Innlent

Gestir á Sigur Rós sektaðir

Sigur Rós.
Sigur Rós.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sektaði um hundrað ökumenn sem lögðu ólöglega við Laugardalshöllina síðasta sunnudag.

Ökumennirnir, sem voru auðvitað grunlausir um iðna lögregluna fyrir utan höllina, voru á vel heppnuðum lokatónleikum hljómsveitarinnar Sigur Rós á Iceland Airwaves hátíðinni.

Bílarnir fyrir utan Laugardalshöllina.
Í tilkynningu frá lögreglu segir að að nóg hafi verið af stæðum bæði við Laugardalsvöll og Skautahöllina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×