Innlent

Latir unglingar áhyggjuefni

Þessi tekur því rólega.
Þessi tekur því rólega. Mynd/Getty
Hreyfingarleysi ungmenna er orðið samfélagsmein og foreldrar þurfa verulega að taka sig á til að breyta lífstíl barna sinna. Þetta segir skólameistari Fjölbrautarskóla Suðurlands sem segir ungmenni orðin latari en áður og það sé áhyggjuefni.

Frumniðurstöður nýlegrar rannsóknar hjá íþrótta og heilsufræðideild Háskóla Íslands sýna að ungmenni sem fylgst var með á aldrinum níu og fimmtán ára og síðan aftur þegar þau voru 17 og 23 ára hreyfðu sig helmingi minna átta árum síðar. Þá hreyfir 23 ára einstaklingur sig jafn mikið og áttræður eldri borgari samkvæmt samanburði við aðra rannsókn.

Forsvarsmaður rannsóknarinnar Erlingur Jóhannsson prófessor í íþrótta og heilsufræði sagði foreldra ekki nógu meðvitaða um hreyfingu barnanna sinna. Grunnskólakerfið stæði sig en það væri áhyggjuefni að íþróttakennslu í framhaldsskólunum væri úthýst til einkarekinna heilsuræktarstöðva. Skólameistarar bæru þar megin ábyrgð. Skólameistari Fjölbrautarskóla Suðurlands er ekki sammála þessu og segir þetta form hafa hentað mörgum.

„Það eru auðvitað mjög breytilegt milli skóla með hvaða hætti hreyfing er útfærð en upp til hópa eru skólar að kenna íþróttir. Þetta er í lögum að nemandi á að ljúka átta einingum í líkamsrækt til stúdentsprófs til dæmis."

Allir séu skyldugir til að stunda hvers kyns hreyfingu á hverri önn. Eldri nemendur þurfi í sumum skólum ekki að mæta í tíma en þurfi þó að skila vottorði um íþróttaástundun til stúdentsprófs.

„Ég held þetta sé samfélagsmein, við förum mjög lítið um öðruvísi en í bíl."

Og það sé áhyggjuefni. Nemendur séu yfirleitt keyrðir upp að dyrum í og úr skóla. Foreldrar þurfi alvarlega að skoða lífstíl barna sinna.

„Nemendur eru kannski heilt yfir orðnir, ég veit það ekki, latari hreinlega. Þeir nenna þessu ekki og taka lyftuna þegar hún býðst. Heimilin þurfa virkilega að taka sig á, við getum ekki tekið þessa ábyrgð ein vegna þess að þetta gerist líka mjög mikið á heimilunum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×