Of mikill hávaði á Iceland Airwaves Kristján Hjálmarsson skrifar 25. nóvember 2013 14:44 Líf og fjör á Airwaves.
Of mikill hávaði var á þremur tónleikastöðum af fjórum sem Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mældi á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves sem haldin var í byrjun nóvember. Fulltrúar á vegum Heilbrigðiseftirlitsins gerðu hljóðmælingar með „nýjum Brüel & Kjær hljóðmæli“ en samkomustöðum ber að fara eftir viðmiðunarmörkum sem gefin er upp í reglugerð um hávaða, að því er segir í tilkynningu frá eftirlitinu. Viðmiðunarmörk fyrir leyfilegan hávaða á samkomustöðum, útiskemmtunum og öðrum stöðum, þar sem fólk dvelur í skamman tíma eru misjöfn. Jafngildishljóðstig er 95 desibil, hámarkshljóðstig 110 desibil og hæsti hljóðtoppur 130 desibil. Ef um er að ræða staði sem eru sérstaklega ætlaðir til tónleikahalds er leyfilegt að heimila í starfsleyfi hærra hljóðstig á einstökum viðburðum en þó skal jafngildishljóðstig aldrei fara yfir 102 desibil. Varanleg heyrnarskemmd getur orðið á sekúndubroti ef hávaði fer yfir 140 desibil og ef hávaði fer yfir 115 desibil getur valdið varanlegum skemmdum. „Á þeim stöðum sem hávaði fór yfir viðmiðunarmörk var farið fram á að dregið yrði úr hávaða tafarlaust og í kjölfar eftirlits var gerð krafa um að gerðar yrðu ráðstafanir til að hávaði innanhúss verði framvegis ekki yfir leyfilegum mörkum,“ segir í tilkynningu frá Heilbrigðiseftirlitinu.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fleiri fréttir Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Sjá meira