Útgerðarmaður sýknaður 8. júlí 2005 00:01
Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað fyrrverandi útgerðarmann í Nirði ehf, af ákæru Ríkislögreglustjóra um fjársvik upp á liðlega fjörutíu milljónir króna. Fjársvikin áttu að vera þau að útgerðarmaðurinn hafi með blekkingum fengið bróður sinn, sem átti líka hlut í félaginu, til að selja sér hlutinn á 42 milljónir króna, miðað við að markaðsvirði félagsins væri aðeins 250 milljónir króna, en það hafi hinsvegar verið að minnstakosti 500 milljónir í raun, og því hafi hann hlunnfarið bróðurinn um rúmar 40 milljónir. Taldi Ríkislögreglustjóri þetta brot á almennum hegningarlögum og krafðist að ákærði yrði dæmdur til refsingar. Bræðurnir gerðu þessi kaup fyrir nokkrum árum þegar mikið var um að útvegsfyrirtæki voru að sameinast og var í þessu tilviki stefnt að sameiningu Njarðar og Búlandstinds. Í sameiningarferlunum var algengt að fyrirtæki reyndu að meta sig sem allra hæst, til að fá sem sterkasta stöðu í nýju sameinuðu félagi og mun svo hafa verið í þessu tilviki. Þetta leiddi til þess misskilnings að Njörður var talinn mun verðmæti en sagt var þegar útvegsmaðurinn keypti hlut bróður síns. Við meðferð málsins voru allar tölur endurmetnar og komst Héraðsdómur að þeirri niðurstöðu að ósannað væri að útvegsmaðurinn hafi við kaupin á bréfum bróðursins, beitt hann refsiverðum svikum og var hann því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins og bótakröfu bróðurins vísað frá dómi.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira