Fleiri fréttir

Hugleiða að skrá vélar sínar í Svíþjóð

Félagar í Svifflugfélagi Íslands hugleiða að skrá svifflugvélar sínar í Svíþjóð. Þeir segja Flugmálastjórn Íslands fara offari í túlkun og framkvæmd nýrra Evrópureglna. Flugmálastjórn segist hafa fullvissu frá Evrópu um að rétt sé farið að.

Íslensk löggjöf vekur athygli víða um heim

Talskona Stígamóta hefur ferðast um allan heim til að kynna íslenska löggjöf er varðar vændi og mansal. Segir eftirfylgni lögreglu verulega ábótavant. Talskona vændisfólks í Skandinavíu segir löggjöfina ýta undir mansal og vændi.

Bandarískir svindlarar í áratugalöng fangelsi

Tveir bandarískir karlmenn hlutu í gær áratugalanga fangelsisdóma fyrir umfangsmikinn fjárdrátt á árunum 2006-2011. Mennirnir drógu sér því sem nemur sex milljörðum króna og fór svindlið fram í sex fylkjum í Bandaríkjunum. Annar mannanna var dæmdur í 27 ára fangelsi en hinn í 22 ára fangelsi. Mennirnir eru helstu forsprakkar stórs glæpahrings sem stóð að svindlinu, sem fólst meðal annars í því að starfsmenn banka komust yfir persónuupplýsingar viðskiptavina bankans og nýttu þær til að draga sér fé. Alls hafa 27 manns í glæpahringnum verið dæmdir eða játað sekt.

Hælisleitendur handteknir við Grundartanga

Lögregla handtók tvo hælisleitendur á hafnarsvæðinu við Grundartanga í gær og er talið fullvíst að þeir hafi ætlað að laumast um borð í millilandaskip. Annar er frá Marokkó og hinn frá Alsír og hafa þeir báðir gert ítrekaðar tilraunir áður til að laumast um borð skip, sem fara héðan til útlanda.-

Stofnandi Cosmopolitan látin

Helen Gurley Brown, fyrrverandi ritstjóri tímaritsins Cosmopolitan og höfundur metsölubókarinnar Sex and the Single Girl, lést í gær. Brown skrifaði bókina árið 1962 og með henni vildi hún sýna fram á að konur gætu átt eigin starfsframa og um leið hamingjusamt hjónaband og gott kynlíf, en þetta þótti nokkuð framandi hugmynd á þeim tíma. Brown ritstýrði Cosmopolitan í meira en þrjá áratugi. Hún var níræð þegar hún lést.

Hersveitir lentar með sex F-16 þotur

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins (NATO) hófst á ný í gær. Nú munu Portúgalar sinna verkefninu en ráðgert er að það verði unnið með sama fyrirkomulagi og áður hefur verið gert og í samræmi við samninga sem í gildi eru. Þá er áætlað að verkefninu ljúki um miðjan september.

Réðst á lögreglumenn sem hugðust handtaka hann

Æði rann á karlmann, þegar lögreglumenn ætluðu að handtaka hann fyrir einhverskonar húsbrot í miðborginni laust eftir miðnætti. Hann reyndi að sparka í lögreglumennina og hrækja á þá, en þeir náðu að yfirbuga hann. Ekki kemur fram í tilkynningu frá lögreglu í hverju húsbrotið var fólgið, en maðurinn er vistaður í fangageymslu og á yfir höfði sér kæru, meðal annars fyrir brot gegn valdstjórninni.-

Bifhjólamaður slasaðist á Vífilsstaðarvegi

Ökumaður bifhjóls slasaðist þegar hann missti stjórn á hjólinu á Vífilsstaðavegi um tíu leitið í gærkvöldi. Talið er að hann hafi beinbrotnað og var hann fluttur á Slysadeild Landsspítalans. Tölur benda til að heldur færri bifhjólaslys hafi orðið í sumar, en undanfarin sumur.-

Fjórir slösuðust við Hvolsvöll

Fjórir slösuðust en tveir sluppu ómeiddir þegar bíll valt austan við Hvolsvöll upp úr miðnætti. Hinir slösuðu voru fluttir í tveimur sjúkrabílum á slysadeild Landsspítalans, en egnin þeirra er lífshættulega meiddur. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en bíllinn valt á sjálfum veginum og lá þar á hvolfi þegar björgunarmenn og lögreglu bar að.

Norskt dagblað vill Stoltenberg burt

Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, ætti að segja af sér embætti vegna sannleiksskýrslunnar um hryðjuverkin í Noregi í fyrra, að mati leiðarahöfundar norska blaðsins Verdens Gang.

Vilja banna nýnasistaflokkinn í Þýskalandi

Komin er upp hávær krafa í Þýskalandi um að nýnasistaflokkurinn, NPD, verði bannaður með lögum þar í landi. Á vef danska ríkisútvarpsins segir að fjórir ríkisstjórar í Þýskalandi hafi að undanförnu farið fram á að flokkurinn verði bannaður og krefjast þess að bæði þýskir ráðherrar og þingmenn láti málið til sín taka. Torsten Albig, ríkisstjóri í Schleswig-Holsten, segir að flokkurinn berjist gegn gildum samfélagsins og við það sé ekki hægt að una.

Gengur 300 kílómetra yfir England

Kristinn H. Einarsson, formaður Blindrafélagsins freistar þess að ganga 300 kílómetra þvert yfir England á tíu dögum ásamt fleirum blindum og sjónskertum einstaklingum.

Borgarskákmótið haldið í 27. sinn

Borgarskákmótið verður haldið í 27. sinn í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag klukkan 16.00. Mótið var fyrst haldið á 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar árið 1986 og hefur verið haldið ár hvert síðan þá.

Vopnaþungi uppreisnarinnar meiri

Sýrlenskir uppreisnarmenn segjast hafa skotið niður orrustuflugvél stjórnarhersins. Þeir halda flugmanni vélarinnar nú föngnum en sá náði að skjóta sér úr vélinni áður en hún varð eldi að bráð og hrapaði. Sýrlenski stjórnarherinn greindi frá því að flugmaðurinn hefði yfirgefið vélina en segja ástæðuna hafa verið bilun í vélinni.

Barist við sex skógarelda á Spáni

Tveir slökkviliðsmenn í Alicante á Spáni eru látnir eftir að hafa barist við skógarelda þar. Í gær var barist við sex skógarelda í landinu og hafa margir þurft að yfirgefa heimili sín vegna þessa.

Maður skotinn til bana í Osló

Þrjátíu og eins árs karlmaður var skotinn til bana fyrir utan bensínstöð við Ensjø-lestarstöðina í Osló í kvöld. Samkvæmt fréttavef norska ríkisútvarpsins var viðbúnaður lögreglu mikill á svæðinu en fórnarlambið lést af sárum sínum á sjúkrahúsi.

Sló óvænt í gegn á YouTube

Söngvari frá Suður-Kóreu hefur slegið í gegn á veraldarvefnum á síðustu vikum eftir að hann frumsýndi myndband við nýtt lag. Yfir 27 milljónir hafa horft á myndbandið á Youtube.com.

Sænska leiðin auðveldar útbreiðslu HIV

Sænska leiðin er líkleg til að auka útbreiðslu á HIV veirunni og veldur fólki í vændi miklum skaða. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Formaður HIV-samtakanna segir lög ekki koma í veg fyrir vandann. Ræða þurfi um nýjar lausnir.

Fagna nýju ári með varðeldum

Hundruð varðelda loga nú í kínversku borginni Xichang. Yi-þjóðflokkurinn fagnar nú nýju ári og kveður um leið ára og illa anda á brott.

Skotárás við háskóla í Texas - þrír látnir

Að minnsta kosti þrír eru látnir eftir að maður hóf skothríð í grennd við A&M háskólann í Texas í Bandaríkjunum síðdegis í dag. Einn af þeim látnu er lögregluþjónn samkvæmt New York Times. Mikil hræðsla greip um sig á meðal nemenda á svæðinu þegar maðurinn hóf skothríð við eina af byggingunum. Lögreglumaðurinn sem lést fór inn í hús byssumannsins eftir að tilkynnt var um skothríðina og var hann skotinn eftir að hann fór inn í íbúðina. AP fréttastofan hefur eftir lögreglu að byssumaðurinn hafi verið fluttur á spítala eftir að hafa orðið fyrir skoti en hafi látist af sárum sínum á spítala.

Hárprúði borgarstjórinn dansaði við Spice Girls

Boris Johnson, borgarstjóri Lundúna, sló heldur betur í gegn á lokaathöfn Ólympíuleikanna í borginni þegar stúlknahljómsveitin Spice Girls steig óvænt á svið. Á myndskeiði sem birt hefur verið á Youtube.com sést borgarstjórinn dansa við lagið Spice Up Your Life en við hlið hans er David Cameron, forsætisráðherra landsins, ásamt eiginkonu sinni Samönthu.

Olíurannsóknir gengu framar vonum vegna veðurblíðu

Olíurannsóknaleiðangur á Jan Mayen-hryggnum, sem áætlað var að tæki rúma þrjá mánuði, gekk mun betur vegna einmuna veðurblíðu á svæðinu og lauk honum fyrir helgi eftir aðeins liðlega tveggja mánaða útivist. Rannsóknarleiðangurinn nýtti Akureyri sem þjónustumiðstöð og voru þessar myndir teknar þar fyrr í sumar þegar flotinn kom þangað inn til áhafnaskipta og til að sækja sér vistir og aðra þjónustu.

Stjórnarslit ekki í kortunum

Ríkisstjórnarsamstarfið er ekki í hættu, þrátt fyrir að þrír ráðherrar Vinstri grænna hafi lýst yfir að endurskoða þurfi umsókn að Evrópusambandinu. Þetta er mat fjölmargra stjórnarþingmanna sem fréttastofa ræddi við í dag.

"Rothöggið" staðfest á fundi með ríkisstjórninni

"Ég verð að segja að rothöggið var staðfest á þessum fundi okkar með fjármálaráðherra í dag,“ segir Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Samtökin funduðu með Oddnýju G. Harðardóttur fjármálaráðherra í dag um skattahækkun á gistinætur á Íslandi.

Í vímu undir stýri - en hefur aldrei fengið bílpróf

Sautján ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tólf þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Kópavogi og einn í Garðabæ og Hafnarfirði. Fimm voru teknir á laugardag, ellefu á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru þrettán karlar á aldrinum 21-65 ára og fjórar konur, 18-35 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.

Hvað gerir þetta bláa teip?

Ólympíuleikaveislan er nú á enda eftir margar vikur af íþróttaviðburðum af öllum stærðum og gerðum. Það var þó eitt sem var meira áberandi frá síðustu Ólympíuleikum og það eru þessi bláu teip sem íþróttamenn voru með víðsvegar um líkamann.

Lækka gatnagerðargjöld um helming

Bæjarráð Stykkishólms hefur samþykkt að lækka gatnagerðargjöld um 50% á ákveðnum lóðum. Einnig var samþykkt að fella niður gjald vegna uppfyllingar ákveðinnar lóðar. Ástæðan er sögð sú að skortur sé á íbúðarhúsnæði og rétt sé að hvetja til bygginga. Einnig er talið að aðgerðirnar geti eflt byggingariðnað á svæðinu. Frá þessu er sagt á vef Skessuhorns.

Bretar ánægðir með Ólympíuleikana

Nýliðnir Ólympíuleikar í Lundúnum eru bestu Ólympíuleikar sögunnar. Þetta segir að minnsta kosti breska blaðið Daily Telegraph sem hefur skoðað fréttaumfjöllun miðla víða að úr heiminum um leikana.

Stökkbreytt fiðrildi frá Fukushima

Geislavirkni í kjölfar kjarnorkuslyssins í Fukushima í Japan virðist hafa leitt til stökkbreytinga hjá fiðrildum á svæðinu. Vísindamenn segja að fiðrildi á svæðinu hafi öðruvísi fætur, vængi og fálmara.

Lögregla með tuskudýr í vörslu sinni

Nokkur fjöldi tuskudýra, sem öll fundust á sama staðnum, er í óskilum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eigandinn getur vitjað þeirra hjá lögreglunni en krafist verður staðfestingar á eignarhaldi. Upplýsingar eru veittar í síma 444-1000 en einnig má senda fyrirspurnir í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is.

Dómstólar misnota gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna

Lögmaðurinn Ragnar Aðalsteinsson sakar íslenska dómstóla um að mistúlka og misnota heimild til að úrskurða sakborninga í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Í nýjasta tölublaði Úlfljóts, tímarits laganema, skrifar hann grein ásamt lögfræðingnum Fanney Hrund Hilmarsdóttur þar sem íslensk dómaframkvæmd er m.a. borin saman við dómaframkvæmd Mannréttindadómstólsins.

Útilokar ekki afsögn vegna sannleiksskýrslunnar

Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segist miður sín yfir því að björgunaraðgerðir hafi tekið of langan tíma þann 22. júlí í fyrra og að Anders Behring Breivik skyldi ekki hafa verið handtekinn fyrr en raunin varð. Þetta sagði hann á blaðamannafundi eftir að sannleiksskýrsla um atburðina var birt í dag. Hann lofar því að styrkja björgunarlið.

DUST 514 og EVE tengjast í fyrsta sinn

Tölvuleikirnir EVE online og DUST 514 munu tengjast í fyrsta sinn eftir rétt rúma viku. Þá munu spilendur beggja leikjanna geta talað saman, skipulagt árásir og fleira í fyrsta sinn.

Ökufantar stungu af

Ekið var á tvær kyrrstæðar og mannlausar bifreiðar á bifreiðastæðum í Reykjanesbæ um helgina, önnur þeirra stóð gegnt Hótel Keflavík og hin á Skógarbraut á Ásbrú framan við byggingu 1106, stigagang 2.

Mannlaus vagn fékk hvatningarverðlaun Hinsegin daga

Vagninn hér til hliðar hlaut hvatningarverðlaun Hinsegin daga 2012. Honum var mannlausum ekið í Gleðigöngunni með þessari einu áletrun "Fyrir vini okkar sem hafa ekki frelsi til að fagna Hinsegin dögum".

Rannsókn lokið á máli hrottanna í Breiðholti

Lögreglan hefur lokið við rannsókn á máli tveggja manna sem réðust inn á karlmann í Breiðholti fyrr í sumar, sviptu hann frelsi sínu í sex klukkustundir og neyddu hann til að millifæra pening af bankareikningi sínum yfir á þeirra bankareikning. Málið hefur verið sent ríkissaksóknara sem tekur ákvörðun um það hvort mennirnir verði ákærðir eða ekki. Mennirnir hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því að þeir voru handteknir.

Margir nota grænu hjólin í ljósmyndasamkeppni

Nú keppist fólk um að fanga stemninguna á Sumargötum Borgarinnar með linsunni, enda stendur yfir ljósmyndasamkeppni á vegum Reykjavíkurborgar. María Markó, vöruhönnuður, sem stendur fyrir verkefninu segir að fjöldi mynda hafi skilað sér en hvetur fólk til að nýta síðustu dagana og koma sínum myndum að. Keppninni lýkur 19. ágúst.

Ólga í VG

Svo virðist sem ólga sé komin í raðir Vinstri Grænna eftir að ráðherrarnir Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttur tóku nýverið undir með Ögmundi Jónassyni um að endurmeta þurfi aðildarferlið.

Upplýsingafulltrúi gæti aukið traust á dómskerfið

Það stendur dómstólum nær að efla kynningarstarf sitt og reyna að auka trúverðugleika sinn, mögulega með því að gera út upplýsingafulltrúa Hæstaréttar. Þetta segir Sindri M. Stephensen, ritstjóri Úlfljóts, tímarits laganema í stuttu ávarpi fremst í nýjasta tölublaðinu. Þar veltir hann vöngum yfir litlu trausti þjóðarinnar á dómskerfi landsins.

Ungir sjálfstæðismenn vilja prófkjör fyrir næstu kosningar

Ungir sjálfstæðismenn skora á kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í öllum kjördæmum að halda prófkjör fyrir alþingiskosningarnar næsta vor. Í ályktun sem ungliðarnir sendu frá sér í morgun segir að lýðræði í flokknum hafi verið aukið á ýmsa vegu með breytingum sem gerðar voru á skipulagsreglum flokksins á síðasta landsfundi. Það væri í hrópandi ósamræmi við þá stefnumörkun landsfundar að halda ekki prófkjör enda séu prófkjör lýðræðislegasta leiðin til velja fulltrúa flokksins í kosningum.

Missti hníf á fótinn á sér

Síðasta vika gekk ekki slysalaust fyrir sig á Suðurlandi í síðustu viku. Til að mynda lenti kona með fingur í hekkklippum og hlaut stóran skurð á fingurinn. Konan fór á slysavakt á heilsugæslunni á Selfossi þar sem nokkur spor voru saumuð í fingurinn. Maður slasaðist á höfði og braut tönn þegar hann datt á andlitið á tjaldsvæðinu í Miðdal.

Sjálfboðaliðar leita Sigrid í dag

Rúm vika er síðan hin sextán ára gamla Sigrid hvarf sporlaust, steinsnar frá heimili sínu í Ósló. Hennar er nú leitað á alþjóðlegum vettvangi en grunur leikur á að hún hafi verið numin á brott þegar hún var á leið heim til sín aðfaranótt sunnudags.

Vetraráætlun Strætó tekur gildi

Vetraráætlun Strætó á höfuðborgarsvæðinu tók gildi í gær. Vetraráætlun er því viku fyrr á ferðinni en vanalega og er það liður í að koma til móts við farþega með því að auka tíðni fyrr og ná fram úrbótum á leiðarkerfi farþegum til hagsbóta.

Sjá næstu 50 fréttir