Safna fartölvum fyrir fólk í Sambíu í kjölfar tölvuleitar fyrir Franciscu Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 25. nóvember 2013 14:21
Hafin er landssöfnun á notuðum fartölvum fyrir hjálparstarf í Sambíu. Söfnunin kemur í kjölfar ótrúlegra viðbragða við átaki Öldu Sigmundsdóttur sem leitaðist við að finna notaða tölvu fyrir Franciscu Mwansa, starfsstúlku í Bónus.Fjölmargir buðu fram notaðar tölvur og mun Tölvulistinn taka á móti framlögum á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Egilsstöðum, Keflavík og Selfossi. Tölvun í Vestmannaeyjum mun taka á móti tölvum þar. Fartölvunar verða gefnar til skóla og heilbrigðisstofnana í heimahéraði Franciscu í Zambíu í samráði við trausta aðila þar í landi, eins og segir í tilkynningu frá forsvarsmönnum söfnunarinnar. Verkefnið er unnið með stuðningi sambíska sendiherrans í Svíþjóð, Edith Mutale, og mun fulltrúi frá sendiráðinu koma hingað til lands að söfnun lokinni til að fylgja verkefninu eftir. Sendiráðið í Svíþjóð mun aðstoða við að koma fartölvunum til þeirra sem mest þurfa á þeim að halda. Í tilkynningunni frá söfnunaraðilum segir að tölvukunnátta gefi fólki í Sambíu mikið forskot, en tölvuvæðing sé hafin þar eins og annars staðar. Ein fartölva sem legið hefur ónotuð uppi í skáp á íslensku heimili geti gjörbreytt lífi margra í Sambíu. Samkvæmt góðgerðarsamtökunum Computers 4 Africa sem vinna að tölvuvæðingu í Afríku geti ein tölva haft áhrif á líf allt að 24 einstaklinga. Tölvulistinn og Tölvun munu vera miðstöðvar söfnunarinnar og jafnframt yfirfara þær tölvur sem berast. Þá hefur DHL boðist til að senda tölvurnar til Zambíu að kostnaðarlausu og aðstoða með tollamál gerist þess þörf. Dínamít, grafísk smiðja hefur gefið hönnun á merki og auglýsingu fyrir söfnunina. Umsjón með verkefninu hafa Gunnar Jónsson og Ásgerður Jóhannsdóttir í samvinnu við Öldu Sigmundsdóttur og Franciscu Mwansa.Móttökustaðir: Reykjavík - Suðurlandsbraut 26 Akureyri - Glerárgötu 30 Egilsstaðir - Kaupvangi 6 Keflavík - Hafnargötu 90 Selfoss - Austurvegi 34 Hafnarfjörður - Reykjavíkurvegi 66 Vestmannaeyjar - Strandvegi 51Ein fartölva getur breytt lífi 24 einstaklinga í Sambíu.
Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Fleiri fréttir Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Sjá meira