Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslensk börn fá ekki nóg D-vítamín Hátt hlutfall íslenskra barna fær ekki nægilega mikið D-vítamín dag hvern að sögn Ingu Þórsdóttur næringarfræðings, sem rannsakað hefur D-vítamínneyslu íslenskra barna. 12.7.2005 00:01
Foreldrarnir vilja áfrýjun Foreldrar stúlku sem beið bana þegar ekið var á hana við Bíldudal í fyrra vilja að málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar. Héraðsdómur Vestfjarða vísaði bótakröfu þeirra frá þar sem ekki hafi verið um stórfellt gáleysi að ræða. 12.7.2005 00:01
PFS vill skýringar á viðgerðartöf Póst- og fjarskiptastofnun hefur ritað forsvarsmönnum Farice sæstrengsins bréf þar sem óskað er eftir skýringum á óhóflegu rofi á þjónustunni fyrir um hálfum mánuði síðan. 12.7.2005 00:01
Grunur um morð á Íslendingi Lík af manni á fertugsaldri sem fannst í Suður-Afríku um helgina er sagt kunna vera af íslendingi sem búið hefur í Jóhannesarborg í um tíu ár. Yfirvöld hér heima hafa sent lögreglu í Suður-Afríku fyrirspurnir vegna málsins, en ekki er vitað af hverjum líkið er. 12.7.2005 00:01
Kvaðir lagðar á símafyrirtæki Póst- og fjarskiptastofnun ætlar að leggja nýjar kvaðir á bæði Símann og Og Vodafone í tengslum við greiningu markaða í farsímarekstri, en slíka greiningu segist stofnunin eiga að framvæma lögum samkvæmt. 12.7.2005 00:01
Öryggismyndavél með símkorti Hafin er sala á nýrri eftirlitsmyndavél frá Nokia sem sögð er geta hentað fyrir heimili og eins til að hafa auga með sumarbústöðum. 12.7.2005 00:01
Ólafur 19 - Davíð 17 Skothríð hélt áfram við Reykjavíkurhöfn í dag, þriðja daginn í röð. Skipverjar á rússneskan herskipinu Lesjenkó aðmíráli skutu nítján heiðursskotum í loftið, Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, til heiðurs en hann skoðaði skipið í dag. Forsetinn fékk tveimur heiðursskotum meira en Davíð Oddsson utanríkisráðherra sem var á sömu slóðum í gær. 12.7.2005 00:01
Sló mann með brotinni glerflösku Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær tvítugan karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir líkamsárás á menningarnótt árið 2003. Fimm mánuðir eru skilorðsbundnir. Þá skal hann greiða ákæranda 60.000 krónur í skaðabætur og lögmannskostnað. Hann sló ítrekað til kæranda með brotinni flösku og olli alvarlegum, en þó ekki lífshættulegum, áverkum. 12.7.2005 00:01
Loftbrú frá Íslandi í sextíu ár Íslendingar hafa síðustu sextíu árin notið þess að tengjast öðrum löndum með reglubundnu áætlunarflugi. Þessum tímamótum var fagnað á flugvellinum í Glasgow í gær þar sem gamli og nýi tíminn í fluginu mættust í bókstaflegri merkingu. 12.7.2005 00:01
Konum á gæsluvöllum sagt upp Össur Skarphéðinsson segir að verið sé að brjóta loforð með því að segja upp tuttugu og tveimur konum á gæsluvöllum borgarinnar. Guðlaugur Þór Þórðarson segir konunum sýnt virðingarleysi. 12.7.2005 00:01
Útkall vegna eldri manns Allar björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út um níuleytið í gærkvöld vegna 65 ára manns sem hafði ekki skilað sér af Esjunni. Maðurinn hafði farið að heiman um hádegið og búist var við honum síðdegis. 12.7.2005 00:01
Grunur um morð á Íslendingi Grunur leikur á að Íslendingur hafi verið myrtur í Suður-Afríku og líki hans komið fyrir í tunnu fullri af steypu. Tvennt er í haldi lögreglunnar vegna málsins. 12.7.2005 00:01
Hella de Islandia Þó aðeins séu fimmtán Chílebúar skráðir sem íbúar á Hellu er þetta samfélag mun stærra. Fjölmargir hafa færst sig um set og búa nú á Hvolsvelli en eru í góðum tengslum við granna sína og landa á Hellu. 12.7.2005 00:01
Rúta vó salt á vegkanti Skelfing greip um sig í hópi þrjátíu erlendra ferðamanna sem voru um borð í rútu sem var rétt farin út af veginum á Steingrímsfjarðarheiði í gær. Vegkantur gaf sig og fór rútan hálf út af veginum og vó þar salt. 11.7.2005 00:01
Ræningjarnir yfirheyrðir í dag Mennirnir tveir sem rændu lyfjum úr apótekinu í Austurveri í gær og peningum á Dominos Pizzu í Spönginni, vopnaðir hnífi og skrúfjárni, eru enn í haldi lögreglu og verða yfirheyrðir nánar í dag. Meðal annars verður kannað hvort þeir hafi fleiri afbrot á samviskunni. 11.7.2005 00:01
Fékk veiðarfærin í skrúfuna Fiskibátur sem var að veiðum skammt frá Vestmannaeyjum í nótt fékk veiðarfærin í skrúfuna og varð við það vélarvana og stjórnlaus. Skipstjóri kallaði á Lóðsinn í Eyjum til aðstoðar sem dró bátinn til hafnar í Eyjum. 11.7.2005 00:01
Ók á 150 þegar hann sá stúlkuna Tæplega nítján ára piltur var í Héraðsdómi Vestfjarða dæmdur í eins mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Hann ók á fjórtán ára stúlku á Bíldudalsvegi síðasta sumar. Sjálfur segist hann hafa verið á 150 kílómetra hraða þegar hann sá stúlkuna. 11.7.2005 00:01
Framtíð R-listans að ráðast Það gæti ráðist á fundi viðræðunefndar Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna í dag hvort R-lista flokkarnir bjóða áfram sameiginlega fram fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. 11.7.2005 00:01
Vopnað rán í Domus Medica Vopnað rán var framið í Lyf og heilsu í Domus Medica við Egilsgötu fyrir stundu. Maður með klút fyrir andlitinu og hníf í hendi kom inn í apótekið og ógnaði starfsfólki. Ræninginn beitti hnífnum þó ekki en hafði lítilræði af lyfjum á brott með sér. 11.7.2005 00:01
Lýstu yfir fullu trausti Allir starfandi læknar á kvennadeild Landspítalans sögðust í yfirlýsingu í mars á síðasta ári bera fullt traust til þess fæðingarlæknis sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á föstudag fyrir stórfellt gáleysi. Yfirmaður lækninga á kvennadeild vildi ekki tjá sig um málið þegar fréttastofan leitaði eftir því en læknamistökin urðu til þess að ungbarn lést. 11.7.2005 00:01
Fyrstu hettusóttartilfellin í 6 ár Hettusótt, sem ekki hefur greinst hér á landi síðan árið 1999, greindist nýverið í þremur einstaklingum. Tveir þeirra sem sýktust höfðu ekki verið bólusettir gegn hettusótt að því er fram kemur í farsóttarfréttum frá Landlæknisembættinu. 11.7.2005 00:01
Niðurskurður kynntur starfsmönnum Niðurskurður í starfsemi Ríkisútvarpsins verður að öllum líkindum kynntur starfsmönnum RÚV á fundi síðar í vikunni. 11.7.2005 00:01
Skoða rússneska kafbátaskipið Til stendur að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Davíð Oddsson utanríkisráðherra heimsæki rússneska kafbátaskipið Aðmírál Levchenko í dag. Skotið verður úr fallbyssum til heiðurs þeim við komu þeirra um borð. 11.7.2005 00:01
Harður árekstur í Húnavatnssýslu Harður árekstur varð í Húnavatnssýslu á Þjóðvegi eitt á móts við bæinn Vatnshorn rétt fyrir klukkan eitt. Einn hlaut beinbrot en aðrir slösuðust minniháttar. 11.7.2005 00:01
