Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lyfjaverð lækkar ekki sem skyldi Samningar ríkisvaldsins við lyfjaframleiðendur og innflytjendur um lækkun lyfjaverðs hefur ekki skilað sér til neytenda að því er fram kemur í könnun Alþýðusambands Íslands. Hlutur sjúklinga í lyfjakostnaði hefur hækkað í einhverjum tilfellum þar sem hlutur ríkisins hefur lækkað. 24.11.2005 07:45
Varað við hálku og hálkublettum Hálkublettir eru á Hellisheiði samkvæmt Vegagerðinni. Hálka er á Holtavörðuheiði og á Bröttubrekku og víða á Vestfjörðum og á Norðulandi. Hálka og skafrenningur er á Norðausturlandi og hálkublettir á fjallvegum á Austurlandi. 24.11.2005 07:42
Slasaðist þegar bíll valt í Þrengslunum Ökumaður slasaðist þegar bíll hans valt á gatnamótum Þorlákshafnarvegar og Þrengslavegar í gærkvöldi. Hann var fluttur á Slysadeild Landsspítalans, en er ekki í lífshættu. Hann var einn í bílnum og er ekki vitað um tildrög slyssins. 24.11.2005 07:15
Öryrkjar ætla alla leið með skerðingarmál Forystumenn Öryrkjabandalagsins hyggjast leita á náðir dómsstóla varðandi skerðingu bóta um áttatíu öryrkja. Þeir segja nýjar vinnureglur Tryggingastofnunar stangast á við lög. Enginn ástæða sé til þess að grípa til jafn harkalegra aðgerða og nú er beitt gagnvart fársjúku fólki. 24.11.2005 07:00
Fangar pakka inn jólakortum Fangar í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg og í Fangelsinu á Akureyri hafa unnið að því að pakka inn jólakortum fyrir ABC barnahjálp síðustu daga. Um tímabundið verkefni er að ræða en vinnumöguleikar fyrir fangana eru takmarkaðir í þessum fangelsum sökum aðstöðuleysis. 23.11.2005 22:40
Núverand hækkun vaxta á íbúðalánum leiðir ekki til lækkunar húsnæðisverðs Íbúðalánasjóður og allir bankarnir fyrir utan KB banka hafa hækkað vexti sína af íbúðalánum. Sérfræðingar telja þó að þessi hækkun vaxta muni ekki leiða af sér lækkun húsnæðisverðs. 23.11.2005 22:11
Skráir ættir allra Íslendinga Allir Íslendingar, fyrr og síðar, sem og afkomendur þeirra í útlöndum, eru að eignast samastað. Sá er í Skerjafirði. Þetta varanlega heimili Íslendinga er hjá Ættfræðiþjónustu Odds Helgasonar. 23.11.2005 21:28
20.000 manns eiga inneign hjá Tryggingastofnun ríkisins Ástæða hárra bakreikninga til öryrkja frá Tryggingastofnun er í flestum tilvikum sú að þeir hafa vantalið tekjur sínar. Það eru hins vegar ekki bara sendir út bakreikningar, 20.000 manns eiga inneign hjá TR sem greidd verður út fyrir jól. 23.11.2005 21:16
Dómsmálaráðherra ráðstafar einn átta milljónum til mannréttindamála Dómsmálaráðherra verður nú einn að ráðstafa átta milljónum til mannréttindamála eftir breytingar á fjárlagafrumvarpinu í meðförum fjárlaganefndar. Fjórar milljónir á forræði utanríkisráðherra færast á hendur Björns Bjarnasonar. Þingmaður Samfylkingarinnar segir þetta ekki djarfmannlegt af nýjum formanni Sjálfstæðisflokksins. 23.11.2005 21:05
Telur að vextir á íbúðalánum muni lækka þegar nær dregur áramótum Vextir á íbúðalánum lækka aftur þegar nær dregur áramótum, að mati framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs, en sjóðurinn hækkaði vexti sína í morgun. Landsbankinn var fyrstur til að hækka vexti í þessari hrinu fyrir hálfum mánuði, en Sparisjóðirnir og Íslandsbanki fylgdu í kjölfarið í dag. KB-banki er að skoða málið. 23.11.2005 21:03
Ráðherrar sakaðir um að forðasta að svara spurningum um Kárahnjúkavirkjun Ráðherrar voru sakaðir á Alþingi í dag um að svara óþægilegum fyrirspurnum um Kárahnjúkavirkjun ýmist með þvættingi eða alls engu. 23.11.2005 20:45
