Gripnir í glugga apóteks 31. mars 2013 00:00 Mynd úr safni.
Lögreglan hafði í nógu að snúast í nótt. Tveir voru gripnir glóðvolgir á miðnætti með poka fulla af góssi, skríðandi út um glugga apóteks í austurbænum, en þeir höfðu skömmu áður brotið rúðu þar og farið inn. Söngurinn í vælandi öryggiskerfinu vakti forvitni svefnvana vegfarenda sem gerði lögreglu viðvart. Gista þeir nú fangageymslu og bíða yfirheyrslu. Þá var einn gripinn við að fara inn í bíla í austurborginni með fulla vasa af sólgleraugum og öðrum lausamunum úr bifreiðum sem urðu á vegi hans. Hafði þessi séð sér leik á borði og gengið milli bifreiða og farið inn í þær sem voru ólæstar. Lögreglumenn ætluðu að hafa afskipti af ökumanni á Reykjanesbraut við Kópavog á fjórða tímanum í nótt. Ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og hófst eftirför þar sem ökumaðurinn ók í Hafnarfjörð og var síðar stöðvaður þar. Þá hafði ökumaðurinn ekið yfir gatnamót mót rauðu ljósi og ekki virt umferðarmerki eða stöðvunarmerki lögreglu. Ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og var hann að sýnatöku lokinni vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn máls. Einn var fluttur á slysadeild eftir umferðarslys sem varð á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar um klukkan níu í morgun en meiðsl hans eru ekki talin alvarleg. Slysið varð með þeim hætti að fólksbíl var ekið aftan á rútu og eru báðir bílarnir mikið skemmdir. Töluverður fjöldi skemmti sér á ísfirsku hátíðinni Aldrei fór ég Suður í gær og nótt og gekk skemmtanahald vel að sögn lögreglu.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira