Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
ENA stofnar þjónustunet Stofnað hefur verið þjónustunet sem leysa á úr ágreininingsefnum milli kaupanda og seljenda yfir landamæri innan Evrópu. Markmið þjónustunetsins er að auka traust neytenda á Evrópu sem einu markaðssvæði. Til að kynna starfsemi sína hefur ENA, Evrópska neytendaaðstoðin, útbúið bæklins sem nálgast má á heimasíðu þeirra. 16.1.2006 11:45
Vonar að tillagan verði samþykkt Ólafur F. Magnússon ber upp tillögu um verndun Þjórsárvera í borgarstjórn á morgun og binda F-lista menn miklar vonir við að hún verði samþykkt en það yrði þá í fyrsta skipti sem borgarstjórn leggst gegn áformum ríkisvaldsins og Landsvirkjunar í virkjanamálum. 16.1.2006 11:16
Fundað vegna mála leikskólakennara í dag og á miðvikudag Það ræðst á fundum samráðshóps um kjaramál leikskólakennara í dag eða á miðvikudag hvort hópurinn kemst að sameiginlegri niðurstöðu um tillögur að lausn í kjaramálum leikskólakennara. 16.1.2006 11:15
Nýskráðir bílar rúmum 52 prósentum fleiri í fyrra en árið 2004 Íslendingar að og Lettar bera höfuð og herðar yfir aðrar Evrópuþjóðir þegar miðað er við aukningu á nýskráðum bílum á milli ára. Nýskráningar jukust um ríflega 52 prósent hér á landi í fyrra miðað við árið 2004 en nýskráðum bílum á Evrópska efnahagssvæðinu öllu fækkaði hins vegar lítillega milli ára. 16.1.2006 10:48
Máli Bubba gegn 365-prentmiðlum frestað Fyrirtöku í meiðyrðamáli Bubba Morthens gegn 365-prentmiðlum sem átti að vera í dag var frestað þar sem lögmaður Bubba, Sigríður Rut Júlíusdóttir, er veik. Ný dagsetning á fyrirtöku málsins liggur ekki fyrir. 16.1.2006 10:45
Trúfélög fái að gefa samkynhneigða saman Siðmennt, félag siðrænna húmanista, hvetur allsherjarnefnd Alþingis til að breyta hjúskaparlögum þannig að skráð trúfélög fái að gefa saman samkynhneigða einstaklinga. Þannig geti trúfélög sem það vilja gefið saman samkynhneigð pör en önnur séu ekki skyldug til þess. 16.1.2006 09:15
Ró á fasteignamarkaði Nær helmingi færri fasteignir seldust á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku en í meðalviku. Alls seldust 88 eignir en síðustu tólf vikur hafa að meðaltali selst 150 íbúðir á viku. 16.1.2006 08:30
Flughált á Hellisheiði og í Þrengslum Flughált er á Hellisheiði, snjóþekja og éljagangur er í Þrengslum og hálka á Suðurlandi en þar stendur mokstur yfir. Þá er hálka og snjóþekja á Norðurlandi, Norðausturlandi og Vesturlandi. Ófært er yfir Eyrarfjall, Hrafneyrar og Dynjandisheiði og á Austurlandi er ófært yfir Fjarðarheiði, Breiðdalsheiði og Öxi 16.1.2006 07:40
Ljóskerið til Massimo Santanicchia Massimo Santanicchia hlaut verðlaunin Ljóskerið í samkeppni sem Orkuveita Reykjavíkur, Ljóstæknifélag Íslands og Tímaritið Ljós standa að og hlaut hann 500 þúsund krónur til áframhaldandi þróunar á verkinu. Í öðru sæti urðu arkitektarnir Sigurður Einarsson og Jón Stefán Einarsson hjá Batteríinu ehf. ásamt Jóni Otta SIgurðssyni tæknifræðingi og fengu þeir 400 þúsund krónur til áframhaldandi þróunar á ljóskerinu. 16.1.2006 08:00
Stjórnlaust flutningaskip NA af Langanesi Rúmlega sjö þúsund tonna flutningaskip, skráð á Möltu, rekur stjórnlaust um 200 sjómílur norðaustur af Langanesi eftir að aðalvél skipsins bilaði í gær. Tólf manns eru í áhöfn og er þeim ekki talin hætta búin þótt bræla sé á svæðinu. Skipið, sem heitir Wilson Tyne, var á leið til Grundartanga. Útgerð þess ákvað í gær að fá norskan dráttarbát til að koma skipinu til hjálpar, frekar en að leita aðstoðar Landhelgisgæslunnar, og er stór dráttarbátur væntanelgur að skipinu á morgun 16.1.2006 07:10
Dómkirkjuprestur tilbúinn að blessa sambönd samkynhneigðra Hjörtur Magni Jóhannsson Fríkirkjuprestur hefur sótt um leyfi til að gefa samkynhneigð pör saman á sama hátt og gagnkynhneigð. Hann segir það rangt hjá biskupi að hvergi í kristinni kirkju séu samkynhneigðir gefnir saman líkt og gagnkynhneigðir. Dómkirkjuprestur segist tilbúinn að blessa sambönd samkynhneigðra. 15.1.2006 19:15
Pólitískar ástæður réðu úrslitum þegar Reykjavíkurborg sleit viðræðum um sölu síns hlutar í Landsvirkjun Það voru pólitískar ástæður en ekki fjárhagslegar sem réðu úrslitum þegar Reykjavíkurborg ákvað að slíta viðræðum um sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun. 15.1.2006 19:01
Vélsleðaslys í Halldórsdal við Kirkjufellsvatn. Vélsleðaslys varð í Halldórsdal við Kirkjufellsvatn skammt frá Landmannalaugum á fjórða tímanum í dag. 15.1.2006 18:51
Erfðabreytileiki sem eykur verulega líkur á sykursýki fundinn Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa fundið erfðabreytileika sem eykur verulega líkurnar á sykursýki. Þetta er í fyrsta sinn sem vísindamönnum tekst þetta. Eftir tvö ár ætti að vera hægt að beita þessari þekkingu í heilsugæslu til að greina hvort fólk sé í aukinni hættu á að fá sykursýki. 15.1.2006 18:47
Uppkaupsmenn byrjaðir að kaupa hesthús á Heimsenda. Undafarna mánuði hefur stjórn hestamannafélagsins Gusts barist fyrir tilverurétti sínum, en svokallaðir uppkaupsmenn hafa verið duglegir við að kaupa upp hesthús í Glaðheimum sem er félagssvæði þeirra. 15.1.2006 17:33
Vélsleðaslys við Kirkjufellsvatn Vélsleðaslys varð við Kirkjufellsvatn, sem er um 10 kílómetra norðan við Landmannalaugar, á fjórða tímanum í dag. 15.1.2006 16:02
Féllu niður vök Tvær konur féllu niður vök á Rauðavatni um klukkan eitt í dag. Þær voru á ferð með gönguskíðahóp og voru um 30 til 40 metra frá landi þegar þær fóru niður vökina. Flytja þurfti aðra konuna á slysadeild vegna gruns um ofkælingu en hinni konunni varð ekki meint af. Slökkviliðið vill vara fólk við að ganga á ísnum þar sem hann er mjög ótraustur. 15.1.2006 14:22
Stórhríð er á suðausturlandi og ófært á Breiðdalsheiði og Öxi Stórhríð er á suðausturlandi og ófært á Breiðdalsheiði og Öxi og mikil hálka er víða á suðurlandi. 15.1.2006 12:11
Stríð þó vopnahlé sé í gildi Íslenskur friðargæsluliði slapp ómeiddur þegar sprengja sprakk nálægt dvalarstað hans í borginni Batticaloa á Sri Lanka. Starfsmaður Þróunarsamvinnustofnunar Íslands á Sri Lanka segir ljóst að stríð geysi í landinu þó vopnahlé sé í gildi. 15.1.2006 12:07
Forsætisráðuneytinu var ekki heimilt að binda ráðningu umboðsmanns barna við lögfræðimenntun. Þetta kemur fram í úrskurði umboðsmanns Alþingis 15.1.2006 12:06
Opnað í Hlíðarfjalli Opnað var í Hliðarfjalli í morgun og segir starfsfólk þar útlit fyrir góðan skíðadag. 15.1.2006 11:57
Erling Ásgeirsson í 1. sæti Erling Ásgeirsson varð í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ sem fór fram í dag. Páll Hilmarsson varð í öðru sæti en Stefán Konráðsson í því þriðja. Kosningaþátttaka svar 81.2% og er prófkjörið því bindandi samkvæmt prófkjörsreglum Sjálfstæðisflokksins. 14.1.2006 22:12
Fjögur sjúkraflug í dag Mikið hefur verið að gera í sjúkraflugi í dag og hefur verið flogið fjórum sinnum. Þar af þurfti að sinna þremur sjúklingum strax. Flugfélag Íslands flaug í öll skiptin. 14.1.2006 19:07
Útilt fyrir að Erling Ásgeirsson leiði Sjálfstæðisflokkinn í Garðabæ Útlit er fyrir að Erling Ásgeirsson leiði lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Búist er við að flokkurinn vilji að Gunnar Einarsson verði bæjarstjóri áfram. 14.1.2006 18:55
Íslenskan friðargæsluliða sakaði ekki þegar bílasprengja sprakk á Sri Lanka Íslenskan friðargæsluliða sakaði ekki þegar bílsprengja sprakk nálægt höfðustöðvum norrænna friðargæsluliða í borginni Batticaloa á Sri Lanka í gær. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu lét enginn lífið í árásinni og enginn særðist. 14.1.2006 18:29
Sex á slysadeild vegna líkamsmeiðinga Sex manns komu á slysadeild í morgun vegna líkamsmeiðinga og ofbeldisáverka. Einn maður var fluttur meðvitundarlaus á slysadeild eftir að hann var sleginn niður. 14.1.2006 12:32
Lést í umferðarslysi Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Sæbraut í Reykjavík í gærmorgun, hét Pétur Sigurðsson til heimilis að Geitlandi 8 Reykjavík. Hann var fæddur tuttugasta og sjöunda janúar árið 1946 og hefði því orðið sextugur í þessum mánuði. Pétur, sem var kjötiðnaðarmaður og strætisvagnabílstjóri, lætur eftir sig eiginkonu og uppkomin börn. 14.1.2006 12:28
Bæjarstjóri sækist ekki eftir sæti á lista Sjálfstæðismanna í Garðabæ Sjálfstæðismenn í Garðabæ hafa ekki ákveðið hvort núverandi bæjarstjóri, verði bæjarstjóraefni flokksins vegna sveitastjórnarkosninga í vor. Prófkjör flokksins þar í bæ er haldið í dag í fyrsta sinn í tæpa þrjá áratugi og er bæjarstjórinn ekki í framboði. 14.1.2006 12:17
Býst við fjörugum umræðum á launamálaráðstefnu Formaður launanefndar sveitarfélaganna segir miklar væntingar til launamálaráðstefnu sem haldin verið næsta föstudag en að þau deilumál sem uppi eru í kjaramálum verði ekki leyst strax þann dag. Hann býst við fjörugum umræðum á ráðstefnunni þar sem fjárhagsleg staða sveitarfélaganna sé mjög mismunandi. 14.1.2006 11:45
Prófkjör hjá Sjálfstæðismönnum í Garðabæ Prófkjör verður haldið í dag hjá Sjálfstæðismönnum í Garðabæ vegna sveitastjórnakosninga í vor. Aðeins tveir bjóða sig fram í fyrsta sæti en það eru Erling Ásgeirsson og Páll Hilmarsson. 14.1.2006 10:05
Tveir menn verða fyrir líkamsárás í nótt. Rólegt var í öllum umdæmum lögreglunnar á landinu í gærkveldi og í nótt. Þó voru tvær líkamsárásir í Reykjavík. Um klukkan 7 í morgun var maður sleginn niður fyrir utan veitingastaðinn Amsterdam í Tryggvagötu. 14.1.2006 10:03
Mannréttindaskrifstofa sækist eftir öllu fénu Mannréttindaskrifstofa Íslands hyggst sækjast eftir öllum þeim átta milljónum króna sem dóms- og kirkjumálaráðuneytið veitir til verkefna á sviði mannréttindamála. Þá mun skrifstofan halda áfram baráttu sinni fyrir því að fá fast fjármagn á fjárlögum. 13.1.2006 23:07
LungA hlaut Eyrarrósina LungA - listahátíð ungs fólks, Austurland varð hlutskarpasta verkefnið sem tilnefnt var til EyrarrósarinnarÞað var Dorrit Moussaieff, forsetafrú og sérlegur verndari Eyrarrósarinnar sem afhenti framkvæmdarstjóra LungA verðlaunin á Bessastöðum. 13.1.2006 22:43
