Hjartahlýja í verki Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 2. janúar 2014 07:00 Lilja Sigurðardóttir bjó til viðburð á facebook og bað konur um að senda sér flíkur. Mynd/Daníel
Konur alls staðar af landinu prjónuðu meðal annars vettlinga, húfur, peysur, vesti og trefla handa konum í Konukoti. Í október setti Prjónasmiðjan Tína upp atburðinn Hjartahlýja á facebook-síðu sinni. Tilgangurinn var að virkja fólk til að prjóna alls kyns flíkur handa heimilislausum konum á Konukoti. Nýlega fór Lilja Sigurðardóttir, sem hafði umsjón með verkefninu, með fjóra fulla kassa af flíkum í Konukot og var henni tekið fagnandi. „Við gáfum þessu mánuð og viðbrögðin voru mun betri en ég þorði að vona,“ segir Lilja. „Við fengum helling af fallegum flíkum; húfum, vettlingum, sokkum, peysum, vestum og fleiru. Mér þykir ósköp vænt um þessi góðu viðbrögð.“ Lilja segir konur alls staðar af landinu sem fylgjast með facebook-síðunni hafi lagt sitt af mörkum. „Mig grunar að margar af þeim séu duglegar prjónakonur sem áttu ef til vill eitthvað tilbúið í sínum fórum. En það gladdi þær greinilega mikið að geta lagt sitt af mörkum. Við fengum oft skrifaðar orðsendingar með þar sem þakkað var fyrir að fá að taka þátt í verkefninu. Maður fann hlýjuna skína í gegn.“ Lilja segist hafa búist við einu vettlingapari hér og sokkapari þar en sú var ekki raunin. „Sumir sendu marga hluti, til dæmis sendi ein sex lopapeysur og önnur eflaust um tuttugu húfur. Það er ekki nóg með að flíkurnar séu margar heldur eru þær virkilega vandaðar og fallegar. Ég veit að konurnar sem lögðu okkur lið gerðu það virkilega frá hjartanu og prjónuðu og hekluðu flíkurnar með umhyggju og góðvild.“ Kristín Helga Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Konukots, segir mikið þakklæti ríkja í Konukoti. „Hlýhugurinn skilaði sér vel til okkar. Það var auðvitað gott að fá hlýjar flíkur fyrir veturinn en sagan á bakvið flíkurnar er sú sem hlýjar mest og fallegi hugurinn sem fylgir."
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Fleiri fréttir Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Sjá meira