Fleiri fréttir

Annmarkar á málsmeðferð

Umboðsmaður Alþingis telur að verulegir annmarkar hafi verið á málsmeðferð ríkissaksóknara þegar hann staðfesti ákvörðun lögreglu um að rannsókn kærumáls yrði hætt.

Lítið um pestir hjá börnum

Heilsufar barna hefur verið með betra móti enn sem komið er í sumar en það er töluverð breyting frá fyrri hluta ársins. "Okkur finnst sumarið alls ekki hafa farið illa af stað og heilsufar barna er með betra móti ef eitthvað er," segir Atli Árnason, yfirlæknir á heilsugæslunni í Grafarvogi.

Taxtahækkanir yfirvofandi

Hækkanir á töxtum leigu- og sendibifreiða standa fyrir dyrum eftir breytingar þær sem urðu á olíugjaldinu þann fyrsta júlí síðastliðinn. Hafa breytingar í för með sér talsverðan kostnaðarauka fyrir þær starfsstéttir og reyndar fleiri.

Hefur ekki áhrif á flug

Sprengingarnar í Lundúnum hafa ekki áhrif á áætlunarflug Icelandair og Iceland Express. Hundruð Íslendinga eiga pantaða ferð með flugfélögunum til og frá Lundúnum í dag.

Öryggisgæsla hert í Leifsstöð

"Það er ekki hægt að segja að viðbúnaður hér hafi verið aukinn en það var skerpt á allri öryggisgæslu í kjölfar hryðjuverkanna í London," sagði Jóhann R. Benediktsson, Sýslumaður á Keflavíkurflugvelli.

Björgunarskip kallað út

Björgunarskipið Húnbjörg var kallað út ásamt Björgunarsveit Skagastrandar rúmlega fjögur í dag vegna trillu sem strandað hafði við Skagaströnd. Skipið var komið úr höfn nokkrum mínútum eftir útkallið og klukkan fimm var björgunarskipið komið á vettvang og bjargaði manninum frá borði.

Taka árás með stillingu

"Það er sérkennilegt að vera hér," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sem stödd er í London. "Það er mikil þögn yfir borginni og nánast engir bílar á ferli."

Lýðræðisleg öfl hljóta að sigra

"Við Íslendingar, eins og aðrar þjóðir fordæmum þessi grimmilegu hryðjuverk sem beinast gagnvart saklausum borgurum," segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra.

Vilja listamiðstöð á Laugarvatni

"Við höfum fundið fyrir miklum stuðningi við hugmyndir okkar um að hús Héraðsskólans á Laugarvatni verði gert að alþjóðlegri listamiðstöð," segir Alda Sigurðardóttir en hún fer fyrir hópi fólks sem hefur þetta að baráttumáli.

Spyr um launamál borgarinnar

"Ég vildi einfaldlega fá úr því skorið hvort laun þeirra sem nú eru titlaðir sem sviðstjórar hafi hækkað verulega við stjórnkerfisbreytingarnar þó svo að ábyrgðin eða umsvifin hafi ekki aukist í flestum tilfellum," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Bænastund í Dómkirkjunni

Boðað var til bænastundar í Dómkirkjunni klukkan átta í gærkvöldi vegna atburðanna í London. "Með þessu viljum við sýna vinarþjóð okkar samstöðu og þá sérstaklega fórnarlömbum þar í landi og ættingjum þeirra," segir Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur.

Fánar í hálfa stöng í gær

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sendi í gær fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands samúðarskeyti til Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, vegna hryðjuverkanna í Lundúnum í gærmorgun.

Forsetinn vottar samúð sína

"Ég votta yður og bresku þjóðinni djúpa samúð mína, konu minnar og Íslendinga allra vegna hinna hræðilegu hryðjuverkaárása í London," segir í skeyti sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseta Íslands, sendi í gær til Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands og Elísabetar Bretadrottningar.

Dæmdur fyrir flöskubrot

Maður var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að berja annan í höfuðið með flösku fyrir utan Félagsheimili Húsavíkur aðfararnótt sunnudagsins 6. júní í fyrra. Flaskan brotnaði og skarst sá nokkuð sem fyrir högginu varð. Árásarmaðurinn var handtekinn á staðnum, fullur og æstur.

Öll heimili tengd árið 2011

Reykjavíkurborg og Orkuveita Reykjavíkur hafa skrifað undir samning um að ljósleiðaravæðingu allra heimila borgarinnar ljúki árið 2011. Sambærilegir samningar hafa verið gerðir við Akraneskaupstað og Seltjarnarnes.

