Innlent

Ók lyftara á rafmagnskassa

Gissur Sigurðsson skrifar
Frá Þorlákshöfn.
Frá Þorlákshöfn.
Allt hafnarsvæðið í Þorlákshöfn og iðnaðarhverfið þar í grennd urðu  rafnagnslaus upp úr klukkan þrjú í nótt, eftir að maður sem var að vinna við fiskmarkaðinn, ók lyftara óvart á rafmagnskassa utandyra.

Sprenging varð í kassanum og gaus upp mikill eldur. Kallað var á slökkviliðið, en hafnarverði hafði tekist að mestu að slökkva eldinn þegar það kom á vettvang.

Kassinn er hinsvegar gjörónýtur og sömuleiðis kaplarnir, þar sem þeir koma upp úr jörðinni þannig að viðgerð gæti tekið nokkukrn tíma. Ökumann lyftarans sakaði ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×