Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Olívuerð hækkar enn Olíuverð hefur enn hækkað og er nú komið nærri sextíu og einum dollar á fatið. Það komst raunar í ríflega sextíu og tvo dollara um skamma stund eftir hryðjuverkaárásirnar í London í gær en efnahagssérfræðingar segja nú ljóst að þær árásir muni ekki hafa nein mælanleg áhrif á efnahagsþróun á heimsmarkaði.</font /> 8.7.2005 00:01
Vinnubrögð benda á al-Qaeda Talsmenn lögreglunnar í Lundúnum segja nú að hryðjuverkin bera ummerki þess að hryðjuverkamenn al-Qaeda hafi verið að verki, og hryðjuverkasérfræðingar taka í sama streng. Eftirfarandi ummerki og vinnubrögð benda öll til þess: einföld skotmörk eða svokölluð mjúk skotmörk, tímasetning árásanna á meðan fundi leiðtoga stærstu iðnríkja heims stendur og frumstæð og ódýr tækni. 8.7.2005 00:01
Trassaskapur sýslumanna Enn fá sýslumenn á baukinn frá dómurum fyrir slægleg vinnubrögð við framgang refsimála, sem kemur sakborningum til góða í vægari refsingu en ella. Nýjasta dæmið er frá því í fyrradag þegar Héraðsdómur Reykjaness setti ofan í við sýslumann í Keflavík því sýslumaður birti síbrotamanni ekki ákæru fyrr en 30 mánuðum eftir að rannsókn lauk. 8.7.2005 00:01
Útgerðarmaður sýknaður Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað fyrrverandi útgerðarmann í Nirði ehf, af ákæru Ríkislögreglustjóra um fjársvik upp á liðlega fjörutíu milljónir króna. 8.7.2005 00:01
Þristurinn í heiðurssæti Gamla landgræðsluvélin, Þristurinn, er í sérstöku heiðurssæti á flugsýningu í Bretlandi um helgina. Vélinni verður flogið yfir svæðið á bæði laugardag og sunnudag og verður hún ein í loftinu yfir svæðinu og þykir það mikill heiður. 8.7.2005 00:01
Launadeila á Suðurnesjum Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Starfsmannafélags Suðurnesja og Launanefndar sveitarfélaga til fundar á mánudag þar sem reyna á að leysa deilu félaganna. Starfsmannafélagið vísaði deilunni til sáttasemjara í vikunni, en deiluaðilar hafa ekki fundað frá því kjarasamningur féll úr gildi þann 31. mars síðastliðinn. 8.7.2005 00:01
Farþegum fjölgar Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um rúmlega 12 prósent í júní miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmum 193 þúsund farþegum árið 2004 í rúma 217 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur rúmum 10 prósentum milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um rúmlega 21 prósent. 8.7.2005 00:01
Veðurstofan varar við hvassviðri Húsbíll fauk á hliðina skammt frá Hólmavík í morgun en þar er nú mjög hvasst og varar lögreglan á Hólmavík ökumenn á húsbílum eða með fellihýsi við að vera þar á ferð. Þessa stundina er mjög hvasst á norðanverðu landinu og hálendinu. Veðurstofan varar við hvassviðri eða stormi á miðhálendinu fram eftir degi, en reiknað er með veðrið gangi niður í kvöld og í nótt. 8.7.2005 00:01
Níu ára fangelsi fyrir manndráp Magnús Einarsson var í dag dæmdur í níu ára fangelsi fyrir að hafa banað eiginkonu sinni á heimili þeirra að Hamraborg 38 í Kópavogi þann fyrsta nóvember síðastliðinn. Magnús brá þvottasnúru um háls eiginkonu sinnar og herti að með þeim afleiðingum að hún lést vegna kyrkingar. 8.7.2005 00:01
Þrír handteknir í Leifsstöð Bandarískur karlmaður af filippískum ættum var úrskurðaður í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness til 21. júlí þar sem hann er grunaður um að hafa ætlað að smygla tveimur kínverjum, konu og karli til Bandaríkjanna. Kínverjarnir voru með fölsuð japönsk skilríki en fylgdarmaðurinn er með bandarískt vegabréf. 8.7.2005 00:01
Hættulegt birgðahald í heimahúsum "Þetta er ekki einungis stórhættulegt heldur brýtur þetta í bága við lög og er snarbannað," segir Björn Karlsson, brunamálastjóri hjá Brunamálastofnun. Hundruðir ef ekki þúsundir bíleigenda hömstruðu dísilolíu sem mest þeir máttu fyrir síðustu mánaðarmót og notuðu til þess ýmis konar ílát sem nú eru geymd við heimahús víða um landið. 8.7.2005 00:01
Skora á stjórnvöld Félag íslenskra bifreiðareigenda hefur skorað á íslensk stjórnvöld að lækka álögur sínar á eldsneyti og koma með því móti til móts við almenning í landinu. 8.7.2005 00:01
Gengið á tinda Norðurlanda Sænsku fjallgöngumennirnir Lars Carlsson og Jonas Eklund ætla að ganga á hæstu fjalltinda Norðurlandanna á innan við viku. 8.7.2005 00:01
Byggingarfyrirtæki í rannsókn Grunur leikur á að íslenskt byggingarfyrirtæki standi að innflutningi erlendra verkamanna sem starfa án tilskilinna leyfa hér á landi. Alþýðusamband Ísland hefur upplýsingar um aðkomu fyrirtækisins að slíkum málum og rætt hefur verið við forsvarsmenn þess. Lögreglu hefur jafnframt verið tilkynnt um málið. 8.7.2005 00:01
Rússnesk herskip til landsins Tvö rússnesk herskip, kafbátavarnaskip og olíubirgðaskip, eru væntanleg í vináttuheimsókn hingað til lands um helgina. Kafbátavarnaskipið skýtur við komuna til Reykjavíkur á sunnudag 21 fallbyssuskoti frá borði skipsins í virðingarskyni við Ísland. 8.7.2005 00:01
Forsætisráðherra á EXPO Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Sigurjóna Sigurðardóttir, eiginkona hans, verða viðstödd opnun íslenska skálans á Heimssýningunni, EXPO 2005, í Japan í næstu viku. Þá tekur forsætisráðherra þátt í ýmsum viðburðum tengdum þátttöku Íslands á Heimssýningunni. 8.7.2005 00:01
Færri ökumenn keyra of hratt Færri ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í annarri viku umferðarátaks sem Ríkislögreglustjóri og Umferðarstofa standa fyrir en í þeirri fyrstu. Átakið hófst 28. júní og felst í hertu umferðareftirliti á þjóðvegum landsins. 8.7.2005 00:01
Færri ökumenn keyra of hratt Færri ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í annarri viku umferðarátaks sem Ríkislögreglustjóri og Umferðarstofa standa fyrir en í þeirri fyrstu. Átakið hófst 28. júní og felst í hertu umferðareftirliti á þjóðvegum landsins. 8.7.2005 00:01
Íbúðalánasjóður selur fjölda eigna Íbúðalánasjóður hefur selt fjölda íbúða úr eigin eigu það sem af er ári og á í dag 64 íbúðir. Fyrir nokkru átti sjóðurinn 27 íbúðir í Vestmannaeyjum en eftir söluátak seldust níu þeirra. Framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs rekur ástæðurnar til betra ástands og bjartsýni í þjóðfélaginu. </font /></b /> 8.7.2005 00:01
Hvetja R-listann til að hætta "Við hvetjum R-listann til að hætta samstarfsviðræðum nú þegar," segir Örn Sigurðsson, talsmaður Höfuðborgarsamtakana. "Þessar þreyfingar um uppstillingu listans eru hrein móðgun við alla kjósendur og almenna skynsemi," bætir hann við. 8.7.2005 00:01
Íslandsdagar í Japan Fjölmargir íslenskir listamenn koma fram á sérstökum þjóðardegi Íslands sem efnt verður til í borginni Chiryu í Japan 15. júlí næstkomandi. Hápunktur dagskránnar er eflaust flutningur á tónverkinu Bergmál eftir Ragnhildi Gísladóttur en Sjón ljáði verkinu ljóð. Skólakór Kársness, Kammerkór Skálholts ljá verkinu rödd auk tónskáldins sjálfs. 8.7.2005 00:01
