Fleiri fréttir

Sólarhitinn sprengdi rúðu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk um kvöldmatarleytið í gær tilkynningu um að sprenging hefði orðið á þrettándu hæð fjölbýlishúss við Rjúpnasali í Kópavogi.

Eftirlit úr lofti

Sjónum verður sérstaklega beint að akstri utan vega í auknu eftirliti lögreglu á hálendi. Lögreglan á Hvolsvelli í samvinnu við Landhelgisgæsluna fór í hálendiseftirlit á þyrlunni TF-SIF á mánudag en samvinnuverkefnið heldur áfram það sem eftir lifir sumars.

Grunaður um að selja vændislista

Lögreglan í Kópavogi hefur yfirheyrt mann sem grunaður er um dreifingu lista með nöfnum vændiskvenna á netinu. Sextán ára stúlka hefur einnig verið yfirheyrð en grunur leikur á því að maðurinn hafi fengið afnot af reikningi hennar til þess að taka við greiðslu fyrir listana.

Kolmunnakvótinn minni en í fyrra

Íslensk skip mega veiða 590.000 lestir af kolmunna á þessu ári að því er sjávarútvegsráðherra ákvað í gær. Kvóti ársins verður því 123.000 lestum minni en árið 2004 að því er segir í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu.

Þingmaður á villigötum

Benedikt Sigurðarson, formaður stjórnar Kaupfélags Eyfirðinga, segir Kristinn H. Gunnarsson þingmann á villigötum varðandi áform KEA um fjölgun starfa á Akureyri og eflingu byggðar á Norðurlandi en Kristinn ýjar að því í pistli á heimasíðu sinni að KEA ætli að kaupa stjórnsýsluákvarðanir tveggja ráðherra.

Akureyri ljósleiðaravædd

Akureyrarbær hefur samið við Tengi hf. um lagningu á 250 kílómetra löngu ljósleiðaraneti um nær alla Akureyri á næstu árum. Kostnaðurinn verður um einn milljarður króna.

Fyrsta skipið skemmdi bryggjuna

Nokkurt tjón varð á nýju álvershöfninni í Reyðarfirði í gær þegar Skaftafell lagðist þar að bryggju fyrst skipa. Rúnar Sigurjónsson, hafnarstjóri á Reyðarfirði, segir að skutur skipsins hafi rekist í bryggjuna í vindhviðu en sérfræðingar muni meta skemmdirnar í dag.

Hlekkjuðu sig við vinnuvélar

Átján erlendir mótmælendur stöðvuðu vinnu hluta starfsmanna við Kárahnjúkavirkjun um rúmar tvær klukkustundir í gær með því að fara í óleyfi fótgangandi inn á vinnusvæðið og hlekkja sig við vinnuvélar og leggjast í veg fyrir vinnutæki.

Komast í samband við börn á Netinu

Menn sem tengjast vændisstarfsemi hér á landi eiga mjög auðvelt með að komast í samband við börn á Netinu, eins og dæmi eru um, og því rík ástæða fyrir foreldra að fylgjast vel með netnotkun barna sinna. Þetta segir heimildarmaður Stöðvar 2 sem hefur skoðað þessi mál sérstaklega.

Óafvitandi ekki með réttindi

Meirapróf þarf á flesta þeirra pallbíla sem fluttir eru inn frá Bandaríkjunum en eigendur þeirra gera sér ekki alltaf grein fyrir því. Því eru dæmi um að bílstjórar hafi ekki réttindi til að aka þessum bílum sínum. Ef þeir lenda í umferðaróhappi mega þeir búast við að fá ekki greitt út úr tryggingum hvort sem þeir eru í rétti eða órétti.

Stefnir ekki að borgarstjórastól

Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, segist ekki stefna að því að verða borgarstjóraefni R-listans og hefur hann enga ákvörðun tekið í þeim efnum.

