"Auðvitað líður mér ekki vel yfir þessu“ Andri Ólafsson skrifar 6. nóvember 2012 18:43 Stjórnarformaður Eirar segist miður sín yfir þeirri stöðu sem upp er kominn hjá félaginu en segist þó ekki ætla að víkja. Hann vissi af fjárhagserfiðleikum fyrir tæpu einu og hálfu ári en tókst ekki að bjarga málum. Mynd/Stöð 2
Stjórnarformaður Eirar segist miður sín yfir þeirri stöðu sem upp er kominn hjá félaginu en segist þó ekki ætla að víkja. Hann vissi af fjárhagserfiðleikum fyrir tæpu einu og hálfu ári en tókst ekki að bjarga málum. Fjárhagsstaða Eirar er afar slæm eins og Stöð 2 hefur greint frá síðustu daga. Átta milljarða skuldir, neikvætt eigið fé, veðsett hjúkrunarheimili og ævisparnaður nokkur hundruð gamalmanna mögulega horfinn. Hvernig gat þetta gerst spyrja margir. Ein af ástæðunum eru nýbyggingar í Grafarvogi sem voru byggðar á árunum eftir hrun. Þegar flest allir sýndu aðhald í rekstri héldu Eirar menn ótrauðir áfram á lánum sem síðan hafa snarhækkað. Reksturinn hefur í raun verið í uppnámi um nokkurt skeið þó vandinn sé aðeins nýkominn upp á yfirborðið. Til dæmis tapaði Eir um 900 milljónum á árunum 2010 og 2011 samkvæmt ársreikningi sem fréttastofa hefur undir höndum. En það var einmitt árið 2011 sem fyrstu merki þess sjást að stjórnendur séu meðvitaðir um vandann. Það var í ágúst 2011 sem þáverandi framkvæmdastjóri, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, og fjármálastjórinn gerðu fjárhagsáætlun til að bregðast við vandanum til næstu 16 mánaða. Fréttastofan er með þessar áætlanir undir höndum og þær ganga í stuttu máli út á að selja einn íbúðarétt, fyrir 32 milljónir, á mánuði í 16 mánuði. Þannig átti að fá 512 milljónir. Og að gera tvo leigusamninga á mánuði sem myndu færa Eir um tvær fimm milljóna eingreiðslur. Þannig átti að fá 160 milljónir. Og því samtals 662 milljónir í aukatekjur á 16 mánuðum.. Til marks um það hversu slæm staðan er þá skal tekið fram að ef þessir bjartsýnu áætlanir hefðu gengið eftir, sem þær gerðu alls ekki, hefði Eir samt sem áður tapað einni og hálfri milljón á hverjum einasta mánuði. Í síðustu fundargerð stjórnar Eirar, sem fréttastofa hefur einnig undir höndum, kemur fram að fjármálastjórinn sendi í ágúst 2011 þáverandi framkvæmdastjóra, það er að segja Vilhjálmi Þ., tölvupóst þar sem bent er á alvarleika málsins ef t.d. forsendur þessara útreikninga mundu bregðast sem svo sannarlega varð raunin. Þrátt fyrir þetta segir stjórnarformaðurinn og fyrrverandi framkvæmdastjóri að staðan eins og hún birtist nú komi á óvart. Vilhjálmur gagnrýnir endurskoðendur Eirar fyrir að hafa ekki gert athugasemdir við reksturinn. Hann stakk raunar upp á því á síðasta stjórnarfundi að Ríkisendurskoðun myndi rannsaka síðustu ár hjá Eir og leita skýringa. Ríkisendurskoðun hafnaði þeirri beiðni í dag, segir það ekki sitt hlutverk. Vilhjálmur segist miður sín yfir þeirri stöðu sem upp er kominn en segist fullviss um að hægt sé að leysa málið þannig að íbúðarétthafar tapi ekki peningum. „Auðvitað líður mér ekki vel um þá stöðu sem er komin upp - við höfum brugðist við þessu af fullum krafti. Það er hægt að leysa þetta af góðum vilja þannig að sú lausn geti sum sé vonandi tryggt að íbúðareigendur verði ekki fyrir skaða - ég vil vera bjartsýnn á að okkur takist það," segir Vilhjálmur.
