Fleiri fréttir

„Sannkölluð gleðiganga“

Ellefu hundruð manns lögðu leið sína í Laugardalinn í gær til að taka þátt í styrktargöngu gegn brjóstakrabba.

Bjarni Siguróli í öðru sæti

Matreiðslumeistarinn Bjarni Siguróli Jakobsson hlaut silfurverðlaun í keppninni um Matreiðslumann Norðurlandanna. Keppnin fór fram á hótelinu Clarion Post í Gautaborg í Svíþjóð og var tilkynnt um úrslitin á laugardag.

Yfir 80.000 liggja í valnum í Sýrlandi

Yfir 80.000 manns hafa nú látist í átökunum í Sýrlandi frá því að þau hófust fyrir meira en tveim árum síðan. Helmingur hinna látnu eru óbreyttir borgarar samkvæmt talningum Syrian Observatory for Human Rights.

Linda P og Jeremy Clarkson úti á lífinu

Svo virðist sem Top Gear-gaurinn Jeremy Clarkson sé nýjasti tengdasonur Íslands, ef marka má Daly Mail sem greip hann glóðvolgann úti á lífnu ásamt með engri annarri en Lindu Pétursdóttur fyrrum alheimsfegurðardrottningu.

Barbara segir bless

Einhver helsta stjarna bandarísks sjónvarps, Barbara Walters, ætlar að hætta á skjánum á næsta ári.

Kveikt í kirkju mormóna

Öll verksummerki benda til þess að reynt hafi verið að kveikja í kirkju Jesú Krists, hinna síðari daga heilögu - kirkju mormóna - við Ásabraut í Garðabæ undir morgun.

Bíll ofan í skurð

Ökumaður, sem var einn í bíl sínum, slapp ómeiddur þegar bíllinn hafnaði á hliðinni ofan í skurði við bæinn Magnússkóga í Hvammssveit í gærkvöldi.

Eikarbátar umhverfis landið

Eikarbátarnir Knörrinn og Húni II eru nú á leið til Neskaupstaðar, en þeir lögðu í hringferð umhverfis landið frá Húsavík á laugardag.

Stútar með allt í uppnámi

Fjórir ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt vegna aksturs undri áhrifum áfengis eða fíkniefna.

Lamborghini fyrir egóista

Er enn ein afmælisgjöfin sem Lamborghini færir sjálfu sér á 50 ára afmæli fyrirtækisins.

Gunnbjörg sækir Birgi

Gunnbjörg, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Raufarhöfn var kallað út um kl 18:30 í kvöld til að sækja 15 tonna bát Birgir ÞH en hann er með eitthvað fast í skrúfu.

Undarlegur hvítur litur í Kópavogslæknum - lögreglan rannsakar málið

"Ég tók þessar myndir klukkan eitt í dag, ég veit ekki af hverju hann er svona hvítur,“ segir íbúi í grennd við lækinn í Kópavogi sem tók meðfylgjandi myndir af Kópavogslæknum í dag en þar sést glögglega hinn dularfulli hvíti litur sem hefur verið viðvarandi í læknum í gær og í dag.

Varaformenn telja ekki óeðlilegt vera ekki boðið að samningaborðinu

Varaformenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins telja ekki óeðlilegt að þeim hafi ekki ennþá verið boðin þátttaka í stjórnarmyndunarviðræðunum, en segja nauðsynlegt að Alþingi breyti vinnubrögðum sínum og að áhersla á samstarf verði aukin. Formenn flokkanna hafa nú fundað í eina viku.

Aukinn kraftur settur í eftirlit með gistiheimilum

Yfirvöld hyggjast setja aukinn kraft í eftirlit með gistiheimilum sem ekki hafa tilskilin leyfi fyrir þesskonar starfsemi. Ríkisskattstjóri fékk í vor heimild til að loka þeim gistiheimilum sem ekki standa í skilum við skattinn. Framkvæmdarstjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að lítill árangur sjáist af vinnu yfirvalda og að ólöglegum gistiplássum fari fjölgandi.

Yfir 250 eftirlitsmenn fylgjast með kosningum í Búlgaríu

Yfir 250 alþjóðlegir eftirlitsmenn fylgjast nú með kosningunum í Búlgaríu en um sjö milljónir manna ganga að kjörborðinu í dag. Mikil ólga er í kringum kosningarnar, ekki síst eftir að 350 þúsund falsaðir kosningaseðlar fundust í prentverksmiðju skammt frá höfuðborg Búlgaríu, Sófíu, í gær.

Kiel nálgast titilinn

Kiel lagði grunninn að þýska meistaratitlinum með fínum sigri, 31-28, á Lemgo en heimamenn í Lemgo voru þremur mörkum yfir í hálfleik.

Bollywood-kvikmynd tekin upp á Íslandi

Vefsíðan Times of India greindir frá því að framleiðendur frá Indlandi ætli sér að koma til Íslands ásamt tökuliði seinna í maí með það fyrir augum að endurgera Bollywood-kvikmyndina Brindavanam.

Eftirlýstur glæpamaður handtekinn nærri Alicante

Andrew Moran, rúmlega þrítugur Breti, var handtekinn nærri Alicante á Spáni en hann er á meðal helstu manna sem eru eftirlýstir í Bretlandi. Moran hefur verið á flótta í fjögur ár en hann var upphaflega handtekinn árið 2005 þegar hann, ásamt nokkrum öðrum mönnum, rændu póstþjónustu og höfðu 25 þúsund pund upp úr krafsinu.

