Fleiri fréttir

Obama endurkjörinn

Barack Obama hefur verið endurkjörinn forseti Bandaríkjanna.

Obama spilaði körfubolta við Scottie Pippen

Barack Obama var mun afslappaðri en Mitt Romney áður en fyrstu tölur úr kosningunum voru lesnar upp í dag. Hann spilaði körfubolta með félögum sínum. Og það voru engir smá mótherjar sem hann fékk að spreyta sig á. Þar fór fremstur í flokki Scottie Pippen, sem lék með Chicago Bulls körfuboltaliðinu þegar Michael Jordan var upp á sitt besta. og Randy Brown sem einnig lék með Chicago Bulls. Aðrir sem fengu að spila með voru Arne Duncan, menntamálaráðherra Bandaríkjanna, og Giannoulias, fyrrverandi fjármálaráðherra í Illinois.

Spenna í Flórída í upphafi talningar

Barack Obama er með 51% fylgi í Flórída, þegar búið er að telja um þrjátíu og fimm prósent atkvæða. Flórída er eitt af tíu lykilríkjunum sem gefur 29 kjörmenn. Fyrirfram var talið að Mitt Romney hefði yfirburði í ríkinu. Mitt Romney er með 48% atkvæða.

Romney með sigurræðuna tilbúna

Mitt Romney, forsetaefni Repúblikanaflokksins, er sigurviss svo um munar. Von er á fyrstu tölum von bráðar en frambjóðandinn hefur nú þegar ritað sigurræðu sína.

„Ég er hálfgerður kosningafíkill“

"Frá fyrstu tíð hef ég talið að Obama muni sigra þessar kosningar og það hefur ekkert breyst." Þetta segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra.

Kosningasjónvarp CNN - bein útsending

Vísir verður með beina útsendingu í allt kvöld og í nótt frá forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Kosningasjónvarpi CNN verður streymt þar til niðurstöður verða skýrar undir morgun. Þá má einnig nálgast CNN á fjölvarpinu.

Sendiherra Íslendinga í Washington: Hátíðisdagur í Bandaríkjunum

"Þetta er hátíðisdagur, það er umfram allt það. Maður verður var við það allstaðar að það er kjördagur," segir Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. "Fyrir gamlan pólitíkus eins og mig er þetta dýrðardagur að upplifa," segir hann jafnframt. Hann bætir því þó við að hann hafi ekki hugmynd um það, fremur en nokkur annar, hvernig niðurstöðurnar verða.

Romney enn á fullu - Obama spilar körfubolta

Forsetaframbjóðendurnir tveir, Barack Obama og Mitt Romney, eru nú að setja sig í stellingar fyrir kvöldið enda má búast við fyrstu tölum á miðnætti - á sama tíma og kjörstaðir loka.

Greiddi atkvæði á leiðinni á fæðingardeildina

Hin 21 ára gamla Galicia Malone var staðráðin í að greiða atkvæði í forsetakosningunum í dag. Svo ákveðin var hún að barnsburður aftraði henni ekki frá því að koma við á kjörstað.

Herbert Guðmundsson talar um nýju ástina í lífinu

Það er Eurovision að þakka að ástin blómstrar hjá Herberti Guðmundssyni í dag. Þegar Eighties-smellurinn Can't Walk away kom út var kærastan hans, Lísa Dögg Helgadóttir, 5 ára en nú 26 árum seinna eru þau trúlofuð.

Tilfinningaþrungin stund í Iowa

Hátt í 20 þúsund manns fylgdust með Barack Obama, Bandaríkjaforseta, binda enda á kosningabaráttu sína í Des Moines í Iowaríki.

Fyrstu tölur á miðnætti - allt í beinni á Vísi

Forsetakosningar fara nú fram í Bandaríkjunum þar sem þeir Barack Obama sitjandi forseti og Mitt Romney berjast um eitt valdamesta embætti heims. Þrátt fyrir harða keppni eru flestir sérfræðingar á því að Obama fari með sigur af hólmi.

Björn Valur um Eir: Lítur út eins og skipulögð glæpastarfsemi

Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, vill að stjórnendur hjúkrunarheimilisins Eirar verði kærðir til lögreglu og segir að staða heimilisins sé ekki bara dæmi um tæra spillingu, heldur lítur út fyrir að um sé að ræða skipulagða glæpastarfsemi.