Dýrahótelin að fyllast

Nú fer hver að verða síðastur að panta pláss á dýrahóteli fyrir gæludýrin sín en dýrahótel njóta sífellt meiri vinsælda hér á landi í kjölfar aukinnar gæludýraeignar. Sums staðar eru plássin bókuð langt fram í tímann og jafnvel allt orðið fullt fyrir sumarið.

Ofurölvi undir stýri

Lögreglan í Keflavík stöðvaði ökumann þar í bæ í gærkvöldi þar sem ökulag hans þótti ekki yfirvegað. Ökumaðurinn reyndist það ekki heldur og við blóðrannsókn kom í ljós að svo mikið áfengismagn var í blóði hans að hann hefði allt eins átt að vera sofnaður áfengisdauða. Honum var komið heim í háttinn að lokinni skýrslutöku.

Fíkniefni á tónleikum

Sjö fíkniefnamál komu upp á tónleikum rapparans Snoop Dogg í Egilshöll í gærkvöldi. Þar hafði lögregla mikið eftirlit og hafði meðal annars að láni fíkniefnahund frá tollgæslunni. Hann vísaði á nokkra þeirra tónleikagesta, sem brotlegilr reyndust við frekari athugun.

Eldur í sumarbústað

Sumarbústaður í Miðfellslandi, við austanvert Þingvallavatn stórskemmdist í eldi í gærkvöld. Bústaðurinn var mannlaus þegar slökkvilið kom á vetvang, en eigendur höfðu verið í honum fyrr um daginn. Greiðlega gekk að slökkva eldinn, en bústaðurinn mun vera nánast ónýtur eftir.

Svarfdælingar vilja út

Íbúar í Svarfaðardal hafa sent öllum þingmönnum landsins áskorun um að endurskoða forsendur fyrir sameiningu sveitarfélaga og íhuga um leið möguleika á því að sveitarfélög, sem vilja ganga út úr sameiningu, geti gert það.  

Skemmtiferðakskip á Flateyri

Þrjátíu og átta þúsund tonna bandarískt lúxus-skemmtiferðaskip kom til Flateyrar í morgun með 800 farþega innanborðs, og er að öllum líkindum fyrsta skemmtiferðaskipið sem þangað kemur.

VG óánægðir með afskipti Össurar

Oddviti Vinstri Grænna í borgarstjórn er lítt hrifinn af afskiptum Össurar Skarphéðinssonar af málefnum R-listans. Össur segir að Samfylkingin eigi að bjóða fram R-lista, hvort sem er með þátttöku hinna flokkanna eða ekki.

Olíufélögin taka við díselolíu

Leyfilegt var að kaupa 5000 lítra af olíu á hverja kennitölu áður en verðbreytingin átti sér stað um síðustu mánaðarmót og virðast allnokkrir hafa nýtt sér það og hamstrað olíu.

Snæuglur á Ströndum

Tvær Snæuglur, hugsanlega par, hafa sést á Ströndum undanfarið. Snæuglur eru sjaldséðir fuglar hér við land en uglurnar geta náð um 20 ára aldri.

Nýr kynsjúkdómur greinist í Evrópu

Kynsjúkdómurinn LGV er farinn að skjóta upp kollinum í nágrannalöndum Íslendinga. Yfirlæknir hjá Sóttvarnalækni telur að Íslendingar þurfi að vera vel vakandi fyrir þessum sjúkdómi. Hann er af klamydíutegund sem er einn algengasti kynsjúkdómur hér á landi.

Ljósleiðari á Akureyri

Á morgun, þriðjudaginn, verður undirritaður samningur Akureyrarbæjar við Tengi hf. um lagningu ljósleiðara sem víðast um Akureyri. Samningurinn veitir Tengi heimild til að leggja ljósleiðaranet um götur og stíga á Akureyri til afnota fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir.

Óánægð með frágang við Egilshöll

"Frágangur á umferðarmannvirkjum við Egilshöll er fyrir neðan allar hellur," segir Elísabet Gísladóttir, formaður Íbúasamtaka Grafarvogs. Að sögn Elísabetar getur tekið allt að því þrjár klukkustundir að komast út af bílastæðinu þegar haldnir eru mjög fjölmennir viðburðir í Egilshöll.

