Fleiri
Þrír slasast í Bláfjöllum í kvöld 17.1.2006 22:05 Styrktartónleikar skiluðu sexhundruð og tíu þúsund krónum Styrktartónleikar fyrir fórnarlömb jarðskjálftans í Pakistan skiluðu sexhundruð og tíu þúsund krónum. Tónleikarnir voru haldnir í Austurbæ 29. desember síðastliðinn. Auk þess voru lagðar tvöhundruð og áttatíu þúsund inn á söfnunarreikning Rauða krossins dagana í kringum tónleikana. 17.1.2006 21:30 Eru nagladekk óþörf? Sérfræðingar Framkvæmda- og Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar vilja leggja gjald á notkun nagladekkja. 17.1.2006 19:55 Fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu Bílstjóri vörubifreiðar var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík eftir bílveltu á veginum að Bláa lóninu nú síðdegis. 17.1.2006 19:16 Dómarar ósáttir við afskipti framkvæmdavaldsins Dómarafélag Íslands sendi frá sér erindi til forseta Alþingis í dag, vegna úrskurðar Kjaradóms um laun ráðherra og opinberra embættismanna og annarra þjóðkjörinna fulltrúa. 17.1.2006 19:03 Stormviðvörun á Norðausturlandi fram á kvöld Veðurstofa Íslands hefur gefið út stormviðvörun fyrir norðaustanvert landið fram á kvöld með 18-25 m/s, snjókomu og skafrenning. Seinna í kvöld á svo að lægja og rofa til. 17.1.2006 18:33 Vörubifreið valt Vörubifreið valt á veginum að Bláa lóninu um klukkan 17. Ökumaðurinn sem var einn í bílnum slasaðist minniháttar. 17.1.2006 17:39 Rarik, OV og LV stofna smásölufyrirtæki á raforkumarkaði Rafmagnsveitur ríkisins (RARIK), Orkubú Vestfjarða hf. (OV) og Landsvirkjun (LV) hafa stofnað sameiginlegt sölufyrirtæki á raforkumarkaði. 17.1.2006 17:31 Steingrímur af gjörgæsludeild Að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi fyrir stundu er verið að flytja Steingrím J. Sigfússon yfir á brjóstholskurðdeild Landspítalans við Hringbraut. Líðan hans er ágæt en óvíst er hversu lengi hann þarf að dvelja á spítalanum. Að sögn læknis verður það að minnsta kosti nokkrir dagar. 17.1.2006 17:07 Þrír skjálftar á Reykjaneshrygg Jarðskjálfti að stærð 4.5 varð sl. nótt kl. 01:57 með upptök á Reykjaneshrygg eða um 90 km suðvestur af Reykjanesi. 17.1.2006 17:04 Gengi bréfa í deCode hækkuðu Gengi bréfa deCode hækkuðu talsvert á NASDAQ-markaðinum í Bandaríkjunum í dag. Hækkunina má rekja til yfirlýsingar fyrirtækisins um að tekist hafi að einangra erfðabreytileika sem eykur hættu á sykursýki. 17.1.2006 16:56 Kanna hvort sjónvarpsstöðvar hafi brotið lög Lýðheilsustöð, talsmaður neytenda og umboðsmaður barna hafa bréflega farið fram á það við útvarpsréttarnefnd að hún kanni formlega hvort íslenskar sjónvarpsstöðvar hafi brotið gegn tilgreindum ákvæðum útvarps- og áfengislaga með því að heimila birtingu bjórauglýsinga, kostun tiltekinna dagskrárliða af hálfu bjórframleiðenda og að áfengi og tengd vörumerki séu áberandi í ákveðnum dagskrárliðum. Í erindi sem sent var útvarpsréttarnefnd 10. janúar sl. eru nefnd dæmi sem varða Ríkisútvarpið, Sirkus, SkjáEinn og Stöð 2. 17.1.2006 16:52 Sjá næstu 50 fréttir
Útlit fyrir að fjölmargir leikskólakennarar segji upp störfum Ekkert samkomulag og engar tillögur koma frá samráðshópi um kjaramál leikskólakennara sem ætlað var að leggja fram tillögur um úrbætur á launamálaráðstefnu sveitarfélaganna á föstudag. Vinnuhópurinn hélt sinn síðasta fund í dag og komst ekki að neinni niðurstöðu. 18.1.2006 18:59
