Fleiri fréttir

Hundrað bíla árekstur

Þrír eru látnir hið minnsta og fimmtán slösuðust í hundrað bíla árekstri á fjallvegi í Virginíu í Bandaríkjunum.

Hótaði leigubílstjóra með skærum

Maður var handtekinn á fimmta tímanum í nótt grunaður um greiðslusvik og að hafa hótað leigubílstjóra með skærum. Hann var vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður síðar í dag. Töluvert var um tilkynningar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna hávaða ög ölvunar í heimahúsum. Fjórir voru teknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.

Hefði viljað fara í alfræði

Auður Tinna Aðalbjarnardóttir hefur vakið mikla athygli í Útsvarsliði Reykjavíkur og virðist vita nánast allt. Hún segist eyða miklum tíma í spurningakeppnir, en hún stundar líka nám í lögfræði, situr í stúdentaráði fyrir Röskvu og svo á hún kærasta og nýtur þess að hitta hann á kvöldin.

Með jákvæðnina að leiðarljósi

Íbúar á Bifröst voru slegnir þegar Davíð Olgeirsson söngvari og markaðsstjóri Háskólans í þorpinu hneig niður á fótboltaæfingu vegna heilablæðingar.

Minkur á miðbæjarrölti

Minkur valdi sér sjálfan páskadag til að rölta um miðbæ Hafnarfjarðar. Myndir náðust af ferðum hans og segir myndasmiðurinn dýrið geta verið sérhafnfirska páskakanínu.

Jörð skelfur austur af Grímsey

Skjálftarnir hófust á föstudaginn og hafa yfir tuttugu skjálftar verið skráðir síðan þá þar til í morgun.

Um 1400 manns þurftu að yfirgefa Eiffelturninn

Um 1400 manns þurftu að yfirgefa Eiffelturninn í um það bil tvo klukkutíma í kvöld eftir að ónafngreindur aðili hringdi inn og sagði að sprengja væri í turninum. Turninn var svo opnaður aftur eftir að leitarhundar höfðu farið um bygginguna án þess að finna neitt.

Gripnir í glugga apóteks

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt á meðan Ísfirðingar skemmtu sér fallega.

Villas-Boas: Ásættanlegt tímabil ef við náum Meistaradeildarsæti

Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Tottenham, vill meina að tímabilið verði ásættanlegt ef félagið nær að tryggja sér Meistaradeildarsæti en liðin sem hafna í þriðja og fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar fara í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Allt skíðlogaði í Skorradal

Fjölmennt lið slökkviliðsmanna var kallað að Skorradal, við Hvamm, í kvöld þegar mikill eldur blossaði þar upp. Blaðamaður Fréttablaðsins sem er á staðnum segir að svo virðist sem kviknað hafi í sinu, en sumarhúsaþyrping er á svæðinu og því ljóst að illa hefði getað farið. Eftir því sem Vísir kemst næst er búið að ráða niðurlögum eldsins en bæði slökkviliðsmenn og lögreglustjórinn í Borgarnesi voru enn á staðnum um klukkan hálfellefu í kvöld. Veður er stillt á svæðinu en þar er líka mjög þurrt og eldur getur því auðveldlega kviknað í gróðri.

Ég er bara lítil stelpa að vestan

Hún ákvað ung að verða prestur enda kveðst hún hafa hangið í hempufaldi föður síns sem barn og þótt starfssvið hans afar áhugavert. Nú hefur hún verið biskup Íslands í níu mánuði og forvitnilegt að vita hvernig henni líkar. Hvernig líður þér í embætti biskups? "Mjög vel. Þetta er fjölbreytt starf.

Hátt í 200 manns fóru í HIV próf

Um 150 til 200 manns biðu í biðröð fyrir utan heilsugæslustöð í Tulsa í Oklahoma í dag eftir því að komast í HIV próf.

Vélsleðamaður slasaður i Þjófaskörðum

Vélsleðamaður slasaðist í Þjófaskörðum í fjallgarðinum milli Hnífsdals og Tungudals. Hann er með andlits- og bakáverka, en ekki er ljóst á þessari stundu hvernig slysið vildi til. Björgunarsveitir frá Hnífsdal og Ísafirði eru á leið að sækja manninn.

Harðari viðurlög með nýjum dýravelferðarlögum

Með nýjum lögum um velferð dýra verður tekið harðar á öllum brotum gegn dýrum. Meðal annars verða sektir hækkaðar mikið og heimild er til að skerða ríkisbætur til bænda við ítrekuð brot.

Davíð Örn er kominn heim

Davíð Örn Bjarnason, sem hefur setið í fangelsi og stofufangelsi í Tyrklandi, að undanförnu er kominn heim til Íslands. Vél hans lenti um klukkan fjögur í dag. Davíð var handtekinn fyrir fáeinum vikum, grunaður um að hafa ætlað að smygla fornminjum frá Tyrklandi. Harðar refsingar liggja við slíku.

