Innlent

Fjöldi fólks á kosningavöku á Hilton

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Luis E. Arreaga sendiherra Bandaríkjanna er í veislunni.
Luis E. Arreaga sendiherra Bandaríkjanna er í veislunni.
Gríðarlegur fjöldi fólks er saman kominn á Hilton Nordica hótel þar sem kosningavaka bandaríska sendiráðsins fer fram.

Á meðal þeirra sem hafa látið sjá sig eru Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Hannes Hólmsteinn Gissurarson samstarfsmaður hans. Einnig Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður, þau Ragnheiður Elín Árnadóttir og Illugi Gunnarsson þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Skúli Helgason og Magnús Orri Schram þingmenn Samfylkingarinnar og Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Bjartrar framtíðar. Þingmenn Framsóknarflokksins, þeir Gunnar Bragi Sveinsson og Ásmundur Einar Daðason, létu sig heldur ekki vanta. Þá eru Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir, eigendur World Class, stödd þar.

Að sjálfsögðu er gestgjafinn sjálfur, Luis E. Arreaga sendiherra, staddur á staðnum. Sendiráðið býður til veislunnar í hvert skipti sem forsetakosningar fara fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×