Níu ára fangelsi fyrir manndráp Magnús Einarsson var dæmdur í 9 ára fangelsi í dag fyrir að bana 25 ára gamalli eiginkonu sinni og barnsmóður, Sæunni Pálsdóttur. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness.Atburðurinn átti sér stað á heimili hjónanna í Kópavogi í nóvember á síðasta ári. Magnús brá þvottasnúru um háls konu sinnar og þrengdi að með þeim afleiðingum að hún lést af völdum kyrkingar. 8.7.2005 00:01
G8 ráðherrar ósammála Leiðtogar helstu iðnríkja heims kynntu niðurstöður fundar síns í Gleneagles í Skotlandi, sem lauk í dag. Ákveðið var að tvöfalda fjárframlög til Afríkuríkja. Á það má líta sem áfangasigur, ólíkt því sem gerðist með umbætur í umhverfismálum. Þar virðast leiðtogarnir seint ætla að verða sammála. 8.7.2005 00:01
Foreldrum dæmdar bætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag íslenska ríkið og Þóru Fischer kvensjúkdómalækni til að greiða hjónum 7,6 milljónir króna í bætur vegna missis sonar þeirra, sem lést á kvennadeild Landspítalans fyrir tæpum þremur árum, fjórum dögum eftir fæðingu. 8.7.2005 00:01
Varnarsamningur enn á umræðustigi Fyrstu umferð viðræðna íslenskra og bandarískra stjórnvalda um framtíð varnarsamningsins, lauk í Washington í gær án nokkurs teljandi árangurs. Þrátt fyrir það er undirbúningur vegna fyrirhugaðra breytinga á Keflvíkurstöðinni þegar hafinn. Tíu manna sendinefnd þriggja íslenskra ráðuneyta gerði grein fyrir afstöðu ríkisstjórnarinnar á fundum með Bandaríkjamönnum í vikunni. 8.7.2005 00:01
Fjölmiðlar óánægðir með stjórnvöld Vegna tregðu enskra stjórnvalda til að gefa upp dánartölur greindu franskir fjölmiðlar á undan þeim bresku frá því að fjöldi látinna væri yfir fimmtíu. Þeir fengu upplýsingarnar frá frönskum ráðherra. 8.7.2005 00:01
Litill árangur en annar fundur Árangur af viðræðum um framtíð varnarsamningsins urðu minni en íslensk stjórnvöld væntu, en fyrsta fundi um málið lauk í Washington fyrir helgina. Ákveðið er að næstu fundur verði hér á landi í september. 8.7.2005 00:01
Ósætti um sameiningu Fjölskylduráð Hafnarfjarðar mótmælir nýrri reglugerð sem Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hefur undirritað, en hún miðar að sameiningu heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu. Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarfulltrúi og formaður fjölskylduráðsins, segir að bæjarstjórnin öll sé einhuga í andstöðu sinni við þessi áform. 8.7.2005 00:01
Vítisenglar á Íslandi Lögregluyfirvöld staðfesta að Vítisenglar hafi náð hlutdeild á fíkniefnamarkaðnum á Íslandi og lögreglan segir jafnframt að erlendir glæpamenn komi reglulega við sögu hjá lögreglunni, sem er viðbúin frekari starfsemi alþjóðlegra glæpasamtaka á Íslandi. 8.7.2005 00:01
Sprungur á Norðlingaholti Ein af stóru jarðskjálftasprungunum, sem ganga í gegnum Rauðavatn og Norðlingaholt, er nú vel sýnileg. Hún er það breið að nær væri að kalla gjá. Lægðin í landslaginu upp af Rauðavatni norðaustanverðu er í raun ein sprungan. Hún liggur síðan undir Suðurlandsveginn og áfram í gegnum nýbyggingasvæðið á Norðlingaholti. 8.7.2005 00:01
Í gæsluvarðhaldi fram í ágúst Hæstiréttur staðfesti á fimmtudag framlengingu gæsluvarðhalds yfir tveimur litháenskum karlmönnum, 55 og 27 ára gömlum, sem reyndu að smygla um fjórum kílóum af amfetamíni til landsins með Norrænu 30. júní síðastliðinn. 8.7.2005 00:01
Austurbær verður gerður upp Austurbær við Snorrabraut í Reykjavík hefur skipt um eigendur. Til stendur að gera húsið upp jafnt að utan sem innan. Í húsinu verður áfram menningar- og tónleikastaður. Borgin hugleiðir breytt skipulag til að leysa bílastæðavanda við húsið. 8.7.2005 00:01