Neytendasamtökin harma ákvörðun forsætisráðherra Formaður Neytendasamtakanna harmar að forsætisráðherra hafi ekki séð ástæðu til að verða við ósk samtakanna um fulltrúa í nefnd þeirri sem skipuð var til að kanna hátt matvælaverð hér á landi. Formaður samtakanna vonast til að forsætisráðherra endurskoði þá ákvörðun sína. 18.1.2006 18:08
2,7% atvinnuleysi Á fjórða ársfjórðungi 2005 var atvinnuleysi 2,7% en að meðaltali voru 4.400 manns án vinnu eða í atvinnuleit. Atvinnuleysi mældist 3,0% hjá körlum en 2,2% hjá konum. Þetta kemur fram í vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára en það var 7,9%. 18.1.2006 17:59
Engin byrði á samfélaginu Gamalt fólk er ekki byrði á samfélaginu segir Guðjón Guðmundsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sparisjóða. En í dag var undirritaður samningur um rannsókn á framlagi eldra fólks til samfélagsins í húsakynnim Félags eldri borgara. 18.1.2006 17:48
Furðar sig á að skýrslur sé teknar af börnum í dómshúsi Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingar, lýsti á Alþingi í dag yfir furðu sinni á því að meirihluti skýrslna sem tekinn sé af börnum, sem grunur leikur á að hafi verið beitt kynferðisofbeldi, fari fram í dómshúsi en ekki Barnahúsi. 18.1.2006 17:03
Össur kaupir Innovation Sports Össur hf. hefur fest kaup á bandaríska stuðningstækinu Innovation Sports, Inc. og er kaupverðið fyrir 38,4 milljónir Bandaríkjadala eða hátt í 2,4 milljarðar íslenskra króna. Í tilkynningu frá Össuri vegna kaupanna segir að Innovation Sports sé forystufyrirtæki á sviði þróunar og framleiðslu á liðbandaspelkum. Össur tekur við rekstri Innovation Sports frá og með deginum í dag. 18.1.2006 17:00
Fimm vilja stöðuna Fimm umsækjendur um embætti prests í Laugarnesprestakalli. Reykjavíkurprófastsdæmi vestra auglýsti eftir umsækjendum í desember og er um hálft starf að ræða. 18.1.2006 16:31
Íslensk verkalýðsfélög hyggja á útrás Íslenska verkalýðsfélög hyggja á útrás í kjölfar íslenskra fyrirtækja þar sem styðja á við uppbyggingu verkalýðshreyfingarinnar Eystrasaltsríkjunum. Verkalýðsforkólfar vonast til þess að íslensk fyrirtæki sem starfa í löndunum taki þátt í verkefninu með þeim. 18.1.2006 16:30
Harma að Arnþóri hafi verið sagt upp Stjórn Blindrafélagsins harmar þau málalok hjá Öryrkjabandalagi Íslands að Arnþóri Helgasyni, félagsmanni Blindrafélagsins, skuli hafa verið sagt upp störfum sem framkvæmdastjóri bandalagsins. 18.1.2006 16:01
Átök um norræna vinnumarkaðsmódelið Hætta er á að norræna vinnumarkaðsmódelið verði fyrir bí ef Evrópudómstóllinn úrskurðar sænskum stéttarfélögum í óhag í svo kölluðu Laval-máli sem brátt verður tekið fyrir hjá dómnum. Forsvarsmenn stéttarfélaga á Norðurlöndum óttast félagsleg undirboð verði dómurinn þeim óhagstæður og hafa leitað liðsinnis ríkisstjórna landanna til að reyna að varðveita norræna vinnumarkaðskerfið. 18.1.2006 15:55
Mikill áhugi fanga að dvelja í Hegningarhúsinu Það skortir síður en svo áhuga hjá föngum að dvelja í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Þetta sagði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra í umræðum um undirbúning nýrrar fangelsisbyggingar á Alþingi á fjórða tímanum. Einnig kom fram í máli ráðherrans að hann gerði ráð fyrir að undanþágan sem Hegningarhúsið hefur verið á verði framlengd, en hún rennur út innan skamms. 18.1.2006 15:52