Tengdar fréttir Ævisparnaðurinn í hættu: Greinilega mjög alvarlegt mál "Mín skoðun er sú að þetta eigi ekki að bitna að neinu leyti á þjónustu við íbúana á hjúkrunarheimilinu," segir Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara um þá grafalvarlegu stöðu sem er komin upp í hjúkrunarheimilinu Eir. 6. nóvember 2012 10:46 Vilja að Ríkisendurskoðandi rannsaki Eir Staðan á Eir hjúkrunarheimilinu er afar slæm. 2. nóvember 2012 21:42 Funda í dag um alvararlega fjárhagsstöðu Eirar Stjórn Eirar fundar í dag með íbúum um slæma fjárhagsstöðu félagsins. Íbúum hefur verið skipaður lögmaður til að gæta hagsmuna þeirra í þeim samningaviðræðum sem framundan eru. 5. nóvember 2012 12:05 Áttræður íbúi á Eir sér fram á missa ævisparnaðinn Áttræður íbúi á hjúkrunarheimilinu Eir sér fram á að missa ævisparnaðinn ef félagið verður gjaldþrota. Honum brá þegar hann heyrði hversu slæm staða félagsins var og vill fá svör við því hvernig svona gat farið. 4. nóvember 2012 19:33 Alvarlegir fjárhagserfiðleikar hjá Eir Hjúkrunarheimilið Eir er í miklum rekstrarvanda. Stjórn þess hefur fengið utanaðkomandi sérfræðinga til þess að fara yfir reksturinn og leggja fram tillögur til að koma í veg fyrir að félagið fari í þrot. 1. nóvember 2012 18:31 Villi er sagður hafa leynt upplýsingum Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eirar og núverandi stjórnarformaður, er sagður hafa leynt upplýsingum um slæma fjárhagsstöðu hjúkrunarheimilsins. Það hafi gert það að verkum að vandamálið uppgötvaðist mun seinna en ella. 5. nóvember 2012 18:30 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira
Ævisparnaðurinn í hættu: Greinilega mjög alvarlegt mál "Mín skoðun er sú að þetta eigi ekki að bitna að neinu leyti á þjónustu við íbúana á hjúkrunarheimilinu," segir Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara um þá grafalvarlegu stöðu sem er komin upp í hjúkrunarheimilinu Eir. 6. nóvember 2012 10:46
Vilja að Ríkisendurskoðandi rannsaki Eir Staðan á Eir hjúkrunarheimilinu er afar slæm. 2. nóvember 2012 21:42
Funda í dag um alvararlega fjárhagsstöðu Eirar Stjórn Eirar fundar í dag með íbúum um slæma fjárhagsstöðu félagsins. Íbúum hefur verið skipaður lögmaður til að gæta hagsmuna þeirra í þeim samningaviðræðum sem framundan eru. 5. nóvember 2012 12:05
Áttræður íbúi á Eir sér fram á missa ævisparnaðinn Áttræður íbúi á hjúkrunarheimilinu Eir sér fram á að missa ævisparnaðinn ef félagið verður gjaldþrota. Honum brá þegar hann heyrði hversu slæm staða félagsins var og vill fá svör við því hvernig svona gat farið. 4. nóvember 2012 19:33
Alvarlegir fjárhagserfiðleikar hjá Eir Hjúkrunarheimilið Eir er í miklum rekstrarvanda. Stjórn þess hefur fengið utanaðkomandi sérfræðinga til þess að fara yfir reksturinn og leggja fram tillögur til að koma í veg fyrir að félagið fari í þrot. 1. nóvember 2012 18:31
Villi er sagður hafa leynt upplýsingum Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eirar og núverandi stjórnarformaður, er sagður hafa leynt upplýsingum um slæma fjárhagsstöðu hjúkrunarheimilsins. Það hafi gert það að verkum að vandamálið uppgötvaðist mun seinna en ella. 5. nóvember 2012 18:30