Fleiri fréttir

Kaupir GM Tesla?

Með því fengi GM forskot í framleiðslu rafmagnsbíla og Tesla aðgang að söluneti GM.

Féll í yfirlið í miðju viðtali

Bandarísk fréttakona varð fyrir því óláni á dögunum að falla í yfirlið er hún tók viðtal við skíðakennara á skíðasvæði í Utah.

Eldheimar munu kosta 890 milljónir

Safnið Eldheimar opnar í Vestmannaeyjum næsta vor. Kostnaðurinn nemur um 890 milljónum króna. Erlendir ferðamenn bíða spenntir eftir að safnið verði opnað. Rúmlega eitt hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Eyjar á síðasta ári.

Kveikt í rúmlega 1000 bílum í Frakklandi

Kveikt var í 1.067 bifreiðum í Frakklandi á gamlárskvöld og nýjársnótt en Manuel Valls, innanríkisráðherra Frakklands, staðfesti þetta í frönskum miðlum í morgun.

Bruni á Selfossi í morgun

Minnstu munaði að stórbruni yrði á Selfossi í morgun þegar kviknaði í gamalli kennslustofu inn á lóð byggingafyrirtækis í iðnaðarhverfi bæjarins.

Musharraf á spítala

Pervez Musharraf, fyrrverandi leiðtogi Pakistana var fluttur í flýti á sjúkrahús í morgun þegar hann var á leið í réttarsal. Musharraf, sem er sjötugur, hefur verið ákærður fyrir landráð en svo virðist sem hann hafi fengið fyrir hjartað.

Fiat eignast Chrysler

Sameinuð fyrirtæki Fiat og Chrysler nú færari að keppa við aðra bílarisa.

Furby getur valdið kvíða hjá börnum

Ein vinsælasta jólagjöf ársins er loðdýrið Furby. Sálfræðingur segir leikfangið krefjandi fyrir ung börn og að passa þurfi að börnin leiki sér með dýrið á eigin forsendum og hafi stjórn á leiknum.

Verður að bæta launakjör

Forsætisráðherra segir að það verði að bæta kjör þeirra lægst launuðustu og rétta hlut millitekjuhópa. Verkalýðsforystan segir þetta viðsnúning hjá ráðherranum. Opinberir starfsemnn segja þetta jákvæð skilaboð.

Heilsu Sharon hrakar ört

Heilsu Ariels Sharon, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, hefur hrakað mjög síðustu daga. Sharon hefur legið í dái í átta ár en talsmaður spítalans sem hefur annast hann sagði í morgun að nýru hans séu nú hætt að starfa. Sharon, sem var hershöfðingi í her Ísraelsmanna áður en hann sneri sér að stjórnmálum, er dáður af mörgum samlanda sinna, en hataður af Palestínumönnum.

Bjargað af íshellunni á Suðurskautinu

Aðgerðir hófust í morgun við að koma vísindamönnum og ferðamönnum á rússneskum ísbrjóti til bjargar en skipið hefur verið fast í íshellunni við Suðurskautslandið frá því á aðfangadagskvöld.

Hvetur til friðar í Suður-Súdan

Yfirmaður friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna í Suður-Súdan hvetur stríðandi fylkingar í landinu til þess að leggja niður vopn sín og hefja friðarviðræður.

Áramótaheit borgarstjóra: Reykjavík verði herlaust svæði

Jón Gnarr borgarstjóri vill að Reykjavík verði yfirlýst herlaust svæði. Þetta kemur fram á Facebook síðu borgarstjórans þar sem hann segir að áramótaheit sitt í þetta skiptið sé að ná þessu í gegn, áður en hann lætur af embætti borgarstjóra í vor.

Togarar aftur á sjó

Þónokkrir togarar héldu til veiða strax upp úr miðnætti, en þeir hafa langflestir verið í landi síðan fyrir jól.

Brenndist þegar miðstöðvarofn sprakk

Maður brenndist eftir að miðstöðvarofn sprakk í húsi í Kópavogi um kvöldmatarleytið í gærkvöldi og heitt vatn sprautaðist úr honum.

Í vandræðum á Öxnadalsheiði

Lögreglu- og björgunarsveitarmenn frá Akureyri héldu í nótt upp á Öxnadalsheiði til að aðstoða fólk í tveimur föstum bílum. Tvennt var í hvorum bíl og amaði ekkert að fólkinu, sem hjálpað var til byggða.

Hjartahlýja í verki

Konur um allt land prjónuðu flíkur handa konum í Konukoti. Verkefnið bar heitið Hjartahlýja.

Flugmenn sofna í háloftunum

Evrópuþingið samþykkti nýlega reglur sem heimila lengri vaktir flugáhafna. "Reglurnar eru í hag flugrekenda á kostnað flugöryggis flugáhafna og farþega,“ skrifar Ásta Kristín Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og flugfreyja.

Enn snjóflóðahætta fyrir vestan og austan

Mikil snjóflóðahætta er nú á norðanverðum Vestfjörðum og á Austfjörðum og lýsti snjóflóðavakt Veðurstofunnar yfir óvissuástandi á þessum slóðum í gærkvöldi.

Var byrlað nauðgunarlyf umkringd fjölskyldunni

"Maður er greinilega aldrei óhultur, sama hvaða fólki maður er með,“ segir Helena Ósk Ívarsdóttir, sem byrlað var nauðgunarlyf á skemmtistað í Keflavík á laugardaginn. Helena deildi lífsreynslu sinni á Facebook-síðu sinni í gær og vonast til að þetta verði öðrum víti til varnaðar.

Tuttugu bestu lög ársins 2013

Huffington Post tók saman tuttugu bestu lög ársins sem nú er liðið. Pharrell Williams, Miley Cyrus, Daft Punk, Drake og Charli XCX þóttu slá í gegn.

Hjóla ofan á raflínu í Ölfusi

Skipulagsnefnd Ölfuss segir að nýta eigi legu jarðstrengs milli Selfoss og Þorlákshafnar undir hjólreiðastíg. Árborg hefur sömu áform.

Óvissustig á norðanverðum Vestfjörðum

Veðurstofa Íslands varar við snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Vakthafandi veðurfræðingur segir að fylgst sé náið með ástandinu, fyrir sé mikill snjór í fjöllum og að spáð sé töluverðri úrkomu næstu daga.

Bono mætti í áramótapartý Óla Stef

Írska rokkstjarnan Bono virðist hafa haft það náðugt á Íslandi yfir áramótin. Hann og tónlistarmaðurinn Damien Rice bönkuðu óvænt upp á hjá handboltakappanum Ólafi Stefánssyni og fjölskyldu í gærkvöldi.

Flugeldur olli skemmdum í Selásskóla

Skemmdir voru unnar á Selásskóla í Árbæ rétt fyrir miðnætti í gær en þá hafði rúða verið sprengd með flugeldi. Flugeldurinn hafnaði inn í skólastofu og olli töluverðu tjóni.

Þjóðaratkvæði um ESB ekki mál forystumanna í Brussel

Þorsteinn Pálsson fyrrverandi ráðherra segir að afstaða forystumanna Evrópusambandsins til hugsanlegrar atkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB ekki skipta máli, enda sé þetta fullveldismál Íslands. Forsætisráðherra gaf í skyn í Kryddsíld að óráðlegt væri halda þjóðaratkvæðagreiðsluna á fyrri hluta kjörtímabilsins og vitnaði í samtal sitt við forystumenn ESB.

Kóloradó leyfir kannabis

Kólóradó varð í dag fyrsta ríki Bandaríkjanna til þess að heimila sölu á kannabis í verslunum og er talið að hátt í 30 verslanir muni hefja sölu á efninu í dag.

Flughált víða um land

Vegagerðin varar við flughálku víða um land. Ófært er á Lyngdalsheiði og er óveður á Kjalarnesi, Mosfellsheiði og víðar í uppsveitum Suðurlands.

Á gjörgæslu eftir flugeldaslys

Karlmaður á sextugsaldri slasaðist alvarlega og liggur á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að flugeldur sprakk í höndunum á honum á Selfossi rétt eftir miðnætti.

Eldur í húsi við Kirkjustræti

Eldur kom upp í húsi við Kirkjustræti í Reykjavík nú fyrir stuttu. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er að störfum.

Færri flugeldum skotið upp

Minna var skotið upp af flugeldum í gær miðað við undanfarin ár mati að Landsbjargar. Flugeldasala gekk þó vel og var mikil örtröð á sölustöðum eftir hádegi í gær.

Sjá næstu 50 fréttir