Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Launamunur aldrei meiri Launamunur hefur aukist mikið hér á landi miðað við alþjóðlega Gini-stuðulinn sem mælir tekjudreifingu. Kvarðinn tekur gildi frá núll og upp í einn, en því hærri sem hann er, því ójafnari er dreifing tekna. Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðherra hefur mismunur ráðstöfunartekna hjóna og sambúðarfólks aukist úr 0,206 árið 1995 í 0,3 árið 2003. 28.1.2005 00:01
Stormasamt á landinu Mjög hvasst var sums staðar á Vestfjörðum í gær. Lögreglan bað fólk um að vera ekki á ferli að nauðsynjalausu en vindhviður mældust yfir fjörutíu metrar á sekúndu á Þverfjalli. Áð sögn lögreglu á Ísafirði í gærkvöld hafði kvöldið reynst slysalaust, en lausir munir fuku á bíl á Þingeyri. 28.1.2005 00:01
Skeytti ekki um líf ungrar stúlku Maður hefur verið dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa ekki komið ungri stúlku í bráðri lífshættu til hjálpar. Alvarlegt brot sem ber vott um skeytingarleysi gagnvart lífi stúlkunnar, segir í dómnum. 28.1.2005 00:01
Lekinn fordæmdur Utanríkismálanefnd fordæmir harðlega að trúnaðarupplýsingar frá fundum nefndarinnar um Íraksmálið hafi komist í hendur Fréttablaðsins. Hætt verður að dreifa fundargerðum. Stjórnarandstaðan fer fram á að trúnaði verði aflétt af ummælum Halldórs Ásgrímssonar tengdum Írak. 28.1.2005 00:01
Rangt hjá Siv Fulltrúar meirihluta í stjórn Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, segja rangt sem Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir á heimasíðu sinni að fundarkonur á fundi félagsins í gær hafi sjálfar tekið þátt í að kjósa sig inn í félagið. 28.1.2005 00:01
Hættir dreifingu fundargerða Utanríkismálanefnd hefur ákveðið að hætta dreifingu fundargerða til þess hóps sem þær hefur fengið og verða þær framvegis eingöngu aðgengilegar til aflestrar á fundum nefndarinnar og hjá ritara hennar milli funda. 28.1.2005 00:01
Fjölmenni á borgarafundi í Eyjum Hátt í fimm hundruð manns mættu á borgarafund í Vestmannaeyjum í gærkvöldi þar sem Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður, lagði fram skýrslu um hugsanlega gangagerð milli Eyja og lands. Hann sagði að yfirmenn sænska verktakafyrirtækisins NCC hefðu farið yfir skýrsluna og vitað að hann ætlaði að kynna hana opinberlega. Þeir hafi ekki gert athugasemdir við það. 27.1.2005 00:01
Hefur ekki skilað lægra vöruverði Sterk staða krónunnar hefur í mörgum tilvikum ekki skilað sér í lægra verði á innfluttum vörum, samkvæmt athugun sem Alþýðusamband Íslands hefur gert nokkur ár aftur í tímann. Þegar dollarinn var sem sterkastur fyrir nokkrum misserum og var kominn upp í 110 krónur hækkuðu nær allar vörur til samræmis við það. 27.1.2005 00:01
Þungatakmarkanir á sumum vegum Aurbleytu er sums staðar farið að gæta á malarvegum vegna hlákunnar að undanförnu, en athygli vekur að Vegagerðin hefur víða sett þungatakmarkanir á vegi með bundnu slitlagi. Að sögn Vegagerðarinnar er það vegna þess að klaki, sem enn er í jörðu undir vegunum, hindrar að vatn renni undan slitlaginu. 27.1.2005 00:01
Ákvörðun um Fischer frestað Allsherjarnefnd Alþingis frestaði í morgun að taka afstöðu til bréfs Bobbys Fischers, fyrrverandi heimsmeistara í skák, þar sem hann fer fram á að honum verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur. Bréf Fischers var lagt fram en efni þess vísað til næsta fundar eftir viku. 27.1.2005 00:01
