Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Davíð kannast ekki við skilyrði Þingmenn Framsóknarflokks eru óánægðir með hægagang í uppbyggingu dreifikerfis Símans. Þingflokkurinn gerði uppbyggingu dreifikerfisins að skilyrði fyrir einkavæðingu. Davíð Oddsson forsætisráðherra kannast ekki við slík skilyrði. 11.9.2004 00:01
Betur fór en á horfðist Tveir slösuðust lítillega þegar strætisvagn og tveir fólksbílar lentu í árekstri á mótum Smáragötu og Hringbrautar á tíunda tímanum í gærkvöldi. Loka varð kafla Hringbrautar vegna slyssins þar sem annar fólksbíllinn valt við áreksturinn og var óttast á tímabili að um alvarlegt slys væri að ræða. 11.9.2004 00:01
Gaseitrun ekki orsök sjúkdómsins Jakob Kristinsson, dósent í eiturefnafræði á Rannsóknastofu Háskólans í lyfja- og eiturefnafræði, segir alveg víst að riða sé smitsjúkdómur og orsakist ekki af gaseitrun vegna gerjunar í úrgangi dýra. Fram komu kenningar um slíkt í kjölfar riðu sem uppgötvaðist á bænum Árgerði í Skagafirði í sumar. 11.9.2004 00:01
Samningur tekur gildi í áföngum Meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar hefur átt í viðræðum við forystu Verkalýðsfélagsins Hlífar vegna samnings um ræstingar í stofnunum og skólum bæjarins. Mikil óánægja hefur verið meðal ræstingafólks sem starfar hjá bænum, rúmlega hundrað manns, með samning sem bæjarstjórnin ætlaði að gera við einkafyrirtæki sem bauð lægst í verkið. 11.9.2004 00:01
Aftur í hálfa gátt hjá Halldóri Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra útilokar ekki ESB-aðild í stefnumarkandi ræðu í Borgarnesi í dag þrátt fyrir orð hans í gær um "nýlendustefnu". </font /></b /> 10.9.2004 00:01
Túlka ummælin á ólíka vegu Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sakaði Halldór um að hafa skipt um skoðun í Fréttablaðinu í gær. Eiríkur Bergmann sem er varaþingmaður Samfylkingarinnar og óumdeilt helsti sérfræðingur flokksins í Evrópumálum telur formanninn taka rangan pól í hæðina. 10.9.2004 00:01
Páll Skúlason ekki í endurkjöri Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands, hyggst ekki gefa kost á sér að nýju er kjörtímabili hans lýkur næsta vor. Rektor er kjörinn til fimm ára í senn en næsta kjör rektors er hið fyrsta eftir að ný lög voru sett um hvernig það skuli fara fram. 10.9.2004 00:01
Gatnakerfi borgarinnar er sprungið Íbúar í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur sem sækja vinnu eða eiga önnur erindi í höfuðborgina á háannatíma eru tíu til fimmtán mínútum lengur á leiðinni nú en áður vegna aukinnar umferðar. </font /></b /> 10.9.2004 00:01
klukkustund að aka 15 kílómetra "Ég er nú ekki venjulega á ferð svona snemma dags en það tók mig heilar 50 mínútur að komast þessa fimmtán kílómetra," segir Sigurður B. Finnsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. 10.9.2004 00:01
Fleiri mislæg gatnamót "Það er ekki bara í Reykjavík sem framkvæmdir og umferðartafir geta farið í taugarnar á mér," segir Steinn Ármann Magnússon leikari, en hann er búsettur í Hafnarfirði og sækir oft vinnu í önnur bæjarfélög. Steinn segir undarlegt hversu víða sé verið að setja upp hringtorg þegar slíkar hugmyndir hafi verið settar á hilluna erlendis. 10.9.2004 00:01
Þung umferð alla daga "Það er alveg sama úr hvaða átt er komið í borgina, alls staðar er stórvandamál að komast leiðar sinnar á skikkanlegum tíma," segir Marteinn S. Björnsson, leigubílstjóri hjá Hreyfli. Marteinn ekur bíl sínum alla morgna og fullyrðir að aldrei fyrr hafi umferðin í bænum verið jafn mikil. 10.9.2004 00:01
