Innlent

Verðbólga minnst á Íslandi

Verðbólga á Íslandi reyndist aðeins 0,3% í júní samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs sem Hagstofan birti í morgun, en verðbólga hefur minnkað mikið síðustu mánuðina á þennan mælikvarða. Til samanburðar var verðbólga 2,0% að meðaltali á Evrópska efnahagssvæðinu og innan þess er hún nú minnst á Íslandi. Greining Íslandsbanka segir samræmda vísitölu neysluverðs þó gefa villandi mynd því ekki er tekið tillit til markaðsverðs íbúða, en eins og kunnugt er hefur íbúðaverð á Íslandi hækkað gífurlega síðasta árið og verið helsti verðbólguvaldurinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×