Þakkar öllum sem komu að björgun sinni Það myndi gleðja mig mikið að sjá virkjunaráform í Þjórsárverum hverfa alveg út af borðinu sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, á fréttamannafundi nú fyrir stundu. Að öðru leyti vildi hann ekki ræða um pólitík en sagði sér liði vel miðað við aðstæður. 18.1.2006 15:11
Stálheppinn að hafa sloppið svo vel Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, segir að sér líði vel miðað við aðstæður. Það sé stjanað við hann á spítalanum. Hann segist stálheppinn að hafa sloppið svo vel sem raun ber vitni. Þetta sagði hann á fréttamannafundi sem nú er í beinni á NFS. 18.1.2006 14:59
Hafdís Gísladóttir ráðin framkvæmdastjóri ÖBÍ Hafdís Gísladóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands og tekur hún til starfa þann fyrsta febrúar. Frá ráðningu hennar var formlega gengið á fundi framkvæmdastjórnar ÖBÍ í gær en NFS greindi frá fyrirhugaðri ráðningu hennar fyrir rúmri viku. 18.1.2006 14:37
Almenningur illa upplýstur um virkni loftpúða Rannsóknarnefnd umferðarslysa telur að almenningur sé illa upplýstur um virkni loftpúða í bifreiðum. Vegna slyssins þar sem Steingrímur J. Sigfússon ók útaf í fyrrakvöld, kom fram að loftbúðar bifreiðarinnar, sem er jeppabifreið, hafi ekki virkað sem skildi. 18.1.2006 14:15
Íslenskir fjárfestar kaupa tíunda stærsta banka Lettlands Íslenskir fjárfestar, þar á meðal félag í eigu forstjóra Norvíkur, hafa fest kaup á ráðandi hlut í tíunda stærsta banka Lettlands, Lateko-banka. Eignir hans nema 30 milljörðum króna og hjá honum starfa 550 manns. Bankinn rekur skrifstofur í Lundúnum og Moskvu. 18.1.2006 13:31
Íslensk erfðagreining kaupir Urði Verðandi Skuld Íslensk erfðagreining greindi í dag frá kaupum á líftæknifyrirtækinu Urði Verðandi Skuld af Iceland Genomics Corporation Inc. Íslensk erfðagreining greiðir kaupverðið, um 350 milljónir íslenskra króna, með hlutabréfum í deCODE genetics Inc. Markmið kaupanna er að efla rannsóknir á erfðafræði krabbameina sem vonast er til að leiði til aukins skilnings á líffræðilegum orsökum þeirra og nýrra aðferða til að greina og meðhöndla krabbamein. 18.1.2006 13:28
Staðarhaldari á Hótel Valhöll á fund forsætisráðherra Kristbjörg Kristinsdóttir, staðarhaldari á Hótel Valhöll á Þingvöllum, gekk á fund forsætisráðherra fyrir hádegi vegna þeirra hugmynda um að Hótel Valhöll skuli verða rifið að hluta eða öllu leyti. Áform eru uppi um að halda samkeppni um hönnun nýs húss ef ákvörðun um niðurrif verður tekin. 18.1.2006 12:42
Steingrímur J. Sigfússon boðar til blaðamannafundar Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, hefur boðað til blaðamannafundar á Landspítala-háskólasjúkrahúsi klukkan 15 í dag. NFS mun senda beint út frá fundinum. 18.1.2006 12:37
Verðmæti fyrirtækja í úrvalsvísitölu komið yfir 2000 milljarða Verðmæti fyrirtækja í úrvalsvísitölu Kauphallarinnar er komið yfir 2000 milljarða króna, og spáð er að það hækki um hátt í 30% í ár. 18.1.2006 12:32
