Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Atvinnuþátttaka Íslendinga eykst Konur sækja í sig veðrið á vinnumarkaðnum sem sést af því að litlu fleiri konur eru nú atvinnulausar en karlar, en voru nær tvöfalt fleiri í fyrra. Atvinnuþátttaka Íslendinga er sú langmesta á Vesturlöndum og ef til vill í heiminum. Hún er núna 83,5 prósent eða u.þ.b. einu prósentustigi meiri en á sama tíma í fyrra. 20.7.2005 00:01
Enginn byggir á öryggissvæðinu Samgönguráðherra segir ljóst að enginn byggi á öryggissvæði Reykjavíkurflugvallar. Fyrirhugað byggingasvæði Háskólans í Reykjavík nær inn fyrir öryggisgirðingar Reykjavíkurflugvallar og upp að flughlaði björgunarþyrlna Landhelgisgæslunnar. Ekkert samráð var haft við flugmálayfirvöld um byggingaráformin. 20.7.2005 00:01
Fá tæpar 300 krónur á tímann Verkalýðsfélag Akraness leggur í dag fram kæru á hendur Sputnikbátum vegna starfa fimm Pólverja sem formaður félagsins segir að fái tæpar 300 krónur í laun á tímann. Ágreiningur er um hvort mennirnir stundi hefðbundna launavinnu eða starfi samkvæmt samningi um þjónustuviðskipti. 20.7.2005 00:01
120 rafiðnarmenn til landsins Eitt hundrað og tuttugu rafiðnaðarmenn frá Slóveníu og Króatíu eru væntanlegir til landsins til að reisa nýja línu frá Sultartanga inn í Hvalfjörð vegna stækkunar Norðuráls. Þetta eru rafiðnaðarmenn sem sjá um að reisa möstrin og strekkja út línurnar og járniðnaðarmenn sem sjá um samsetningar á möstrunum. 20.7.2005 00:01
Íslenskir jeppar í friðargæslu Íslenskir fjallajeppar verða notaðir við friðargæslu í Afganistan. Bandaríkjamenn vilja að íslenskir friðargæsluliðar og kollegar þeirra taki við störfum í Suður-Afganistan þar sem talíbanar eru skæðir og drepi menn, þurfi þess. 20.7.2005 00:01
Enginn mótmælenda kærður Enginn þeirra sem mótmæltu við Kárahnjúka í gær verða kærðir vegna málsins. Talsmaður Landsvirkjunar segir þó að frekari mótmæli af þessu tagi verði ekki liðin. 20.7.2005 00:01
Ósátt við starfsmatið Félagar í Starfsmannafélagi Kópavogs felldu kjarasamning við bæinn með 55 prósentum atkvæða í kosningu þar sem 160 af 766 félagsmönnum greiddu atkvæði. 20.7.2005 00:01
Sigmundur Ernir í stað Páls Páll Magnússon segist ósammála grundvallarstefnu fjölmiðlafyrirtækisins 365 og hefur látið af störfum hjá félaginu. Hann ætlar að sækja um stöðu útvarpsstjóra í dag. Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur verið ráðinn fréttastjóri Stöðvar 2. 20.7.2005 00:01
Ógnað í yfirheyrslum "Ég var óörugg um mína stöðu enda fékk ég aldrei upplýsingar um hvað gerðist næst," segir Arna Ösp Magnúsardóttir, tvítugur Palestínufari. Arna er komin til Lundúna eftir handtöku ísraelskra yfirvalda á flugvellinum í Tel Aviv í Ísrael á mánudag. 20.7.2005 00:01
Freista þess að komast til Nablus "Það er óvíst að við komumst til Nablus vegna ástandsins sem hér ríkir," segir Margrét Scheving Thorsteinsson, ein sex íslenskra ungmenna sem stödd eru í Palestínu. Vaxandi spennu hefur gætt í samskiptum Ísraela og Palestínumanna. 20.7.2005 00:01
