Nagladekk eru best á ísi lögðum vegum Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 10. október 2013 07:00 Skoða þarf vel eiginleika dekkjategunda til þess að finna þá tegund sem hentar heima fyrir. Fréttablaðið/Pjetur
Nagladekk reyndust best á ísi lögðum vegum í nýrri könnun hjá fyrirtækinu Test World í Ivalio í Finnlandi. Fyrirtækið prófar dekk við allar helstu vetraraðstæður. Kaupendur könnunarinnar eru nokkur stærstu bílatímaritin á Norðurlöndum og rússneskt bílatímarit. Á vefsíðu NAF, systurfélagi Félags íslenskra bifreiðaeigenda í Noregi, segir að munurinn á hemlunarlengd besta nagladekksins, Nokian Hakkapeliitta 8, og besta vetrardekksins á ís, Pirelli Icecontrol, hafi verið 14 metrar. Besta vetrardekkið í heildina var Michelin X-ice X13. Þar á eftir komu Nokian Hakkapeliitta R2 og Bridgestone Blizzak WS70. NAF bendir á að mikill munur sé á því hversu miklu fé einstaka framleiðendur verja í þróun dekkja fyrir vetraraðstæður á Norðurlöndum. Vetrardekk þurfi fyrst og fremst að veita öryggi í snjó og á ís samtímis því sem þau þurfa að veita öryggi á blautu malbiki. Fullyrt er að kaupi menn dekk frá framleiðanda sem ekki taki tillit til aðstæðna á norðurslóðum sé hætta á að dekkið geti reynst hættulega lélegt í erfiðum aðstæðum. Skoða þurfi vel eiginleika dekkjategunda til að finna þá tegund sem hentar aðstæðum heima fyrir. Á vef Rannsóknarnefndar umferðarslysa er bent á að þótt mikill öryggisávinningur sé af negldum hjólbörðum ef ekið er reglulega á ísi lögðum vegum eða vegum með þjöppuðum snjó sé enginn ávinningur af nöglum undir öðrum kringumstæðum, svo sem blautu og þurru malbiki. Mikilvægt er að aka ekki um á slitnum negldum hjólbörðum í hálku. Rannsóknarnefnd umferðarslysa bendir á að þegar nöglunum sé farið að fækka og dekkin farin að slitna aukist slysatíðnin og öryggisávinningurinn hverfi.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira