Fleiri fréttir

Segir mannorð sitt eyðilagt

Steinar Aubertsson, sem sætir ákæru fyrir að hafa skipulagt smygl á 570 grömmum af kókaíni til Íslands, segir ákæruna til þess ætlaða að eyðileggja mannorð hans. Við aðalmeðferðina í gær sagði hann að ákæruvaldið ætti að skammast sín.

Meira en 40 veik börn á listanum

Stuðningsmiðstöð fyrir fjölskyldur og aðstandendur barna með sjaldgæfa og alvarlega sjúkdóma verður opnuð við hátíðlega athöfn í dag. Miðstöðin var stofnuð fyrir féð sem safnaðist í átakinu Á allra vörum.

Fyrsta húsið friðað í Kópavogi

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur samþykkt tillögu Húsafriðunarnefndar um að friða gamla Kópavogsbæinn á Kópavogstúni. Bæjarstjórn Kópavogs ákvað nýverið að hefja undirbúning að nauðsynlegum lagfæringum á húsinu, sem er það fyrsta í Kópavogi sem er friðað.

Stóra stundin að renna upp

Frambjóðendurnir í bandarísku forsetakosningunum gerðu víðreist í gær, á lokadegi formlegrar kosningabaráttu þeirra. Skoðanakannanir benda til þess að Obama forseti hafi naumt forskot á Romney.

Obama talar spænsku í nýju myndbandi

Það má með sanni segja að forsetaframbjóðendurnir reyni að gera allt til að ná í atkvæði. Barack Obama hefur nú gefið út myndbanda þar sem hann talar spænsku en með því vill hann höfða til spænskumælandi íbúa í landinu. Myndbandið, sem má sjá hér að ofan, er mjög týpískt - með öllum frösunum sem einkenna kosningabaráttur sem þessar.

Mikið að gera hjá sjúkraflutningamönnum

Mikið hefur verið að gera hjá sjúkraflutningamönnum í höfuðborginni síðasta sólarhringinn því yfir 90 sjúkraflutningar eru skráðir hjá varðstjóra hjá slökkviliðinu frá því á miðnætti í gær. Það er vel yfir meðallagi, að sögn varðstjóra. Flestir flutningarnir snúa að veikindum, en þá hafa einhver minniháttar óhöpp átt sér stað.

„Blóðgjöf bjargaði lífi sonar míns“

"Blóðgjöf bjargaði lífi sonar míns og blóðbankinn er sá banki sem ég skulda mest" segir Signý Gunnarsdóttir, en sonur hennar Gunnar Hrafn glímdi við hvítblæði og þurfti margoft á blóðgjöf að halda.

Rolling Stone um Of Monsters and Men: Salurinn í Hörpu glataður

David Fricke tónlistargagnrýnandi Rolling Stone, eins virtasta tónlistartímarits í heiminum, fer fögrum orðum um Iceland Airwaves-hátíðina sem lauk í gær. Fricke þessi hefur komið hingað til lands síðustu ár og heillast mjög af íslenskum tónlistarmönnum og umstangi hátíðarinnar.

Hætta með auðkennislykilinn

Auðkennislykillinn heyrir nú brátt sögunni til fyrir 100 þúsund Íslendinga því Landsbankinn hefur innleitt nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka sem gerir auðkennislykilinn óþarfan og er fyrsti bankinn á Norðurlöndunum til að gera slíkt.

Spáir Obama sigri

Á morgun ganga Bandaríkjamenn að kjörborðinu og velja sér forseta til næstu fjögurra ára. Kannanir á landsvísu benda til þess að mjótt sé á munum en bandarískur prófessor segir næsta víst að Barack Obama muni tryggja sér endurkjör.

Margar tilkynningar til tryggingafélaga vegna óveðursins

Tryggingafélögin hafa tekið við á þriðja hundrað tjóna tilkynningum vegna óveðursins á föstudaginn. Flestar tilkynningar eru vegna skemmda á fasteignum en fokin trampólín og garðhúsgögn fást ekki bætt.

Villi er sagður hafa leynt upplýsingum

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eirar og núverandi stjórnarformaður, er sagður hafa leynt upplýsingum um slæma fjárhagsstöðu hjúkrunarheimilsins. Það hafi gert það að verkum að vandamálið uppgötvaðist mun seinna en ella.

Er til próf sem sigtar út barnaníðinga?

Sigríður Björnsdóttir verkefnisstjóri samtakanna Blátt áfram segir að allir þeir sem starfi í kringum börn fái fræðslu um hvernig sé hægt að sporna við kynferðisofbeldi.

Jóhann Einvarðsson látinn

Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, flutti minningarorð um Jóhann Einvarðsson, fyrrverandi alþingismann, á þingfundi 5. nóvember 2012. Hann lést síðastliðið laugardagskvöld, 3. nóvember, á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í Keflavík. Hann var 74 ára að aldri.

Tvær unglingsstúlkur krotuðu á Oddgeir

Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið og einna mest í lok vikunnar í tengslum við það norðanóveður sem gekk yfir Eyjarnar, en lögreglan fékk um 20 útköll sem rekja má til veðurhamsins.

Ekki hægt að svipta séra Georg Fálkaorðunni

"Við andlát þarf að skila Fálkaorðunni, það er því erfitt að svipta menn einhverju sem þeir ekki hafa,“ segir Örnólfur Thorsson forsetaritari, spurður hvort það komi til álita að svipta séra Ágúst Georg, fyrrverandi skólastjóra Landakotsskóla, Fálkaorðunni.

Ekið á átta ára barn

Ekið var á átta ára gamalt barn á gatnamótum Langholtsvegur og Laugarásvegar um klukkan tvö í dag. Barnið lenti undir bílnum en náðist fljótt undan honum og að sögn sjúkraflutningamanna virtist barnið ekki hafa slasast alvarlega. Þá voru tveir fluttir á slysadeild þegar árekstur varð fyrir utan Verzlunarskólann um tvöleytið í dag. Þeir fengu nokkuð högg á sig þegar líknarpúðar sprungu út við áreksturinn.

Kaþólska kirkjan stofnar fagráð

Biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, pétur Burcher, skipaði í dag þá Eirík Elís Þorláksson, hrl og sérfræðing við lagadeild Háskólans í Reykjavík, April Frigge, mannfræðing og Skúla Guðmundsson lögfræðing til að veita forstöðu nýju fagráði kirkjunnar varðandi kynferðisbrot.

Michael Jackson í fangelsi fyrir kynferðisbrot

Barnaníðingur að nafni Michael Jackson er vistaður í fangelsi um óákveðinn tíma fyrir að hafa misnotað tíu ára gamlan dreng. Maðurinn heitir í rauninni Albert English en lét breyta nafninu sínu í Michael Jackson af því að fyrrverandi konan hans var svo mikill aðdáandi söngvarans sáluga, að því er fram kemur í frétt Daily Mail. Jackson gekkst við því að hafa beitt drenginn kynferðisofbeldi og haldið honum í þrjá klukkutíma gegn vilja hans.

SA samþykkir að LÍÚ ákveði verkbann

Stjórn Samtaka atvinnulífins samþykkti í dag ályktun þar sem LÍÚ er heimilað að taka ákvörðun um verkbann sem nær til sjómanna sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum sambandsins.

Chris Rock styður Obama: Segir forsetann hvítari en Romney

Hollywoodleikarinn Chris Rock styður Barack Obama í baráttunni um forsetaembættið. Á myndskeiði sem birtist á YouTube myndbandavefnum lýsir Rock yfir stuðningi sínum með sinni margrómuðu kímnigáfu og segist vera að höfða til hvítra Bandaríkjamanna. Hann segir meðal annars að Barack Obama sé hvítari en Romney. Máli sínu til stuðnings bendir hann á að nafn Baracks sé dregið af nafninu Barry sem sé þriðja vinsælasta nafnið yfir hvíta menn. Þetta segir Rock að sjálfsögðu fyrst og fremst í gríni til þess að vekja athygli á stuðningi sínum við forsetann.

Birgitta lögð inn á sjúkrahús

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinna, lenti í andnauð og var flutt með sjúkrabíl á spítala á laugardaginn. Hún er nú inniliggjandi á lungnadeild, í allskonar prófunum.

Vill svipta séra Georg Fálkaorðunni

"Nú legg ég til – nei, ég krefst þess að stórmeistari fálkaorðunnar, sem er núverandi forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, beiti þessu ákvæði þegar í stað."

Hvetja hlaupara til þess að virða umferðarreglur og nota endurskinsmerki

Víða á höfuðborgarsvæðinu eru hlaupahópar starfandi og virðist fjölga með hverju ári. Enn vantar þó upp á að meðlimir í þessum hópum noti allir endurskinsmerki þótt þeir séu á ferð í myrkri á eða við umferðargötur að mati lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Hálka víða á Vestfjörðum

Á Suður- og Vesturlandi eru flestir vegir að verða greiðfærir en þó er hálka á Mosfellsheiði en hálkublettir á Biskupstungnabraut, Þingvallavegi, Lyngdalsheiði og Laxárdalsheiði samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Funda í dag um alvararlega fjárhagsstöðu Eirar

Stjórn Eirar fundar í dag með íbúum um slæma fjárhagsstöðu félagsins. Íbúum hefur verið skipaður lögmaður til að gæta hagsmuna þeirra í þeim samningaviðræðum sem framundan eru.

Annar féll af þaki, hinn stökk - báðir fótbrotnuðu

Nokkuð var um slys á fólki í umdæmi lögreglunnar á Selfossi um helgina. Þannig féllu tveir menn af húsþaki og fótbrotnuðu við fallið. Annar var að lagfæra þakplötur þegar hann rann til á ísingu sem hafði myndast á þakinu. Maðurinn hlaut opið beinbrot.

Frakkar ætla að verða fordómalausasta ríki í heimi

Börn í Frakklandi fá sérstaka kennslu um lesbíur, homma, tvíkynhneigða og transfólk samvkæmt nýjum lögum sem franska ríkisstjórnin er með á teikniborðinu. Franska ríkisstjórnin er líka nýlega búin að kynna frumvarp til laga um að heimila giftingar samkynhneigðra. Atkvæði verða greidd um það frumvarp strax í byrjun næsta árs.

Gróf sig ofan í heita pottinn

Það snjóaði gríðarlega á Dalvík í lok síðustu viku. Guðný Ólafsdóttir kennari og Sigurður Jörgen Óskarsson, eiginmaður hennar, fóru ekki varhluta af því. Heiti potturinn í garðinum hennar fór á kaf undir snjó. "Það snjóaði rosalega, maður hefur ekki séð svona snjó síðan 2004,“ segir Guðný í samtali við Vísi. Hún segir að mesta snjónum hafi kyngt niður á tveimur.

Notaði móður sína í fíkniefnasmygli - aðalmeðferð

Aðalmeðferð fer nú fram í Héraðsdómi Reykjaness yfir fimm einstaklingum sem eru meðal annars ákærðir fyrir að hafa staðið að innflutningi á hálfu kíló af af kókaíni til landsins. Meðal hinna ákærður er Steinar Aubertsson, sem var handtekinn í Hollandi í haust.

Hitler skráður kjósandi í Bandaríkjunum

Í Bandaríkjunum þurfa menn að skrá sig hjá hinu opinbera til þess að mega kjósa. Alls kyns stofnanir og félagasamtök hafa tekið að sér að keyra um með skráningarlista til þess að fjölga kjósendum en nokkuð bar á því um helgina að furðunöfn væru skráð inn. Þannig var til dæmis einn Hitler skráður í Ohio núna um helgina.

Lifum ekki á fjallagrösum - þurfum alvörustörf

"Þegar við sjáum tækifærin hérna þá er svo einkennileg árátta hjá fólki að vilja að fara að vernda allt fyrir okkur," sagði Þórunn Egilsdóttir, oddviti Vopnafjarðarhrepps, í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í gærkvöldi. Kristján Már Unnarsson heimsótti Þórunni og eiginmann hennar, Friðbjörn Hauk Guðmundsson, en þau búa á bænum Hauksstöðum í Vesturárdal í Vopnafirði ásamt þremur börnum sínum.

Réttindalaus og dópaður ökumaður á Selfossi

Ökumaður, sem lögreglan á Selfossi stöðvaði á Eyrarbakkavegi í gærkvöldi, reyndist réttindalaus. Auk þess var hann undir áhrifum fíkniefna, og fíkniefni fundust á tveimur farþegum í bílnum. Einnig fannst lykill að hótelherbergi og þegar það var skoðað, fundust þar líka fíkniefni. Mennirnir, sem hlut áttu að máli, eru allir innan við tvítugt.-

Gríðarlegur húsnæðisskortur í New York

Gríðarlegur húsnæðisskortur blasir við íbúum í norðausturhluta Bandaríkjanna vegna óveðursins sem geysaði þar í síðustu viku. Tugþúsundir manna hafa hvorki rafmagn né hita og búa í húsnæði sem er stórskemmt eftir óveðrið. Andrew Cuomo ríkisstjóri í New York og Michael Bloomberg borgarstjóri sögðu á blaðamannafundi í gær að hætta væri á ferðum nú þegar það færi að kólna í veðri. Þá fyrst kæmi í ljós að mjög mörg hús væru ónýt.

Endaspretturinn framundan

Lokadagur kosningabaráttunnar í Bandaríkjunum er í dag og á morgun verður kjörfundur. Skoðanakannanir á landsvísu sýna jafna stöðu Obama og Romneys, en þær segja aftur á móti ekki alla söguna.

Ráðherra í ástarsambandi við átta karlmenn

Rachida Dati, fyrrverandi dómsmálaráðherra Frakklands, átti í sambandi við átta karlmenn, umþaðbil sem hún varð þunguð af barni, sem hún ól fyrir þremur árum. Frá þessu var greint nýlega þegar leit hennar að föðurnum hófst.

Miklar rafmagnstruflanir í alla nótt

Miklar rafmagnstruflanir hafa verið í Grafarvogi, Víkurhverfi, Grafarholti, Kjalarnesi og í Mosfellsbæ síðan seint í gærvköldi og í alla nótt. Hverfin urðu meira og minna rafmagnslaus vegna bilunar í spennivirki við Korpu. Þá varð sprenging og eldur gaus upp í tengiboxi við Spóahöfða. Þar er unnið að viðgerð. Undir morgun fengu starfsmenn Orkuveitunar aðstoð frá slökkviliðinu við að þvo seltu af tengingum þar. Liðið sendi mannskap á dælubíl og tankbíl og lauk hreinsuninni um klukkan sex í mrogun. Rafmagn ætti því að vera komið á aftur, eða umþaðbil að komast á.-

Enn einn kveikir í sér í Tíbet

Tíbetskur listamaður lést eftir að hafa kveikt í sér í bænum Tongren í vesturhluta Kína í gærmorgun. Maðurinn, sem hét Dorje Lungdup og var málari, vildi með þessu þrýsta á um endurkomu Dalaí Lama til Tíbets og að kínversk stjórnvöld létu af yfirráðum þar.

Getur gengið, talað og lesið

Pakistanska stúlkan, Malala Yousufzai, sem skotin var í höfuðið í síðasta mánuði, er á góðum batavegi. Sendiherra Pakistans í Sameinuðu arabísku furstadæmunum fullyrti þetta á stúdentafundi sem haldin var til heiðurs Yousufzai í Dubai í gær.

Vísa árlega frá milljón gestum

Upplýsingastjóri veitingastaðarins Noma í Kaupmannahöfn telur að frá hafi þurft að vísa yfir milljón manns sem reynt höfðu að panta borð á staðnum á liðnu ári. Staðurinn getur tekið á móti 20 þúsundum gesta.

Sjá næstu 50 fréttir