"Auðvitað líður mér ekki vel yfir þessu“

Stjórnarformaður Eirar segist miður sín yfir þeirri stöðu sem upp er kominn hjá félaginu en segist þó ekki ætla að víkja. Hann vissi af fjárhagserfiðleikum fyrir tæpu einu og hálfu ári en tókst ekki að bjarga málum.

Marshall aðstoðar í Bandaríkjunum

"Kjörsóknin er betri en búist var við, allavega í Norður-Karólínu, þar sem ég er. Þetta er að fara mjög vel af stað hérna,“ segir Róbert Marshall þingmaður sem nú er staddur í Bandaríkjunum við kosningaeftirlit vegna forsetakosninganna þar í landi.

Stuðningsmiðstöð fyrir börn opnuð í dag

Ný stuðningsmiðstöð fyrir börn með alvarlega, sjaldgæfa sjúkdóma og fjölskyldur þeirra opnaði í dag. Þessa miðstöð gaf þjóðin í söfnuninni Á allra vörum og var opið hús af því tilefni í dag. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra undirritaði viljayfirlýsingu um rekstur hússins eftir að söfnunarféð er uppurið, gospelkór Lindakirkju söng, undir stjórn Óskars Einarssonar og séra Vigfús Bjarni Albertsson blessaði húsið.

Skarphéðinn og Margrét ráðin dagskrárstjórar

Skarphéðinn Guðmundsson hefur verið ráðinn dagskrárstjóri RÚV. Umsækjendur fengu upplýsingar um þetta í dag. Skarphéðinn hefur starfað sem dagskrárstjóri Stöðvar 2 um árabil. Skarphéðinn leysir Sigrúnu Stefánsdóttur af hólmi en hún lét af störfum á dögunum vegna ágreinings við Pál Magnússon útvarpsstjóra.

582 þúsund ferðamenn sótt Ísland heim frá áramótum

Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 44.994 erlendir ferðamenn frá landinu í október síðastliðnum eða um sex þúsund fleiri en í sama mánuði árið 2011 samkvæmt tilkynningu sem Ferðamálastofan sendi frá sér.

Ferð Herjólfs fellur niður

Næsta ferð Herjólfs kl 17:30 fellur niður. Næsta ferð Herjólfs sem vera átti frá Vestmannaeyjum klukkan 17:30 og frá Landeyjahöfn kl. 19:00 fellur niður. Ástæðan er mikil ölduhæð í Landeyjahöfn, 3,0m og 2,8m, og rúmlega 20m/s vindhraði í hviðum.

Fimm sóttu um embætti dómara

Fimm sóttu um embætti dómara við Hæstarétt Íslands sem auglýst var laust til setningar frá 1. desember næstkomandi til 31. desember 2014. Fjórir umsækjendur eru konur en einn karlmaður.

Matarslagur í Hafnarfirði: "Við erum stolt af matnum okkar“

„Ég fagna umræðu um skólamáltíðirnar," segir Jón Axelsson, framkvæmdastjóri Skólamatar ehf., sem sér um að elda mat fyrir grunnskólanemendur, kennara og bæjarstarfsmenn í Hafnarfirði. Stjórn félags grunnskólakennara í Hafnarfirði er ósátt við ákveðinn tvískinnung sem viðgengst hjá bænum eins og Fréttablaðið greindi frá í dag.

Meta hættuna á eldgosi í nágrenni Hafnarfjarðar

Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hefur fundað með Haraldi Sigurðssyni eldfjallasérfræðingi vegna ummæla hans um hugsanleg eldgos ofan Hafnarfjarðar. Þetta kemur fram í svari Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra við fyrirspurn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi. Haraldur sagði að umbrot á Krýsuvíkursvæðinu í vor gætu hugsanlega leitt til eldgoss fyrir ofan Hafnarfjörð, í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn.

Sjúkradeildum lokað vegna rottugangs

Sýklafræðingar hafa verið kallaðir inn á Mansfield King´s Mill spítalann eftir að rottur fundust á spítalanum. Málið hefur orðið til þess að fresta þurfti nokkrum aðgerðum á spítalanum. Karen Thorlinson, yfirmaður á spítalanum, segir í samtali við Daily Mail að spítalinn sé stoltur af þjónustunni sem hann veitir og taki því málið grafalvarlega.

