Fleiri fréttir

Taka gagnrýninni ekki illa

Það sem fyrirtæki leggja til samfélagsins, fyrir utan skatta og skyldur og að fara eftir lögum og reglum, verður að vera á sjálfviljugum grundvelli, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann segir forsætisráðherra hafa orðað hlutina á sinn hátt í hátíðarræðu sinni í gær og að samtökin hafi ekkert við það að athuga.

Hundar bannaðir í miðbænum?

Útlit er fyrir að innan tíðar verði óheimilt með öllu að fara með hunda um miðbæ Ísafjarðar. Undanþegnir verða hundar sem notaðir eru við löggæslu- og björgunarstörf og aðstoðarhundar sjúkra og blindra einstaklinga.

Sammála en greinir á um aðferðir

Stjórnarandstaðan er sammála forsætisráðherra um að tímabært sé að stokka upp í stjórnsýslunni. Samfylkingin leggur til fækkun úr þrettán ráðuneytum í níu en Vinstri-grænir telja réttast að hver ríkisstjórn ráði því hvernig starfsfólki og ráðuneytum sé raðað niður hverju sinni.

Sammála um ábyrgð stórfyrirtækja

Í þjóðhátíðarræðu sinni í gær lét Halldór Ásgrímsson í ljós þá skoðun að stórfyrirtæki með góða afkomu ættu að bera samfélagslega ábyrgð og taldi eðlilegt að þau tækju þátt í mikilvægum málum á sviði nýsköpunar, menningar og velferðar. "Þeim ber að nýta hagnað til að byggja upp," sagði Halldór.

Enn í gjörgæslu

Einn unglingspiltanna úr slysinu sem varð í Öxnadal á þjóðhátíðardaginn liggur enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landsspítala-Háskólasjúkrahúss. Honum er haldið sofandi í öndunarvél.

Flaggað í ljósastaur við Kárahnúka

Íslenski fáninn var dreginn upp á ljósastaur utan við skála á Kárahnúkum í tilefni þjóðhátíðar í fyrradag. "Þeir hafa greinilega ekki haft fánastöng á Kárahnúkum," segir Margrét Tómasdóttir skátahöfðingi um þessa óhefðbundnu flöggun. "Það er ætlast til þess að fáninn sé dreginn upp að húni."

Útiloka ekki frekari framúrkeyrslu

Landbúnaðar- og heilbrigðisráðuneytin gætu aftur farið fram úr fjárlögum á þessu ári. Landbúnaðarráðuneytið fór hlutfallslega mest fram úr en heilbrigðsmálaráðuneytið mest í krónum talið.

Skýrði ekki frá öllum hlutnum

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi síðastliðinn mánudag að hann og fjölskylda hans ættu 25 prósenta hlut í Skinney-Þinganesi. Á fundi fjárlaganefndar þremur dögum síðar kom fram að hlutur fjölskyldunnar í fyrirtækinu er níu prósentustigum hærri, eða 34 prósent.

Stelast í gegnum göngin

Verktakinn hefði getað skilað Fáskrúðsfjarðargöngum tilbúnum í síðasta mánuði, ef Vegagerðin hefði greitt flýtifé. Göngin verða því ekki opnuð fyrr en í október. Austfirðingar hafa litla biðlund og stelast í gegn, starfsmönnum til mikillar armæðu.

Barátta þvert á flokka

„Þetta er barátta sem gengur þvert á flokka og sem allar konur geta sameinast um,“ sagði Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri við upphaf hátíðahalda í tilefni af því að á morgun eru níutíu ár liðin frá því að konur fengu kosningarétt.

Lyfjum stolið í Austurveri

Vopnað rán var framið í Lyfjum og heilsu í Austurveri í fyrrakvöld. Tveir menn gengu inn í apótekið og otuðu sprautunálum að starfsfólki.

Ólæti á Akureyri

Fangageymslur voru fullar á Akureyri aðfaranótt laugardags. Mikill hasar var í bænum, töluvert um hópamyndanir og slagsmál. Nóttin var viðburðarík hjá lögreglunni, ölvun var veruleg en þó voru engin stórmál á ferð.

Þjóðhátíð í skugga umferðarslysa

Umferðin tók sinn toll þessa þjóðhátíðarhelgi. Tveir ungir menn eru látnir og tveir aðrir liggja þungt haldnir á sjúkrahúsi. Lögreglan segir marga bílstjóra hafa sýnt stórkostlegt gáleysi á vegunum enda voru margir stöðvaðir fyrir umferðarlagabrot.

Róleg þjóðhátíð

17. júní var tiltölulega rólegur fyrir lögregluna í Reykjavík. Óvenjulítið var um skemmtanahald og þurfti lögreglan ekki að hafa nein afskipti af ölvun unglinga.

Framlög val fyrirtækja og banka

Það sem fyrirtæki leggja í samfélagsleg verkefni umfram skýrar kröfur og skyldur verður að vera á frjálsum grundvelli og ráðast af vilja einstakra fyrirtækja, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Stjórnarformaður KB banka, segir bankana hafa tekið öflugan þátt í vexti og viðgangi þeirra fyrirtækja sem hvað mest hafa vaxið undanfarið í íslensku atvinnulífi.