Umferðartafir í nótt Talsverðar umferðartafir urðu á Vesturlandsvegi á milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur í nótt vegna vinnu við tvöföldun vegarins. Honum var lokað klukkan tvö í nótt en umferð hleypt á í af og til í alla nótt.Vegurinn var opnaður á ný klukkan sjö í morgun. 19.7.2005 00:01
Vændislisti Lögreglan í Kópavogi yfirheyrði í gær karlmann á fimmtugsaldri sem er grunaður um að hafa selt lista með nöfnum og símanúmerum fimm vændiskvenna. Maðurinn er grunaður um að hafa selt listann í gegnum heimasíðurnar einkamál.is og private.is á sex þúsund krónur. 19.7.2005 00:01
Fimm handteknir fyrir ýmis afbrot Lögreglan í Reykjavík handtók fimm menn í bíl í gær, en þeir eru allir grunaðir um ýmis afbrot að undanförnu. Rannsóknadeild lögreglunnar yfirheyrði mennina fram undir miðnætti og sleppti tveimur að þeim loknum. Þrír verða yfirheyrðir nánar í dag. Ekki liggur fyrir um hvaða afbrot þeir eru grunaðir, en þeir munu flestir eða allir eiga nokkurn afbrotaferil að baki. 19.7.2005 00:01
Drengir kveiktu í bíl Tveir fjórtán ára drengir sluppu með skrekkinn þegar þeir voru að fikta með eld inni í yfirgefnum bíl við Hagasmára á móts við Smáralilnd í gærkvöldi. Þeir misstu eldinn úr böndunum með þeim afleiðingum að bíllinn varð alelda á skammri stundu, en þeir sluppu ómeiddir út eftir að hafa reynt að slökkva eldinn. 19.7.2005 00:01
Össur segir ekki nei Össur Skarphéðinsson segir að mikil umfjöllun sín um málefni R- listans á sama tíma og aðrir aðstandendur listans þegja þunnu hljóði, sé ekki til marks um það að hann ætli að snúa sér aftur að borgarmálunum og telur afar ólíklegt að nafn hans komi upp sem borgarstjóraefni listans, en útilokar það þó ekki með öllu. 19.7.2005 00:01
Yfirheyrður vegna sölu vændislista Maður, sem er grunaður um að hafa selt lista með nöfnum fimm vændiskvenna á Netinu var yfirheyrður af lögreglunni í Kópavogi í gær. Maðurinn er grunaður um að hafa selt listann í gegnum heimasíðurnar private.is og einkamal.is á sex þúsund krónur. 19.7.2005 00:01
Með stærstu háspennulínum í heimi Fjögur íslensk fyrirtæki koma að byggingu rúmlega sjö megavatta vatnsaflsvirkjunar á Grænlandi fyrir grænlensku orkuveituna. Það eru fyrirtækin Ístak, Landsvirkjun, Línuhönnun og Afl sem koma að byggingu virkjunarinnar sem staðsett verður á Suður Grænlandi. 19.7.2005 00:01
Framkvæmdastjóri Suðurness ósáttur Framtíð fiskvinnslufyrirtækisins Suðurness í Reykjanesbæ ræðst í dag þegar hollenskur eigandi fyrirtæksins fundar með starfsmönnum. Rúmlega fjörtíu manns munu missa vinnuna í haust hætti fyrirtækið rekstri. 19.7.2005 00:01
Verðbólga minnst á Íslandi Verðbólga á Íslandi reyndist aðeins 0,3% í júní samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs sem Hagstofan birti í morgun, en verðbólga hefur minnkað mikið síðustu mánuðina á þennan mælikvarða. Til samanburðar var verðbólga 2,0% að meðaltali á Evrópska efnahagssvæðinu og innan þess er hún nú minnst á Íslandi. 19.7.2005 00:01