Móðir DeJesus gæti ekki hugsað sér betri mæðradag

„Ég gæti ekki hugsað mér betri mæðradag,“ sagði Nancy Ruiz, móðir Gina DeJesus sem er ein þriggja kvenna sem slapp úr hryllilegri prísund Ariel Castro fyrr í vikunni, í samtali við Reuters fréttastofuna.

Kosningar í Búlgaríu - hætta á stjórnarkreppu

Gengið er til kosninga í Búlgaríu í dag. Hægrimenn og sósíalistar eru hnífjafnir í skoðanakönnunum og óttast stjórnmálaskýrendur að það gæti orðið til þess að hvorugur flokkur nái að mynda meirihluta.

Segja óeðlilegt að formenn sitji einir að samningaborðinu

Þingmaður Samfylkingar og kapteinn Pírata eru sammála um að óeðlilegt sé að formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, sitji enn einir að samningaborðinu varðandi stjórnarmyndun. Auka þurfi gagnsæi í stjórnarmyndunarviðræðum. Þeir hafa nú fundað í eina viku.

Nawaz Sharif búinn að lýsa yfir sigri

Nawaz Sharif, leiðtogi Múslimabandalagsins og fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, fagnaði í gærkvöldi með stuðningsmönnum sínum eftir að hann lýsti yfir sigri í þingkosningum sem fram fóru í landinu í gær.

Ógnaði manni með hníf

Karlmaður á þrítugsaldri ógnaði öðrum manni með hnífi í miðborginni um fimmleytið í morgun. Hann var handtekinn skömmu síðar á Hverfisgötu en að sögn lögreglu var maðurinn í annarlegu ástandi og gaf þá skýringu að honum hefði sinnast við þann sem hann ógnaði.

Tæplega 30 létust í námuslysi í Kína

Alls létust 27 verkamenn í kolanámu í Kína í nótt þegar sprenging varð í námunni sem er í Sichuan héraðinu í suðvesturhluta Kína. Yfir hundrað verkamenn voru í námunni þegar sprengingin varð.

Páfi tilkynnti um hundruð nýrra dýrlinga

Fransis páfi tilkynnti í dag um hundruð nýrra dýrlinga, þar á meðal píslarvotta frá fimmtándu öld sem höfðu neitað að taka upp íslamska trú. Páfinn tilkynnti um þetta þegar hann predikaði fyrir tugþúsundum á Sankti Péturstorgi í dag.

Þór aðstoðaði Þórsnes

Varðskipið Þór kom fiskiskipinu Þórsnesi II SH 209 til aðstoðar eftir að landhelgisgæslunni barst hjálparbeiðni frá skipinu á sjötta tímanum í gærdag.

Stjórnarmyndunarviðræður oftast tekið um hálfan mánuð

Undanfarinn aldarfjórðung hafa stjórnarmyndunarviðræður oftast tekið í kringum hálfan mánuð. Dragist viðræður formanna Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins lengur en fram eftir næstu viku, má velta fyrir sér hvort þær verði komnar út fyrir það umboð sem forseti Íslands veitti.

Hótel rís á jörð Bjarna frá Vogi

Fyrsta hótelið í sögu Fellsstrandar í Dalasýslu hefur hafið rekstur. Fjósi var breytt í gistiherbergi og hlaðan varð að stórum veitingasal. Jörðin Vogur á Fellsströnd er þekktust fyrir Bjarna frá Vogi, alþingismann og rithöfund, sem kenndi sig við hana, og þar er minning hans varðveitt. Bjarni var kunnur fyrir vindla sem hann flutti inn og fyrir nýyrðasmíð; orðið knattspyrna er til dæmis frá honum komið. Gamli bær Bjarna var í fjöruborðinu, ný bæjarhús risu síðar fjær sjónum en þegar hefðbundinn kúabúskapur lagðist af fyrir áratug eignuðust hjónin Guðmundur Halldórsson og Sólveig Hauksdóttir jörðina. Í fyrra hófu þau að breyta útihúsunum í veitinga- og gistihús, sem þau opnuðu um síðustu jól, undir heitinu Vogur sveitasetur. Í viðtali í fréttum Stöðvar 2 segir Guðmundur viðtökurnar ótrúlega góðar. Fram til þessa hafi gestirnir þó fyrst og fremst útlendingar, Íslendingar viti ekki af þessu, en hann kveðst fyrst og fremst markaðssetja gistinguna á netinu. Þau ákváðu strax að að hafa aðstöðuna veglega, átján gistiherbergi eru rúmgóð og öll með baði, þarna eru heitur pottur og gufubað, og í veitingasal er hægt að þjóna sjötíu manns til borðs. Guðmundur vonast til að uppbyggingin efli byggð á svæðinu. Þar hafi verið mikið undanhald síðustu ár og engin nýsköpun verið í gangi. Dæmi um viðsnúning er að kokkurinn og hans kona séu flutt úr Reykjavík og sest að í sveitinni. Guðmundur segist eiga eftir að koma staðnum á kortið. Fæstir Íslendingar hafi heyrt um Fellsströnd, þótt þarna séu Breiðafjarðareyjar við þröskuldinn.

Tollvörður vill milljónir - og vinnuna aftur

Tollvörður, sem um tíma lá undir grun að hafa átt aðild að stórfelldu fíkniefnasmygli, mun á næstunni hefja störf á ný hjá embætti tollstjóra. Lögmaður tollvarðarins undirbýr nú fyrir hönd skjólstæðings síns kröfu um miskabætur fyrir að hafa setið í fjórar vikur í einangrun að ósekju.

Sjá næstu 50 fréttir