Vonar að tillagan verði samþykkt 16. janúar 2006 11:16
Ólafur F. Magnússon ber upp tillögu um verndun Þjórsárvera í borgarstjórn á morgun og binda F-lista menn miklar vonir við að hún verði samþykkt en það yrði þá í fyrsta skipti sem borgarstjórn leggst gegn áformum ríkisvaldsins og Landsvirkjunar í virkjanamálum. Tillaga Ólafs F. Magnússonar til verndar Þjórsárverum. Eins og áður segir þá væntir tillöguflytjandi þess að tillögur hans til verndar Þjórsárverum fái víðtækan stuðning í borgarstjórn Reykjavíkur. Fyrir liggur sterk andstaða heimamanna við fyrirhugaðar virkjanaframkvæmdir í Þjórsárverum og stuðningur almennings við stækkun friðlandsins í Þjórsárverum. Þýðingarmikið er að borgarstjórn leggist gegn frekari aðför ríkisstjórnar og Landsvirkjunar að helstu náttúruperlum landsins og standi sig betur í þeim efnum nú en í framgöngu sinni vegna áður fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar og þess umhverfisslyss sem nú á sér stað við Kárahnjúka. Tillöguflytjandi minnir á að í október árið 1999 lagði hann fram tillögu í borgarstjórn (sem þáverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins) um að krafist yrði lögformlegs mats á umhverfisáhrifum Fljótsdalsvirkjunar þannig að koma mætti í veg fyrir gerð uppistöðilóns á Eyjabökkum. Sú tillaga hlaut ekki stuðning neins annars kjörins aðalborgarfulltrúa en tveir varaborgarfulltrúar R-lista studdu tillöguna og einn varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks sat hjá. Sigur vannst hins vegar í Eyjabakkamálinu á öðrum vettvangi þar sem söfnun Umhverfisvina á 45.386 undirskriftum til stuðnings kröfunni um lögformlegt umhverfismat Fljótsdalsvirkjunar vóg þyngst. Tillöguflytjandi minnir einnig á að hann flutti alls fimm tillögur í borgarstjórn, á tímabilinu 2001-2003, sem beindust gegn þátttöku Reykvíkurborgar í Kárahnjúkavirkjun og ábyrgð Reykvíkinga á þeirri framkvæmd. Þegar borgarstjórn samþykkti ábyrgðir Reykvíkinga á Kárahnjúkavirkjun lögðust fimm borgarfulltrúar gegn þátttöku borgarinnar í framkvæmdinni. Andstaðan við Kárahnjúkavirkjun var þannig meiri innan borgarstjórnar en andstaðan við áður fyrirhugaða Fljótsdalsvirkjun. Hins vegar tókst ekki að fylkja liði gegn Kárahnjúkavirkjun úti í samfélaginu á sama hátt og gegn Fljótsdalsvirkjun og uppistöðulóni á Eyjabökkum. Nú er hins vegar lag fyrir borgarstjórn Reykjavíkur að leggja fram sinn skerf til verndar Þjórsárverum og gegn frekari náttúruspjöllum í grennd við verin. Sterk andstaða heimamanna og almennings í landinu gegn fyrirhuguðum virkjanaframkvæmdum gerir það mögulegt.
Fréttir Innlent Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Sjá meira