Veikur af vosbúð við Kárahnjúka

"Minn maður liggur fárveikur eftir kulda og vosbúð á Kárahnjúkum," sagði Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Ólafs Páls Sigurðssonar, þegar gerð var tilraun til að þingfesta mál á hendur honum fyrir að sprauta grænu skyri á gesti álráðstefnu á hótel Nordica í Reykjavík um miðjan júní.

Máli flugskóla vísað frá

Kærumáli Flugmálastjórnar á hendur forsvarsmanna flugskóla í Reykjavík frá í apríl í fyrra var vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur í byrjun vikunnar. Lögregla kærði stjórnarmann félagsins fyrir brot gegn loftferðalögum og almennum hegningarlögum.

Kertaljós tendruð á Lækjartorgi

Kertaljós voru tendruð á mótmælafundi Amnesty International við Lækjartorg klukkan fimm. Opinberar stofnanir flögguðu í hálfa stöng og íslenskir þjóðarleiðtogar sendu Bretum samúðarkveðjur í kjölfar atburðanna í dag. Fyrirbænastund verður í Dómkirkjunni í Reykjavík klukkan átta í kvöld.

Árás á alþjóðasamfélagið

Herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands var staddur í London í gærmorgun þegar hryðjuverkaárásirnar áttu sér stað. Hann segist þó hafa verið í nokkurri fjarlægð frá þeim stöðum þar sem sprengingarnar urðu og því hafi hann ekki orðið þeirra var fyrst í stað.

Full samúðar

"Maður verður óttalaga máttlaus og lítill þegar slíkt gengur á," segir Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.

Stríð uppræta ekki hatur

"Við fordæmum þetta auðvitað," segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, aðspurður um viðbrögð við hryðjuverkaárásunum.

Samstaða með fórnarlömbum

Íslandsdeild Amnesty International efndi til stundar á Lækjartorgi í gær til að sýna fórnarlömbum hryðjuverkaárásana í Lundúnum samstöðu og samúð.

Áfallahjálp í nauð

Jóhann Thoroddsen sálfræðingur þekkir vel til þess ferlis sem fer í gang þegar veita þarf áfallahjálp.

Samfelld byggð á strandlínunni

Skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögur um breytingar á deiliskipulagi við Baróns- og Skuggareit við norðurströndina í Reykjavík. Eftir að byggingar hafa risið á þessum reitum er gert ráð fyrir að samfelld byggð myndist þegar litið er á strandlínuna frá Laugarnesi.

Sár og sorgmæddur

Davíð Oddssyni utanríkisráðherra brá þegar hann heyrði að árás hefði verið gerð á Lundúnir. Hann fylgdist með fyrstu myndunum af atburðinum með bandaríska sendiherranum.

Eldur gaus upp í smárútu

Sex menn sluppu ómeiddir þegar eldur gaus upp í smárútu á ferð á Sandskeiði um klukkan hálfsex í morgun. Ökumaður stöðvaði bílinn í skyndingu og stukku allir út. Farþegarnir náðu líka að bjarga farangri sínum en þeir voru á leið til útlanda með morgunfluginu.

Dæmd fyrir kannabisrækt í haughúsi

Þrír karlmenn og ein kona hafa verið dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur í skilorðsbundið fangelsi fyrir stórfellda kannabisrækt í haughúsi á sveitabæ á Suðurlandi. Kunnáttusamlega var staðið að verki og lagði lögregla meðal annars hald á tólf gróðurhúsalampa, hitablásara, flúorlampa, ljósaperur og ýmsan annan búnað til ræktunarinnar, að ónefndum 710 kannabisplöntum.

Fjórir hvalir í Keflavíkurhöfn

Mikill bægslagangur er nú í höfninni í Keflavík þar sem þrjár hrefnur og einn hnúfubakur eru að næra sig og leika sér. Hvalirnir eru alls ófeimnir við umferð um bryggjuna en talið er að þeir séu meðal annars að éta síld.

Undirbýr boðun verkfalls

Starfsmannafélag Suðurnesja hefur vísað vinnudeilu sinni við sveitarfélögin til Ríkissáttasemjara og undirbýr boðun verkfalls. Um fjögur hundruð manns eru í félaginu og ef til verkfalls kemur hefst það 2. september.

Tvö innbrot í vesturborginni

Brotist var inn í bensínstöð og verslun í vesturborginni undir morgun og þaðan stolið einhverjum verðmætum. Þjófurinn, eða þjófarnir, komust undan áður en lögregla kom á vettvang. Í báðum tilvikum voru unnar skemmdir á dyraumbúnaði þegar þjófarnir ruddu sér braut inn í húsnæðið.

Þristurinn í langferð

Gamla landgræðsluvélin, eða Þristurinn svonefndi, lagði í langferð til Englands í morgun og þaðan mun hann fljúga til Skandinavíu í tilefni sextíu ára afmælis farþegaflugs á milli Íslands og annarra landa.