Sigvaldi Kaldalóns 125 ára Sigvaldi Kaldalóns, eitt ástsælasta tónskáld þjóðarinnar, hefði orðið hundrað tuttugu og fimm ára í dag. Sigvaldi samdi á annað hundrað söng- og kórlaga sem mörg hver njóta enn mikilla vinsælda. 13.1.2006 22:28
Fádæma mikið álag á slökkviliði Fádæma mikið hefur verið að gera hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins við sjúkraflutninga í dag. Frá klukkan hálfátta í morgun til klukkan tíu í kvöld fór slökkviliðið í 76 sjúkraflutninga en á meðaldegi eru flutningarnir á milli fjörutíu og fimmtíu talsins. 13.1.2006 22:11
Börnum boðið á fjármálakvöld Ófjárráða börn í Kópavoginu fengu í vikunni boð um að mæta á fjármálakvöld Landsbankans. Framkvæmdastjóri Landsbankans segir um misskiling að ræða. 13.1.2006 22:00
Ódýrari tryggingar til skemmri tíma Nýtt tryggingafélag, sem er í eigu Tryggingamiðstöðvarinnar, býður bílatryggingar til mánaðar í senn. Félagið ætlar að bjóða tryggingar allt að fjórðungi undir listaverði tryggingafélaganna. 13.1.2006 21:15
Mótmæla lögregluvaldi Vegagerðar Landssamband lögreglumanna mótmælir því harðlega að starfsmönnum Vegagerðarinnar verði veitt víðtækt lögregluvald og telur svo vanhugsaðar lagabreytingar illskiljanlegar. Þá hafa atvinnubílstjórar hafið undirskriftasöfnun gegn áformunum. 13.1.2006 20:55
Um tuttugu árekstrar í dag Það urðu fjölmargir árekstrar í höfuðborginni í dag vegna ófærðar og mikill erill var hjá lögreglu. Þetta er mesti snjór í Reykjavík í nokkurn tíma, en hætta er á að ekkert ferðaveður verði á vestanverðu landinu í kvöld. 13.1.2006 20:35
Ekkert banaslys frá tvöföldun Ekkert dauðaslys hefur orðið á Reykjanesbrautinni frá því hluti hennar var tvöfaldaður. Áður voru banaslysin þar fimm að jafnaði á hverju ári. Breikkun næsta áfanga, milli Strandarheiðar og Njarðvíkur, er nú hafin. 13.1.2006 20:20
Ekki þrýst á ritstjóra DV Gunnar Smári Egilsson framkvæmdastjóri Dagsbrúnar segir að ekki hafi verið þrýst á ritstjóra DV um að hætta störfum. Þeir hafi kosið að gera það sjálfir í ljósi umræðu síðustu daga. Hann kannast ekki við tilboð Björgólfs Guðmundssonar um að kaupa blaðið til að koma í veg fyrir umfjöllun um sjálfa sig. Það sé þó ótrúlegt ef mönnum detti slíkt í hug á Vesturlöndum. 13.1.2006 19:04
Ritstjóraskipti á DV Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason hafa látið af störfum sem ritstjórar DV að eigin ósk. Í yfirlýsingu þeirra segir að nauðsynlegt sé að skapa ró um blaðið og koma á vinnufriði. Páll Baldvin Baldvinsson og Björgvin Guðmundsson eru nýir ritstjórar blaðsins. 13.1.2006 18:49
Strætisvagnsstjóri beið bana Strætisvagnabílstjóri beið bana í morgun, þegar vagninn hans lenti aftan á vöruflutningabíl. Engir farþegar voru í strætisvagninum. 13.1.2006 18:47
Kanna sameiningu HÍ og KHÍ Kanna á kosti þess að sameina Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands. Menntamálaráðuneytið hefur skipað starfshóp sem fer yfir kosti og galla sameiningar. 13.1.2006 17:36
Tveir skjálftar á rúmlega hálftíma Tveir skjálftar hafa mælst í dag sem eru sterkari en þrír á Richterkvarða. Fyrri skjálftinn mældist um þrír á Richter og varð í Vatnajökli, norðan við Bárðarbungu, og reið yfir rétt fyrir klukkan þrjú. Seinni skjálftinn varð rétt út af Tjörnesi um hálftíma síðar og mældist hann 3,5 á Richterkvarða. 13.1.2006 17:28