Kiel vann stórleikinn gegn Hamburg | Aron með tvö

Kiel bar sigur úr býtum, 30-27, gegn Hamburg í stórleik helgarinnar í þýska handboltanum og því náðu lærisveinar Alfreðs Gíslasonar að auka forystu sína á toppnum upp í fjögur stig.

Erla ætlar að kæra nauðgunina

Erla Bolladóttir, einn sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, hefur ákveðið að kæra nauðgun í fangelsinu í Síðumúla árið 1976. Erla sat þá í gæsluvarðhaldi grunuð um að hafa átt þátt í að hafa myrt Guðmund Einarsson og Geirfinn Einarsson.

Mandela braggast

Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður Afríku, er allur að koma til eftir að hafa verið lagður inn á spítala á miðvikudag vegna þrálátrar sýkingar í lungum.

Latir unglingar áhyggjuefni

Hreyfingarleysi ungmenna er orðið samfélagsmein og foreldrar þurfa verulega að taka sig á til að breyta lífstíl barna sinna. Þetta segir skólameistari Fjölbrautarskóla Suðurlands.

Óttast um 83 námuverkamenn

Voru í fastasvefni þegar grjótskriða féll á vinnubúðir þeirra í nágrenni við Lhasa, höfuðborg Tíbets í gær.

Lýsa yfir stríði við Suður-Kóreu

„Kóreuríkin eiga nú í stríði og verður öllum samskiptum þeirra héðan í frá háttað eftir því," segir í yfirlýsingunni.

Ferðafólk getur fengið vöktun

Ferðamenn, innlendir sem erlendir í styttri sem lengri ferðum, hafa nú kost á því að láta fylgjast með að þeir skili sér úr ferðum sínum. Undanfarna mánuði hafa Slysavarnafélagið Landsbjörg og Neyðarlínan unnið að því að setja upp kerfi sem getur tekið við og vaktað ferðir ferðamanna.

„Þetta kemur Dögun ekkert við“

Margrét Sverrisdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, hefur enn ekki fengið greiddar 614 þúsund krónur, auk dráttarvaxta, sem flokkurinn var dæmdur til að greiða henni árið 2009. Margrét furðar sig á því að Dögun, sem Frjálslyndi flokkurinn er nú runninn inn í, skuli hafa ráð á að auglýsa fyrir komandi kosningar en hún sitji eftir án greiðslu.

Slitastjórnir hunsa Jóhönnu

Tilraunir Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra til að upplýsa um laun fjölmargra slitastjórna hafa engan árangur borið. Svo virðist sem krafa hennar um upplýsingarnar hafi verið hunsuð með öllu.

Veggjakrotsmálum fækkað um nær 90%

Veggjakrotsmálum sem tilkynnt hafa verið til lögreglu höfuðborgarsvæðisins hefur fækkað um nærri 90 prósent á sex árum. Alls voru 46 mál tilkynnt til lögreglu á síðasta ári, en 395 árið 2007.

Laga á stíginn upp á Esju

Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur fengið leyfi fyrir endurbótum á Esjustíg. Helgi Gíslason, framkvæmdastjóri Skógræktarfélagsins, segir vilja standa til þess að byrja að laga stíginn strax í sumar. Það ráðist þó af því hvernig gangi að safna styrkjum. Fjöldi fólks gengur á Þverfellshorn í Esju á ári hverju og segir Helgi það öryggisatriði að göngustígurinn verði sem best úr garði gerður.

Brot úr nýjustu mynd Baltasars komið á netið

Stikla úr myndinni 2 Guns hefur verið birt á YouTube. Það er Baltasar Kormákur sem leikstýrir myndinni en stórstjörnurnar Mark Wahlberg og Denzel Washington leika aðalhlutverkin.

Fjölmargir skelltu sér á skíði

Fjölmargir Íslendingar skelltu sér á skíði í dag enda var skíðafæri með besta móti um allt land. Hátt í fimmþúsund manns létu sig svífa niður snæviþaktar brekkurnar í Bláfjöllum. Þótt Hugrún J. Halldórsdóttir, fréttamaður á Stöð 2 og Vísi, hafi ekki haft færi á að renna sér í brekkunum í dag var hún samt stödd þar og smellti af nokkrum myndum.

Ekki talið að skjálftarnir séu undanfari eldgoss

Vel er fylgst með jarðhræringum sunnan við Langjökul og norð-norðaustur af Geysi í Haukadal. Jarðskjálftafræðingur á vakt hjá Veðurstofunni telur þó ekki að skjálftarnir séu undanfari goss. Hann staðfestir að stærsti skjálftinn hafi verið 3,5 stig en allir eftirskjálftarnir voru minni. Stóri skjálftinn varð rétt fyrir klukkan hálfsex.

Sjá næstu 50 fréttir