Innlent

Stuðningsmiðstöð fyrir börn opnuð í dag

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Við opnun stuðningsmiðstöðvarinnar.
Við opnun stuðningsmiðstöðvarinnar.
Ný stuðningsmiðstöð fyrir börn með alvarlega sjaldgæfa sjúkdóma og fjölskyldur þeirra opnaði í dag. Þessa miðstöð gaf þjóðin í söfnuninni Á allra vörum og var opið hús af því tilefni í dag. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra undirritaði viljayfirlýsingu um rekstur hússins eftir að söfnunarféð er uppurið, gospelkór Lindakirkju söng, undir stjórn Óskars Einarssonar og séra Vigfús Bjarni Albertsson blessaði húsið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×