Heildarendurskoðun á almannatryggingum 5. mars 2013 12:04 Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp sem felur í sér heildarendurskoðun á almannatryggingalöggjöfinni og grundvallarbreytingar á réttindum ellilífeyrisþega. Meginmarkmiðið er að einfalda löggjöfina, skýra betur réttindi lífeyrisþega og styrkja stöðu aldraðra.Starfshópur um endurskoðun almannatryggingalaga vinnur áfram að breytingum vegna þeirra sem eru með skerta starfsgetu. Hópurinn var skipaður í október 2009 og falið að gera tillögur um nýskipan almannatrygginga og er frumvarp ráðherra byggt á niðurstöðum hans. Með breytingunum nú verða lög um almannatryggingar og lög um félagslega aðstoð sameinuð. Í frumvarpinu er skýrt kveðið á um markmið almannatrygginga með skírskotun til 76. gr. stjórnarskrárinnar sem kveður á um að í lögum skuli tryggður réttur allra sem þess þurfa „til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis og sambærilegra atvika." Þetta er nýmæli en í gildandi almannatryggingalöggjöf skortir ákvæði um tilgang hennar og markmið. Í frumvarpinu er rík áhersla lögð á skýra framsetningu og einföldun löggjafarinnar sem auki gagnsæi og auðveldi fólki að gera sér grein fyrir réttindum sínum og skyldum. Samhliða þessu frumvarpi leggur ráðherra fram sérstakt frumvarp til laga um slysatryggingar sem eru hluti af gildandi almannatryggingalögum. Verði frumvörpin að lögum er áætluð gildistaka þeirra 1. júlí 2013. Breytingar með nýju frumvarpi eru fjölmargar en þær stærstu snúa að réttindum ellilífeyrisþega og felast í sameiningu bótaflokka gjörbreyttum og einfölduðum reiknireglum um útreikning bóta vegna tekna þar sem dregið er úr tekjutenginum, samhliða því að frítekjumörk verða afnumin. Almennt munu greiðslur almannatrygginga til ellilífeyrisþega hækka í kjölfar breytinganna. Af þeim breytingum sem frumvarpið felur í sér eru þessar helstar: · Bótaflokkarnir ellilífeyrir, tekjutrygging og heimilisuppbót eru sameinaðir í einn flokk. · Í stað mismunandi áhrifa tekna til lækkunar á ellilífeyri munu allar tekjur ellilífeyrisþega hafa sömu áhrif. Miðað er við að ellilífeyrir skerðist um 45% af tekjum lífeyrisþega hvort sem um er að ræða atvinnutekjur, lífeyrissjóðstekjur eða fjármagnstekjur auk þess sem öll frítekjumörk verða afnumin. · Verulega verður dregið úr áhrifum tekna á uppbót vegna framfærslu sem nú er greidd þeim elli- og örorkulífeyrisþegum sem eru hvað tekjulægstir. Í gildandi kerfi lækkar uppbót þessi um krónu á móti krónu hafi lífeyrisþegi einhverjar tekjur. Með breytingunni er stefnt að því að einungis 45% tekna hafi áhrif á útreikning framfærsluuppbótar þegar breytingin hefur að tekið gildi að fullu árið 2017. Þessi breyting verður innleidd í áföngum. Miðað er við að hlutfallið lækki í 80% við gildistöku laganna, verði síðan tug lægra 1. janúar ár hvert til ársins 2016 og lækki loks niður í 45% 1. janúar 2017. · Mánaðarlegar lífeyrisgreiðslur verða framvegis greiddar eftir á, líkt og almennt gildir um launagreiðslur á vinnumarkaði, í stað fyrirframgreiðslu. Með þessu fær Tryggingastofnun ríkisins betri forsendur til að reikna út bótarétt og fjárhæðir bóta til hvers og eins og getur jafnframt stöðvað greiðslur tímanlega þegar skilyrði fyrir bótum eru ekki lengur uppfyllt. · Ítarleg ákvæði eru um málsmeðferð og stjórnsýslu, réttindi og skyldur borgaranna í tengslum við upplýsingagjöf sem tengjast útreikningum bóta og áhersla er lögð á leiðbeiningar- og upplýsingaskyldu sjórnvalda.
Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Fleiri fréttir Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Sjá meira