Innlent

Enn snjóflóðahætta fyrir vestan og austan

Gissur Sigurðsson skrifar
Mikil snjóflóðahætta er nú á norðanverðum Vestfjörðum og á Austfjörðum og lýsti snjóflóðavakt Veðurstofunnar yfir óvissuástandi á þessum slóðum í gærkvöldi.

Ekki er þó talin ástæða til að rýma húsnæði að svo stöddu, en fólk er varað við að vera á ferð í grennd við fjöll. Skafrenningur og éljagangur var á Vestfjörðum í nótt, en  Veðurstofunni bárust engar tilkynningar snjóflóð þar í nótt.

Ástandið verður kannað nánar í birtingu, en gert er ráð fyrir frekari snjókomu á svæðinu næstu daga. Útlitið er heldur skárra á Austfjörðum hvað það varðar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×