Vill að Fiskistofa svari Fiskistofa þverbrýtur allar stjórnsýslureglur þegar hún neitar að upplýsa um leigukvótaviðskipti síðasta árs sem námu 9 milljörðum króna. Þetta segir Sigurjón Þórðarson þingmaður Frjálslynda flokksins sem hefur óskað eftir því að Sjávarútvegsráðherra reki á eftir stofnuninni að svara. 23.11.2005 20:24
Kertasníkir á leið til Finnlands Kertasníkir millilenti á Reykjavíkurflugvelli í dag en hann er á leið frá Mývatni til Finnlands á jólasýningu. Kertasníkir var í sínu fínasta pússi en íslensku jólasveinarnir eru komnir í nýja búninga. 23.11.2005 20:15
Eitthvað rortið við íslenkt bankaveldi? Er eitthvað rotið í íslensku bankaveldi spyr Skotlandsbanki í nýlegri greiningu sinni á KB banka. Bankinn taki óþarfa áhættu og spurningar vakni varðandi fjármögnun og eignatengsl. Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Radings gaf hins vegar KB banka hæstu einkunn í dag og segir horfur í rekstrinum stöðugar. 23.11.2005 19:30
Konukot opið allan sólarhringinn Konukot verður framvegis opið allan sólarhringinn. Velferðarráð Reykjavíkur hefur ákveðið að veita Rauða kross Íslands fé til að svo geti orðið. 23.11.2005 19:10
Leggst gegn hlutlausri úttekt Félagsmálaráðuneyti leggst gegn hlutlausri úttekt á fjárhagslegri stöðu Íbúðalánasjóðs sem ákveðið var að ráðast í í júní og ber við kostnaði. Ríkisábyrgðarsjóður getur ekki mælt með frekari ríkisábyrgðum vegna sjóðsins meðan engin úttekt liggur fyrir. Skýrsla ríkisendurskoðunar um sjóðinn er væntanleg í næstu viku. 23.11.2005 19:00
Enn eykst skuldabréfaútgáfa erlendra aðila Skuldabréfaútgáfa erlendra aðila í íslenskum krónum er nú komin yfir hundrað og fimmtán milljarða króna. Deutsche Bank gaf í gær út skuldabréf fyrir um einn milljarð króna og verða þau innleysanleg í september á næsta ári. Hlé hafði verið á útgáfunni síðan ellefta þessa mánaðar. 23.11.2005 15:13
Allir bankarnir nema KB banki hafa hækkað íbúðalánavexti Íslandsbanki hefur hækkað vexti íbúðalána úr 4,15% í 4,35%. Í tilkynningu frá bankanum segir að þetta sé gert vegna hækkana Íbúðalánasjóðs á íbúðalánum sínum. Hækkanirnar taka strax gildi. Þá hafa allir bankarnir nema KB-banki tilkynnt hækkun á vöxtum íbúðalána. Í morgun hækkaði SPRON vexti sína í 4,35% og fyrir nokkru hækkað Landsbankinn sína vexti í 4,45%. 23.11.2005 15:10
Annar drengjanna sem brenndust enn á gjörgæslu Annar drengjanna sem brenndust illa þegar þeir voru að fikta með eldfiman vökva í Grafarvogi á sunndagskvöld er enn á gjörgæsludeild Landspítalans og óvíst hvenær hann losnar þaðan. Honum er haldið sofandi í öndunarvél en hann brann á um 30 prósentum líkamans. 23.11.2005 14:37
5-10 aðilar fá að bjóða í smíði nýs varðskips Farið verður í forval á skipasmíðastöðvum sem uppfylltu ákveðin skilyrði m.t.t. rekstrarstöðu og reynslu af sambærilegum verkefnum vegna smíði nýs varðskips fyrir Landhelgisgæslu Íslands. Þetta tilkynnti Björn Bjarnason á ríkisstjórnarfundi í morgun. Í kjölfar forvals verða valdir 5-10 aðilar sem síðan fá að bjóða í smíði á nýju fjölnota varðskipi. 23.11.2005 14:15
Skilyrðum símapeninga við lagningu Sundabrautar aflétt Vegagerðin er tilbúin að aflétta skilyrðum sem fylgdu símapeningunum við fyrirhugaðar framkvæmdir á Sundabraut. Vegagerðin telur nauðsynlegt að skoða allt málið í heild sinni í ljósi ákafra mótmæla íbúasamtaka Grafarvogs og Laugardals. 23.11.2005 14:00
Heiðurslaun til 27 listamanna á næsta ári 27 listamenn munu fá heiðurslaun á næsta ári samkvæmt tillögu menntamálanefndar sem lögð hefur verið fram. Hver listamaður fær 1,6 milljónir króna og því nema launin samtals 43,2 milljónum. 23.11.2005 13:45