Mótmæli við Kárahnjúka Fimmtán manns, flestir útlendingar, fóru inn á stíflusvæðið hjá Kárahnjúkavirkun í hádeginu í dag og stöðvuðu umferð að svæðinu í mótmælaskyni við framkvæmdirnar. Þeir hlekkjuðu sig við vinnuvélar og lögðu bílum þvert yfir veginn að Steypustöðinni til að vörubílar kæmust hvorki að né frá stíflusvæðinu. 19.7.2005 00:01
Blóðbankann vantar O mínus Birgðir Blóðbankans af O-mínus blóði eru af skornum skammti. Blóðbankinn hefur biðlað til blóðgjafa í þessum flokki að koma og gefa blóð en O-mínus blóð er notað í neyðarblóð sem gengur í alla aðra blóðflokka og því er mikilvægt að birgðir bankans séu ávallt miklar. Sigríður Ósk, hjúkrunarfræðingur hjá Blóðbankanum segir bankann vanta 60 einingar af O-mínus blóði sem fyrst en hver blóðgjafi gefur sem svarar einni einingu. 19.7.2005 00:01
Eyjamenn vilja Pompei norðursins Íbúar Vestmannaeyja virðast jákvæðir fyrir verkefninu Pompei norðursins, sem er uppgröftur húsa og fleiri gosminja sem grófust í undir ösku í Heimaeyjargosinu 1973. Þetta kemur fram í Eyjafréttum í dag. Mikill meirihluti þeirra sem tóku þátt í könnun á vefsíðu Eyjafrétta líst vel á verkefnið sem nú er í fullum gangi. Alls voru rúmlega 71% fylgjandi verkefninu, 19% leist illa á það og tæplega 10% höfðu ekki skoðun á málinu. 19.7.2005 00:01
Friðargæsluliðar til Afghanistan Íslenskir friðargæsluliðar halda til þjálfunar hjá norska hernum í lok júlímánaðar vegna fyrirhugaðrar þátttöku í starfi endurreisnar- og uppbyggingarsveita á vegum friðargæsluliðs Atlantshafsbandalagsins í Afganistan. Þjálfuninni lýkur í byrjun september og fer fyrsti hópurinn til Norður-Afganistan um miðjan þann mánuð. 19.7.2005 00:01
Mótmælendur lausir Þrettán mótmælendur voru handteknir og færðir til skýrslutöku á lögreglustöðinni við Kárahnjúka fyrr í dag. Þeim hefur öllum verið sleppt. 19.7.2005 00:01
Heimsfundur menningarráðherra Fyrsti heimsfundur menningarráðherra úr röðum kvenna verður haldinn í Reykjavík dagana 29.-30. ágúst. Boðað hefur verið til fundarins í tilefni 75 ára afmælis Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta, í apríl síðastliðnum. Að fundinum standa íslensk stjórnvöld í samstarfi við Heimsráð kvenleiðtoga en Vigdís var einn stofnenda og fyrsti formaður ráðsins. 19.7.2005 00:01
Einn Hallormsstaðarskógur á ári "Við í Skógræktinni ræktum því sem nemur einum Hallormsstaðarskógi á ári," segir Jón Loftsson skógræktarstjóri. Hann segir að á síðustu árum hafi 20 þúsund hektarar lands verið ræktaðir en þó sé aðeins 1,3% af flatarmáli Íslands neðan við fjögurhundruð metra hæð yfir sjávarmáli skógi vaxið. 19.7.2005 00:01
Þríburabarnafæðingum fækkar Frá því tæknifrjóvganir hófust árið 1990 hefur fjöldi þríburafæðinga þrefaldast eða jafnvel fjórfaldast að sögn Reynis Tómasar Geirssonar sviðsstjóra lækninga á kvennasviði Landspítala Háskólasjúkrahús. 19.7.2005 00:01
