Fleiri fréttir

Gill segist ekki atvinnumótmælandi

Paul Gill, mótmælandinn sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald eftir að hafa slett skyri á Nordica-hóteli, neitar því að hann sé atvinnumótmælandi. Hann var látinn laus úr gæsluvarðhaldi á laugardaginn og er í farbanni til 1. júlí.

Ekki nauðsyn að afturkalla leyfi

Skipulagsstofnun telur ekki nauðsynlegt að afturkalla starfsleyfi vegna álversins í Reyðarfirði nema nýtt umhverfismat gerbylti forsendunum fyrir því.

Ný höfn á Mjóeyri við Reyðarfjörð

Ný höfn, sem er að verða til á Mjóeyri við Reyðarfjörð, verður á næstu árum ein stærsta útflutningshöfn landsins. Fyrstu skipin leggjast þar að bryggju í næsta mánuði.

Bensín aldrei dýrara

Bensínlítrinn hefur aldrei verið jafn dýr hér á landi og nú er eftir síðustu verðhækkanir olíufélaganna. Gera má ráð fyrir að verð geti hækkað enn meira þegar fram á sumarið kemur.

Svik að afnema ekki holræsagjald

Sjálfstæðismenn í borgarstjórn saka Reykjavíkurlistann um kosningasvik með því að afnema ekki holræsagjaldið, sem á sínum tíma var kynnt sem tímabundinn skattur. Þeir segja að R-listinn eigi ekki að hreykja sér af hreinsun strandlengjunnar heldur skammast sín.

Baráttumaður fyrir jafnrétti kynja

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra vísar því á bug að hafa sagt að staða konunnar sé á bak við eldavélina. Hann segist vera baráttumaður fyrir jafnrétti kynjanna þótt ekki sé til sérstök jafnréttisáætlun í landbúnaðarráðuneytinu.

36 rán að meðaltali á ári

Að meðaltali eru framin 36 rán á Íslandi á ári. Flest rán voru framin árið 1999 en fæst árið 2002. Þetta kemur fram í úttekt sem nemi í félagsfræði við Háskóla Íslands vann fyrir ríkislögreglustjórann.

Hlemmur aftur til virðingarvegs

Um tvö hundruð manns mættu á fund borgaryfirvalda að Hlemmi í gær en þar voru kynntar fyrir íbúum miðbæjarins framtíðarskipulagshugmyndir á nokkrum reitum við Hlemm og í nágrenni. Sá staður hefur tekið stakkaskiptum undanfarna mánuði en aðeins er um fyrstu skref að ræða til að koma svæðinu í heild aftur til vegs og virðingar.

Nærri 600 orður

Á árabilinu 1996 til 2005 hefur forseti Íslands veitt 574 heiðursmerki íslensku fálkaorðunnar. Þar af hefur röskur fjórðungur farið til kvenna. Útlendingar eru meirihluti þeirra sem forsetinn hefur heiðrað með þessum hætti.

Fimm bíla árekstur

Fimm bíla árekstur varð um hálffjögurleytið í gær skammt sunnan við Smáralind, norðan við gatnamót Arnarnesvegar og Reykjanesbrautar

Stálu bíl og kveiktu í honum

Þrjú ungmenni, tveir 17 ára gamlir piltar og 15 ára gömul stúlka, voru hlaupin uppi af lögreglu í Heiðmörk í gærmorgun. Þau voru grunuð um að hafa skemmt fjóra til fimm bíla í Seláshverfi í Reykjavík um nóttina, ásamt því að hafa stolið einum bíl sem þau óku upp í Heiðmörk þar sem þau kveiktu í honum.

Verður að halda að sér höndum

Samtök iðnaðarins telja að stjórnvöld eigi að halda mun fastar um ríkispyngjuna en gert hefur verið enda þenslan næg fyrir í landinu þó ekki komi líka til framkvæmdir og verkefni fyrir ríki og sveitarfélög.

Þrjá milljarðar fram úr fjárlögum

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra hefur farið rúma þrjá milljarða fram úr fjárlögum í ráðherratíð sinni, eða um 650 milljónir króna á ári að meðaltali, sem er vel yfir fjögurra prósenta viðmiðunarmarki fjármálaráðuneytisins.

Flugfargjöld hækka ekki

Bandaríska flugfélagið Delta hækkaði flest fargjöld í flugi yfir Atlantshafið 15. júní vegna hækkunar á þotueldsneyti síðustu mánuði. Íslensku flugfélögin búast þó ekki við að hækka fargjöld á næstunni.

Skjár einn semur við Playboy

Íslenska sjónvarpsfélagið, sem er að hluta í eigu ríkisfyrirtækisins Símans og rekur sjónvarpsstöðina Skjá einn, hefur gengið frá samningi um efniskaup frá bandaríska klámframleiðandanum Playboy.

35 teknir fyrir hraðakstur

Þrjátíu og fimm ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Akureyri í gærkvöldi og nótt. Þar af voru þrjátíu og þrír teknir innanbæjar.

Slagsmál eftir dansleik á Súðavík

Lögreglan á Ísafirði þurfti tvívegis að stöðva slagsmál eftir dansleik sem haldinn var á Súðavík í gærkvöld. Mikill fjöldi tók þátt í slagsmálum sem brutust fyrst út klukkutíma eftir dansleikinn og þegar lögreglan hélt að hún hefði róað lýðinn, hlupu menn aftur saman og héldu fjörinu áfram.

90 ár frá kosningaréttinum

Níutíu ár eru í dag liðin frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt. Af þessu tilefni er búið að boða til mikillar hátíðar á Þingvöllum og hefst dagskráin formlega klukkan eitt þegar gengið verður niður Almannagjá við undirleik lúðraþyts og kvennasöng.

Grafarvogskirkja fimm ára

Grafarvogskirkja á fimm ára vígsluafmæli í dag og verður af því tilefni haldin hátíðarguðsþjónusta klukkan ellefu. Þar mun fjöldi kóra syngja og herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, predikar.

Ók á steinstólpa við Elliðaárbrú

Karlmaður um fertugt slasaðist alvarlega þegar bíll hans lenti á steinstólpa við Elliðaárbrúna í Reykjavík í morgun. Maðurinn var einn á ferð á leið í suðurátt. Bíll hans skemmdist mikið og þurfti að klippa manninn úr bílnum.

Skiptir skeggrótin máli?

Félagsmálaráðherra ritaði í morgun bréf til allra fyrirtækja og stofnana á landinu með fleiri en 25 starfsmenn og hvatti til launajafnréttis og til þess að skoðað verði hvort hugsanlega sé fyrir hendi óútskýranlegur kynbundinn launamunur. Ráðnuneytið sendir sömu aðilum einnig veggspjald þar sem spurt er: „Skiptir skeggrótin máli?“

Styttur klæddar í bleikt

Margar styttur borgarinnar skarta nú bleikum klút eða flík af einhverri tegund. Líklegt má telja að aðilar sem vilja bættan hag kvenna í þjóðfélaginu standi fyrir uppátækinu. Dagurinn í dag er líka kvenréttindadagurinn en á þessum degi fyrir 90 árum fengu konur á Íslandi kosningarétt í fyrsta sinn.

Maðurinn látinn

Ökumaður bílsins sem lenti á steinstólpa við Reykjanesbraut í morgun er látinn. Bifreiðin lenti á stólpa þar sem Reykjanesbraut liggur undir brú á Miklubraut. Maðurinn var einn á ferð á leið í suðurátt. Hann var rúmlega fertugur að aldri, búsettur í Reykjavík. Tildrög slyssins eru óljós.

Á þriðja tug hræja í fjörunni

Á þriðja tug dýrahræja liggur nú í fjörunni við bæinn Finnbogastaði við Trékyllisvík á Ströndum. Að sögn húsfreyjunnar á bænum, Pálínu Þórólfsdóttur, er þetta ekki í fyrsta sinn sem hræ rekur að landi við bæinn en hún segir fjöldann þó líklega aldrei hafa verið meiri.

Snorrabraut lokað í rúmar 10 vikur

Snorrabraut milli Eiríksgötu og Hringbrautar verður lokað á morgun vegna framkvæmda við undirgöng. Gatan verður lokuð í rúman tvo og hálfan mánuð, eða til 8. september, með tilheyrandi umferðartöfum.

Hátt í 200 teknir fyrir hraðakstur

Á annað hundrað manns hafa verið teknir fyrir of hraðan akstur um þessa miklu ferðahelgi. Sektirnar geta numið tugþúsundum.

Strákaklúbburinn ofan á

"Á síðasta ári þegar valdir voru ráðherrar fyrir flokkinn varð strákaklúbburinn ofan á." Þannig kemst Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, að orði í pistli á heimasíðu sinni á netinu í gær 19. júní.

Síldin betri en olíulind

Ágætis veiði hefur verið á síldarmiðunum austur af landinu undanfarna daga, en nær alveg hefur tekið fyrir hana síðasta sólarhringinn.

Höfum hóflegar væntingar

Talsmenn þeirra sem styðja hvalveiðar í atvinnuskyni segjast hafa nærri því nógu mörg atkvæði til að fá hvalveiðibanninu hnekkt.

Meginmarkmiðið að eyða launamun

Árni Magnússon segir það meginmarkmið sitt sem jafnréttisráðherra að eyða launamun kynjanna þó engin tímamörk hafi verið sett. Á annað þúsund Íslendingar komu saman á Þingvöllum í dag til að fagna 90 ára kosningarétti kvenna en þó margt hafi áunnist í baráttunni voru menn sammála um að henni sé langt í frá lokið.

Landbúnaðarráðuneytið eyland

Fræðslan er lykillinn að því að jafnrétti náist en þrátt fyrir vilja ríkisstjórnarinnar hefur engin áætlun verið gerð fyrir landbúnaðarráðuneytið. Fráfarandi jafnréttisfulltrúi Háskóla Íslands hvetur landbúnaðarráðherra til að gera eitthvað í málinu.

Þingvellir líka fyrir konur

Um tvö þúsund manns mættu á Þingvallafund sem haldinn var í tilefni af 90 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Veðrið setti sinn svip á hátíðina en það rigndi á hátíðargesti.

Eldur í Hafnarfirði

Eldur kviknaði í bátaskýli við Ásbraut í Hafnarfirði laust fyrir klukkan hálf átta í gærkvöldi.

Köflótt sjónvarp

Við sjáum ekki heilar útsendingar frá RÚV, Sýn, Stöð 2 eða Skjá einum," segir Gunnar Gunnarsson, íbúi á Sólvallargötu í Keflavík. Hann er ekki sá eini sem lendir í þessu því íbúar á Suðurnesjum hafa margir hverjir þurft að búa við heldur köflótt sjónvarp í þrjár vikur.

Vill meira fé til menntamála

"Það gengur auðvitað ekki að stofnanir fari fram úr fjárlögum," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra um framúrkeyrsluna hjá stofnunum menntamálaráðuneytisins. "Við fórum fram úr og það er ekki til fyrirmyndar. En við erum að taka á þessum stofnunum og hjálpa þeim að leysa úr sínum vandamálum."

Þrettán látnir í ár

Banaslys varð þegar reykvískur karlmaður á fimmtugsaldri keyrði á steinstólpa brúar þar sem Reykjanesbraut liggur undir Miklubraut í gærmorgun. Var hann að keyra suður eftir Reykjanesbrautinni.

Frekari framúrkeyrsla væntanleg

Af þeim fjórum ráðuneytum sem fóru fram úr fjárlögum á síðasta fjárlagaári stefna að minnsta kosti þrjú þeirra aftur fram úr í keyrslu. Ekki hefur enn náðst í stjórnendur utanríkisráðuneytisins.

Hætt við spillingu í lóðaúthlutun?

Síðustu lóðum Kópavogsbæjar við Elliðavatn verður úthlutað í sumar. Í Kópavogi er hvorki lóðaútboð né lotterí, heldur úthlutar bæjarráð lóðunum. Formaður skipulagsnefndar segir þetta fyrirkomulag ekki þurfa að bjóða upp á spillingu - flestir sem vilji byggja í Kópavogi fái á endanum lóð.

Leita starfsfólks erlendis

Starfsmannavelta í umönnun fatlaðra er slík að framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi hefur íhugað að reyna að auglýsa erlendis eftir fólki til starfa, setja það beint á íslenskunámskeið og vonast til þess að það ílengist í starfi.

Deiliskipulag kynnt

Deiliskipulag og framkvæmdir í nágrenni Hlemms verður kynnt í dag í strætóskýlinu á Hlemmi klukkan 17.30.

Skortur á ánamöðkum vegna veðurblí

Skortur á ánamöðkum vegna veðurblíðu hefur plagað veiðimenn að undanförnu. Ólafur Vigfússon hjá Veiðihorninu segir veiðiveðrið hafa þó skánað mikið í dag og eflaust verði auðveldara að fá maðka fljótlega.

Kynning á framkvæmdum við Hlemm

Kynning á nýju deiliskipulagi og byrjuðum og fyrirhuguðum framkvæmdum í næsta nágrenni Hlemms fer fram í strætóskýlinu á Hlemmi á morgun. Einnig verður flutt sögulegt ágrip svæðisins og nýtt leiðakerfi Strætó bs. kynnt.

Alvarlega slasaður eftir bílveltu

Bíll valt við bæinn Varmalæk í Borgarfirði um miðnætti í gærkvöld. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, kastaðist út. Talið er að bíllinn hafi farið að minnsta kosti eina veltu og að ökumaðurinn hafi ekki verið í belti. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Maðurinn er sagður alvarlega slasaður en ekki í lífshættu.

Róleg nótt í borginni

Rólegt var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt og segjast menn þar á bæ vera stoltir af því að aðeins 92 bókanir hafi verið gerðar. Nóttin gekk þó ekki alveg stórslysalaust fyrir sig en fjórar minniháttar líkamsárásir voru gerðar í miðbænum og voru fjórir stöðvaðir fyrir ölvunarakstur. Öllu meira var að gera hjá lögreglunni á Akureyri.

Sjá næstu 50 fréttir