Landsbankinn og SÁÁ semja Landsbanki Íslands og SÁÁ hafa gert samkomulag um að bankinn fjármagni húsnæði félagssamtakanna. Er annars vegar um að ræða endurfjármögnun á langtímalánum SÁÁ að fjárhæð 300 milljónir króna og hins vegar 200 milljóna króna lán vegna nýbyggingar á lóð samtakanna við Efstaleiti í Reykjavík. 27.1.2005 00:01
Fóstureyðingum hefur fækkað Fóstureyðingum ungra stúlkna hefur farið fækkandi á síðustu árum samkvæmt nýrri skýrslu Landlæknis. Þá verða færri konur undir tvítugu mæður en áður. 27.1.2005 00:01
Fagnar endurskoðun laga Miðstjórn Alþýðusambands Íslands fagnar því að ráðamenn vilji endurskoða lög um eftirlaun alþingismanna og æðstu embættismanna ríkisins. Jafnframt krefst miðstjórnin þess að þetta tækifæri verði notað til að stíga raunveruleg skref í þá átt að samræma lífeyrisrétt allra landsmanna. 27.1.2005 00:01
Frétt dregin til baka Í frétt Stöðvar tvö í gærkvöldi um að Ísland hefði verið komið á lista hinna viljugu þjóða fyrir ríkisstjórnarfund þann 18. mars 2003 voru gerð þau mistök að tímasetning fréttar CNN um atburðinn var mislesin. Sú ályktun sem dregin var af tímasetningunni er því röng. Fréttastofan dregur því frétt sína til baka og biðst velvirðingar á þessum mistökum. 27.1.2005 00:01
Til skammar fyrir landið Það er til skammar fyrir landið hve lítið íslenskir læknar gera af því að tilkynna um aukaverkanir lyfja, segir Sif Ormarsdóttir læknir í sérfræðinefnd Evrópsku lyfjastofnunarinnar. Forstjóri Lyfjastofnunar segir slíkar tilkynningar fara í gagnabanka í Evrópusambandinu. </font /></b /> 27.1.2005 00:01
Vindmyllan verður eitthvað áfram Enn er ekki komið á hreint hver á og ber ábyrgð á vindmyllunni í Grímsey, að sögn Óttars Jóhannssonar oddvita í sveitarfélaginu. Málið hefði verið til umræðu í sveitarstjórn en ekkert meira. 27.1.2005 00:01
Fagnaðarfundir í varðskipi Fagnaðarfundir urðu um borð í danska varðskipinu Triton í gær, þegar íslensku kajakmennirnir, sem réru meðfram Grænlandsströnd í sumar og haust, heimsóttu skipverja til að þakka þeim fyrir björgunina í september. Skipið liggur nú í Reykjavíkurhöfn 27.1.2005 00:01
Fimm tóku Vioxx, fengu hjartaáfall Tilkynnt hefur verið til Landlæknisembættisins á síðustu dögum um fimm einstaklinga sem tóku gigtarlyfið Vioxx og fengu hjartaáfall. Embættið hyggst gera rannsókn á hugsanlegum afleiðingum notkunar lyfsins hér á land </font /></b /> 27.1.2005 00:01
Brugðist við atviki á Hrafnistu Sveinn Skúlason, forstjóri Hrafnistu, segir að þegar hafi verið brugðist við með úrbótum eftir að maður á níræðisaldri lést á vistheimilinu eftir höfuðhögg á síðasta ári. Landlæknisembættið telur í bráðabirgðaúrskurði að maðurinn hafi ekki fengið þá meðferð og umönnun sem ætlast er til af heilbrigðisstarfsfólki. 27.1.2005 00:01
Gerðu athugasemdir við vinnubrögð Þingmenn Samfylkingarinnar gerðu alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð ráðherra ríkisstjórnarinnar á Alþingi í gær og gagnrýndu þá fyrir að svara fyrirspurnum seint, illa eða alls ekki. 27.1.2005 00:01
Góð kosningaþátttaka Um þrjátíu Danir sem staddir eru hér á landi hafa kosið til danska þingsins í danska sendiráðinu, að sögn Ernst Hemmingsen, ræðismanns Dana hér á landi. Þá kusu rúmlega fimmtíu manns, nú um helgina, sem eru á danska varðskipinu sem liggur við Reykjavíkurhöfn. 27.1.2005 00:01
Átak í uppeldismálum Forsætisráðuneytið, Þjóðkirkjan og Velferðarsjóður barna undirrituðu í gær samstarfsyfirlýsingu um átaksverkefni í uppeldismálum undir heitinu Verndum bernskuna. Þetta er sagt vera liður í því að bæta stöðu barna í samfélaginu og styrkja foreldra í uppeldishlutverkinu. 27.1.2005 00:01
