Innlent

Blóðbankann vantar O mínus

Birgðir Blóðbankans af O-mínus blóði eru af skornum skammti. Blóðbankinn hefur biðlað til blóðgjafa í þessum flokki að koma og gefa blóð en O-mínus blóð er notað í neyðarblóð sem gengur í alla aðra blóðflokka og því er mikilvægt að birgðir bankans séu ávallt miklar. Sigríður Ósk, hjúkrunarfræðingur hjá Blóðbankanum segir bankann vanta 60 einingar af O-mínus blóði sem fyrst en hver blóðgjafi gefur sem svarar einni einingu. Átta prósent Íslendinga eru í þessum blóðflokki en einungis fjögur prósent af þeim eru reglulegir blóðgjafar og því eru 96 % Íslendinga í þessum flokki sem ekki gefa blóð. Blóðbankabíllinn verður við Fjarðarkaup á morgun en Blóðbankinn er einnig opinn frá átta til þrjú virka daga og til sjö á fimmtudögum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×