Fleiri fréttir

Þetta kostuðu framboðin

Illugi Gunnarsson eyddi mestu af frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins í prófkjöri flokksins í haust, eða tæplega fimm milljónum. Árni Páll Árnason eyddi mest hjá Samfylkingunni, eða um 770 þúsund krónum.

Þriðjungur ungabarna á foreldra í hjónabandi

Aðeins þriðjungur barna á Íslandi sem fæddist á liðnu ári átti foreldra í hjónabandi. Þetta hlutfall hefur haldist nokkuð stöðugt frá því um miðjan 10. áratug nýliðinnar aldar, að því er fram kemur í tölum Hagstofunnar.

Páll Heimisson neitaði sök

Páll Heimisson, sem hefur verið ákærður fyrir stórfelld umboðssvik, neitaði sök við fyrirtöku málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann er grunaður um að hafa misnotað kreditkort íhaldshóps Norðurlandaráðs, meðal annars í dýrum fataverslunum, skartgripabúðum og á veitingastöðum um allan heim.

Rúmlega 400 konur leituðu til Kvennaathvarfsins

Á nýliðnu ári dvöldu 200 gestir, konur og börn, í Kvennaathvarfinu í allt frá einum degi upp í í 213 daga, samkvæmt tölum frá Kvennaathvarfinu. Það vakti sérstaka athygli starfsmanna hve mörg börn dvöldu í athvarfinu, en þau voru 87 og dvöldu þar í að meðaltali 24 daga. Íbúafjöldi fór upp í 23 þegar mest lét en að meðaltali dvöldu 6 konur og 6 börn í athvarfinu á degi hverjum.

Verkvit Þjóðverja í hnotskurn

Sjöunda kynslóð Golf hefur lést um 100 kíló og akstureiginleikarnir batnað eftir því. Framleiddir hafa verið 30 milljón Golf bílar.

Norsk ferja með 258 farþega strandaði í nótt

Norska ferjan Kong Harald strandaði í Trollfjorden nálægt Lófóten í skömmu eftir miðnættið í nótt. Ferjan situr þar föst á grynningum en reyna á að ná henni á flot á háflóðinu á eftir.

Slapp ómeiddur þegar dráttarbíll valt

Ökumaður slapp ómeiddur þegar stór dráttarbíll með yfirbyggðum flutningavagni valt út af þjóðveginum í Kollafirði á Ströndum, sunnan við Hólmavík, í gærkvöldi. Þar var hálka og hvassviðri.

Stórt snjóflóð féll norðan við Dalvík

Stórt snjóflóð féll í Merkjagili norðan við Dalvík síðdegis í gær, en þar er engin byggð. Flóðið er metið upp á þrjú stig, en við slíkan styrk er mannvirkjum og fólki hætta búin.

Þingið ákærir Klaus forseta fyrir landráð

Efri deild tékkneska þingsins samþykkti í gær landráðaákæru á hendur forsetanum Vaclav Klaus. Klaus er sakaður um stjórnarskrárbrot með því að veita sex þúsund föngum sakaruppgjöf. Hann lætur af embætti á fimmtudag og sér ekki eftir neinu.

Styttist í alvarlegt slys með hverri mínútu

Formaður Rafiðnaðarsambandsins gagnrýnir seinagang við framkvæmdir á rafkerfi Vallarsvæðisins harðlega. Reynst geti stórhættulegt að nota heimilistæki fyrir vitlaus kerfi. Um 400 vélar sem Hringrás fargaði voru ekki skráðar í kerfið.

Tóku upp rósakál úr garðinum í vikunni

Arnar Tómasson tók upp rósakál úr garðinum sínum um helgina. Kálið hafði lifað frá því síðasta sumar. Garðyrkjufræðingur segir kálið ekki einsdæmi, fjölmörg dæmi séu um svipað vegna þess hversu mildur og frostlaus veturinn hefur verið.

Tími stóru málanna á þingi runninn út

Sjö fundardagar eru eftir á starfsáætlun Alþingis. Þingflokkar hafa fundað um vendingar í stjórnarskrármáli eftir yfirlýsingar formanns Samfylkingarinnar. Samningar um þinglok ekki hafnir. Líklegast samið um nokkur smærri mál.

Árborg vill reka eigin skólaþjónustu

Bæjarstjórn Árborgar hefur ákveðið að segja sveitarfélagið úr samstarfi um Skólaskrifstofu Suðurlands og fella sérfræðiþjónustu sem þar er veitt inn í eigið stjórnkerfi.

Vill fagna komu björgunarskipa

„Þótt það séu byssur þarna um borð þá eru þetta náttúrulega fyrst og síðast björgunarskip,“ segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sem mun í dag leggja fram tillögu í borgarstjórn um að Reykjavíkurborg bjóði erlend björgunarskip velkomin. „Ég veit ekki hvenær Danir hleyptu síðast af byssu – það hefur sennilega verið í seinni heimsstyrjöldinni.“

Örtröð í afgreiðslu sýslumanns

Gríðarlegar annir voru í gær hjá Sýslumanninum í Kópavogi í kjölfar breyttra reglna um gildistíma vegabréfa sem embættið annast útgáfu á.

Náið fylgst með snjóflóðahættu

Veðurstofan spáir áframhaldandi norðaustan hvassviðri eða stormi í dag og að líkum næstu daga. Vindur verður í dag 15 til 25 metrar á sekúndu, hvassast verður norðan- og vestan til. Hitastig getur farið í mínus tíu gráður.

Komnir yfir 100.000 tonnin

Síldarvinnslan hefur tekið á móti rúmlega 108 þúsund tonnum af loðnu á yfirstandandi vertíð en til viðbótar voru fjögur skip á landleið með góðan afla.

Segir vinnu eftir hrun skýra minnsta fylgi Samfylkingar frá stofnun

Samfylkingin hefur ekki mælst með jafn lágt fylgi og hún mælist með núna í rúm 13 ár, eða nánast frá stofnun flokksins. Í desember 1999 mældist flokkurinn með 14 prósenta fylgi, en hefur í tveimur skoðanakönnunum fyrir helgi mælst með 12,8 prósent. Varaformaður flokksins telur að þetta megi rekja til erfiðra verkefna sem flokkurinn hafi þurft að fylgja úr hlaði í ríkisstjórn eftir bankahrunið.

Sætustu dýr í heimi

Myndband sem sýnir bestu vini mannsins í essinu sínu hefur farið sem eldur í sinu um netheima.

Spielberg dustar rykið af handriti Kubrick

Steven Spielberg ætlar að dusta rykið af handriti Stanley Kubrick um franska keisarann Napoleón Bónaparte. Kubrick lagði handritið á hilluna á áttunda áratugnum.

Svanur Valgeirsson yfir þróunarsviði 365 miðla

Svanur Valgeirsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Þróunarsviðs hjá 365 miðlum. Þetta kom fram í tilkynningu Ara Edwald, forstjóra 365 miðla, til starfsmanna fyrirtækisins í kvöld.

Mannfall við kosningar í Kenía

Að minnsta kosti fimmtán hafa látið lífið í árás gengja vopnuðum sveðjum í Kenía í dag. Kosið er til forseta í fyrsta skipti í sex ár.

Settu upp svið fyrir Muse á tveimur tímum

Í meðfylgjandi fimm mínútna myndbandi má sjá hvernig fimmtíu menn fóru að því að setja upp sviðið fyrir tónleika Muse á aðeins tveimur klukkustundum.

Flugvél Icelandair sveigði sjálfkrafa

Boeing 757 flugvél Icelandair, sem bilaði skömmu fyrir lendingu á Keflavíkurflugvelli á þriðjudaginn, sveigði skyndilega af stefnu. Frá þessu er greint á Ruv.is og vitnað í rannsókn Rannsóknarnefndar flugslysa.

Syrgðu fjölskylduna í Brooklyn

Mikill mannfjöldi kom saman í Brooklyn-hverfi í New York í dag til minningar um Glauber fjölskylduna sem lét lífið af völdum áreksturs í borginni í gær.

Act Alone, Eistnaflug og Skaftfell tilnefnd

Eyrarrósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar, verður veitt í níunda sinn þriðjudaginn 12. mars næstkomandi.

Vonskuveður á landinu | Vegurinn um Námaskarð lokaður

Á Norðurlandi er stórhríð og óveður og lítið ferðaveður. Útlit er fyrir áframhaldandi vonskuveður um landið norðanvert í kvöld. Víðast er mikið kóf og skafrenningur. Veginum um Námaskarð hefur verið lokað ótímabundið vegna umferðaóhapps.

Fékk á annað hundrað þúsund króna símreikning eftir netvafur

Íslendingur sem notaði snjallsíma í Bandaríkjunum til að fara á netið fékk á annað hundrað þúsund króna reikning fyrir um tuttugu mínútna notkun. Slík mál koma reglulega upp að sögn forstjóra Tals sem hvetur Íslendinga á faraldsfæti til að huga betur að internetstillingum í tækjum sínum.

Fordæmir matvælaframleiðendur

Formaður Bændasamtaka Íslands segir að þegar matvælaframleiðendur svindli í framleiðslu sinni séu þeir að svíkja tvo hópa, bændur og neytendur. Hann fordæmir vinnubrögð þeirra matvælaframleiðenda sem Matvælastofnun gerði athugasemdir við í síðustu viku.

Bullandi óánægja innan Sjálfstæðisflokksins

Fjölmennt var á fundi Sjálfstæðra Evrópusinna í húsnæði Sterkara Íslands við Síðumúla í Reykjavík í dag. Mikil óánægja er meðal ESB-sinna innan sjálfstæðisflokks eftir að Landsfundur flokksins ályktaði að hætta eigi viðræðum um aðild að ESB.

Undirbúa vantrauststillögu vegna stjórnarskrárfrumvarpsins

Þingmenn Hreyfingarinnar undirbúa vantrauststillögu á ríkisstjórnina útaf stjórnarskrárfrumvarpinu. Framtíð frumvarpsins kann að ráðast á fundi forystumanna stjórnmálaflokkanna á morgun. Þetta kom fram í kvöldfréttatíma Stöðvar 2 í kvöld.

Kvenskælingar gera góðverk

„Við hjá MND félaginu erum svo lánsöm að njóta aðstoðar þessara dugnaðarunglinga þriðja árið í röð," segir Guðjón Sigurðsson formaður MND-félagsins.

Útilokað að jörðin gleypi fólk á Íslandi

"Það er útilokað að jörðin opnist skyndilega hérna og gleypi eitthvað nema á jarðskjálftasvæðum ef menn eru óheppnir,“ segir jarðeðlisfræðingurinn Ari Trausti Guðmundsson.

Eðlilegt að kúka allt frá þrisvar á dag til þrisvar í viku

"Í flestum tilfellum beita menn þessu rétt og hugsa ekki mikið út í þetta. En þetta getur verið vandamál hjá börnum til dmæis með hægðatregðu og getur fylgt fólki út lífið,“ segir Einar Stefán Björnsson, prófessor í meltingarlækningum við Háskóla Íslands.

Sjá næstu 50 fréttir