Ekið á unglinsstúlku við Suðurlandsbraut Ekið var á unglingsstúlku þar sem hún var á gangi við Suðurlandsbraut á tíunda tímanum í morgun. Ekki er ljóst hver aðdragandi slyssins varð en stúlkan slapp vel að sögn lögreglu. Hún var þó flutt með sjúkrabíl á slysadeild en meiðsli hennar reyndust minni háttar. 23.11.2005 13:00
Enn einu sinni bilun á Farice-streng Farice-strengurinn hefur enn einu sinni farið í sundur við Skotland, nú á milli Elgin og Inverness. Bilanaleit er þegar hafin en bilunin hefur áhrif á netumferð til útlanda og gæti einnig valdið truflunum á símasambandi við útlönd. 23.11.2005 12:13
Orðalagið ekki við hæfi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gagnrýnir Morgunblaðið fyrir umfjöllun blaðsins um veru forsetans við embættistöku furstans af Mónakó, í athugasemdum við skrif blaðsins sem birtust í Staksteinum í Morgunblaðinu í gær. 23.11.2005 12:04
Vaxtahækkun getur leitt af sér lækkun á húsnæðisverði Sérfræðingar á fjármálamarkaði segja að ef ámóta hækkanir verði hjá öllum þýði það að minnsta kosti átta prósenta hækkun fjármagnskostnaðar vegna íbúðakaupa og að hækkunin geti leitt af sér lækkun á húsnæðisverði. 23.11.2005 12:00
Marsibil sækist eftir öðru sæti á lista Framsóknar í Reykjavík Marsibil Jóna Sæmundsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2.sæti á lista Framsóknarflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. Marsibil hefur verið varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins innan R-listans á þessu kjörtímabili. 23.11.2005 11:56
Samgönguráðherra í opinberri heimsókn í Kína Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Hallgerður Gunnarsdóttir eiginkona hans eru stödd í opinberri heimsókn í Kína ásamt fylgdarliði. Tilefni heimsóknarinnar er boð kínverskra ferðamálayfirvalda. 23.11.2005 11:00
Tyrkir vilja loka dansk-kúrdískri sjónvarpsstöð Tyrknesk yfirvöld krefjast þess að dönsk yfirvöld hlutist til um að loka dansk-kúrdísku útvarpsstöðinni Roj TV sem sendir út frá Danmörku. Sjónvarpssöðin er til rannsóknar grunuð um tengsl við hryðjuverkasamtök og er sögð taka við fé frá PKK, aðkilnaðarsinnarsinnum Kúrdíska verkamannaflokksins. Sjónvarpsstöðin hefur undanfarið sent út áróður PKK, gegn tyrknesku ríkisstjórninni þar sem hvatt er til uppreisna. Utanríkisráðherra Dana, Per Stig Möller, segir að hann ætli ekki að blanda sér í málið, heldur leyfa lögreglunni að ljúka rannsókninni. 23.11.2005 10:30
Virðisaukaskattur ofáætlaður Nær allur virðisaukaskattur sem skattayfirvöld áætluðu á fyrirtæki og einstaklinga sem ekki töldu fram á síðasta ári var látinn niður falla að því er fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar. 23.11.2005 10:15
Tveir flokkar og hærri vextir Íbúðalánasjóður býður upp á tvo lánaflokka frá og með deginum í dag. Fólk getur valið þau lán sem hafa staðið til boða hingað til og bera hér eftir 4,6 prósenta vexti sem er hækkun upp á 45 punkta, eða lán sem ekki er hægt að greiða upp nema gegn sérstakri uppgreiðsluþóknun og þá eru vextirnir 4,35 prósent. 23.11.2005 10:11
Aflaverðmæti íslenskra skipa nánast óbreytt milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum miðum á tímabilinu janúar til ágúst á þessu ári var 46,4 milljarðar króna sem er nánast það sama og á fyrstu átta mánuðum ársins 2004. 23.11.2005 10:01
Tölvuþrjótar breyta aðferðum sínum Tölvuþrjótar hafa í auknum mæli snúið sér frá því að ráðast á stýrikerfi tölva og kjósa frekar að ráðast á ýmis önnur forrit til þess að fá aðgang að netjónum sem og tölvum. Samkvæmt nýlegri rannsókn Bandaríska heimavarnarráðuneytisins og innra öryggiseftirlits bresku ríkisstjórnarinnar eru alls kyns afspilunarforit og vírusvarnarforrit meðal þeirra forrita sem þeir einbeita sér að í auknum mæli. 23.11.2005 10:00