Kúabændur fari yfir skipulagið Landsamband Kúabænda hvetur kúabændur til að fara yfir framleiðsluskipulag búa sinna þar sem framleiða þarf meiri mjólk. Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri afurðastöðva var mjólkurframleiðslan í júní 9,9 milljónir lítra en í júní í fyrra var hún 10,1 milljón lítra. 11.7.2005 00:01
Ráðinn framkvæmdastjóri Samson Birgir Már Ragnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samson eignarhaldsfélags ehf. en félagið fer með um 45% eignarhlut í Landsbanka Íslands. Birgir Már er fæddur árið 1974 og lauk hann embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands 1999. Hann útskrifaðist með meistaragráðu í lögum frá Lagaskóla Harvard árið 2003. 11.7.2005 00:01
Fleiri dauðsföll sökum inflúensu Infúensa í byrjun árs er talin hafa valdið því að dánartölur fyrstu tíu vikur ársins eru mun hærri en meðaltalið segir til um. Fyrstu tvær vikurnar í febrúar létust á bilinu 55 til 60 hvora viku sem er yfir efri viðmiðunarmörkum. 11.7.2005 00:01
Ráðinn deildarforseti á Bifröst Bernhard Þór Bernhardsson hefur verið ráðinn deildarforseti viðskiptadeildar Viðskiptaháskólans á Bifröst. Hann hefur þegar tekið til starfa en Magnús Árni Magnússon, fráfarandi forseti viðskiptadeildar, er nýráðinn deildarforseti félagsvísinda- og hagfræðideildar skólans. Átta sóttu um stöðuna. 11.7.2005 00:01
Ræningjans enn leitað Lögreglan leitar enn manns sem framdi vopnað rán í Lyf og heilsu í Domus Medica upp úr klukkan hálf eitt í dag. Maðurinn, sem var með klút fyrir andlitinu og hníf í hendi, kom inn í apótekið og ógnaði starfsfólki. 11.7.2005 00:01
Langir biðlistar í sólina Annir eru á ferðaskrifstofum þessa dagana vegna sóknar fólks í að komast í sólarlandaferðir. Víðast hvar er fullbókað og biðlistar langir. Reynt er eftir megni að fjölga flugsætum og gistirýmum. Dæmi eru um að fólk fresti sumarleyfum sínum þar til það kemst í sólina. </font /></b /> 11.7.2005 00:01
Strandblakvellir á Þingeyri Unnið er að gerð tveggja strandblakvalla við íþróttamiðstöðina á Þingeyri að því er fram kemur á Þingeyrarvefnum. 11.7.2005 00:01
Í lopapeysu með grænan hatt Lögreglan í Reykjavík leitar enn manns sem framdi vopnað rán í verslun Lyf og heilsu í Domus Medica í hádeginu í dag. Maðurinn, sem er lágvaxinn og grannur, var klæddur í rauðleita lopapeysu með röndum á ermum og með grænan hatt. Hann er talinn vera á aldrinum 20 til 30 ára. 11.7.2005 00:01
Vendipunktur hjá R-listanum Ákveðinn vendipunktur varð á fundi fulltrúa aðildarflokka R-listans í dag að því er segir í tilkynningu frá fundarmönnum. Hvað þar var um að ræða er ekki útskýrt nánar. 11.7.2005 00:01
Þarfnast brýnnar endurskoðunar Neyðarskipulag almannavarna þarfnast brýnnar endurskipulagningar. Liðin eru þrettán til fimmtán ár síðan skipulagið var síðast endurskoðað en upphaflega var gengið út frá því að endurskoðun færi fram á fimm ára fresti að sögn Björns Halldórssonar, deildarstjóra almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra. 11.7.2005 00:01
Rændi lyfjum vopnaður hnífi Ungur maður vopnaður hnífi réðst inn í verslun Lyf og heilsu í Domus Medica við Eiríksgötu í hádeginu í gær. Maðurinn var með klút fyrir andlitinu er hann hljóp inn í búðina, ógnaði starfsfólki með hnífnum og stökk yfir búðarborðið þar sem hann rótaði í lyfjaskúffum. Maðurinn hafði lyf á brott með sér en ekki er talið að um verulegt magn hafi verið að ræða. 11.7.2005 00:01
