Fleiri fréttir

Herinn kallaður út til að tryggja friðinn í Venesúela

Herinn hefur verið kallaður út í Venesúela í kjölfar andláts Hugo Chavez forseta landsins. Líkur eru taldar á óeirðum í kjölfar andlátsins og er hernum ætlað að tryggja friðinn þar til nýr forseti hefur verið kosinn.

Skutu á klúbbhús Bandidos

Byssumenn skutu fimmtán til tuttugu skotum að húsnæði Bandidos glæpasamtakanna í Hvidovre í Kaupmannahöfn í fyrrinótt. Engan sakaði en ekki er vitað hverjir voru þar að verki.

Hiti í kringum strætóstöðvar

Sett hefur verið fram áætlun um hitun umhverfis fimm af stærstu biðstöðvum Strætó í Reykjavík. Samkvæmt tillögu Ólafs Bjarnasonar samgöngustjóra borgarinnar verður byrjað á framkvæmdum við tvo staði á þessu ári; á Hringbraut við Félagsstofnun stúdenta og á Miklubraut við Kringluna.

Mugison býður sig fram á þing

„Er þetta ekki bara „pretty face“ á listanum?“ spyr Örn Elías Guðmundsson eða Mugison, sem tekur heiðurssæti á lista Bjartar framtíðar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. „Þetta er bara stuðningur við hópinn. Ef það gengur vel hefur maður efni á að leigja íbúð í bænum.“

Kvennabylting hjá bændum

Stjórn Bændasamtaka Íslands er í fyrsta skipti í sögu samtakanna skipuð konum í meirihluta. Þetta var ljóst eftir kosningar til stjórnar á Búnaðarþingi í gær.

Samkynhneigð hjón fá hæli

Samkynhneigð hjón frá Úganda hafa fengið hæli í Svíþjóð, en áður hafði öðrum manninum verið veitt hæli en hinum synjað um það.

Fleiri vilja að ríkið greiði listamannalaun

Rúmur helmingur landsmanna er andvígur því að ríkið greiði listamannalaun samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar MMR, en fækkað hefur í þeim hópi á síðustu árum.

Stefna um nýtingu landgæða

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2013-2024. Kveðið er á um slíka stefnu í skipulagslögum sem samþykkt voru á Alþingi haustið 2010.

Stefna um netöryggi Íslands verði tilbúin á næsta ári

Ekki liggur fyrir heildstæð stefna um netöryggi á Íslandi en stefnt er að því að ljúka því starfi á næsta ári. Viðbragðssveit hefur hafið störf og segir hópstjóri að ekki steðji meiri ógn að Íslandi en öðrum löndum.

Landlæknir skoðar sjálfsvíg á geðdeild

Tveir sjúklingar á geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri hafa svipt sig lífi á deildinni síðustu tvö ár. Síðara málið í skoðun hjá Landlækni. Tollur sem við verðum að greiða, segir forstöðumaður. Allt of mikið álag á geðdeildinni, segir lögreglan.

Matarmarkaður verði á Lækjartorgi í sumar

Verkefnahópur á vegum Reykjavíkurborgar leggur til að fjölbreyttur matarmarkaður verði á Lækjartorgi í sumar og að utanaðkomandi ráðgjafi komi á sambandi við sölumenn. Hópurinn sér Hlemm sem markaðshöll þegar Strætó hefur flutt.

Krefur Akranes um 64 milljónir í bætur

Mistök bæjaryfirvalda við auglýsingu skipulags varð til þess að gera þurfti nýtt deiliskipulag. Verktaki sem hugðist reisa hótel á Akranesi krefur bæinn bóta.

Var sagt að fara heim og bíða rólegur

Sigurður Valdimar Steinþórsson, íbúi á Húsavík, hefur glímt við alvarlegt þunglyndi í tvö ár. Hann gagnrýnir geðheilbrigðiskerfið á Norðurlandi harðlega og segir ekkert gert fyrir fólk í vanda.

Votta Chavez virðingu sína

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og Ban Ki-moon, ritari Sameinuðu þjóðanna, hafa vottað fjölskyldu Hugo Chavez og öðrum í Venesúela virðingu sína.