Magnúsi Orra bannað að auglýsa bókina sína

"Þetta snýst um það að frambjóðendur mega ekki kaupa sér auglýsingar,“ sagði Valgerður Guðjónsdóttir, formaður kjörstjórnar Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi en þeim tilmælum var komið til Magnúsar Orra Schram, þingmanns flokksins, að hann mætti ekki auglýsa bók sína og yrði það gert ógildir hann framboð sitt í prófkjöri Samfylkingarinnar í kjördæminu.

Hárkollukona í fimmtán mánaða fangelsi fyrir smygl

Erlend kona var í dag dæmd í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að smygla inn 670 grömmum af kókaíni inn til landsins. Hún mun hafa komið til landsins i byrjun ágúst síðastliðins með flugi frá Spáni, falin í pakkningu undir hárkollu sem samuð var við hár konunnar.

Kosning hafin í Bandaríkjunum.

Búist er við því að 120 milljónir Bandaríkjamanna gangi að kjörborðinu í dag. Þar taka þeir afstöðu til þess hvort þeir vilji hafa Barack Obama, núverandi forseta Bandaríkjanna, í forystu næstu fjögur árin eða fá Romney í staðinn. Skoðanakannanir sýna að staðan er jöfn. Fyrstu kjörstaðir opnuðu á austurhluta Bandaríkjanna og í miðvesturríkjunum um klukkan ellefu.

Upprættu kannabisræktun í Hafnarfirði

Kannabisræktun var upprætt í húsi í Hafnarfirði í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fann lögreglan 25 kannabisplöntur, auk græðlinga. Húsráðandi, karl um tvítugt, viðurkenndi aðild sína að málinu.

Tólf óku undir áhrifum - sú elsta var sextug

Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Lögreglan stöðvaði átta þeirra í Reykjavík, tveir voru í Kópavogi og einn í Hafnarfirði og einn í Mosfellsbæ.

Ævisparnaðurinn í hættu: Greinilega mjög alvarlegt mál

"Mín skoðun er sú að þetta eigi ekki að bitna að neinu leyti á þjónustu við íbúana á hjúkrunarheimilinu," segir Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara um þá grafalvarlegu stöðu sem er komin upp í hjúkrunarheimilinu Eir.

Gestir á Sigur Rós sektaðir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sektaði um hundrað ökumenn sem lögðu ólöglega við Laugardalshöllina síðasta sunnudag.

Systkinum verði ekki bannað að sofa saman

Einingarlistinn í Danmörku vill afnema bann við kynlífi milli systkina. Málið hefur vakið gríðarlega athygli í Danmörku og hafa nær allir stærstu fjölmiðlar fjallað um það. Samkvæmt löggjöfinni núna er kynlíf systkina ólöglegt og getur varðað tveggja ára fangelsi.

Putin rak varnarmálaráðherrann vegna spillingarmála

Vladimir Putin, forseti Rússlands, rak varnarmálaráðherrann sinn í morgun eftir að ráðuneyti hans flæktist inn í svikama´l. Sergei Shoigu, fyrrverandi orkumálaráðherra, tekur við varnarmálaráðuneytinu. Verið er að rannsaka hvort ráðuneytið hafi selt eignir sínar undir markaðsverði til valinkunnra einstaklinga. Putin segist hafa rekið ráðherrann til þess að hægt sé að láta fara fram hlutlausa rannsókn á málinu.

Tollurinn fann 35 þúsund steratöflur

Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hefur gert upptækar rúmlega 35 þúsund steratöflur og rúmlega 500 ambúlur sem fundust í farangri farþega sem kom til landsins frá Berlín aðfararnótt 27. október síðastliðins. Í Morgunblaðinu kemur fram að efnin fundust við reglulegt eftirlit tollvarða, en að sögn Kára Gunnlaugssonar, aðaldeildarstjóra hjá tollgæslunni, er um mikið magn af sterum að ræða. Manninum var sleppt eftir að efnin voru haldlögð.