Vel gengið um tjaldstæðin

Engin teljandi vandamál komu upp á tjaldsvæði Akureyringa á Hömrum aðfaranótt 17. júní. Ölvun var í lágmarki og umgengni góð en á milli þrjú og fjögur hundruð gestir voru á tjaldsvæðinu.

Hrossakastínu sem liggur á

Fimmtán ára hrossakastanía blómstraði úti í garði í Hveragerði á dögunum. En hvað er svona merkilegt við það?

Tveir létust í banaslysi í Öxnadal

Tveir drengir létu lífið í umferðarslysi við Jónasarlund í Öxnadal í nótt. Vegfarandi tilkynnti lögreglu laust fyrir klukkan hálfþrjú að fólksbíll á norðurleið hefði farið út af veginum. Í bílnum voru fjórir piltar á aldrinum 15 til 18 ára.

Reksturinn verði aðskilinn

Skilja verður fullkomlega að rekstur og stjórn Flugleiða-Fraktar annars vegar og Bláfugls og Flugflutninga hins vegar samkvæmt ákvörðun Samkeppnisráðs í gær. Samkeppnisyfirvöld töldu ástæðu til íhlutunar vegna samruna FL Group, Bláfugls og Flugflutninga til að tryggja virka samkeppni í flugfrakt milli Íslands og annarra landa.

Nýr kjarasamningur samþykktur

Starfsmannafélag Hafnarfjarðar og launanefnd sveitarfélaga náðu samkomulagi um nýjan kjarasamning í dag. Samningurinn og bókanir eru á sömu nótum og samningur sem gerður var við Samflot bæjarstarfsmanna í lok maí.

Tuttugu teknir fyrir hraðakstur

Tuttugu voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í Öxnadal milli klukkan sjö í gærkvöld og tvö í nótt. Sá sem hraðast ók mældist á 164 kílómetra hraða.

Breyting á skipan ráðuneyta

Það er tímabært að breyta skipan ráðuneyta og sú endurskoðun mun hefjast í haust. Þetta sagði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra í þjóðhátíðarávarpi sínu í morgun.

Hraðakstur vandamál

Áberandi mikið var um hraðakstur á þjóðvegum landsins í gær og fyrradag og höfðu flest lögregluembætti við þjóðveginn nóg að gera við eftirlit.

Endaði sár á spítala

Eftirför lögreglunnar á Selfossi vegna ökumanns sem sinnti í engu stöðvunarmerkjum endaði með því að viðkomandi ók bíl sínum útaf og þurfti að flytja hann á slysadeild.

Tólf Íslendingar sæmdir fálkaorðu

Tólf Íslendingar voru sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Á meðal þeirra voru Eiður Smári Guðjohnsen knattspyrnumaður, Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Aflýst vegna banaslyssins

Hátíðarhöldum í tilefni þjóðarhátíðardagsins var aflýst í Garðinum í dag vegna banaslyssins í Öxnadal í nótt. Annar piltanna sem lést var búsettur í bænum og hinn, sem búsettur var í Keflavík, átti ættir að rekja þangað.

Nöfn piltanna sem létust

Piltarnir sem létust í umferðarslysi í Öxnadal í nótt hétu Sigurður Ragnar Arnbjörnsson, 18 ára, til heimilis að Kirkjuvegi 18, Reykjanesbæ, og Þórarinn Samúel Guðmundsson, 15 ára, til heimilis að Silfurtúni 18c í Garði. Þjóðhátíðahöld í Garðinum voru látin niður falla vegna slyssins í dag, enda eiga báðir ættir að rekja þangað.

Lögfræðiálit á hæfi Halldórs

Stjórnarandstaðan ætlar að kalla eftir áliti lögfræðinga á hæfi forsætisráðherra til að fjalla um sölu Búnaðarbankans. Formaður Samfylkingarinnar segir nauðsynlegt að skoða öll tengsl sem hafi getað valdið vanhæfi, meðal annars vinatengsl forsætisráðherra og Finns Ingólfssonar, forstjóra VÍS.

Endurskipulagning hefst í haust

Það er tímabært að breyta skipan ráðuneyta. Endurskipulagning hefst í haust og á að ljúka á sem skemmstum tíma. Þetta var meðal þess sem Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði í morgun í sínu fyrsta þjóðhátíðarávarpi.

Fimm féllu í ómegin við Austurvöll

Hátíðarhöld fóru vel fram í Reykjavík í dag og lögðu tugir þúsunda leið sína í miðborgina. Veðurblíðan var með eindæmum og hitinn var reyndar svo mikill - og kannski hátíðleiki stundarinnar - að ekki færri en fimm féllu í ómegin undir hátíðardagskránni á Austurvelli í morgun.

Ráðuneytum fækkað í sex?

Árni Magnússon félagsmálaráðherra telur að fækka megi ráðuneytunum í allt að sex og sameina ríkisstofnanir um leið. Hann segir stjórnarflokkana sammála um þörfina á breytingum.

