Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Margir um hituna í Kópavogi Miklar annir voru hjá bæjarskipulagi Kópavogs í gær en þá rann út frestur til að skila inn umsóknum vegna úthlutunar byggingaréttar fyrir íbúðir í fyrirhuguðu Þingahverfi við Elliðavatn. 4.7.2005 00:01
Dísilolía dýrari en bensín Dísilolía er nú orðin dýrari en bensín eftir síðustu hækkanir olíufélaganna Olís, Esso, og Skeljungs í gær en þá hækkuðu öll verð á dísilolíu um eina krónu á hvern lítra. 4.7.2005 00:01
Maður lést í umferðarslysi Eldri maður lést í árekstri pallbíls og rútu við Minni-Borg í Grímsnesi laust eftir klukkan hálf tvö í gærdag. Þrír farþegar rútunnar meiddust og voru fluttir á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Reykavík til skoðunar. Maðurinn sem lést ók pallbílnum og var einn á ferð. Talið er að hann hafi látist samstundis. 4.7.2005 00:01
Fundu eiturlyf, umbúðir og búnað Lögregla fann þrjú kíló af hassi og 400 grömm af amfetamíni við húsleit á lögheimili manns í Reykjavík síðasta þriðjudag. Þá fundust fyrr um morguninn ætluð íblöndunarefni, umbúðir og búnaður sem lögregla ætlar að notaður hafi verið til að pakka fíkniefnum á dvalarstað mannsins. 4.7.2005 00:01
Tvíkjálkabrotinn fær bætur Ungir bræður voru fyrir helgi dæmdir í hálfsársfangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að berja mann og sparka ítrekað í höfuð hans þar sem hann lá þannig að hann tvíkjálkabrotnaði og hlaut önnur meiðsl. Árásin átti sér stað á tjaldstæðinu við Þórunnarstræti á Akureyri, aðfararnótt 17. júní í fyrra. 4.7.2005 00:01
Barði niður bílstjóra 22 ára gamall maður var í gær dæmdur í mánaðarfangelsi fyrir líkamsárás sem átti sér stað snemma á laugardagsmorgni í febrúar í fyrra. 4.7.2005 00:01
Störfuðu lögum samkvæmt KPMG Endurskoðun sendi í gær frá sér yfirlýsingu vegna ákæru Ríkislögreglustjóra á hendur starfsmanni fyrirtækisins í Baugsmálinu. Fram kemur að starfsmanninum sé gefið að sök að hafa áritað ársreikninga Baugs hf. fyrir árin 2000 og 2001 án fyrirvara, en Ríkislögreglustjóri telji tilteknar upplýsingar ekki hafa verið settar fram í samræmi við lög. 4.7.2005 00:01
Stjórnandi sambýlis stal frá íbúum Lögregla rannsakar meintan fjárdrátt konu sem stýrði sambýli fyrir fatlaða í Reykjavík. Konan tók út vörur til eigin nota á reikning sambýlisins. Þetta er annað málið sem kemur upp á skömmum tíma þar sem stolið er frá íbúum sambýlis. 4.7.2005 00:01
Segir fjárfesta ekki hafa áhyggjur Stjórnarformaður Baugs segir fjárfesta og samstarfsmenn fyrirtækisins erlendir hafa traust á fyrirtækinu og stjórnendum þess, þrátt fyrir útgáfu ákæra í Baugsmálinu hér heima. Forsvarsmenn Baugs funduðu með viðskiptafélögum í London í gær. 4.7.2005 00:01
Veiða má 39 hrefnur Veiða má allt að 39 hrefnur í ár samkvæmt ákvörðun sjávarútvegsráðuneytisins. Náist það verður búið að veiða hundrað af tvö hundruð hrefnum sem veiða á samkvæmt hvalarannsóknaáætlun Hafrannsóknastofnunar. 4.7.2005 00:01
Skipulögð glæpastarfsemi á Íslandi Ísland hefur ánetjast; það er flækt í net alþjóðlegra glæpamanna. Íslenski fíkniefnamarkaðurinn stækkar og erlend glæpasamtök renna hýru auga til hans. 4.7.2005 00:01
Viðurlög við kaupum á vélaolíu Ef þú kaupir notaðan fólksbíl sem einhvern tíma hefur verið tekin vélaolía á, ert það þú sem færð sektina ef upp kemst um málið en ekki fyrri eigandi. Sektin getur numið tugum þúsunda króna. Sindri Sindrason veit meira um málið. 4.7.2005 00:01
