Innlent

„Ég er hálfgerður kosningafíkill“

„Frá fyrstu tíð hef ég talið að Obama muni sigra þessar kosningar og það hefur ekkert breyst." Þetta segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra.

Eins og svo margir aðrir mun Össur fylgjast náið með gangi mála í Bandaríkjunum í kvöld. Kjörstaðir loka á miðnætti og stuttu eftir það er von á fyrstu tölum.

„Ég er hálfgerður kosningafíkill," segir Össur. Hann er sannfærður um að Obama muni fara með sigur af hólmi. „Obama fylgir sömu möntru og Clinton, það er að, að hvetja fólk til að skrá sig og kjósa. Hann hefur forystu í Ohio, þessu lykilríki sem kristallar í raun kosningabaráttuna."

Össur hefur hitt Obama nokkrum sinnum. Hann segir forsetann hafa mikla persónutöfra.

„Obama virðist oft á tíðum vera örlítið fjarlægur, sérstaklega í kappræðum og sjónvarpi. En persónutöfrarnir geisla af honum í návígi."

En hvað með keppinautinn?

„Mitt Romney var gagnrýndur af demókrötum fyrir að skipta um skoðanir á hinum ýmsu málum. Hann var frjálslyndur ríkisstjóri í Massachusetts, síðan fór hann yst á hægri væng Repúblikanaflokksins og nú er hann aftur kominn á miðjuna."

„Romney stóð sig síðan vel í kosningunum, var forsetalegur," segir Össur og bætir við: „Hann er ekkert illmenni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×