Fleiri fréttir

Segir tengsl Bjarna hafa ráðið úrslitum

Áætlunarferðir Flugrútunnar eru undanþegnar virðisaukaskatti. Hópbílaleigan fékk ekki sérleyfisakstur milli Leifsstöðvar og Reykjavíkur þrátt fyrir að vera með lægsta boð. Einn eiganda Hópbílaleigunnar segir ættartengsl skipta máli.

Hafa enn engin svör fengið vegna Strætó

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa enn engin svör fengið við spurningu um ferðaþjónustu fatlaðra sem lögð var fram þann 15. janúar síðastliðinn. Fyrirspurnin var í átta liðum um undirbúning breytinga á fyrirkomulagi ferðaþjónustu fatlaðra og hvernig kaupum á tölvukerfi var háttað.

Föst sem varaformaður út af reglum um kynjakvóta

Unnur Brá Konráðsdóttir vill hætta sem varaformaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins. Brynjar Níelsson mætir ávallt sem varamaður hennar. Einungis karlmenn hafa farið utan á vegum ráðsins allt árið 2014.

Holtavörðuheiði lokuð

Vegurinn um Holtavörðuheiði er lokaður þar sem vatn flæðir yfir hann við Búrfellsá.

Rafmagnslaust í Norðurárdal

Norðurá er nú stórfljót sem teygir sig yfir allan dalinn. Rafmagnslaust er í dalnum eftir að rafmagnsstaur brotnaði.

Vilja að Isavia virði kjarasamninga

BSRB vill brýna fyrir forsvarsmönnum Isavia að virða kjarasamningsbundinn réttindi starfsmanna sinna í ljósi dóma sem fallið hafa gegn fyrirtækinu.

Náttúruhryðjuverkið Sellafield

Með því að kljúfa atómið beisluðum við krafta sólarinnar. Við færðum heiminum kjarnavopn. Síðar rafmagn með kjarnorku. Í staðinn gáfum við jörðinni sýkt kýli sem komandi kynslóðir munu kroppa í til eilífðar. Slík er náttúra geislaúrgangs.

Eins manns rusl er annars fjársjóður

Ljósmyndasafn sem gefið var í nytjamarkaðinn Góða hirðinn á dögunum hangir nú á veggjum ljósmyndadeildar Þjóðminjasafnsins. Safnvörður segir myndirnar ómetanlegar, og einstaka heimild um umhverfi miðbæjar Reykjavíkur á áttunda og níunda áratug síðustu aldar.

Svikahrappar herja á samskiptamiðla

Erlendir svikahrappar nýta sér í vaxandi mæli samfélagsmiðla á borð við Facebook og Tinder til að svíkja fé út úr grunlausum einstaklingum.

Biðlar til stjórnvalda að setja börnin í forgang

Alsírsk blaðakona, sem beðið hefur í tvö ár eftir dvalarleyfi á Íslandi fyrir sig og börnin sín þrjú, segist ekki geta snúið aftur til heimalands síns. Lögfræðingur segir það mannréttindabrot af hálfu íslenskra stjórnvalda að láta fjölskyldu með ung börn bíða svo lengi í óvissu.

Baráttukonunnar Stellu Hauks minnst á Obla dí

Vinir og samstarfsmenn Stellu Hauks minntust hennar með tónlist og söng á Obla dí í dag. Egill Ólafsson segir hana hafa verið tilfinningsama og einlæga í sinni tónlist.

Baráttan um merkingu orðanna í stjórnmálum

Formaður Vinstri grænna segir vinstrimenn þurfa að skilgreina fyrir sitt leyti hugtök eins og frelsi, stöðugleika og hjól atvinnulífsins sem hægrimenn hefðu eignað sér.

Bílar löskuðust í Herjólfi

Öldugangur varð til þess að skemmdir urðu á bílum í ferð Herjólfs frá Þorlákshöfn til Eyja seinnipartinn í gær.

Lognið á undan storminum

Meirihluti repúblikana á Bandaríkjaþingi virðist bíða spenntur eftir því að nota völd sín til að snúa ofan af sumum þeim málum sem Barack Obama hefur náð fram á forsetatíð sinni. Obama hótar á móti að beita neitunarvaldi sínu hiklaust.

Sjá næstu 50 fréttir