Tíu dagar í kennaraverkfall Tíu dagar eru í boðað verkfall kennara náist ekki samningar við launanefnd sveitarfélaganna. Grunnskólakennarar fóru síðast í dagsverkfall 27. október 1997. Þremur árum áður stóðu þeir í sex vikna verkfalli ásamt framhaldskólakennurum. 10.9.2004 00:01
Ráðuneytið rökstyður ráðningu Félagsmálaráðherra sendi í gær Helgu Jónsdóttur, borgarritara, umbeðinn rökstuðning fyrir skipun Ragnhildar Arnljótsdóttur í embætti ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins. Helga var ekki búin að lesa rökstuðninginn þegar blaðið fór í prentun og vildi ekkert láta eftir sér hafa. 10.9.2004 00:01
Vantar vinnuafl í Fjarðabyggð Mikil eftirspurn er eftir vinnuafli í Fjarðabyggð um þessar mundir. Góð verkefnastaða er í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar og skuttogararnir Barði og Bjartur hafa fiskað vel undanfarið. Hefðbundin bolfiskvinnsla er stöðug og sem fyrr er hátt hlutfall í vinnslu á ferskum afurðum. 10.9.2004 00:01
Þriðjungur nyti ekki skattalækkana Meðalskattgreiðandi fær 27 þúsund krónur á ári í vasann ef tekjuskattur lækkar um eitt prósent um áramót. Um 35 prósent borga hins vegar ekki tekjuskatt og njóta því ekki lækkunarinnar. </font /></b /> 10.9.2004 00:01
Sáu til sólar á Akureyri "Mér fannst ekki annað en þau sýndu Akureyri og samfélaginu hér mikinn áhuga og voru ánægð með það sem þau sáu," segir Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri Akureyrar. Hann tók á móti Karli Gústaf Svíakonungi, Silvíu drottningu og Viktoríu krónprinsessu, er þau komu þangað í gærmorgun í blíðskaparveðri. 10.9.2004 00:01
Leita ráða við leirfoki úr lóninu Starfsmenn Landsvirkjunar og Landgræðslunnar leita nú allra leiða til að hefta leirfok úr lónsstæði virkjunarinnar á Kárahnjúkum. Leir safnast þar upp og hætta er á áfoki á gróið land, þegar snjó og ísa leysir. </font /></b /> 10.9.2004 00:01
Hægt að áfrýja missi ökuréttinda Þeir sem sviptir hafa verið ökuréttindum lengur en í þrjú ár geta sótt um endurveitingu réttindanna til lögreglustjóra í stað dómsmálaráðuneytis. 10.9.2004 00:01
Áyggjur af byggðinni Stjórnarfundur Öldunnar stéttarfélags lýsir áhyggjum yfir að ekki skuli unnið skipulegar og meira að atvinnu- og byggðaþróunarmálum á vestanverðu Norðurlandi en raun beri vitni. 10.9.2004 00:01
Klippurnar á lofti Hafi bíleigendur ekki greitt sín gjöld eða tryggingar það sem af er þessu ári eru líkindi til að lögregla eða tollayfirvöld hafi uppi á bílnum og klippi númerin af enda stendur sérstakt átak vegna þess yfir hjá löggæslumönnum þessa dagana. 10.9.2004 00:01
Varla verið þurr dagur í september Rok og rigning hefur sett svip á þessa fyrstu viku mánaðarins eftir óvenju hlýjan ágústmánuð þar sem gróður var víða við að skrælna vegna þurrka. Samkvæmt upplýsingum Veðurstofu Íslands hefur rignt alla daga þessa mánaðar í höfuðborginni nema einn og fram undan er meira af því sama um mestallt land. 10.9.2004 00:01
Maður lést í átökum við lögreglu Þrjátíu og þriggja ára gamall karlmaður lést í átökum við lögregluna í Keflavík síðdegis í gær að því er segir á vefsíðu embættisins. Klukkan rúmlega 17 var tilkynnt um mann sem var illa á sig kominn á gangi í Keflavík. Maðurinn virtist vera í annarlegu ástandi og var færður til lögreglustöðvar. 10.9.2004 00:01
Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tuttugu og fimm ára gömlum manni sem er grunaður um að hafa veitt öðrum manni alvarlegan áverka með öxi á veitingastað í Hafnarfirði í byrjun mánaðarins. 10.9.2004 00:01
Meðsekir en hvorugur sekur Rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík fékk heldur óvenjulegt mál til rannsóknar í gær þar sem enginn virðist sekur en allir meðsekir. Málið snýst um það að blaðamaður DV fékk lásasmið til að brjótast inn í mannlausa íbúð fyrir sig, án þess að hafa þurft að gefa lásasmiðnum viðeigandi upplýsingar um sig að sögn blaðamanns. 10.9.2004 00:01
Fleiri en nokkru sinni fyrr Mun fleiri útlendingar en nokkru sinni fyrr ætla að koma hingað á Iceland Airwaves tónlistarhátíðina en nokkru sinni fyrr, að sögn Icelandair sem skipuleggur hátíðina ásamt ýmsum samstarfsaðilum. Um það bil eitt þúsund útlendingar hafa þegar tryggt sér aðgang og forsala miða hefst hér á landi í dag. 10.9.2004 00:01
Þjófurinn enn í bílnum Brotist var inn í tvo bíla í austurborginni í nótt og útvarpstækjum og geislaspilurum stolið úr þeim. Í báðum tilvikum brutu þjófar rúður í bílstjórahurðinni til að komast inn. Í síðara tilvikinu var þjófurinn í bílnum þegar lögregla kom á vettvang en hins vegar voru hljómtækin horfin úr bílnum þannig að fleiri hafa verið í vitorði. 10.9.2004 00:01
Óvíst hver rannsakar málið Ríkissaksóknari ákveður innan stundar hvaða lögregluembætti verður falið að rannsaka tildrög þess að þrjátíu og þriggja ára karlmaður lést í Keflavík síðdegis í gær eftir snörp átök við lögreglumenn þar. 10.9.2004 00:01
Hausthátíð í Vesturbæ Um næstu helgi fer fram árleg hausthátíð í Vesturbænum. Hátíðin fer fram á KR svæðinu laugardaginn 11. september þar sem nýr gerfigrasvöllur Kr verður vígður. Sunnudaginn 12. september er dagskrá í Vesturbæjarlaug, Neskirkju og á svæði við skátaheimili Ægisbúa og íþróttahús Hagaskóla. 10.9.2004 00:01
Öryrkjum svarað 1. október Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra vill ekki upplýsa hvort staðið verði við samkomulag hans við öryrkja um hækkun örorkulífeyris á næstu mánuðum. Hann segir að það komi í ljós 1. október þegar fjárlög næsta árs verði kynnt. 10.9.2004 00:01
Íslendingar stjórni veiðunum Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, stærsta sjávarútvegsfyrirtækis landsins, segir algert skilyrði fyrir inngöngu í Evrópusambandið að Íslendingar stjórni algerlega veiðum á eigin fiskimiðum. 10.9.2004 00:01
Settu óvænt í risasíld Fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson setti óvænt í risastóra síld á Halamiðum í gær og bíða Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri og hans menn nú eftir að lokið verði við að fullvinna aflann svo hægt verði að halda veislunni áfram. 10.9.2004 00:01
Lögreglan í Reykjavík með málið Ríkissaksóknari hefur falið embætti lögreglustjórans í Reykjavík að rannsaka tildrög þess að þrjátíu og þriggja ára karlmaður lést í Keflavík síðdegis í gær eftir snörp átök við lögregluþjóna. Maðurinn var sonur manns sem handtekinn var í bænum í gærdag í annarlegu ástandi. 10.9.2004 00:01
Sekt fyrir kannabisræktun Tveir menn á þrítugsaldri voru dæmdir til 200.000 króna sektar hvor í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að hafa haft í fórum sínum 89 kannabisplöntur, rúmlega átta grömm af maríjúna og sjö grömm af kannabisfræjum. 10.9.2004 00:01
