Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þriggja stiga skjálfti skammt frá Fagradalsfjalli Áframhaldandi skjálftavirkni er á Reykjanesskaga en virkni síðustu daga hefur verið sveiflukennd. 8.6.2022 06:38
Margir í hverfinu hafi vitað af ógnandi hegðun hins grunaða Morðrannsókn lögreglu í Barðavogi heldur áfram en ýmsir þættir eru nú til skoðunar. Maðurinn sem lést var á fimmtugsaldri og lætur eftir sig fjögur börn. Íbúar í hverfinu lýsa ógnvekjandi hegðun hins grunaða um árabil og segja marga hafa óttast hann. 7.6.2022 23:12
Kannar hug fólks til breytinga á tveimur köflum hringvegarins Samgöngufélagið leitar eftir afstöðu almennings til þess hvort breyta eigi legu hringvegarins á tveimur köflum á Vesturlandi. Frestur til að taka þátt í skoðanakönnun félagsins rennur út 10. júní. 7.6.2022 22:30
Segja ekki rétt að nýr dúkur hafi verið pantaður á Hamarshöllina Nýr meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar segir fullyrðingar fyrrverandi bæjarstjóra um að nýr dúkur hafi verið pantaður á Hamarshöllina ekki réttar. 7.6.2022 22:27
„Þetta bara snýst um mannleg samskipti og að við tökum tillit til hvors annars“ Málum hefur fjölgað síðustu ár þar sem árekstrar og núningur á milli gangandi vegfarenda, hjólreiðafólks og ökumanna hafa komið til kasta lögreglu. Tillitssemi getur þó ýmsu breytt til góðs að mati lögreglumanns. 7.6.2022 21:47
Skemma stóð í ljósum logum í Grafarholti Slökkvilið af þremur af fjórum slökkvistöðvum á höfuðborgarsvæðinu er mætt í Grafarholt þar sem skemma stendur í ljósum logum. 7.6.2022 20:15
KSÍ þurfi að ákveða hvort landsleikir séu fjölskylduviðburðir eða eitt stórt partí Skiptar skoðanir eru um bjórsölu á landsleikjum. Sérfræðingur í forvörnum segir að KSÍ þurfi að ákveða hvort að leikirnir séu fjölskylduviðburðir eða eitt stórt partí. 7.6.2022 20:00
Hæst dæmdi hestur í heimi: Ég svíf bara, segir ræktandinn Nýtt heimsmet var slegið á kynbótabrautinni á Gaddstaðaflötum á Hellu í dag þegar stóðhesturinn Viðar frá Skör hlaut 9,04 í aðaleinkunn. Er hann þar með hæst dæmdi kynbótahestur í heimi, en það var afreksknapinn Helga Una Björnsdóttir sem sýndi Viðar af mikilli fagmennsku. Fáheyrð einkunn var gefin bæði fyrir hæfileika og sköpulag. 7.6.2022 19:52
Skilorðsbundið fangelsi fyrir að senda kynferðislegt efni af fyrrverandi Karlmaður var á dögunum dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar sem frestað verður til tveggja ára, haldi hann almennt skilorð. Hann var einnig ákærður fyrir margvísleg meint brot gegn fyrrverandi unnustu sinni, þar á meðal nauðgun, en sýknaður af þeim öllum. 7.6.2022 19:37
Dagur og Einar njóta svipaðs fylgis í borgarstjórastólinn Dagur B. Eggertsson og Einar Þorsteinsson njóta álíka mikils fylgis í embætti borgarstjóra meðal kjósenda flokkanna fjögurra sem mynda nýjan meirihluta í Reykjavík samkvæmt könnun Maskínu. Kosningu í tvö ný ráð borgarinnar var frestað í dag að ósk borgarfulltrúa minnihlutans. 7.6.2022 19:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Dagur B. Eggertsson og Einar Þorsteinsson njóta álíka mikils fylgis í embætti borgarstjóra meðal kjósenda flokkanna fjögurra sem mynda nýjan meirihluta í Reykjavík samkvæmt könnun Maskínu. Kosningu í tvö ný ráð borgarinnar var frestað í dag að ósk borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 kíkjum við á fyrsta borgarstjórnarfund kjörtímabilsins og greinum nýjan meirihlutasáttmála. 7.6.2022 18:01