Búist við hörðum mótmælum í Aþenu

Fjörtíu og átta klukkustunda allsherjarverkfall hefst í Grikklandi í dag, en þá verður nýjum niðurskurðarhugmyndum ríkisstjórnarinnar mótmælt. Mótmælagöngur verða farnar um miðborg Aþenu en hingað til hafa þær endað með átökum milli almennings og lögreglumanna. Niðurskurðartillögurnar snúast um að skerða heilbrigðisþjónustu, lækka opinber laun og eftirlaun og hækka eftirlaunaaldur. Þingið mun greiða atkvæði um tillögurnar á morgun.

Slasaðist við BSÍ

Erlend ferðakona slasaðist þegar hún var að stíga út úr rútubíl við BSÍ á ellefta tímanum í gærkvöldi. Hún var flutt á slysadeild þar sem gert var að sárum hennar, sem ekki reyndust meiriháttar. Önnur kona slapp líka vel þegar hún varð fyrir bíl við Hrafnistu í Hafnarfirði á tólfta tímanum í gærkvöldi. Hún fékk kúlu á höfuðið en taldi ekki nauðsyn á að leita til læknis.-

Strandsiglingar hefjist á ný

Stefnt er að því að hefja strandsiglingar umhverfis landið á ný, eftir margra ára hlé, að því er kom farm í svari Ögmundar Jónasssonar innanríkisráðherra við fyrirspurn á Alþingi í gær. Málið er nú til umsagnar hjá eftirlitsstofnun EFTA, en stefnt er að nokkurra ára tilraunaverkefni. Ögmundur sagðist vonast til að hægt verði að bjóða verkefnið út upp úr áramótum, en stefnt er að því að skip sigli einu sinni í viku umhverfis landið með viðkomu á mörgum höfnum í öllum landshlutum. Vonast er til að þessi flutningamáti muni létta á þungaflutningum um þjóðvegina.-

Enn skelfur jörð við Siglufjörð

Fimm jarðskjálftar yfir tveimur stigum mældust norðaustur af Siglufirði í gær og fyrradag. Sá snarpasti var 2,6 stig okg síðan haf margir vægari mællst. Skjálftahrynunni á þessu svæði virðist því hvergi nærri lokið. Þessa stundina er jákvæðu fréttirnar að upptökin eru norðaustur af Siglufirði, en ekki út af Gjögurtá, sem gæti verið fyrirboði frekari tíðinda.-

Bítill styður Obama

Það er gömul hefð að þegar kosið er birta þekktir leikarar, íþróttamenn, söngvarar og aðrir Bandaríkjamenn opinberlega skilaboð um stuðning sinn við einhvern tiltekinn frambjóðenda. Nú í ár hafa til dæmis leikararnir Samuel L. Jackson og Crish Rock sett myndskeið á YouTube þar sem þeir hvetja almenning til að kjósa Barack Obama. Það er óalgengara að útlendingar hvetji almenning til að kjósa á einn eða annan hátt. Það gerði aftur á móti breski Bítillinn Paul McCartney í gær þegar hann hvatti Bandaríkjamenn til að kjósa Obama.

Grundarfjörðurinn fullur af síld

Síldveiðar eru byrjaðar af fullum krafti eftir bræluna, og er veiðin nú mun líflegri en fyrir bræluna. Skipstjóri, sem fréttastofan ræddi við í morgun þakkar það því, að sjávarhitinn hafi lækkað um tvær gráður í óveðrinu og þá leiti síldinn í ríkari mæli inn í fjörðinn. Hann sagði að Grundarfjörðurinn hafi verið smekk fullur af síld í gær og öll skip fengið góðan afla. Verið er að vinna úr þeim afla um borð í vinnsluskikpunum, en veiðin sjálf er aðseins stunduð í björtu.-

Obama mun sigurstranglegri

Komið er að úrslitastund í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Barack Obama þykir líklegri til að hrósa sigri, en Mitt Romney heldur enn í vonina. Stjórnmálafræðingur spáir hörðum deilum á komandi árum.

Lækka kröfurnar ef ráðuneyti krefst þess

Viðskiptaháskólinn í Kaupmannahöfn hafnar ásökunum um mismunun á grundvelli tungumála. Hann muni þó breyta skilyrðum sínum ef yfirvöld ytra úrskurði um slíkt. Íslenskur nemi er tilbúinn að leita réttar síns fyrir dómi.

Sjá næstu 50 fréttir