Gæti orðið glórulaus bylur undir Eyjafjöllum

Undir Eyjafjöllum og í Mýrdal er spáð hríðarveðri seint í kvöld og áfram í fyrramálið. A 15-20 m/s og síðar 20-25 m/s og því gætir orðið glórulaus bylur á þeim slóðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni í kvöld.

Traust á Alþingi og bankakerfi minnst

Almenningur á Íslandi ber mest trausts til Landhelgisgæslunnar en nær níu af hverjum tíu svarendum ber mikið traust til hennar. Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Capacent.

Hugo Chavez látinn

Forseti Venesúela, Hugo Chavez, er látinn eftir tveggja ára baráttu við krabbamein. Varaforseti Venesúela greindi frá þessu í sjónvarpsávarpi í kvöld. Þar með er fjórtán ára veru Chavez í forsetastól Suður-Ameríkulandsins á enda.

Ofbeldisatvikum fækkað um helming

"Í heild er ljóst að flutningurinn hefur leitt til bættrar aðstöðu fyrir sjúklinga, starfsfólk og aðstandendur,“ segir í svari velferðarráðherra við fyrirspurn um flutning réttargeðdeildar frá Sogni að Kleppi.

Fiskur út um allt

Á annan tug fiskikara féllu af flutningabíl við Sægarða í austurhluta Reykjavíkur síðdegis í dag. Körin féllu af flutningabíl Ragnars og Ásgeirs í Snæfellsbæ. Engin slys urðu á fólki.

Bólusetning við HPV nær ekki til samkynhneigðra karla

Tuttugu Íslendingar greinast árlega með krabbamein í munni sem myndast hefur af völdum HPV-sýkingar og eru karlar þar í meirihluta. Hægt er að bólusetja drengi gegn veirunni og hófu Ástralar að gera það þeim að kostnaðarlausu í ár.

Ekkert bólar á símtalinu fræga

Fjárlaganefnd Alþingis hefur enn ekki fengið afrit af símtali Davíðs Oddssonar, þáverandi Seðlabankastjóra og Geirs H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, um risa lánveitingu til Kaupþings árið 2008. Formaður nefndarinnar er ósáttur við þá töf sem orðið hefur í málinu.

Kemur til greina að fresta öllum breytingum nema einni

Til greina kemur að fresta öllum breytingum á stjórnarskránni nema einni fram á næsta kjörtímabil. Þetta var meðal þess sem var rætt á fundi formanna stjórnmálaflokkanna á Alþingi í dag. Engin niðurstaða liggur þó fyrir en áfram verður fundað um málið á næstu dögum.

Slæm hugmynd að breyta lífeyriskerfinu

"Ég held að það sé ekki góð hugmynd,“ segir forseti ASÍ um hugmyndir um að lífeyrir ætti að fara í gegnum almannatryggingakerfið í stað núverandi kerfis.

Júlíus einn á sjó

Slæmt veður á Vestfjarðamiðum undanfarna daga hefur gert það að verkum að nánast öll skip á svæðinu liggja við bryggju.

Bedi dæmdur í allt að níu ára fangelsi - Helga bíður dóms

Vicram Bedi var í dag dæmdur í allt að níu ára fangelsi fyrir að svíkja 20 milljónir dala, eða 2.5 milljarða, af bandarískum auðkýfingi ásamt Helgu Ingvarsdóttur, íslenskri unnustu sinni. Dómur yfir Helgu verður kveðinn upp þann 23. apríl næstkomandi. Þau höfðu bæði játað brot sín.

Bailey O'Neill var fórnarlamb eineltis

Tólf ára gamall piltur í Bandaríkjunum, Bailey O'Neill, lést á spítala í Philadelphia á sunnudaginn. Hann var fórnarlamb eineltis. Fyrr á þessu ári varð Bailey fyrir fólskulegri árás bekkjarsystkina sinna. Hann hlaut alvarlegan heilahristing og ákváðu læknar í borginni að halda honum sofandi, allt þangað til að hann lést fyrr í dag.

Golf langbakur

Frumsýndur í Genf í dag. Farangursrými eykst um 120 lítra frá fyrri gerð.