Vilja sannreyna skýrslu um göng Að minnsta kosti tveir bæjarfulltrúar í Vestmannaeyjum vilja fá úr því skorið á bæjarstjórnarfundi í kvöld hvort skýrsla sem Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður, kynnti á borgarafundi í Vestmannaeyjum í gærkvöldi eigi við einhver rök að styðjast. 27.1.2005 00:01
Sýknaðir af árás Tveir menn voru dæmdir í 45 og 30 daga fangelsi fyrir húsbrot á heimili Steingríms Njálssonar í maí árið 2003. Mennirnir voru sýknaðir af líkamsárás gegn Steingrími sem þeir voru einnig ákærðir fyrir. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag. 27.1.2005 00:01
Fékk skilorð með skilyrðum Nítján ára piltur var, í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir vopnað rán í Hringbrautarapóteki með gasskammbyssu. Þá var hann sakfelldur fyrir að leggja haglabyssu að andliti manns í heimahúsi. Tólf mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir í þrjú ár með þeim skilyrðum að pilturinn sæti umsjón á skilorðstímanum. 27.1.2005 00:01
Tölurnar komu frá NCC Byggingarverkfræðingur hjá norska verktakafyrirtækinu NCC staðfestir að hann hafi fyrir hönd fyrirtækisins unnið skýrslu fyrir Árna Johnsen um kostnað vegna jarðganga til Vestmannaeyja. 27.1.2005 00:01
Mikið rætt en lítið gert Allar líkur eru á því að frumvarp Kolbrúnar Halldórsdóttur, þingmanns Vinstri grænna, um að auka valdheimildir lögreglu til að fjarlæga ofbeldismenn af heimilum sínum dagi upp í allsherjarnefnd í annað sinn, þrátt fyrir að um þennan málaflokk virðist ríkja þverpólitísk sátt. 27.1.2005 00:01
Truflanir á ATM-kerfi Og Vodafone Truflanir hvoru á ATM-kerfi Og Vodafone í dag og hafa tæknimenn fyrirtækisins ásamt tæknimönnum Ericsson í Danmörku og Svíþjóð unnið að viðgerð sem lauk nú rétt fyrir klukkan fimm. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Og Vodafone olli bilunin víðtækum áhrifum á netþjónustu viðskiptavina, þ.m.t. ADSL-tengingar. 27.1.2005 00:01
Sofið á verðinum? Félagsmálaráðherra vill reyna til þrautar að leysa deiluna við Impregilo og segir að starfshópur eigi að fjalla um stöðu erlendra starfsmannaleiga. Formaður Samfylkingarinnar telur að stjórnvöld hafi sofið á verðinum. </font /></b /> 27.1.2005 00:01
Útgerðin að hefjast Útgerð verksmiðjuskipanna nýju hjá Sjólaskipum eru að hefjast. Fyrsta skipið leysir landfestar frá Kanaríeyjum á næstu vikum. 27.1.2005 00:01
Styrking krónunnar ekki skilað sér Margt bendir til þess að styrking krónunnar að undanförnu hafi ekki skilað sér að fullu í vasa neytenda. Lyf, heimilisbúnaður og bílar hafa hækkað í verði. Verð á fatnaði hefur haldist nokku stöðugt og matarverð hefur farið lækkandi. </font /></b /> 27.1.2005 00:01
Bíða á hóteli eftir íbúðinni sinni Um 15 einstaklingar bíða á hóteli eða í leiguíbúðum úti í bæ eftir að fá afhenta íbúð í 101 Skuggahverfi. "Þetta er mjög bagalegt og hefur komið illa við marga," segir Einar Halldórsson, framkvæmdastjóri Stoða. </font /></b /> 27.1.2005 00:01
Norskar vinnubúðir á Kárahnjúkum Verið er að reisa fimm nýjar einingar af norsku vinnubúðunum Moelven á Kárahnjúkum. Þær rúma hátt í 140 manns. 27.1.2005 00:01
Auður og Halldór verðlaunahafar Auður Jónsdóttir og Halldór Guðmundsdóttir hlutu í dag Íslensku bókmenntaverðlaunin, en þau voru afhent við hátíðlega athöfn að Bessatöðum. Auður fékk verðlaun í flokki fagurbókmennta fyrir bókina <em>Fólkið í kjallaranum</em> og Halldór í flokki fræðirita og bóka almenns efnis fyrir verkið <em>Halldór Laxness – ævisaga</em>. 27.1.2005 00:01