Farþegafjöldi Icelandair áttfaldast milli ára Farþegum Icelandair fjölgaði mikið milli apríl og maí og fjöldi þeirra áttfaldast miðað við sama mánuð í fyrra. 7.6.2022 17:37
Úthlutun lóðar í Skerjafirði frestað á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar Úthlutun lóðar og sala byggingarréttar við Einarsnes í Skerjafirði var sett á dagskrá fyrsta fundar nýrrar borgarstjórnar í dag. Þetta gerðist aðeins sólarhring eftir að málefnasamningur nýs meirihluta var kynntur þar sem segir að rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar verði tryggt á meðan unnið sé að undirbúningi nýs flugvallar í nágrenni borgarinnar. 7.6.2022 17:12
Kusu í flest embætti en Alexandra og Magnús þurfa að bíða lengur Fyrsti borgarstjórnarfundur nýs meirihluta Samfylkingarinnar, Framsókarflokks, Pírata og Viðreisnar fór fram í Ráðhúsinu í dag þar sem kosið var í hin ýmsu embætti borgarstjórnar. 7.6.2022 17:05
Konur undir fertugu í miðbænum líklegastar til að vera ánægðar með meirihlutann 37 prósent borgarbúa eru ánægðir með borgarstjórnarsamstarf Framsóknar, Pírata, Samfylkingarinnar og Viðreisnar, samkvæmt könnun Maskínu. Íbúar í miðborginni og Vesturbænum eru ánægðastir með samstarfið. 7.6.2022 16:54
Mál Margeirs sé ekki einsdæmi og hjólreiðafólki ítrekað ógnað Varaformaður Samtaka um bíllausan lífsstíl kallar eftir aðgerðum til að tryggja öryggi hjólandi og gangandi í umferðinni. Hún segir ógnandi hegðun ökumanna og skaðlega samgöngumenningu hafa leitt til þess að fólk veigri sér við að hjóla. 7.6.2022 16:15
Segir breytingar á forsætisnefnd vera pólitísk hrossakaup Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óskuðu í dag eftir því að afgreiðslu á tillögu meirihlutans um breytt hlutverk forsætisnefndar yrði frestað. Klukkan 14 hófst fyrsti borgarstjórnarfundur nýrrar borgarstjórnar. 7.6.2022 15:19
Ákærður fyrir tilraun til manndráps Tveir karlmenn á þrítugsaldri hafa verið ákærðir fyrir árás fyrir framan skemmtistaðinn 203 Club í miðborg Reykjavíkur. Annar þeirra er ákærður fyrir tilraun til manndráps. Líklegt er að skrúfjárni hafi verið beitt. 7.6.2022 15:03
„Það hefur alls ekki skort fjármagnið“ Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins tókust á um stöðuna í heilbrigðiskerfinu, á Alþingi í dag. 7.6.2022 14:51
Upplifði öskur, baktal, niðurlægingu og ósannindi í samfélaginu og í bæjarstjórn Hilda Jana Gísladóttir, oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri, segist hafa upplifað ansi súra stemningu bæði í bæjarstjórn og frá bæjarbúum á síðasta kjörtímabili, sérstaklega eftir að minni- og meirihlutinn voru lagðir niður í september árið 2020. Hún er svekkt en spennt að vera í minnihluta á næsta kjörtímabili. 7.6.2022 14:36
Þörf á langtímasýn frekar en átaki í geðheilbrigðismálum Formaður stjórnskipunar og eftirlitsnefndar Alþingis segir fátt koma óvart í svartsýnni skýrslu Ríkisendurskoðunar um geðheilbrigðisþjónustu. Of oft hafi stjórnvöld ráðist í átak í hinum og þessum málaflokkum en nú skorti langtímasýn, fjármagnaðar aðgerðir og pólitískt þrek. 7.6.2022 13:30
Bein útsending: Fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar Ný borgarstjórn Reykjavíkur kemur saman til fundar í Ráðhúsinu klukkan 14 í dag. Um er að ræða fyrsta fund nýrrar borgarstjórnar sem kjörin var í borgarstjórnarkosningunum þann 14. maí síðastliðinn. 7.6.2022 13:30
