Flugmenn sofna í háloftunum Ugla Egilsdóttir skrifar 2. janúar 2014 07:00 Mikil þreyta getur skaðað hæfni fólks til að taka mikilvægar ákvarðanir. Fréttablaðið/Sigurjón
Evrópuþingið samþykkti nýlega reglur sem heimila lengri vaktir flugáhafna. „Reglurnar eru í hag flugrekenda á kostnað flugöryggis flugáhafna og farþega,“ skrifar Ásta Kristín Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og flugfreyja, í grein sem birtist í Fréttabréfi Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Rannsóknir sýna að flugmenn sofna án þess að taka eftir því í flugi, og með lengri vöktum má gera ráð fyrir þreyttari flugmönnum. „Ekki þarf að leita langt aftur í tímann til þess að rifja upp dæmi þess að báðir flugmenn hafi sofnað í flugi,“ segir í grein Ástu. Hún heldur því fram að flugþreyta sé alvarlegra vandamál en almennt er talið. 65% flugslysa og óhappa megi rekja til mannlegra mistaka, og þar af séu 4-7% ofþreytu og svefnleysi áhafnar um að kenna. Bandaríska geimferðarstofnunin mældi vökuástand flugmanna sem flugu langar leiðir milli heimsálfa. Rannsóknin leiddi í ljós að flugmennirnir áttu það til að sofna á síðustu 90 mínútunum jafnvel þótt þeir héldu sig vakandi. Flugmennirnir sváfu svokölluðum örsvefni, með augun opin. Þetta hendir einkum þegar starfsmaðurinn er úrvinda af þreytu seinnipart nætur. Mikil þreyta getur lýst sér eins og áfengisneysla og skaðað hæfni til að taka mikilvægar ákvarðanir. Eftir að hafa vakað í 17 til 19 klukkustundir mælist þreyta eins og 0,5 prómill af áfengismagni í blóði. Ásta segir að það sé umhugsunarefni fyrir stéttir sem bera ábyrgðarhlutverk, og til samanburðar megi nefna að áfengismagn megi ekki vera hærra en 0,2 prómill í blóði ökumanns á Íslandi.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Lést við fæðingu sonar síns á Landspítalanum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Fleiri fréttir Hvalbátarnir komnir úr klössun fyrir vertíðina Lést við fæðingu sonar síns á Landspítalanum Hleyptu málinu í gegn eftir að hafa fengið „leynigögnin“ Tímasetning Canvas-árásarinnar engin tilviljun „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Sjá meira