Engin þörf fyrir Norðlingaölduveitu Engin þörf er fyrir Norðlingaölduveitu til að fullnægja raforkuþörf stækkaðs álvers í Straumsvík. Þrjár til fjórar nýjar virkjanir í Þjórsá, sem þegar hafa fengið umhverfismat, gætu fullnægt orkuþörf fyrirhugaðrar stækkunar álversins í Straumsvík. 18.1.2006 12:24
Dómarafélagið gæti farið í mál við ríkið Dómarafélagið tekur ákvörðun um það hvort farið verði í mál við ríkið vegna laga á Kjaradóm, eftir að Alþingi hefur afgreitt málið frá sér. Dómarar líta það alvarlegum augum ef framkvæmdavaldið, og eftir atvikum löggjafarvaldið, fari að hlutast til um laun sem óháðir aðilar hafa ákveðið. 18.1.2006 12:13
Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA Stjórn Samtaka atvinnulífsins hefur ákveðið að ráða Vilhjálm Egilsson í stöðu framkvæmdastjóra samtakanna. Vilhjálmur er ráðinn í stað Ara Edwald sem senn tekur við stöðu forstjóra 365 miðla. 18.1.2006 10:42
Þrennt slasaðist í Bláfjöllum í gærkvöldi Þrennt slasaðist í Bláfjöllum í gærkvöldi og voru allir fluttir með sjúkrabílum á slysadeild, þar sem gert var að sárum þeirra. 18.1.2006 09:35
Tilnefnd til íslensku þekkingarverðlaunanna Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (FVH) hafa tilnefnt þrjú fyrirtæki til Íslensku þekkingarverðlaunanna: Avion Group, Actavis og Bakkavör. 18.1.2006 09:00
Grýlukerti hættuleg Grýlukerti eru algeng sjón um þessar mundir enda kalt í verði og aðstæður kjörnar til myndunar þeirra. Grýlukerti myndast á húsum sem eru illa einöngruð og oftast við sperrur og þök. Þau myndast þegar nægjanlega hlýtt loft streymir út og bræðir snjó í dropa sem svo falla. 18.1.2006 08:45
Snjóflóð féllu í Óshlíð Ófært er um Óshlíð á Vestfjörðum vegna snjóflóða eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Beðið er með mokstur í Ísafjarðardjúpi og Steingrímsfjarðarheiði vegna veðurs. Á sunnanverðum Vestfjörðum er ekkert ferðaveður, ófært og stórhríð á fjallvegum, þungfært og stórhríð með ströndinni. 18.1.2006 08:14
Blint í éljum á Reykjanesbrautinni Mjög blint er í éljum á Reykjanesbrautinni og hafa ökumenn lent í vandræðum nú undir morgun. Einn bíll fór út af á sjöunda tímanum og björgunarsveit var kölluð út til að hjálpa fólki í bíl, sem lenti útaf á Sandgerðisvegi. Þá hefur fólk lenti í vandræðum vegna ófærðar við Grindavík. Þá gátu snjóruðningsmenn ekkert aðhafst á norðaustanveðrinu í gærkvöldi vegna óveðurs og er þar víða ófært 18.1.2006 07:45
Samkomulag um að skjóta áformum um Norðlingaölduveitu á frest Samkomulag varð um það á fundi fulltrúa Landsvirkjunar og Skeiða-og Gnúpverjahrepps, auk fleiri hreppa sem eiga land að Þjórsá, að skjóta frekari áformum um Norðlingaölduveitu á frest. 18.1.2006 07:04
Varað við fuglaflensufaraldri í heiminum Sameinuðu þjóðirnar og Alþjóðabankinn hafa varað þjóðir heims við því að hugsanlegur fuglaflensufaraldur geti dregið milljónir til dauða og telja að þörf sé á 90 milljörðum dollara á næstu þremur árum til þess að takast á við flensuna í fátækari ríkjum heims. 18.1.2006 06:57
Eldur kom upp í sumarbústað á Flúðum í nótt Tvenn hjón sluppu ómeidd, en flytja þurfti einn á sjúkrahús vegna aðkenningar að reykeitrun, eftir að eldur kom upp í sumarbústað skammt frá Flúðum um miðnætti. 18.1.2006 06:46
Hagnaður eykst um 135% Hagnaður 16 helstu félaganna í Kauphöll Íslands, fyrir utan KB banka, eykst um 135% á milli áranna 2004 og 2005 að mati Greiningadeildar KB banka. Í spá bankans er gert ráð fyrir mun minni aukningu á árinu 2006. 17.1.2006 22:13