Mikael Torfason verður ritstjóri við hlið Ólafs

Mikael Torfason mun taka við starfi ritstjóra á Fréttablaðinu við hlið Ólafs Stephensen núverandi ritstjóra Fréttablaðsins. Sigríður Dögg Auðunsdóttir blaðamaður hefur verið ráðin ritstjóri Fréttatímans í stað Mikaels við hlið Jónasar Haraldssonar. Í tilkynningu frá Fréttatímanum segir að Sigríður Dögg hafi tekið virkan þátt í þróun og eflingu Fréttatímans undanfarið ár sem hafi skilað auknum lestri og ánægju með blaðið en lestur Fréttatímans hafi aukist, samkvæmt lestrarkönnunum Gallup.

Segir deiluna ekki við sig heldur fagfólk SÁÁ

Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, segir það ekki rétt að hann eigi sérstaklega í samstarfsörðugleikum við Kvenfélag SÁÁ, en félagið hefur boðað að þær hyggist leggja það niður í núverandi mynd og stofna nýtt félag fyrir utan SÁÁ. Ástæðan sem þær gefa upp í tilkynningu eru samstarfsörðugleikar við formann SÁÁ, Gunnar Smára.

Ferðaklúbburinn 4x4 30 ára

Þrjú þúsund félagar - Skáli í eigu klúbbsins - Skipulagðar ferðir - Jeppasýningar - Félagslíf.

Halldór í Holti hættur: Ég er hryggur

Halldór Gunnarsson í Holti sem verið hefur formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Rangárvallasýslu hefur sagt sig úr Sjálfstæðisflokknum. Halldór segir flokkinn hafa brugðist og hann hafi gengið hryggur af síðasta landsfundi. Flokkurinn sé ekki reiðubúinn að koma til móts við heimilin í landinu sem orðið hafa fyrir miklu eignatjóni eftir hrun.

Segir ekkert pláss fyrir kvenfélagið innan SÁÁ

Það er dálítið djúpt á þessu, við erum ekki alveg búnar að átta okkur á andstöðunni,“ segir Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, sem ásamt sjö öðrum konum vinna að stofnun nýs félags, sem hefur fengið nafnið Rótin – félag um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda. Þarna vísar Ilmur í átök kvennanna við formann SÁÁ. Félagið, sem til stendur að stofna fyrir utan SÁÁ, hét áður kvenfélag SÁÁ.

Ríkustu einstaklingar jarðar kynntir

Tímaritið Forbes hefur birt árlegan lista sinn yfir auðugustu einstaklinga veraldar. Sem fyrr er listinn með eindæmum áhugaverður enda eru upphæðirnar stjarnfræðilegar.

Sigríður Dögg ritstjóri Fréttatímans við hlið Jónasar

Sigríður Dögg Auðunsdóttir hefur verið ráðin ritstjóri Fréttatímans við hlið Jónasar Haraldssonar. Mikael Torfason hefur látið af störfum. Sigríður Dögg hefur starfað í fjölmiðlum frá árinu 1999 þegar hún hóf störf á Morgunblaðinu. Hún var fréttaritari blaðsins í London um skeið og vann við fjölmiðla þar í landi fram til ársins 2004 þegar hún hóf störf á Fréttablaðinu. Þar hlaut hún viðurkenningu fyrir skrif sín, meðal annars um einkavæðingu bankanna. Hún stofnaði eigið vikublað, Krónikuna, árið 2007, sem var yfirtekið af útgáfufélagi DV síðar það ár og var hún aðstoðarritstjóri DV fram til ársins 2008.

Varað við mannskæðum snjóflóðum

Veðurstofan varar ferðafólk utan alfaraleiða við snjóflóðum, sem gætu reynst mannskæð, en hvergi er alvarleg snjóflóðahætta í byggð.

Heildarendurskoðun á almannatryggingum

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp sem felur í sér heildarendurskoðun á almannatryggingalöggjöfinni og grundvallarbreytingar á réttindum ellilífeyrisþega. Meginmarkmiðið er að einfalda löggjöfina, skýra betur réttindi lífeyrisþega og styrkja stöðu aldraðra.

Sjá næstu 50 fréttir