Harður árekstur tveggja vörubíla Vörubílstjóri var fluttur með sjúkrabifreið til Reykjavíkur eftir mjög harðan árekstur tveggja vörubifreiða og fólksbíls við Vatnshorn í Húnaþingi vestra eftir hádegi í gær. Annar vörubílstjórinn slasaðist minna og tveir sem í fólksbílnum voru sluppu nær ómeiddir. 11.7.2005 00:01
R-listi: Viðræðum haldið áfram Flokkarnir þrír sem standa að R-listanum ákváðu rétt fyrir klukkan sex að halda áfram viðræðum um samstarf. Fyrr í dag hótuðu framsóknarmenn í samninganefnd fyrir R-listann að hætta samstarfinu ef Samfylkingin kæmi ekki með nýtt útspil á fundi flokkanna sem haldinn var síðdegis. 11.7.2005 00:01
Koizumi ræddi hvalveiðimál Halldór Ásgrímsson átti í gær fund með Junichiro Koizumi, starfsbróður sínum í Japan. Samstarf ríkjanna í hvalveiðimálum bar á góma að frumkvæði Koizumi og samkvæmt frétt Associated Press mun Halldór hafa sagt við Koizumi að ef Íslendingar hæfu atvinnuveiðar á hval myndu finnast leiðir til að starfa með Japönum. 11.7.2005 00:01
Félagsþjónusta á síðasta ári Alls fengu 14.475 heimili í Reykjavík þjónustu hjá Félagsþjónustunni á síðasta ári. Algengasta þjónustan sem var veitt eru húsaleigubætur og nokkra athygli vekur að fjöldi þiggjenda var mun meiri á síðasta ári en árið 2003, en það var á síðari hluta síðasta árs sem bankarnir komu inn á íbúðalánamarkaðinn. 11.7.2005 00:01
Davíð skoðar Aðmírálinn Davíð Oddson forsætisráðherra heimsótti um tvöleytið í gær rússneska kafbátaskipið Aðmíral Levchenko, sem liggur við Reykjavíkurhöfn. Í samræmi við alþjóðlegar hefðir var skotið sautján sinnum úr fallbyssum skipsins við komu hans í það. 11.7.2005 00:01
Ætlar ekki að svara Helga Magnús Stefánsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, sagðist í bréfi sem hann sendi Helga Hjörvar alþingismanni ekki telja í sínum verkahring að leita svara við einstökum spurningum, sem kunna að vakna í huga nefndarmanna um sölu ríkisbankanna. 11.7.2005 00:01
Ríkisendurskoðun svarar Helga Ríkisendurskoðandi sendi formanni fjárlaganefndar í gær bréf þar sem hann svarar í rauninni spurningum sem Helgi beindi í síðustu viku til formannsins. Þar áréttar ríkisendurskoðandi að hann hafi alls ekki verið að fjalla um hækkun á markaðsvirði hlutabréfa þegar hann sagði í minnisblaði sínu að enginn söluhagnaður hefði orðið hjá Skinney-Þinganesi við sölu á bréfum sínum í Hesteyri. 11.7.2005 00:01
Fékk mánuð fyrir að aka á stúlku Tæplega tvítugur piltur var dæmdur í mánaðarfangelsi fyrir að aka niður 15 ára gamla stúlku við Bíldudal um miðjan júlí í fyrra með þeim afleiðingum að hún lést. 11.7.2005 00:01
Fréttablaðið bætir sig á landsvísu Lestur Fréttablaðsins eykst á milli fjölmiðlakannanna Gallups meðan dregur úr lestri Morgunblaðsins og DV. Blaðið kemur nýtt inn með 44 % lestur á höfuðborgarsvæðinu. Sjónvarpsþátturinn Út og suður með Gísla Einarssyni er langvinsælastur. 11.7.2005 00:01
Kynferðisbrotadómi áfrýjað Ríkissaksóknari hefur áfrýjað til Hæstaréttar máli þar sem Héraðsdómur Norðurlands vestra sýknaði mann af kynferðisbroti gegn 10 ára gamalli systurdóttur hans. 11.7.2005 00:01