Sjö sóttu um starf forstjóra

Sjö sóttu um starf forstjóra Fjármálaeftirlitsins en Páll Gunnar Pálsson hefur látið af því embætti og tekið við forstöðu hins nýja Samkeppniseftirlits. Þrír umsækjendanna vinna hjá Fjármálaeftirlitinu, þau Ásta Þórarinsdóttir, Hlynur Jónsson og Rúnar Guðmundsson.

Hundrað milljóna fjárdráttur

Ákæra á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, varðar meðal annars tæplega hundrað milljóna króna fjárdrátt í tengslum við tilraun fyrirtækisins til að taka yfir verslanakeðjuna Arcadia fyrir fjórum árum. Frá þessu er greint í breska blaðinu <em>Guardian</em> í dag.

Varnarviðræðurnar hafnar

Viðræður um framtíð varnarsamstarfsins við Bandaríkin á Keflavíkurflugvelli hófust í Washington í morgun. Íslenskir og bandarískir embættismenn funda um málið í dag og er búist við að fundir standi fram að helgi.

Níu mánuðir fyrir ýmis brot

Rúmlega tvítugur maður var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir ýmis eignaspjöll í Reykjanesbæ, fíkniefnabrot og fyrir að hafa ráðist inn á heimili í Reykjavík og valdið húsráðanda þar áverkum.

Mótmæla hvalveiðunum harðlega

Alþjóðadýraverndunarsjóðurinn mótmælir harðlega áframhaldandi hvalveiðum við Ísland. Sjóðurinn segir það mikil vonbrigði að íslensk stjórnvöld haldi til streitu vísindaveiðum á hrefnu.

Nefndin komin á hreint

Helstu hagsmunagæslumenn allra stjórnmálaflokkanna eiga sæti í nefnd sem Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra skipaði í gær til að fjalla um lagalega umgjörð stjórnmálastarfssemi á Íslandi og þar með aðgang að fjármálum flokkanna.

Heildargreiðslur 70 milljarðar

Heildargreiðslur Tryggingastofnunar á árinu 2004 námu um 70 milljörðum króna eða um það bil fjórðungi af áætluðum ríkisútgjöldum. Greiðslur vegna lífeyristrygginga og bóta vegna félagslegrar aðstoðar námu um helmingi fjárhæðarinnar, eða 35 milljörðum.

Meðalhúsaleigubætur 13 þúsund

Rúmlega 5500 heimili fengu greiddar húsaleigubætur á árinu 2004 samkvæmt ársskýrslu Félagsþjónustunnar í Reykjavík. Húsaleigubætur voru að meðaltali rúmlega 13 þúsund krónur á mánuði.

Jón Trausti í 2 mánaða fangelsi

Jón Trausti Lúthersson var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í tveggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Hann var ákærður fyrir að hafa ráðist inn á ritstjórnarskrifstofur DV síðastliðið haust, tekið Reyni Traustason fréttastjóra hálstaki og hert að með þeim afleiðingum að honum sortnaði fyrir augum, marðist og hruflaðist á hálsi.

Grasbændur ryðja sér til rúms

Íslenskur landbúnaður hefur um nokkurt skeið verið einskonar olnbogabarn annarra atvinnugreina, í það minnsta í opinberri umræðu. Riðuveiki, gjaldþrot í fiski- og minkarækt, auk framleiðislustyrkja og tollamúra hafa löngum reynst bændum erfið. Nú virðist sem þetta gæti breyst og ný aukagrein sé að ryðja sér til rúms.

Breskur og finnskur matur frábær

Úlfar Eysteinsson matreiðslumeistari segir Berlusconi og Chirac vaða í villu þegar þeir segja breskan og finnskan mat vondan. Milliríkjadeila er í uppsiglingu vegna orða þeirra. </font /></b />

Nikkurnar þandar á Norðfirði

Fjöldi gesta streymir nú til Neskaupstaðar til þátttöku í Landsmóti harmonikuunnenda sem hefst þar í kvöld og stendur til sunnudags.

Frír smáauglýsingavefur

Prufuútgáfa af nýjum smáauglýsingavef, www.partalistinn.net, var nýlega opnuð. Vefurinn er alfarið rekinn í sjálfboðastarfi af sjálfboðaliðum og er markmiðið að stuðla að umhverfisvernd með því að auðvelda fólki að kaupa, selja og gefa notaða hluti.

Fá ekki að sjá minnispunktana

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur hafnað kröfu kennarahóps í Landakotsskóla um aðgang að minnispunktum, sem fulltrúi í kennararáði skólans lagði fram á skólanefndarfundi í janúar síðastliðnum.

Sjá næstu 50 fréttir