Innlent

Ökumaður fluttur á sjúkrahús eftir árekstur

Stefán Árni Pálsson skrifar
mynd /pjetur
Ökumaður var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja um helgina eftir að hann hafði ekið inn í hliðina á annarri bifreið á hringtorgi.

Maðurinn kenndi til eymsla í hálsi eftir slysið en fjarlægja þurfti bifreiðina af vettvangi með dráttarbíl.

Þá kærði lögreglan á Suðurnesjum sex ökumenn um helgina fyrir að nota ekki öryggisbelti við aksturinn, auk þess sem fjórir til viðbótar gerðust brotlegir við umferðarlög með öðrum hætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×