Brugðist við atviki á Hrafnistu 27. janúar 2005 00:01 MYND/Róbert
Sveinn Skúlason, forstjóri Hrafnistu, segir að þegar hafi verið brugðist við með úrbótum eftir að maður á níræðisaldri lést á vistheimilinu eftir höfuðhögg á síðasta ári. Landlæknisembættið telur í bráðabirgðaúrskurði að maðurinn hafi ekki fengið þá meðferð og umönnun sem ætlast er til af heilbrigðisstarfsfólki. Níu klukkutímar liðu frá því að maðurinn féll í gólfið í borðsal vistheimilisins þar til hann var fluttur á sjúkrahús. Sex dögum síðar lést hann án þess að hafa komið til meðvitundar. Lækninga- og hjúkrunarforstjórar Hrafnistu hafa sagt að mistök hafi átt sér stað, bæði við ákvarðanatöku og í vinnulagi starfsfólks og því er landlæknir sammála. Ekki var farið að reglum, eftirlit með manninum og skrásetning var ófullnægjandi og gerðar eru athugasemdir við að aðstandendur mannsins hefðu ekki verið látnir vita af aðstæðum hans. Sveinn Skúlason, forstjóri Hrafnistu, segir að þegar hafi verið gripið til ráðstafana til að þetta endurtaki sig ekki. Hann segir að farið hafi verið yfir málið með starfsfólki, ferlar og gæðahandbók væru fyrir hendi og í tilfellum sem þessum væri ekkert annað að gera en að þjálfa starfsfólk og minna það á hvað því beri að gera þegar atvik sem þessi henda. Aðspurður hvort hann eigi von á frekari eftirmálum af þessu máli segir Sveinn að Hrafnista muni ekki gera neinar athugasemdir því að það sem fram komi bráðbirgðaúrskurði Landlæknisembættisins sé satt og rétt. Það sé hins vegar annarra að ákveða um framhaldið en ljóst sé að landlæknir muni ekki aðhafast frekar í málinu. Sveinn segir nauðsynlegt að árétta það í hinni opinberu umræðu að maðurinn hafi verið búsettur á vistheimili en ekki legið á hjúkrunardeild þar sem umönnun sé með öðrum hætti. Málinu er ekki lokið þar sem ættingjar fóru fram á að lögregla rannsakaði málið. Sveinn segir að málið sé úr höndum stjórnenda Hrafnistu en það sé lögreglu að meta hvort öll atvik málsins komi fram í skýrslu Hrafnistu og úrskurði landslæknis eða hvort skoða þurfi málið enn frekar. Hann telji að öll atriði málsins séu komin fram.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Sjá meira