Foo Fighters á Íslandi Ísland er uppáhaldsstaðurinn okkar að spila á í heiminum, segir Dave Grohl, söngvari Foo Fighters. Tónleikar með hljómsveitinni verða haldnir í Egilshöllinni annað kvöld. 4.7.2005 00:01
Eldur í eldhúsi við Rauðarárstíg Á áttunda tímanum í kvöld varð eldur laus í eldhúsi íbúðar sem stendur við Rauðarárstíg. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá Slökkviliði Reykjavíkur voru tveir slökkvibílar sendir á staðinn. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og engin slys urðu á fólki. 4.7.2005 00:01
Mikill munur á matarverði Mikill munur var á hæsta og lægsta verði margra vörutegunda í verðkönnun sem Alþýðusamband Íslands framkvæmdi í byrjun mánaðarins. 4.7.2005 00:01
Samfylking fær bestu bitana Ný tillaga framsóknarmanna vegna áframhaldandi samstarfs R-listans í Reykjavík gerir ráð fyrir að Samfylkingin fái fyrsta val um borgarstjóra, formann borgarráðs og forseta borgarstjórnar samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 4.7.2005 00:01
Líks leitað í Grafarvogi Lögreglumenn og slökkviliðsmenn leituðu í gærkvöld að líki við Gullinbrú í Reykjavík. Leitin hófst eftir að barn sagði frá því að það hefði séð lík á floti þar sem það var á ferð. Að sögn lögreglu var lýsing barnsins þannig að ekki var annað hægt en að hefja leit af fullri alvöru. 4.7.2005 00:01
Hjón slasast í gassprengingu Maður og kona fengu annars og þriðja stigs bruna eftir gassprengingu á tjaldstæðinu í Bjarkarlundi í fyrrakvöld. Maðurinn var inni í hjólhýsi sínu ásamt konunni að skipta um gaskút þegar upp kom gasleki. Sprengingin varð þegar gasið komst í snertingu við loga sem var á gashellu inni í hjólhýsinu. 4.7.2005 00:01
Segir fleiri spurningar vakna Helgi Hjörvar segir það vekja upp spurningar að Ker hafi skrifað undir afsal að flokksskrifstofum Framsóknar um það leyti sem Búnaðarbanki var seldur árið 2002. Aðdróttanir úr lausu lofti gripnar segja framsóknarmenn sem keyptu húsið 1997.</font /></b /> 4.7.2005 00:01
Maersk Air komið í eigu Íslendinga Danska flugfélagið Maersk Air er komið í eigu Íslendinga. Danskir fjölmiðlar greina frá því að eignarhaldsfélagið Fons, sem á meðal annars Iceland Express og danska flugfélagið Sterling, hafi keypt Maersk Air af A.P. Möller. 30.6.2005 00:01
Annmarkar á minnisblaði Verulegir annmarkar eru á minnisblaði Ríkisendurskoðunar um hæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra, til að taka þátt í söluferli á Búnaðarbankanum, að mati tveggja hæstaréttarlögmanna, sem stjórnarandstaðan bað um álitsgerð um málið. 30.6.2005 00:01
Essó vill sektir felldar niður Eignarhaldsfélagið Ker, sem á olíufélagið Essó, ætlar í dag að stefna ríkinu og samkeppnisyfirvöldum til að fá sektir fyrir ólöglegt samráð felldar niður, þar sem ný skoðun leiði í ljós að félagið hafi ekkert grætt á samráðinu. 30.6.2005 00:01
Lögreglumenn sekta sem aldrei fyrr Lögreglumenn um allt land biðu ekki boðana í gær, eftir að skrifað hafði verið undir samning Ríkislögreglustjóra og Umferðarstofu um stórhert eftirlit á þjóðvegunum næstu þrjá mánuðina, og stöðvuðu og sektuðu tugi ökumanna. 30.6.2005 00:01
SÍF selur hlutabréf SÍF hagnaðist um fjögur hundruð og þrjátíu milljónir króna þegar félagið seldi í dag hlutabréf í gamla keppinautnum SH sem nú kallast Icelandic Group. Þetta eru hlutabréf sem félagið fékk við sameiningu Sjóvíkur og SH. 30.6.2005 00:01
Heimsókn Taívana ergir Kínverja Kínverjar eru æfir vegna komu utanríkisráðherra Taívans hingað til lands í dag og hafa í hótunum. Kínverska sendiráðið leitar allra leiða til að koma í veg fyrir heimsóknina. Sendinefnd frá Taívan með utanríkisráðherrann Dr. Tan Sun Chen í broddi fylkingar er væntanleg hingað til lands í dag. 30.6.2005 00:01
Maersk Air í eigu Íslendinga Danska flugfélagið Maersk Air er komið í eigu Íslendinga. Um leið er orðið til fjórða stærsta lággjaldaflugfélag Evrópu. Það var eignarhaldsfélagið Fons, sem á meðal annars Iceland Express og danska flugfélagið Sterling, sem keypti Maersk Air af A.P. Möller. 30.6.2005 00:01
Essó og Skeljungur lækka verð Essó og Skeljungur lækkuðu í morgun verð á bensíni um eina krónu á lítrann og er algengt sjálfsafgreiðsluverð á stöðvum þeirra nú rúmar 109 krónur. Hækkkun um krónu á þriðjudag er því gengin til baka og eru þessar sveiflur íslensku félaganna nálægt því að vera eins og sveiflur á heimsmarkaðsverði þessa dagana. 30.6.2005 00:01
Rektorsskipti við Háskóla Íslands Rektorsskipti verða við Háskóla Íslands í dag þegar Kristín Ingólfsdóttir prófessor tekur við starfi rektors af Páli Skúlasyni sem gengt hefur stöðunni frá árinu 1997. Kristín er með doktorspróf í lyfjafræði og verður hún fyrsta konan til að gegna rektorsembætti við Háskóla Íslands. 30.6.2005 00:01
Vísitala neysluverðs fer hækkandi Vísitala neysluverðs hækkaði um núll komma sjötíu og eitt prósent í júní frá fyrra mánuði og hefur hækkað um samtals 2,8 prósent á 12 mánuðum. Hækkunin síðustu þrjá mánuði jafngildir ársverðbólgu upp á eitt og hálft prósent. 30.6.2005 00:01
OR utan við staðsetningardeilur Orkuveita Reykjavíkur vildi ekki blanda sér í umræður um staðsetningu nýrra álvera á landsbyggðinni þegar forstjóranum var meinað að skrifa undir viljayfirlýsingu við Norðurál um orkusölu til nýs álvers í Helguvík. Orkuveitan skrifaði í gær undir 60 milljarða króna samning við Alcan á Íslandi og full sátt var um málið innan stjórnar Orkuveitunnar. 30.6.2005 00:01
Kögun selur hlut í Opnum kerfum Kögun seldi í dag allan hlut sinn í Opnum Kerfum group til eignarhaldsfélagsins Opin Kerfi Group holding. Eigendur eignarhaldsfélagsins eru auk Kögunar. Iða fjárfestingafélag sem er í eigu KEA og Straums fjárfestingabanka. 30.6.2005 00:01
Menningartengt heilsuhótel? Það stendur til að loka Heilsuverndarstöðinni við Barónstíg og selja húsið hæstbjóðanda. Viðmælendum Fréttablaðsins datt helst í hug að hótel, leikhús, bókasafn eða heilsuhæli gætu verið þar til húsa í framtíðinni. </font /></b /> 30.6.2005 00:01
Yfirtökunefnd stofnuð Mikil þörf er á starfi yfirtökunefndar að mati forstjóra Kauphallar Íslands, en nefndin tekur til starfa á morgun. Nefndinni er ætlað að fjalla um yfirtökur fyrirtækja og álitaefni tengd þeim. Um leið og nefndin tekur til starfa taka ný lög um verðbréfaviðskipti gildi. 30.6.2005 00:01
Hestamannamót á Kaldármelum Fjórðungsmót vestlenskra og vestfirskra hestamanna hefst á Kaldármelum í dag og eru um það bil 250 hross skráð til keppni. Þar verða meðal annars tölt- og skeiðkeppnir, opnar hrossum og knöpum úr öllum landsfjórðungum og ræktunar-og kynbótasýningar. Mótshaldarar búast við allt að tvö þúsund og fimm hundruð gestum. 30.6.2005 00:01
Met í flugumferð Vel yfir 500 flugvélar munu fara í gegnum íslenska flugstjórnarsvæðið fram að miðnætti sem er íslandsmet. Það sem ræður mestu um þessa miklu umferð eru hagstæðir háloftavindar á íslenska flugstjórnarsvæðinu fyrir flugvélar á leið vestur yfir Atlantshaf. 30.6.2005 00:01
Réttindi samkynhneigðra Össur Skarphéðinsson vill að á næsta þingi verði lögum breytt til að leyfa frumættleiðingar samkynhneigðra og kirkjuvígslu á hjónaböndum þeirra. Þetta sagði Össur í pistil á síðu sinni, Ossur.hexia.net. "Ég er þeirrar skoðunar að það sé gróf mismunun gagnvart samkynhneigðum að þeir fái ekki að helga hjónaband sitt frammi fyrir guði ef að þeir eru trúaðir og óska þess," sagði Össur í samtali við Fréttablaðið. 30.6.2005 00:01
Tryggvi forstjóri Neytendastofu Tryggvi Axelsson lögfræðingur hefur verið skipaður í stöðu forstjóra Neytendastofu. 30.6.2005 00:01
Tvö hús grafin úr ösku Tvö hús sem fóru á kaf í ösku í Vestmannaeyjagosinu 1973 verða grafin upp á vegum Vestmannabæjar í sumar með styrk frá Ferðamálaráði Íslands. Bærinn hefur keypt tíu hús sem fóru undir ösku í gosinu og er stefnt að því að grafa þau öll upp næstu tíu árin. 30.6.2005 00:01
Bretinn mætti einn fyrir dóm Paul Geoffrey Gill, 33 ára gamall Breti, mætti einn til þingfestingar máls á hendur honum og tveimur Íslendingum, Ólafi Páli Sigurðssyni og Örnu Ösp Magnúsardóttur, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Íslendingarnir eru sagðir vera í mótmælatjaldi við Kárahnjúka. 30.6.2005 00:01
Ker vill niðurfellingu sekta Þingfest var í Héraðsdómi Reyjavíkur í gær kæra eignarhaldsfélagsins Kers, sem á Olíufélagið Essó, á hendur ríkinu og samkeppnisyfirvöldum til að fá ógiltan fyrri úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá því í janúar um samráð olíufélaganna. 30.6.2005 00:01
Tugir látast úr blóðeitrun árlega Blóðeitrun, öðru nafni sýklasótt, er stóralvarlegt og vaxandi vandamál hér á landi, sem og á öðrum vesturlöndum. Talið er að 50 - 60 manns látist árlega hér á landi af völdum þessa skæða sjúkdóms. 30.6.2005 00:01
Íþróttafélög semja við borgina Sextán íþróttafélög skrifuðu undir samstarfssamninga við Reykjavíkurborg, Íþrótta og tómstundarráð, og Íþróttabandalag Reykjavíkur um stuðning við félögin og er heildarfjárhæð samningsins 4,4 milljarðar króna. 30.6.2005 00:01
Braut glas framan í öðrum Aðalmeðferð í máli 23 ára Keflvíkings sem ákærður er fyrir fjölda afbrota fór fram í Héraðsdómi Reykjaness fyrir helgi. Maðurinn stal farsímum, veskjum, misnotaði greiðslukort sem hann stal, braust inn í bíla, veitingastað og söluturn, var gripinn með eiturlyf og braut glas framan í öðrum manni. 30.6.2005 00:01
Gæsluvarðhald vegna fíkniefna Rúmlega fertugur maður í Reykjavík hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald, eftir að talsvert magn af fíkniefnum fannst heima hjá honum við húsleit. 30.6.2005 00:01
Vilja bráðabirgðakvóta á loðnu Bæjarráð Siglufjarðar leggur til að kannaðir verði mögurleikar á því að gefinn verði út bráðabirgðakvóti á loðnu. Ráðið lýsir yfir miklum vonbrigðum og áhyggjum af stöðu mála varðandi loðnuveiði í sumar og leggur áherslu á að rannsóknir og veiðar verði ekki slegnar af strax. 30.6.2005 00:01