Fleiri fréttir

Kvennalistakonur báru kyndla

Félagsmál UN Women á Íslandi stóðu fyrir Ljósagöngu á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi í gær.

Þorskstofninn aldrei sterkari

Niðurstöður liggja nú fyrir úr haustralli Hafrannsóknastofnunar Íslands. Meðal niðurstaðna var að heildarvísitala þorsks mældist sú hæsta frá 1996.

Vill endurmeta inngöngukröfur í Lögregluskólann

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum telur mikilvægt að endurmeta inngöngukröfur í Lögregluskólann og segir þær vera barn síns tíma. Hún segir mikilvægt að lögreglustéttin endurspegli samfélagið.

Ræða meintar hleranir Bandaríkjamanna

Fulltrúar frá Póst- og fjarskiptastofnun mæta á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í dag til að ræða samskipti Íslands og Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna.

Erfiðar og ósanngjarnar hugsanir á meðgöngu

Kristín Guðmundsdóttir, sem missti tvíburadrengi, fékk þær fregnir að hún væri ólétt á ný þegar hún barðist fyrir bættum aðbúnaði foreldra sem missa á meðgöngu eða í fæðingu. Ísland í dag fékk að fylgja Kristínu á meðgöngu og eftir fæðingu.

Oddný kveður stjórnmálin í vor

Oddný Sturludóttir segir skilið við stjórnmálin eftir átta ára starf sem borgarfulltrúi. Hún segir fyrra kjörtímabil sitt hafa verið netta brjálsemi.

Vilja senda drápshvalinn heim

Háhyrningurinn Tilikum, sem þegar hefur drepið þrjár manneskjur, er hugsanlega á leið heim til Íslands.

Of mikill hávaði á Iceland Airwaves

Fulltrúar á vegum Heilbrigðiseftirlitsins gerðu hljóðmælingar með "nýjum Brüel & Kjær hljóðmæli“. Varanleg heyrnarskemmd getur orðið á sekúndubroti ef hávaði fer yfir 140 desibil.

Skiptir máli hvaða upplýsingum er lekið

Þingmenn Pírata krefjast þess að Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra og ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytisins verði kölluð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í þessari viku, vegna leka á upplýsingum um tvo hælisleitendur í Fréttablaðinu í síðustu viku.

Dapurlegur málflutningur

Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna segir að yfirlýsing forsætisráðherra um að stjórnarandstaðan muni ekki hika við að ljúga til að gagnrýna skuldatillögur ríkisstjórnarinnar sé dapurleg.

Stórstjörnur á leiðinni til landsins

Tökur á fyrstu seríu af sjónvarpsþáttunum Fortitude munu hefjast hér á landi í febrúar á næsta ári en þættirnir eru samstarfsverkefni sjónvarpsstöðvanna Sky Atlantic í Bretlandi og Starz í Bandaríkjunum. Alls verða teknir upp þrettán þættir og fara tökur aðallega fram á Reyðarfirði og Eskifirði.

Fimleikalandsliðið í sprengjuhættu í Belfast

Rýma þurfti verslunarmiðstöð í Belfast í gær eftir að sprengjuhótun barst lögreglunni þar í borg. Íslenska landsliðið í áhaldafimleikum var í verslunarmiðstöðinni þegar sprengjuhótunin var tilkynnt til lögreglunnar.

Píratar vilja Hönnu Birnu fyrir þingnefnd vegna leka

Jón Þór Ólafsson þingmaður Píratar óskar eftir því að að Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra og ráðuneytisstjóri verði kölluð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis.

Jón Gnarr vill nýtt ríkisfang

Borgarstjórinn er ósáttur þar sem hann fær ekki að taka upp nafnið Gnarr. Í bréfi sem hann skrifar á ensku óskar hann eftir hjálp þar sem hann vill nýtt ríkisfang.