Skin og skúrir færðu Sigga storm til Samfylkingarinnar Veðurfræðingurinn Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi Stormur hefur ákveðið að hætta í Miðflokknum og ganga til liðs við Samfylkinguna. Hann segir lífshættuleg veikindi sonar hans hafa gjörbreytt hugsun sinni. 7.6.2022 13:07
Nowe centrum handlowe w sercu Reykjaviku Obecnie w sercu miasta nadal trwa budowa, jednak już za około pięć tygodni oddane do użytku ma zostać nowe centrum handlowe, w którym znajdzie się jedenaście nowych restauracji i wiele sklepów. 7.6.2022 12:24
Telja kynt undir ofbeldi í garð leigubílstjóra Bandalag íslenskra leigubifreiðarstjóra leggst alfarið gegn frumvarpi innviðaráðherra um leigubílakstur, sem ætlað er að rýmka mjög þau skilyrði sem þarf til að reka leigubíl. Formaður félagsins segir að beinlínis sé kynt undir ofbeldi í garð leigubílstjóra. 7.6.2022 12:00
Verkaskipting í nefndum og ráðum borgarinnar gerð ljós í dag Borgarstjóri segir að borgarlínu verði flýtt svo hægt verði að hefja uppbyggingu á Keldnalandinu sem fyrst. Gripið verði til nauðsynlegra mótvægisaðgerða ef þörf krefji eftir áhættumat sem unnið verði af Ísavía vegna uppbyggingar við Reykjavíkurflugvöll. Verkaskipting nýja meirihlutans í nefndum og ráðum kemur í ljós í dag. 7.6.2022 11:49
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við Dag B. Eggertsson borgarstjóra en tilkynnt var um nýjan meirihluta í Reykjavík í gær. 7.6.2022 11:37
Vantraust á ráðherra fellt og sænska stjórnin situr áfram Dómsmála- og innanríkisráðherra Svíþjóðar stóð af sér vantrauststillögu í sænska þinginu í dag. Magdalena Anderson forsætisráðherra hafði hótað því að ríkisstjórnin segði af sér ef vantrausti yrði lýst á ráðherrann. 7.6.2022 11:29
Vonast eftir hraðri uppbyggingu á kjörtímabilinu Oddvitar Framsóknarflokksins og Viðreisnar eru bjartsýnir á að framkvæmdir við nýjar íbúðir og Sundabraut geti farið hratt af stað á kjörtímabilinu. Nýr meirihluti sé einhuga um að drífa Sundabraut áfram. 7.6.2022 11:03
Kierowca uderzył w rowerzystę i uciekł z miejsca zdarzenia Na ulicy Laugavegur doszło w sobotę do zdarzenia, w wyniku którego potrącony został rowerzysta. 7.6.2022 11:02
Frítt í sund og strætó fyrir börn einu fingraför Framsóknar að mati Hildar Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, segir að henni virðist einu fingraför Framsóknarflokksins á málefnasamningi nýja meirihlutans í borginni vera að frítt verði í sund og strætó fyrir börn. Hún kvartar yfir leiðindapólitík sem hafi verið stunduð þegar flokkar voru að máta sig í meirihlutaviðræðum. 7.6.2022 09:44
Líf sænsku stjórnarinnar í húfi í atkvæðagreiðslu um vantraust Úrslit atkvæðagreiðslu um vantrauststillögu á hendur dómsmálaráðherra Svíþjóðar sem fer fram í sænska þinginu í dag gætu ráðið örlögum ríkisstjórnar Magdalenu Anderson forsætisráðherra. Útlit er fyrir að ráðherrann standi tillöguna af sér naumlega. 7.6.2022 08:45
Umhverfisráðherrann skotinn til bana á skrifstofunni af æskufélaga Ráðherra umhverfis- og auðlindamála í Dóminíska lýðveldinu var skotinn til bana á skrifstofunni sinni af nánum vini sínum í gær. 7.6.2022 08:01