Fangar pakka inn jólakortum Fangar í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg og Fangelsinu á Akureyri eru nú teknir til við hjálparstarf í þágu munaðarlausra barna í Úganda, Indlandi, Pakistan og á Filippseyjum. 23.11.2005 09:45
SPRON hækkar íbúðalánavexti SPRON hefur ákveðið að hækka vexti íbúðalána úr 4,15 prósentum í 4,35 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sparisjónunum í dag. 23.11.2005 09:34
Fjörutíu milljarða jólahátíð Viðbótarútgjöld fjögurra manna fjölskyldu vegna jólavertíðarinnar verða tæpar 80 þúsund krónur samkvæmt spám Rannsóknarseturs verslunarinnar. Velta verslana getur aukist um 20 prósent vegna jólanna. 23.11.2005 08:00
Ellefu menn verði í nefnd um alþjóðlega fjármálastarfsemi Ellefu menn verða í nefnd, sem á að fjalla um uppbyggingu alþjóðlegrar fjármálastarfssemi hér á landi, að því er Viðskiptablaðið greinir frá. Forsætisráðherra mun væntanlega skipa nefndina í dag en Sigurður Einarsson stjórnarformaður KB banka hefur þegar verið útnefndur formaður. 23.11.2005 08:00
Ríkissaksóknari áfrýjar dómi yfir Ramsey Ríkissaksóknari hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjaness yfir Scott Ramsey til Hæstaréttar og krefst þyngri refsingar. Ramsey var í síðasta mánuði dæmdur í 18 mánaða fangelsi, þar af 15 skilorðsbundna, fyrir að slá danskan hermann í höfuðið með þeim afleiðingum að hann lét lífið. 23.11.2005 07:45
Erum með tvo gjaldmiðla Jón Magnússon hrl. segir að íslenska krónan hafi verið að styrkjast verulega gagnvart evrópsku gjaldmiðlunum ef þróunin fimm síðustu árin er skoðuð. Á sama tíma hafi vísitala neysluverðs til verðtryggingar hækkað enn meira, eða í raun um 20 prósent umfram krónuna. 23.11.2005 07:30
Lögmenn skoða málið Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi FL Group, segir að ekki hafi enn verið tekin ákvörðun um hvort fyrirtækið kæri olíufélögin. Hann segir að lögmönnum fyrirtækisins hafi verið falið að skoða málið og gæta réttar þess. 23.11.2005 06:30
Beðið er ákvörðunar um ákærur Ríkissaksóknari fer þessa dagana yfir rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á samráði olíufélaganna. Þess er beðið hvort og hversu umfangsmiklar ákærur verði gefnar út í málinu. Rannsökuð voru meint brot félaganna og stjórnenda þeirra á samkeppnislögum frá 1993, en við stórfelldum brotum liggur allt að fjögurra ára fangelsi. 23.11.2005 06:30
Fleiri útgerðir kæra Friðrik Jón Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að nokkrar útgerðir hafi ákveðið að bætast í hóp útgerðarfélaga sem hyggjast leggja fram kæru vegna ólöglegs samráðs olíufélaganna. 23.11.2005 06:30
Nær allir vildu forstjórana fyrir dóm Óvenjumargir tóku afstöðu til spurningar um hvort forstjórar olíufélaganna ættu að svara til saka fyrir ólöglegt verðsamráð þeirra, í könnun sem blaðið gerði í byrjun nóvember í fyrra. Könnunin var gerð í kjölfar sektarákvörðunar samkeppnisráðs. 96,7 prósent vildu svara og taka með því afstöðu til málsins. 99 prósent þeirra sem svöruðu vildu láta draga forstjórana til ábyrgðar. Eitt prósent var því ósammála. 23.11.2005 06:30
Ráðuneyti fær gögn Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að gögn vegna kæru Landhelgisgæslunnar á hendur olíufélögunum hafi verið send til dómsmálaráðuneytisins. Hann segir að gögnin séu þar til skoðunar og að Landhelgisgæslan hafi ekki fengið nein viðbrögð frá dómsmálaráðuneytinu enn sem komið er. 23.11.2005 06:30
Skaftafellsjökull hefur hopað um 97 metra síðastliðið ár Skaftafellsjökull hefur hopað um 97 metra síðastliðið ár samkvæmt mælingum. Aðrir jöklar í Öræfasveit hafa ekki hopað jafn mikið en þó má almennt segja að íslenskir jöklar séu að hopa. 23.11.2005 06:00