Fleiri fréttir

Missti vinnuna fyrir að fylla á gosið sitt

Lögreglan í Bandaríkjunum sektaði mann um sextíu þúsund krónur fyrir að fylla á gosið sitt. Hann hélt að áfyllingin væri ókeypis, en það var algjör miksskilningur, hún kostaði 100 krónur.

Guðni vildi aðra en Framsóknarmenn á listann

Umræðan á netinu varð ekki til þess að Guðni Ágústsson hætti við framboð sitt til borgarstjórnarkosninga. „Nei, það gerði hún ekki. Ég er vanur pólitík og menn sem hafa verið lengi í stjórnmálum fá sigg á sálina.“

Evrópumet í klamydíutilfellum

Klamydía finnst víða í samfélaginu og það er á ábyrgð hvers og eins að verja sjálfan sig og smita ekki aðra, segir yfirlæknir sóttvarna hjá embætti landlæknis um þá staðreynd að tíunda árið í röð eiga Íslendingar Evrópumet í fjölda klamydíusmita. Sú staðreynd segir þó ekki alla söguna.

Morðingi Kristjáns sakfelldur

Jermaine Jackson var í gær sakfelldur fyrir að myrða tvo menn. Þar á meðal Kristján Hinrik Þórsson, þann 8. september 2012.

Róðukross á nær fimm milljónir til sölu

Safnaramiðstöðin hefur auglýst til sölu kross sem talinn er vera nokkurra hundraða ára gamall. Krossinn hefur verið í sömu fjölskyldu frá 19. öld, að sögn eiganda verslunarinnar. Settur þjóðminjavörður segir Þjóðminjasafnið hafa forkaupsrétt.

Berst af krafti fyrir dóttur sína

Hlédís Sveinsdóttir vill opna viðkvæma umræðu um afskiptalausa feður og ójafnrétti í foreldrakerfinu. Hún fór frá því að vera sjálfstæður atvinnurekandi í Reykjavík í það að vera einstæð móðir á Akranesi á stuttum tíma en sér ekki eftir neinu.

Fleiri smástirni lenda á jörðu niðri

Bandaríska vísindastofnunin B612 varar við því að smástirni sem lendi á jörðu niðri séu mun fleiri en talið hefur verið. Nýr og rándýr sjónauki er í smíðum.

Íslendingasögurnar þýddar í heild sinni

Heildarútgáfur allra Íslendingasagnanna koma út á mánudag á norsku, dönsku og sænsku. Dásamleg tilfinning segir útgefandinn, sem hefur unnið að verkefninu í átta ár. Mikill áhugi fyrir þýðingunni í Noregi segir ritstjóri norsku þýðingarinnar.

Lög líklega sett á verkfall

Dósent við HÍ segir líkur benda til að lög verði sett á verkfall flugvallarstarfsmanna. Lögmaður segir ýmis rök lúta að því að flugsamgöngur til og frá landinu varði almannaheill. Því sé heimilt að banna verkfall með lögum.

Tók of krappa beygju

Enn er leitað að líkum um borð í suðurkóresku ferjunni Sewol, sem sökk í síðustu viku.

Aukakjördæmaþingi var frestað í tvígang

Brösuglega hefur gengið fyrir Framsóknarflokkinn í Reykjavík að ná saman lista til borgarstjórnar. Aukakjördæmaþingi hefur verið frestað tvívegis, þann 5. apríl og 24. apríl. Þriðja tilraun til aukakjördæmaþings verður þann 29. apríl næstkomandi.

Tveir hafa kynnt framboð sitt gegn Assad

Maher al-Hajjar og Hassan Abdullah al-Nouri hafa lýst því yfir að þeir ætli sér að bjóða sig fram gegn Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, í forsetakosningunum 3. júní.

Orkuveitan mikilvægasta verkefni borgarstjóra

Borgarstjóri segir málefni Orkuveitu Reykjavíkur vera mikilvægasta verkefni sem hann hefur ráðist í. Búið er að bæta úr 116 athugasemdum sem gerðar voru á rekstri fyrirtækisins árið 2012.

Bilaður bátur utan við Rif

Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ var kölluð út nú á níunda tímanum þegar tilkynning barst um vélarvana trillu norður af Rifi.

Lagasetning leysir ekki deiluna

Flugmálastarfsmenn um land allt felldu niður störf í morgun í fimm klukkustundir. Tæp vika er í að allsherjarverkfall skelli á og engin lausn virðist í sjónmáli. Ríkisstjórn hefur ekki rætt hugsanlega lagasetningu á verkfallið.

Sakar rannsóknarnefnd Alþingis um ritstuld

Sagnfræðingur sem ritaði sögu SPRON fullyrðir að rannsóknarnefnd Alþingis um sparisjóðina hafi notað mikinn texta frá honum án leyfis. Hann segir þetta hreinan ritstuld og rökstyður það með samanburði á sínum texta og þeim sem er í skýrslunni.

Sigmundur fundaði með forsætisráðherra Hollands

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra átti nú síðdegis fund með Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands í Rotterdam. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Forsætisráðuneytinu.

Sjö eftirlitsmönnum ÖSE rænt

Sjö fulltrúum Öryggis og samvinnustofnunar Evrópu var rænt af aðskilnaðarsinnum í borginni Slóvíansk, í Úkraínu.

Arna Lára fer fyrir Í-listanum á Ísafirði

Framboðslisti Í-listans í Ísafjarðarbæ var samþykktur á stuðningsmannafundi á miðvikudag 23. apríl. Arna Lára Jónsdóttir og Kristján Andri Guðjónsson, bæjarfulltrúar, leiða listann.

48 lík fundust í káetu

Alls hafa 183 lík fundist í flaki ferjunnar sem sökk í Suður-Kóreu í síðustu viku.

Konurnar klárar en forystan ósannfærð

"Þetta er bara spurningin hverjum er treyst til að leiða listann,“ segir Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands framsóknarkvenna.

Toyota söluhæst í ár

Seldu 2,58 milljónir bíla á fyrsta ársfjórðung en GM og Volkswagen um 2,4 milljónir bíla.

Sjá næstu 50 fréttir