Parið úrskurðað í gæsluvarðhald

Erlent par, sem er talið hafa flutt tvo bílaleigubíla úr landi með Norrænu og er auk þess grunað um fjárdrátt og skjalafals, var seint í gærkvöldi úrskurðað í gæsluvarðhald fram á fimmtudag. Nauðsynlegt þótti að tryggja að fólkið færi ekki úr landi og var parið því úrskurðað í gæsluvarðhald á forsendum rannsóknarhagsmuna.

Rjómablíða í Reykjavík

Það var sannkölluð 17. júní stemning í miðbæ Reykjavíkur enda léku veðurguðirnir við hvern sinn fingur. Borgarbúar spókuðu sig léttklæddir um borgina, sem skartaði sínu fegursta. Á Arnarhóli var skipulögð dagskrá langt fram á nótt.

Eiður Smári fékk riddarakross

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, veitti í gær tólf einstaklingum heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn að Bessastöðum.

Fólk féll í öngvit

Fimm áhorfendur fengu aðsvif á hátíðarsamkomunni á Austurvelli í gærmorgun.

Tveir dóu í umferðarslysi

Tveir unglingspiltar létu lífið þegar bifreið sem þeir voru í lenti utan vegar í mynni Öxnadals aðfaranótt föstudags.

Búnir að semja

Starfsmannafélag Hafnarfjarðar og launanefnd sveitarfélaga náðu samkomulagi um nýjan kjarasamning á fundi sem haldinn var í gær, 17. júní.

Stoltur af íslensku þjóðinni

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra boðaði breytingar á stjórnsýslu landsins í sinni fyrstu þjóðhátíðarræðu í blíðskaparveðri á Austurvelli í gær. Hann kallaði jafnframt eftir auknu samstarfi ríkis og atvinnulífs á sviði nýsköpunar.

Milljarða fram úr áætlunum

Skólar og heilbrigðisstofnanir fóru mest umfram heimildir árið 2004. Átta ráðuneyti héldu sig innan marka en þrátt fyrir það fór rekstur stofnana 1,7 milljarða fram úr fjárlögum.

Ökklabrotnaði í Rauðuskörðum

Björgunarsveitir frá Ólafsvík og Dalvík voru kallaðar út í dag til aðstoðar vegna göngufólks sem hafði lent í vandræðum í Rauðuskörðum Ytri Árdal. Kona í hópnum datt og öklabrotnað. Tólf björgunarsveitarmenn héldu fótgangandi á staðinn á sjötta tímanum í kvöld og var reiknað með að þeir kæmu á tíunda tímanum í kvöld með konuna í sjúkrakörfu, niður að sjúkrabíl sem flytur hana til Akureyrar.

Þrjátíu handteknir

Höfð voru afskipti af 30 manns á aðfararnótt laugardags í aðgerðum lögreglu gegn handrukkurum. Enginn þeirra er enn í haldi lögreglu.

Tekinn með fíkniefni í bíl

Lögreglan í Kópavogi tók mann með fíkniefni nú undir morgun. Fíkniefnin fundust við reglubundið umferðareftirlit en maðurinn var farþegi í bíl sem lögreglan stöðvaði. Skýrsla var tekin af manninum og telst málið upplýst. Í ljós kom við þetta tækifæri að ökumaður bifreiðarinnar var með útrunnin ökuréttindi.

Fengu hákarl á línuveiðum

Áhöfnin á Bensa Egils frá Hólmavík fékk óvæntan afla fyrr í vikunni þegar hún var að línuveiðum í Húnaflóa. Þetta kemur fram í <em>Bæjarins besta</em>. Þegar línan var dregin fannst áhöfninni eins og síðasti fiskurinn væri óvenju stór og þungur enda reyndist þar vera á ferðinni hákarl sem var 4,3 metrar á lengd.

Ók inn í malarhrúgu

Malarhrúga varð á vegi ökumanns í Njarðvík í gærkvöldi. Hrúgan stóð við vegarbrúnina og ók maðurinn inn í hana. Hann gaf þá skýringu að hann hefði ekki séð hrúguna en hún hafði ekki dulist fjölda ökumanna enda hafði hún staðið þarna allan daginn án þess að ekið væri á hana. Einhverjar skemmdir urðu á bíl mannsins en hann var þó ökufær á eftir.

Áttum öll jafnan þátt

Áttum öll jafnan þátt í mótmælunum - Yfirlýsing frá mótmælendunum tveimur sem ekki sitja í gæsluvarðhaldi. Arna Ösp Magnúsardóttir og Ólafur Páll Sigurðsson, tvö þeirra sem stóðum að mótmælum á alþjóðlegri álráðstefnu á hótel Nordica í fyrradag, segjast í yfirlýsingu sem barst Talstöðinni í gærkvöld að þau vilji vekja athygli á að gríðarlegt misræmi og ójafnrétti sem þau segja að hafi átt sér stað við málsmeðferð Bretans Paul Gill sem handtekinn var fyrir sama verknað og þau. Paul situr nú í gæsluvarðhaldi sem kunnugt er en Örnu og Ólafi Páli var sleppt úr haldi.

Sjá næstu 50 fréttir