Kaupmenn verjist

Ekki mælist marktækur munur á því hvort ránum í lyfjaverslunum fækkar í kjölfar hertra öryggisráðstafana. "Tilfellin eru of fá til þess að slíkir útreikningar séu marktækir, þrátt fyrir að ránin séu auðvitað of mörg," segir Eiður Eiðsson hjá forvarnadeild Lögreglunnar í Reykjavík.

Eystri-Rangá heldur forystunni

Allt stefnir í að Eystri-Rangá haldi forystu sinni sem mesta laxveiðiá landsins, eins og hún var í fyrra þegar hún var með þrjú þúsund laxa. 469 laxar voru komnir þar á land í gærkvöld, en meðalveiði undanfarinna daga hefur verið 60 laxar á dag.

Nýr skólastjóri í Landakotsskóla

Stjórn Landakotsskóla réði í gær Fríðu Regínu Höskuldsdóttur skólastjóra í Landakotsskóla. "Ég tel að við höfum valið hæfasta umsækjandann með tilliti til menntunar, kennslureynslu og stjórnunarreynslu," segir Björg Thorarensen, formaður stjórnar skólans.

Íbúðalánsjóður heildsölubanki?

Félagsmálaráðherra fór til Bandaríkjanna í vor ásamt forsvarsmönnum Íbúðalánasjóðs til að kynna sér starfsemi heildsölubanka þar í landi. Félagsmálaráðherra segist ekki hafa séð lánasamninga Íbúðalánasjóðs við banka og sparisjóði en ætli að kalla eftir þeim núna.

Vill stjórnsýsluúttekt á sjóðnum

Jóhanna Sigurðardóttir vill að Ríkisendurskoðun geri stjórnsýsluúttekt á Íbúðalánasjóði í kjölfar frétta Stöðvar 2 um áttatíu milljarða króna lán til banka og sparisjóða, gegn veði í fasteignum, þar sem Íbúðalánasjóður tekur á sig alla ábyrgð ef eignir hrökkva ekki fyrir skuldum.

Lagabreytingu þarf til

Hegningarlögunum þarf að breyta til þess að lögreglan geti rannsakað heimasíður þar sem tugir fólks selja líkama sinn gegn greiðslu. Samkvæmt lögunum virðist fólki heimilt að stunda vændi í frítíma sínum.

Erótísk nuddstofa til rannsóknar

Rannsókn á starfsemi erótískrar nuddstofu í Reykjavík er nú á lokastigi, en grunur leikur á að þar hafi verið boðið upp á vændi. Lögreglan leggur áherslu á að ná milliliðunum, það er, dólgunum sjálfum sem auglýsa konurnar og selja þær.

Erótísk nuddstofa til rannsóknar

Rannsókn á starfsemi erótískrar nuddstofu í Reykjavík er nú á lokastigi, en grunur leikur á að þar hafi verið boðið upp á vændi. Lögreglan leggur áherslu á að ná milliliðunum, það er, dólgunum sjálfum sem auglýsa konurnar og selja þær.

Geymsla díselolíu vandmeðfarin

Dæmi eru um að menn geymi díselolíu í rotþróm. Brunamálastjóri segir auðvelt að vera vitur eftir á og að stjórnvöld hefðu í raun átt að geta séð fyrir að fólk myndi hamstra eldsneyti í kjölfar verðhækkunar á díselolíu.

Ummæli Össurar heimskuleg

Það er heimskulegt að halda því fram að Samfylkingin geti boðið fram undir merkjum R-listans ein og sér segir oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn. Hann segir Össur Skarphéðinsson vita að það er ekki hægt og skilur ekki hvað honum gengur til með því að viðra slíkar hugmyndir.

Enginn gengst við könnun

Leiðtogaefni Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segjast grunlaus um hver standi að könnun Gallups á fylgi frambjóðenda flokksins í Reykjavík.