Dæmdur í níu ára fangelsi Magnús Einarsson var dæmdur í níu ára fangelsi fyrir að kyrkja Sæunni Pálsdóttur, eiginkonu sína, með þvottasnúru í íbúð þeirra í Kópavogi í byrjun nóvember í fyrra. Gæsluvarðhald frá 1. nóvember kemur til frádráttar refsingunni. 8.7.2005 00:01
Hnífjafnt í borginni Samkvæmt nýrri könnun IMG Gallup fengi Sjálfstæðisflokkurinn helming atkvæða yrði gengið til kosninga nú. Reykjavíkurlistinn fengi 49 prósent og Frjálslyndi flokkurinn 0,8 prósent. Munur á stóru framboðunum er innan skekkjumarka. 8.7.2005 00:01
Þriggja bíla árekstur í Keflavík Laust eftir klukkan fimm, síðdegis í dag, varð þriggja bíla árekstur á gatnamótum Aðalgötu og Suðurvalla í Keflavík. Að sögn lögreglu urðu engin slys á fólki við áreksturinn en bílarnir, tveir jeppar og fólksbíll, voru allir óökufærir á eftir. 8.7.2005 00:01
Héraðsverk bauð lægst í veginn Tíu fyrirtæki skiluðu tilboðum í gerð malarvegs inn með austurströnd væntanlegs Hálslóns við Kárahnjúka, frá gatnamótum á Kárahnjúkavegi sunnan Sandfells að Litlu-Sauðá inn undir Brúarjökli. Vegurinn verður um 18 kílómetra langur. 8.7.2005 00:01
Enn sett ofan í við sýslumann Enn fá sýslumenn á baukinn frá dómurum fyrir slægleg vinnubrögð við framgang refsimála. Nú síðast setur Héraðsdómur Reykjaness ofan í við Sýslumann í Keflavík þar sem sýslumaður birti síbrotamanni ekki ákæru fyrr en 30 mánuðum eftir að rannsókn lauk. 7.7.2005 00:01
Rafmagnslaust á Grandanum Rafmagnslaust varð á Grandanum og hluta af Tryggvagötu og Hafnarstræti upp úr klukkan þrjú í nótt og stóð í tæpa klukkustund. Bilun varð í háspennuvirki og smátruflana gætti víðar í Vesturbænum þótt rafmagn færi þar ekki alveg af. 7.7.2005 00:01
Þrír handteknir fyrir innbrot Lögreglan í Reykjavík handtók undir morgun þrjá pilta á aldrinum 14 til 17 ára á bíl á Hringbrautinni eftir að þeir höfðu brotist inn í blómabúð við Hagamel. Vitni að því gátu vísað á piltana. 7.7.2005 00:01
Ráðuneytið opnar upplýsingasíma Um tvö þúsund Íslendingar eru búsettir í London. Utanríkisráðuneytið hefur opnað upplýsingasíma vegna atburðanna þar. Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir að sín fyrsta hugsun sé samúð með vinaþjóð Íslendinga, Bretum, en jafnframt að kanna hvort Íslendingar hafi skaðast. 7.7.2005 00:01
Bankastarfsmenn heilir á höldnu Fjölmargir Íslendingar búa og starfa í London. Þar á meðal eru á fimmta tug starfsmanna Landsbankans. Búið er að hafa uppi á þeim öllum að sögn talsmanns bankans. 7.7.2005 00:01
Samtökin sem lýstu ábyrgð á hendur Samtökin sem lýst hafa ábyrgð á hendur sér vegna árásanna í London eru ekki áður ókunn, eins og fullyrt hefur verið af sérfræðingum. 7.7.2005 00:01
Ánægð með Ólympíuleikana Ánægja greip um sig meðal starfsfólks og viðskiptavina Söluturnsins London í Austurstræti í Reykjavík þegar spurðist að Ólympíuleikarnir verði haldnir í stórborginni London á Englandi árið 2012. 7.7.2005 00:01
Leifsstöð brýtur samkeppnislög "Nú viljum við láta á það reyna hvort þessi starfsemi stenst lög með því að leggja fram kæru og fá úr því skorið í eitt skipti fyrir öll," segir Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. 7.7.2005 00:01
Lennon og McCartney Bíldudals Blómlegt menningarlíf á Bíldudal í Arnarfirði hefur vakið landsathygli enda virðist sem bærinn geti státað af fleiri listamönnum en önnur þorp á landinu. </font /></b /> 7.7.2005 00:01