Fleiri fréttir

Nagladekk eru best á ísi lögðum vegum

Munur á hemlunarlengd besta nagladekksins og besta vetrardekksins á ís reyndist vera 14 metrar í könnun finnskra sérfræðinga. Lítið öryggi þegar nöglum fækkar.

Flögg og eyjur hverfa af Hofsvallagötu

Samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði að fjarlægja flögg og eyjur sem eru á Hofsvallagötu. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks segir að viðurkenna hefði átt mistök. Ósáttur íbúi segir að ganga hefði átt lengra og tvöfalda akreinar nærri ljósum.

13 þúsund rafbílar í Noregi

Norðmenn eiga nú yfir 13 þúsund rafmagnsbíla. Söluhæsti rafmagnsbíllinn í september síðastliðnum var Tesla S

Prestar verða að trúa á guð

Safnaðarráð í Danmörku hafa að minnsta kosti þrisvar sinnum á þessu ári gert trú að skilyrði við ráðningu presta.

Reykbann fyrir skurðaðgerðir

Sjúklingar sem eiga að gangast undir aðgerð á Skáni í Svíþjóð þurfa að vera reyklausir 6 til 8 vikum fyrir aðgerðina.

Upplýsingaskilti sýni ökumönnum heppilegan hraða

Fækka mætti umferðarslysum, draga úr mengun og sliti á götum með því að bæta stýringu umferðarljósa í borginni segir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Tölvukerfið sem stýrir umferðarljósum tekur ekki mið af ytri aðstæðum eins og hálku.

Fleiri vörur með skrúftappa

Mjólkurumbúðir frá MS munu breytast á næstunni eftir að mjólkurpökkun fyrirtækisins fyrir Suður- og Vesturland hefur verið flutt til Selfoss.

Styrktist sjálf með því að hjálpa öðrum

Helga Hallbjörnsdóttir, formaður mannúðarsamtakanna Handarinnar, opnar heimili sitt fyrir þeim sem eru hjálparþurfi. Veit sjálf hvernig það er að þjást af kvíða, þunglyndi og örlyndi. Styrkir til samtakanna hafa verið skornir niður.

Taka ekki þátt í viðræðum um sameiningu

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur afþakkað boð um þátttöku í sameiningarviðræðum Akraness, Borgarbyggðar, Hvalfjarðarsveitar og Skorradalshrepps. Ástæðan mun vera sú að of stutt sé síðan Sveitarfélagið Hvalfjarðarsveit varð til með sameiningu fjögurra sveitarfélaga.

Snjallúrið er loks komið

Snjallúr að hætti kafteins Kirk og James Bond er komið á markað. Tækið tekur á móti símtölum og státar af innbyggðri myndavél og skrefamæli.

B-vítamín vinnur gegn Alzheimer

Norskir og breskir vísindamenn telja að B-vítamín geti hægt á framþróun Alzheimerssjúkdómsins og jafnframt komið í veg fyrir rýrnun heilans sem sjúkdómurinn herjar á.

Tröllalömb úr Grímsey

Sauðfé af Norður- og Austurlandi kemur mjög vænt til slátrunar í haust og er fallþunginn mun hærri en í fyrra, öfugt við það sem gerist sunnanlands.

Íslendingar notuðu eBay fíkniefnaheimsins

Eitt stærsta fíkniefna-markaðssvæði á internetinu, oft kallað eBay fíkniefnaheimsins, notaði íslensk gagnaver til að fela slóð sína. Mörg dæmi eru um að íslenskir fíkniefnaneytendur hafi nýtt sér þessa þjónustu hér á landi.

„Nauðsynlegt að skilja þarfir fólksins“

Einum albönskum hælisleitanda var vísað af landi brott í dag. Fulltrúi Flóttamannastofnunnar Sameinuðu þjóðanna segir að hælisleitendur fari sjálfviljugir úr landi, í meira en 75% tilfella, fái þeir almennilega ráðgjöf hjá yfirvöldum.

Yoko Ono heiðursborgari Reykjavíkur

Jón Gnarr borgarstjóri útnefndi listakonuna Yoko Ono sem heiðursborgara Reykjavíkur við hátíðlega athöfn í Höfða í dag, en John Lennon eiginmaður hennar hefði orðið 73 ára í dag.

Um þriðjungur vildi Gísla Martein sem oddvita

Um þriðjungur borgarbúa vildi að Gísli Marteinn Baldursson leiddi lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor áður en hann tilkynnti að hann væri hættur í pólitík, samkvæmt könnun Capacent Gallup.

Forseti Aserbaídsjan endurkjörinn

Ilham Alíjev, forseti Aserbaídsjan, var endurkjörinn með miklum yfirburðum í kosningum sem fóru fram í dag, samkvæmt útgönguspám. Hann er talinn hafa hlotið um 84 prósent atkvæða.

Íslensk yfirvöld aðstoðuðu FBI

Lögregluyfirvöld hér á landi aðstoðu FBI í maí síðastliðnum við rannsókn á starfsemi vefsíðunnar Silkroad, sem hýsti markaðssvæði með ólögleg fíkniefni og aðra ólögmæta starfsemi.

Heitavatnslaust í Árbæ á morgun

Heitavatnslaust verður í hluta Árbæjarhverfis, á Ártúnsholti og atvinnuhverfinu á Hálsunum á morgun frá klukkan 6:00 til 19:00 vegna tenginga Orkuveitu Reykjavíkur.

43 fjölskyldur missa heimili sín í dag

Formaður stjórnar Hagsmunasamtak heimilanna segir fáránlegt að heimili fari á nauðungaruppboð meðan lánaleiðréttinga ríkisstjórnarinnar er beðið.

Silja Rut fundin

Var klædd í rauða úlpu og svarta strigaskó með rauðum reimum.

Íbúar Lampedúsu gerðu hróp að Barosso og Letta

Íbúar ítölsku eyjunnar Lampedúsu gerðu hróp að José Manuel Barosso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Enrico Letta, forsætisráðherra Ítalíu, þar sem þeir heimsóttu eyjuna í morgun.

Allt að tíu bílar keyrðu á konu á Sjálandi

Danska lögreglan telur að allt að tíu bílar hafi ekið á konu sem lést í umferðaróhappi á hraðbraut á Sjálandi í morgunsárið. Samkvæmt frétt Jótlandspóstsins hringdi kona í lögreglu um klukkan hálf sjö í morgun og sagðist hafa ekið á gangandi vegfaranda á hraðbrautinni milli Borup og Ringsted.

Sjá næstu 50 fréttir