Hermönnum í Keflavík fækkað um 60% á 15 árum Bandarískum hermönnum í varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli hefur fækkað um rúm 60% frá endalokum kalda stríðsins fyrir fimmtán árum og enn frekari fækkun þýðir að ýmsum þjónustustofnunum á vellinum verður lokað. 16.3.2006 12:12
Undirrita samning um þekkingarnet Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Valgerður Sverrisdóttir undirrita klukkan eitt í dag samning um stofnun og rekstur Þekkingarnets Austurlands ásamt fulltrúum Fræðslunets Austurlands. 16.3.2006 11:44
Frávísunartillaga felld Frávísunartillaga stjórnarandstöðuflokkanna um vatnalagafrumvarp iðnaðarráðherra var felld á Alþingi í morgun með 28 atkvæðum gegn 23. 16.3.2006 11:30
Bónus fékk Neytendaverðlaunin Handhafi Neytendaverðlauna Neytendasamtakanna og Bylgjunnar 2006 er verslunin Bónus. Verðlaunin voru afhent í gær í tilefni af alþjóðadegi neytendaréttar. 16.3.2006 11:15
Dómsmálaráðherra spurður hvað Baugsmálið kostaði Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, var spurður að því á Alþingi í morgun hvort hann gæti svarað til um hvað málareksturinn í Baugsmálinu hefði kostað ríkið. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingar, spurði hvort ráðherra gæti svarða því hve mikill tími og mannafli hefði farið í málið og hvaða önnur mál hefðu beðið hjá Ríkislögreglustjóra á meðan rannsóknin stóð. 16.3.2006 10:48
Baugsmálið rætt á þingi Sigurjón Þórðarsons, þingmaður Frjálslynda flokksins, ynnti dómsmálaráðherra við upphaf þings í morgun eftir viðbrögðum við sýknudómi í Baugsmálinu. Hann taldi rétt að farið yrði yfir málið enda hafi kostnaður vegna þess verið gríðarlegur. Hann spurði dómsmálaráðherra hvort hann myndi axla pólitíska ábyrgð vegna málsins. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, sagði ræðu Sigurjóns vera fyrir neðan virðingu þingsins og að hann myndi ekki ræða Baugsmálið í sölum Alþingis. 16.3.2006 10:41
Óvissa með verð fyrir grásleppuhrogn Það er af sem áður var þegar allir trillukarlar, sem vettlingi gátu valdið, lögðu net sín strax á fyrsta degi grásleppuvertíðar, í von um gull og græna skóga. Aðeins einn bátur réri til dæmis frá Húsavík, þegar vertíðin hófst á noðrausturlandi um helgina, og á öllu svæðinu frá Grenivík austur til Vopnafjarðar, réru aðeins fjórir bátar. 16.3.2006 10:15
Utanríkisráðherra gefur Alþingi skýrslu Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, mun gera þingheimi grein fyrir stöðu varnarmála á þingfundi sem hefst á Alþingi kl. 10:30 í dag. Á fundinum mun ráðherra gefa munnlega skýrslu um varnarviðræður Íslands og Bandaríkjanna í ljósi þeirra frétta frá í gær að Bandaríkjamenn ætli að flytja þotur sínar og þyrlur frá Keflavíkurflugvelli í síðasta lagi í september og draga verulega úr starfsemi varnarliðsins þar. 16.3.2006 10:00
8 mánaða dómur fyrir líkamsárás og bílþjófnað Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær karlmann á þrítugsaldri í 8 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás og bílþjófnað. Maðurinn hafði áður komist í kast við lögin. Honum er einnig gert að greiða fórnarlambi skaðabætur og allan málskostnað. 16.3.2006 09:30
Íslensk teiknimyndaþáttaröð fjármögnuð Breska fyrirtækið Upland Entertainment Investments og Brú Venture Capital hafa hvor um sig keypt 10% hlut í fyrirtækinu CAOZ, sem sérhæfir sig í framleiðslu tölvugerðra teiknimynda fyrir alþjóðamarkað. Auk þess munu fyrirtækin taka þátt í fjármögnun sjónvarpsþáttaraðar sem CAOZ er með í undirbúningi. 16.3.2006 09:15
Groddalega staðið að brottflutningnum Forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna segja það einstaklega groddalegt hvernig bandarísk stjórnvöld standa að brottflutningi varnarliðsins frá Íslandi. Niðurstaðan hafi þó legið lengi í loftinu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir tíðindi gærdagsins ekki koma sér á óvart. 16.3.2006 07:45
Ratsjárstöðvunum líklega lokað Margt bendir til þess að ratstjárstöðvunum hér á landi verði lokað innan tíðar því hernaðarlegum tilgangi þeirra lýkur í raun þegar herþoturnar verða fluttar frá Keflavíkurflugvelli í haust. Þegar stöðvarnar fjórar voru reistar með ærnum kostnaði undir lok níunda áratugar síðustu aldar var yfirlýstur tilgangur þeirra annars vegar að fylgjast með flugi óvinveittra flugvéla, sem eru hættar að koma hingað eftir fall Sovéttríkjanna, og hinsvegar að fylgjast með flugi herþotna frá Keflavíkurflugvelli, sem nú eru á förum. 16.3.2006 07:30
Forseti Íslands fundaði með fulltrúum Google Fulltrúar alþjóðlega internetfyrirtækisins Google hafa áhuga á að nýjar starfsstöðvar fyrirtækisins verði knúnar með vistvænni orku. Þetta kom fram á fundi þeirra með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, hér á landi á dögunum. 16.3.2006 06:45
Rúmlega 200 þátttakendur á Glitnismótinu í hraðskák Rúmlega 200 manns á öllum aldri, áhugamenn jafnt sem stórmeistarar, höfðu skráð sig til þátttöku á Glitnismótinu í hraðskák sem hófst í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Mótið er opið mót og haldið í minningu Haraldar Blöndal hæstaréttalögmanns, en mótinu lýkur á morgun. 15.3.2006 22:00
Íbúum hefur ekki fjölgað jafn mikið í rúm fjörtíu ár Á síðasta ári fjölgaði íbúum hér á landi meira en í rúm fjörtíu ár. Þar af fjölgaði íbúum hlutfallslega mest á Austurlandi og þar eru hvað mestu skekkjur í kynjahlutföllunum enda flestir nýbúar á Austurlandi karlmenn með erlent ríkisfang. 15.3.2006 21:41
Borgarholtshverfi án ADSL-sambands Borgarholtshverfi í Reykjavík og næsta nágrenni er án ADSL-sambands því ljósleiðari við Víkurveg rofnaði vegna framkvæmda sem þar standa yfir. Unnið er að viðgerð en henni lýkur líklega ekki fyrr en seint í kvöld. 15.3.2006 20:06