Flugu í átt að landamærum Norður-Kóreu Um tuttugu herþotur frá Suður-Kóreu og Bandaríkjunum fóru í morgun á loft og flugu í átt að landamærunum að Norður-Kóreu. Flugferðin átti að sýna Norður-Kóreumönnum glöggt hernaðarmátt sunnanmanna sem njóta liðsinnis Bandaríkjanna. 7.6.2022 07:31
Allvíða síðdegisskúrir og hiti að sautján stigum Veðurstofan spáir austlægri eða breytilegri átt átt í dag, yfirleitt þremur til tíu metrum á sekúndu, síðdegisskúrum allvíða. 7.6.2022 07:19
Hvergi nærri öruggur í embætti Þrátt fyrir að þingflokkur Íhaldsflokksins hafi fellt vantrauststillögu á hendur Boris Johnson, forsætisráðherra og leiðtoga flokksins, í gær er Johnson hvergi nærri öruggur í embætti sínu að mati margra álitsgjafa BBC. 7.6.2022 07:01
„Áður en ég veit af er hann búinn að negla aftan á mig“ Á leið niður Laugaveginn á hjóli á laugardagskvöld lenti Margeir Steinar Ingólfsson í því að ökumaður ók aftan á hann með þeim afleiðingum að Margeir féll til jarðar og hjól hans kastaðist eftir götunni. Í kjölfarið ók ökumaðurinn yfir hjól Margeirs, brunaði niður göngugötu og flúði af vettvangi. 7.6.2022 07:01
Rimac safnar 500 milljónum evra Rafbílaframleiðandinn Rimac aflaði sér 500 milljónum evra í fjármögnungarumferð sem meðal annarra Porsche tók þátt í. Porsche á nú um fimmtungs hlut í Rimac. Umferðin tryggir Rimac rúmlega 72 milljarða króna til frekari vaxtar. 7.6.2022 07:01
Vaktin: Segja sex hundruð Úkraínumenn í „pyndingarklefum“ í Kherson Vassily Nebenzia, sendifulltrúi Rússlands við Sameinuðu þjóðirnar, gekk út af fundi öryggisráðsins í gær þegar forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins sakaði Rússa um að nota matvælabirgðir sem „leyniflaugar“ gegn þróunarríkjum heims. 7.6.2022 06:47
Fjórir flokkar sem hafi þurft að mætast einhvers staðar Oddviti Viðreisnar segir það fyrsta verk á dagskrá nýs borgarstjórnarmeirihluta í Reykjavík að setja aukinn kraft í húsnæðisuppbyggingu sem verði stórt áherslumál á næsta kjörtímabili. 6.6.2022 23:46
Ogłoszono nową radę większościową i kto zostanie burmistrzem Podczas konferencji prasowej, która odbyła się dziś przedstawiono nową większość rady miasta Reykjavik oraz ogłoszono kto zostanie burmistrzem. 6.6.2022 23:34
Hyggjast klára brúargólfið í Þorskafirði fyrir veturinn Smíði Þorskafjarðarbrúar, sem styttir Vestfjarðaveg um níu kílómetra, er komin vel á veg og er stefnt að því að brúargólfið verði tilbúið í haust. Verktakinn hefur leigt Bjarkalund undir vinnubúðir og verður hótelið lokað ferðamönnum næstu tvö árin. 6.6.2022 22:26
Borgarstjóri ráði ekki öllu Oddviti Pírata segir að hún hafi lagt meiri áherslu á að tryggja góðan framgang helstu baráttumála flokksins en að hreppa borgarstjórastólinn. Það markmið hafi náðst og hún sé ánægð með að Píratar fái nú tækifæri til að færa græn málefni á næsta stig. 6.6.2022 22:01
Eftirmynd af auga Lindu Pé komið upp á vegg Efturlíking af auga Lindu Pétursdóttur, alheimsfegurðardrottingu er nú komið upp á vegg á safni í Flóanum en það var rennt og skorið út í tré. Listamaðurinn er mjög stoltur af auganu, svo ekki sé minnst á gesti safnsins, sem dást af verkinu og auga Lindu Pé. 6.6.2022 20:31
Felldu vantrauststillögu á hendur Boris Johnson Þingflokkur Íhaldsflokksins felldi í dag vantrauststillögu á hendur Boris Johnson, forsætisráðherra og leiðtoga flokksins. 148 þingmenn greiddu atkvæði með tillögunni en 211 studdu formanninn, sem samsvarar einungis 59 prósentum þingmanna flokksins. 6.6.2022 20:06