Tómas Zoega segir hugsanlega upp á Landspítalanum Tómas Zoega geðlæknir mun hugsanlega segja upp störfum hjá Landspítalanum ef Hæstiréttur staðfestir ekki dóm héraðsdóms í máli hans gegn spítalanum. Hann segir yfirstjórn spítalans hafa farið offari í málinu. 17.1.2006 22:06
Styrktartónleikar skiluðu sexhundruð og tíu þúsund krónum Styrktartónleikar fyrir fórnarlömb jarðskjálftans í Pakistan skiluðu sexhundruð og tíu þúsund krónum. Tónleikarnir voru haldnir í Austurbæ 29. desember síðastliðinn. Auk þess voru lagðar tvöhundruð og áttatíu þúsund inn á söfnunarreikning Rauða krossins dagana í kringum tónleikana. 17.1.2006 21:30
Eru nagladekk óþörf? Sérfræðingar Framkvæmda- og Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar vilja leggja gjald á notkun nagladekkja. 17.1.2006 19:55
Fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu Bílstjóri vörubifreiðar var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík eftir bílveltu á veginum að Bláa lóninu nú síðdegis. 17.1.2006 19:16
Dómarar ósáttir við afskipti framkvæmdavaldsins Dómarafélag Íslands sendi frá sér erindi til forseta Alþingis í dag, vegna úrskurðar Kjaradóms um laun ráðherra og opinberra embættismanna og annarra þjóðkjörinna fulltrúa. 17.1.2006 19:03
Stormviðvörun á Norðausturlandi fram á kvöld Veðurstofa Íslands hefur gefið út stormviðvörun fyrir norðaustanvert landið fram á kvöld með 18-25 m/s, snjókomu og skafrenning. Seinna í kvöld á svo að lægja og rofa til. 17.1.2006 18:33
Vörubifreið valt Vörubifreið valt á veginum að Bláa lóninu um klukkan 17. Ökumaðurinn sem var einn í bílnum slasaðist minniháttar. 17.1.2006 17:39
Rarik, OV og LV stofna smásölufyrirtæki á raforkumarkaði Rafmagnsveitur ríkisins (RARIK), Orkubú Vestfjarða hf. (OV) og Landsvirkjun (LV) hafa stofnað sameiginlegt sölufyrirtæki á raforkumarkaði. 17.1.2006 17:31
Steingrímur af gjörgæsludeild Að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi fyrir stundu er verið að flytja Steingrím J. Sigfússon yfir á brjóstholskurðdeild Landspítalans við Hringbraut. Líðan hans er ágæt en óvíst er hversu lengi hann þarf að dvelja á spítalanum. Að sögn læknis verður það að minnsta kosti nokkrir dagar. 17.1.2006 17:07
Þrír skjálftar á Reykjaneshrygg Jarðskjálfti að stærð 4.5 varð sl. nótt kl. 01:57 með upptök á Reykjaneshrygg eða um 90 km suðvestur af Reykjanesi. 17.1.2006 17:04
Gengi bréfa í deCode hækkuðu Gengi bréfa deCode hækkuðu talsvert á NASDAQ-markaðinum í Bandaríkjunum í dag. Hækkunina má rekja til yfirlýsingar fyrirtækisins um að tekist hafi að einangra erfðabreytileika sem eykur hættu á sykursýki. 17.1.2006 16:56
Kanna hvort sjónvarpsstöðvar hafi brotið lög Lýðheilsustöð, talsmaður neytenda og umboðsmaður barna hafa bréflega farið fram á það við útvarpsréttarnefnd að hún kanni formlega hvort íslenskar sjónvarpsstöðvar hafi brotið gegn tilgreindum ákvæðum útvarps- og áfengislaga með því að heimila birtingu bjórauglýsinga, kostun tiltekinna dagskrárliða af hálfu bjórframleiðenda og að áfengi og tengd vörumerki séu áberandi í ákveðnum dagskrárliðum. Í erindi sem sent var útvarpsréttarnefnd 10. janúar sl. eru nefnd dæmi sem varða Ríkisútvarpið, Sirkus, SkjáEinn og Stöð 2. 17.1.2006 16:52