Ný verksmiðja við Mývatn Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu iðnaðarráðherra að verja allt að tvöhundruð milljónum til að kaupa hlutabréf í pappabrettaverksmiðju við Mývatn. Verksmiðjan verður í húsi gömlu kísílgúrverksmiðjunnar sem hætti starfsemi í fyrra. 19.7.2005 00:01
Sendiráð á Indlandi Davíð Oddsson utanríkisráðherra kynnti áform um að opna sendiráð í Indlandi á ríkisstjórnarfundi í morgun. Viðræður standa yfir við Indverja en vonast er til að sendiráðið geti orðið að veruleika um áramót. 19.7.2005 00:01
Sjónarhornið á vændiskaupandann Fimmtíu til níutíu prósent þeirra kvenna sem leiðast út í vændi hafa verið misnotaðar í æsku, að sögn framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins. Goðsögnin um hamingjusömu gleðikonuna er lífseig og snýst um að konan sem selji líkama sinn geri það af fúsum og frjálsum vilja. 19.7.2005 00:01
Friðsamleg mótmæli Þrettán mótmælendur voru handteknir við Kárahnjúka í dag. Vinna við stíflusvæðið lá niðri í tvær og hálfa klukkustund, þegar þeir hlekkjuðu sig við vörubíla og vinnuvélar. Þá lokuðu þeir aðalveginum frá vinnusvæðinu að steypustöðinni með því að leggja fólksbílum yfir þveran veginn. 19.7.2005 00:01
Stefán Jón neitar Stefán Jón Hafstein neitar því alfarið að það hafi verið rætt formlega innan raða Samfylkingarinnar að bjóða fram undir merkjum R-Listans, án Vinstri-grænna og Framsóknarflokksins. Össur Skarphéðinsson segir Stefán hafa setið við hlið sér á fundi Samfylkingarinnar í Reykjavík þegar þetta var rætt og góður rómur gerður að. 19.7.2005 00:01
Hundruð milljóna í kostnað "Ég er ekki með tölurnar í hausnum en þetta eru einhver hundruð milljóna," segir Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, þegar hann er spurður um uppsafnaðan kostnað við Hvalstöðina í Hvalfirði og hvalbátana frá því hvalveiðar lögðust af. 19.7.2005 00:01
Fjöldi nýrra fjósa í byggingu "Það eru sautján ný fjós í byggingu sem ég veit af," segir Lárus Pétursson, umsjónarmaður innréttinga hjá Landstólpa ehf. "Þá eru fimmtán bændur að breyta eldri fjósum og langoftast verið að stækka þau í leiðinni." Lárus segir þessi fjós oftast vera lausagöngufjós með 60-70 bása eða hátt í það. 19.7.2005 00:01
Ekki búið að funda með öryrkjum Fulltrúar Öryrkjabandalags Íslands og Landssamtaka lífeyrissjóða hafa enn ekki fundað vegna bréfs sem um 1.300 öryrkjar fengu á dögunum þar sem þeir voru krafðir um skattframtöl síðustu þriggja ára fyrir örorkumat. Öryrkjabandalag Íslands óskaði eftir slíkum fundi í síðustu viku. 19.7.2005 00:01
Nýr ritstjóri Stúdentablaðsins Magnús Björn Ólafsson stjórnmálafræðinemi hefur verið ráðinn ritstjóri Stúdentablaðsins næsta vetur og tekur við af Helgu Arnardóttir. Sjö sóttu um starfið. Magnús hóf að skrifa greinar í blaðið á vorönn 2004 og var í ritstjórn blaðsins síðasta vetur. 19.7.2005 00:01
Óánægja með ráðningu skólastjórans Mikil óánægja virðist vera með ráðningu Fríðu Regínu Höskuldsdóttir sem skólastjóra Landakotsskóla hjá hluta foreldra og hópi kennara í skólanum. Fullyrða þeir að skólastjórinn sé ekki hlutlaus eins og lofað hafði verið. Einn af fimm stjórnarmönnum greiddi ekki atkvæði með ráðningu hennar. 19.7.2005 00:01
