Innlent

Misskilningur hjá Seðlabankastjóra

Seðlabankinn getur ekki ætlast til þess að Íbúðalánasjóður leiki hlutverk í efnahagsstjórn landsins. Sjóðnum beri að ávaxta fé sitt samkvæmt lögum um áhættustýringu bankans. Þetta segir Árni Páll Árnason sem hefur unnið lögmannsstörf fyrir Íbúðalánasjóð og félagsmálaráðuneytið. Árni Páll Árnason, lögmaður, segir að Jón Sigurðsson seðlabankastjóri misskilji hlutverk Íbúðalánasjóðs. Því ef löggjafinn vill að sjóðurinn taki þátt í efnahagsstefnu stjórnvalda þá verður löggjafinn að breyta lögunum og kveða á um slíkt hlutverk. Stjórnendur sjóðsins í dag mega ekki taka tillit til neins annars en stöðu sjóðsins, afkomu hans  ríkisins og hagsmuna fólksins í landinu sem eigenda sjóðsins Árni Páll segir ekkert athugavert við lánasamninga upp á áttatíu milljarða við banka og Sparisjóði gegn veði í fasteignum, þótt Íbúðalánasjóður taki á sig áhættuna á því ef eignir standa ekki undir skuldum.Árni Páll segir að bankarnir geti ekki boðið viðunandi kjör ef Íbúðalánasjóður taki ekki áhættuna. Og Árni Páll telur að það hafi ekki verið gerð mistök þegar áhættustýringarkerfi bankans sem ekki gerði ráð fyrir uppgreiðslum sem neinu næmi, hvellsprakk í desember með þeim afleiðingum að það þurfti að setja nýtt, sem galopnði allar heimildir um lán til bankanna. Árni Páll segir að ekki sé verið að fara í kringum lögin varðandi hámarkslán og að það sé einfaldlega verið að bjóða bönkunum kjör sem eru nauðsynleg sjóðnum. Sjóðurinn fái þau lánakjör sem hann þarf að fá og þurfi ekki að leita til ríkisins eftir aðstoð. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×