Lýst eftir 14 ára stúlku Lýst er eftir fjórtán ára stúlku, Ragnheiði Clausen, sem fór af heimili sínu síðastliðinn föstudag. Síðast er vitað um ferðir hennar á sunnudag en hún var klædd í svarta úlpu og gallabuxur. Þeir sem geta gefið einhverjar upplýsingar um ferðir hennar eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregluna í Hafnarfirði. 27.1.2005 00:01
Rjúpnaveiði hefst að nýju Rjúpnaveiði hefst að nýju næsta haust ef frumvarp Sigríðar Önnu Þórðardóttur umhverfisráðherra verður að lögum. Frumvarpið hefur verið kynnt í ríkisstjórn og er nú til umfjöllunar í þingflokkum stjórnarflokkanna. 27.1.2005 00:01
Ríkissjóður fær milljarða Tekjur ríkissjóðs af stimpilgjöldum síðastliðin tvö ár námu um tíu milljörðum króna. Þetta kom fram í svari Geirs H. Haarde fjármálaráðherra við fyrirspurn Margrétar Frímannsdóttur, þingmanns Samfylkingar. 27.1.2005 00:01
Efling vegagerðar með veggjöldum Gerð verður úttekt á kostum til að auka fjárfestingar í vegagerð með veggjöldum ef þingsályktunartillaga Einars K. Guðfinnssonar og Halldórs Blöndal, þingmanna Sjálfstæðisflokksins, verður samþykkt. 27.1.2005 00:01
Skaðabætur vegna slyss Reykjavíkurborg verið gert að greiða konu 2,5 milljónir króna með vöxtum vegna tjóns sem hún varð fyrir árið 2002 þegar skyggni við Ingólfstorg féll niður og á konuna þar sem hún var viðstödd Gay Pride hátíðahöldin. 27.1.2005 00:01
Auður og Halldór verðlaunuð Auður Jónsdóttir og Halldór Guðmundsson hljóta Íslensku bókmenntaverðlaunin 2004. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti þeim verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. 27.1.2005 00:01
Fékk bætur fyrir líkamstjón Hæstiréttur dæmdi Reykjavíkurborg í dag til að greiða ungri konu tvær og hálfa milljón króna í skaðabætur vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir á Hinsegin dögum árið 2002. Konan varð undir skyggni sem féll á hóp hátíðargesta á Ingólfstorgi. Tugir manna urðu undir skyggninu, þar á meðal konan sem fékk höfuðhögg og skurð á höfuðið, auk þess að togna í hálsi og baki. 27.1.2005 00:01
Dæmdur fyrir nokkur ofbeldisbrot Tæplega tvítugur maður var dæmdur til 15 mánaða fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir nokkur ofbeldisbrot. Maðurinn var dæmdur fyrir vopnað rán í Hringbrautarapóteki í september í fyrra, fyrir að hafa hótað öðrum manni með haglabyssu og fyrir að hafa ógnað afgreiðslumanni bensínstöðvar með hnífi. 27.1.2005 00:01
Búið að lagfæra girðingu Búið er lagfæra girðingu á lóð fyrirtækisins Ásgeirs Sigurðssonar við Síðumúla 35 að kröfu Umhverfis- og heilbrigðisstofu. Fyrirtækið fullyrðir að umbúðir hættulegra efna sem voru á lóð fyrirtækisins í gær hafi verið tómar og á leið til áfyllingar hjá birgjum þann sama dag. 27.1.2005 00:01
Átak í uppeldismálum <em>Verndum bernskuna</em> er yfirskrift átaks í uppeldismálum sem efnt verður til næsta haust. Það er liður í að bæta stöðu barna í samfélaginu og styrkja foreldra í uppeldishlutverkinu. Þetta er samstarfsverkefni forsætisráðuneytisins, þjóðkirkjunnar og Velferðarsjóðs barna. 27.1.2005 00:01
Segir NCC ekki hafa gert áætlun Árni Johnsen er með þriggja síðna kostnaðarmat á gerð jarðganga til Vestmannaeyja frá starfsmanni verktakafyrirtækisins NCC. Yfirmaður NCC í Noregi ítrekar aftur á móti yfirlýsingar sínar sem komu fram í fréttum Stöðvar 2 í gær um að NCC hafi enga kostnaðaráætlun gert. 27.1.2005 00:01