Misskilningur hjá Seðlabankastjóra Seðlabankinn getur ekki ætlast til þess að Íbúðalánasjóður leiki hlutverk í efnahagsstjórn landsins. Sjóðnum beri að ávaxta fé sitt samkvæmt lögum um áhættustýringu bankans. Þetta segir Árni Páll Árnason sem hefur unnið lögmannsstörf fyrir Íbúðalánasjóð og félagsmálaráðuneytið 19.7.2005 00:01
Hrafn Gunnlaugsson mótmælir slætti "Það er fallegt að sjá þessi yndislegu ungmenni starfandi í náttúrunni en maður myndi frekar vilja sjá þau týna upp rusl heldur en að tæta upp þessar alíslensku jurtir sem vaxa þarna ótilneyddar innan borgarmarkanna," segir Hrafn Gunnlaugsson, leikstjóri og íbúi í Laugarnesi, en þar var slegið í góða veðrinu í fyrradag. 19.7.2005 00:01
Þyrla hefði getað komið mun fyrr Þyrla hefði getað komið á vettvang klukkutíma og tuttugu mínútum fyrr en raun bar vitni þegar flutningaskipið Jökulfell sökk út af Færeyjum í febrúar. Þetta er niðurstaða óháðra sérfræðinga frá Norsk Veritas sem telja að senda hefði átt þyrluna mun fyrr á vettvang. Útvarp Föroya greindi frá þessu. 19.7.2005 00:01
Haldið í 30 klukkustundir Tvítug stúlka, Arna Ösp Magnúsdóttir, var í fyrradag handtekin af ísraelskum landamæravörðum á Ben Gurion flugvellinum og virðist hafa verið vísað úr landi. Í tölvupósti sem hún sendi frá Sviss í gær sagði hún að sér hefði verið "haldið í 30 klst án þess að fá að hafa samband við neinn, ekki einu sinni konsúlinn." 19.7.2005 00:01
Sumarolía hleypur í kekki í kulda Þeir sem hömstruðu díselolíu í stórum stíl áður en verð olíunnar breyttist, geta lent í stórkostlegum vandræðum í vetur. Þeir keyptu nefnilega sumarolíu, sem hleypur í kekki og stíflar síur þegar frost nær ákveðnu marki. Olían sem seld er yfir sumartímann þolir ellefu gráðu frost, en olían sem seld er yfir vetrartímann þolir 24 gráðu frost. 19.7.2005 00:01
Minkar í Laugarnesinu Minkurinn er ekki jafnskæður fuglabani og kötturinn sem mörgum finnst sjálfsagt að hafa heima í stofu. Hrafn Gunnlaugsson ákvað þó að kalla til meindýraeiði þegar læða og yrðlingar gerðu sig heimakomin á Laugarnesinu. Minkurinn á það til að leita innan marka höfuðborgarinnar fannst minkagreni í fjörunni á lóð Hrafns Gunnlaugssonar, kvikmyndagerðarmanns, í Lauganesinu í síðustu viku þar sem bjó læða með fjóra hvolpa. 19.7.2005 00:01
Stefán Jón neitar Stefán Jón Hafstein neitar því alfarið að það hafi verið rætt formlega innan raða Samfylkingarinnar að bjóða fram undir merkjum R-Listans, án Vinstri-grænna og Framsóknarflokksins. Össur Skarphéðinsson segir Stefán hafa setið við hlið sér á fundi Samfylkingarinnar í Reykjavík þegar þetta var rætt og góður rómur gerður að. 19.7.2005 00:01
Vonlaust að þagga niður í Össuri Össur Skarphéðinsson segist ekki vilja útiloka að gefa kost á sér sem borgarstjóraefni en segir að hugmyndin komi honum á óvart. Stefán Jón Hafstein segir erfitt að þagga niður í Össuri. 19.7.2005 00:01