Standa við loforð um fasteignalán Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra segir að Framsóknarflokkurinn muni standa við kosningaloforð sitt um að hækka lán Íbúðarlánasjóðs upp í 90 prósent af íbúðarverði á næstunni. Þetta kom fram í ræðu Halldórs sem hann hélt á haustfundi landsstjórnar og þingflokksins í Borgarnesi í dag. 10.9.2004 00:01
Foreldrar ánægðir með leikskólana Foreldrar barna í leikskólum Reykjavíkur eru mjög ánægðir með þjónustu leikskólanna ef marka má niðurstöður könnunar sem gerð var síðastliðið vor. Í fréttatilkynningu Leikskóla Reykjavíkur kemur fram að 98% foreldra telja barn þeirra mjög eða frekar ánægt í leikskólanum. 10.9.2004 00:01
Ráðherrarnir hans Davíðs Davíð Oddsson hefur myndað fjórar ríkisstjórnir frá því að hann var kjörinn á þing í apríl 1991. Tuttugu og níu ráðherrar hafa setið í stjórnum hans, þar af sjö konur og aðeins tvær úr hans eigin flokki. Tólf eru hættir í pólitík og gegna flestir þeirra embættum á vegum hins opinbera. Halldór Ásgrímsson hefur setið manna lengst í stjórn undir forsæti Davíðs. </font /></b /> 10.9.2004 00:01
Hlýtt, taktfast og róstursamt Óvenjuleg veðursæld, tíðir hljómleikar og umræður um fjölmiðlalög einkenndu sumarið 2004. Forsetinn var líka í sviðsljósinu, bæði vegna lagasynjunar og endurkjörs. </font /></b /> 10.9.2004 00:01
Þetta er hátíðisdagur Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi og Hrunaréttir voru í gær og í dag er réttað í Reykjarétt á Skeiðum og í Tungnarétt í Biskupstungum. 10.9.2004 00:01
Börnunum líður vel í leikskólanum Um 98 prósent foreldra barna í leikskólum Reykjavíkur telja að barn þeirra sé mjög eða frekar ánægt í leikskólanum. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem leikskólarnir létu gera. 10.9.2004 00:01
Ráðherra vill endurbætur Það er fjarri því að Sundabrautin leysi þann umferðarvanda sem er á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar og því nauðsynlegt að fara út í framkvæmdir við gatnamótin, að sögn Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra. 10.9.2004 00:01
Þrír karlmenn taldir líklegir Þrír menn hafa óopinberlega lýst því yfir að þeir hafi hug á að sækja um stöðu rektors Háskóla Íslands þegar Páll Skúlason lætur af störfum næsta vor. 10.9.2004 00:01
Fáar konur í áhrifastöðum Einungis tveir af tíu æðstu stjórnendum skóla á háskólastigi í landinu eru konur. Á meðal hóps kvenna í Háskóla Íslands er vilji til að úr þessu verði bætt og er hafin leit að frambærilegri konu til að bjóða sig fram til rektors Háskóla Íslands. 10.9.2004 00:01
Leitað að konu í stöðu rektors Nú þegar Páll Skúlason hefur gefið það út að hann hyggist ekki sækjast eftir endurkjöri sem rektor háskóla Íslands hafa þær raddir gerst æ háværari að kona verði kjörin í starf rektors en kona hefur aldrei gegnt því starfi. 10.9.2004 00:01
Rannveig svarar ekki Fréttastofa Stöðvar 2 reyndi enn á ný að ná tali af Rannveigu Rist, formanni stjórnar Símans, í dag vegna kaupa fyrirtækisins á hlut í sjónvarpsstöðinni Skjá einum. Ritari Rannveigar hjá Álverinu í Straumsvík segir að hún vísi öllum spurningum vegna málsins til forstjóra eða upplýsingafulltrúa Símans. 10.9.2004 00:01
Lést í höndum lögreglunnar "Ég sá lögreglubíla og fór út á götu til að athuga hvað væri að gerast, þá sá ég hvar löggan veitti manninum hjartahnoð og reyndi að lífga hann við," segir Linda Björk Gylfadóttir nágranni 33 ára gamals manns sem lést í átökum við lögregluna í Keflavík um klukkan hálf sex á sunnudag. Lögreglan í Reykjavík rannsakar málið. 10.9.2004 00:01