Ný steypuaðferð á Íslandi

Þeir sem áttu leið fram hjá Borgartúninu í dag hafa eflaust velt fyrir sér hvort þar væri verið að útbúa boltaland fyrir fullorðna. Þarna er hins vegar um að ræða svokallaða kúluplötuaðferð við húsbyggingu, þar sem plastkúlur eru settar í gólfplöturnar, í stað einungis steypu.

Mat á Baugsverði dregist í 18 mán

Matsnefnd um verð á hlutabréfum í Baugi mun loks skila af sér niðurstöðu í málinu í ágúst, meira en einu og hálfu ári eftir að hún var skipuð. Nefndarmenn viðurkenna að fyrrverandi hluthafar í Baugi, sem ekki sættu sig við verðið sem þeir fengu fyrir bréf sín við þvingaða yfirtöku, hafi mátt bíða allt of lengi.

Heilsan betri en útlitið

Viktor Júsjenko, forseti Úkraínu, er við mjög góða heilsu segir læknir hans, Jean Saurat, við háskólasjúkrahúsið í Genf þar sem Júsjenko hefur leitað lækninga vegna díoxíneitrunar.

Geta fengið olíuna endurgreidda

Björn Karlsson brunamálastjóri segir Brunamálastofnun hafa borist allmargar vísbendingar um fólk sem hamstraði olíu fyrir gildistöku olíugjaldsins og geymi hana við óviðunandi aðstæður. Hann segir að fólk sem vilji losna við olíuna og hættuna sem fylgir henni geti skilað henni til olíufélaganna og fengið hana endurgreidda.

Suðurnes hætta vinnslu

Stærsta fiskvinnslufyrirtæki Reykjanesbæjar, Suðurnes, hefur ákveðið að hætta rekstri. Alls hafa á fimmta tug starfsmanna starfað hjá fyrirtækinu og missa þeir nú vinnuna. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja óhagstætt gengi krónunnar hafa verið eina helstu ástæðuna fyrir því að fyrirtækið missti rekstrargrundvöllinn.

Sjúkraliðar semja

Sjúkraliðar hafa samþykkt kjarasamning við fjármálaráðherra sem undirritaður var 30. júní síðastliðinn. Þegar búið var að telja upp úr kjörkössunum kom í ljós að mikill meirihluti félagsmanna hafði samþykkt samninginn.

Gekk eins og í lygasögu

Fyrsta þríburafæðingin í áratugi, þar sem börnin voru ekki tekin með keisaraskurði, gekk eins og í lygasögu segir Sveinborg Hauksdóttir sem fæddi þrjú börn á aðeins fimmtán mínútum, tvær stúlkur og einn dreng.

Kveiktu í fyrir slysni

Tveir fjórtán ára piltar kveiktu í bíl við Smáralind fyrir slysni. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var í gærkvöldi kallað út eftir að kveikt hafði verið í bíl við Smáralindina. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi gekk vel að ráða að niðurlögum eldsins en bíllinn telst þó gjörónýtur.

Tryggvi meðal umsækjenda

Tryggvi Gíslason, fyrrum skólameistari Menntaskólans á Akureyri, er samkvæmt öruggum heimildum Fréttablaðsins meðal þeirra sem þegar hafa skilað inn umsókn um stöðu útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins. Frestur til að skila inn umsókn rennur út á fimmtudag.

Viðey aðeins fyrir Sjálfstæðismenn

Össur Skarphéðinsson segir að tillögur sjálfstæðismanna í borginni um byggð í eyjunum við Reykjavík eigi að vera fyrir elítuna og fyrir þá sjálfa. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segir Össur endurspegla vanda R-listans.

Óvíða stífari löggjöf

Á undanförnum árum hefur mikið borið á uppátækjum auglýsenda til að vekja athygli á bjór eða léttvíni með slíkum hætti að mörgum þyki lög sem um þetta gilda vera fótum troðin. Nú síðast ögraði Nóatún túlkun margra á þessum lögum með því að veita hverjum gasgrillkaupanda bjór svo lengi sem hann var yfir lögaldri.</font />

Sjá næstu 50 fréttir