Öflugur skjálfti undan ströndum Falklandseyja

Öflugur jarðskjálfti sem mældist sjö stig, reið í morgun yfir á Suður-Atlantshafi, undan ströndum Falklandseyja. Bandaríska jarðfræðistofnunin segir að skjálftinn stóri hafi komið í kjölfarið á fjórum öðrum skjálftum sem allir mældust um fimm stig. Skjálftarnir urðu á litlu dýpi, eða um tíu kílómetrum. Engar fregnir hafa borist af skemmdum af völdum skjálftana í höfuðborg Falklandseyja, Stanley.

Öfgamaður til valda í Slóvakíu

Hægrisinnaður öfgamaður var í gær kjörinn héraðsstjóri í Banska Bystrica héraði í Slóvakíu. Marian Kotleba fékk 55 prósent atkvæða en hann er fyrrverandi formaður öfga-hægriflokks sem hefur verið bannaður í Slóvakíu.

Spenna í Hondúras

Mjótt virðist vera á munum í forsetakosningunum í Hondúras sem fram fóru í gær en báðir frambjóðendurnir hafa lýst yfir sigri. Þegar búið var að telja 42 prósent atkvæða var hægrimaðurinn Juan Orlando Hernandez þó með forskot, eða 34 prósent atkvæða á móti 28 prósentum sem fallið höfðu í skaut Xiomara Castro.

Dauðföllum af völdum eiturlyfja fækkar í Danmörku

Fjöldi Dana sem létust af völdum eiturlyfja árið 2012 var sá minnsti í tæpa tvo áratugi. Samkvæmt tölum frá dönskum heilbrigðisyfirvöldum létust 210 manns af þessum völdum í fyrra en árið þar áður voru þeir 285 og árið 2010 urðu 276 fíkninni að bráð.

Næsti Subaru Outback?

Fær tvær litlar en geysiöflugar vélar, en sú aflmeiri er 296 hestöfl.

Ók lyftara á rafmagnskassa

Allt hafnarsvæðið í Þorlákshöfn og iðnaðarhverfið þar í grennd urðu rafnagnslaus upp úr klukkan þrjú í nótt, eftir að maður sem var að vinna við fiskmarkaðinn, ók lyftara óvart á rafmagnskassa utandyra.

Gámabíll vóg salt á gilbrún

Minnstu munaði að stórslys yrði á Svalbarðseyri við Eyjafjörð laust fyrir klukkan tíu í gærkvöldi þegar stór dráttarbíll með fullestaðan gám, vóg nánast salt á gilbrún , en fallið þar er tíu til 15 metrar og hefði gámurinn að líkindum kramið bílstjórahúsið.

Fylgjendum aðildar að ESB fer fjölgandi

Andstaðan við ESB-aðild er mest innan Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Níu af hverjum tíu stuðningsmönnum Samfylkingarinnar styðja aðild. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir samtökin Já, Ísland í þessum mánuði.

Sjávarútvegsráðherra fundar um Kolgrafafjörð í dag

Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og umhverfisráðherra fundar í dag með viðbragðshópi vegna síldargöngunnar inn í Kolgrafafjörð og ræðst þar væntanlega hvort smábátum verður áfram heimilt að veiða að vild inni á firðinum.

Kröfðust þess að félaginn yrði leystur úr haldi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að fjölbýlishúsi í austurborginni um eitt leitið í nótt, vegna hávaða frá samkvæmi. Húsráðandi, sem er kona á þrítugsaldri, lofaði að lækka í tækjunum og þagga niður í gestunum, en þegar það gekk ekki eftir kom lögreglan aftur á vettvang.

Áhyggjur af ágengum fuglum og hreindýrum

Meðlimir atvinnu- og menningarmálanefndar Hornafjarðar hafa áhyggjur af ágangi hreindýra, gæsa og álfta á tún og akra bænda í á svæðinu. Fara verði í aðgerðir til að sporna gegn þessari þróun.

Heitt vatn hækkað um 43 prósent

Fulltrúar minnihlutans í framkvæmda- og veitustjórn Árborgar mótmæltu harðlega þegar ákveðið var á fundi stjórnarinnar að hækka verð á heitu vatni frá Selfossveitum um 5 prósent.

Sjá næstu 50 fréttir